Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 30 Haust- sýning FÍM -kjaminn Náttúrustemnining • • • GUÐMUNDUR Benodiktsson nam í Reykjavík og hann hélt í námsferðir til Danmerkur, Frakklands og Enxlands. Hann hefur sýnt á samsýninjíum er- lendis sem hérlendis ok síðan 1955 hefur hann næstum alltaf sýnt á haustsýninjfum FÍM. — Þessi verk mín fimm, hér á sýningunni, eru öll unnin í eir, og öll frá þessu ári, sagði Guðmundur. Það heitir „Par“ þetta verk sem ég stend við. Eg hef unnið síðustu árin mikið í eir, og hef ekki hug á því að snúa mér aftur að trénu eða járninu, ekkert í bráðina a.m.k. Eirinn er skemmtilegt efni og hann gefur mikla möguleika, en vinnan er talsverð, miklar suður, og það verður að fara varlega í sakirnar þegar unnið er með eir. Nei, það er engin sérstök saga bak við þessi verk mín, enginn boðskapur, nema kannski nátt- úruskoðun. Eg hef mikla ánægju af ferðalögum og náttúruskoðun. Við getum sagt það séu náttúrú- stemmningar í þessum verkum. Hún er ótæmandi brunnur af möguleikum, náttúran. Það þarf ekki annað en taka upp stein- völu! Skamm- degis- geggjun Valtý Pétursson þarf reyndar ekki að kynna í Mbl. Hann hefur skrifað í það um listir i þrjátiu ár. Og hann er löngu kunnur málari. Valtýr Péturs- son nam erlendis og í París 1949. Hann var einn September- manna og sýndi á öllum þeirra sýningum og síðustu sjö árin hefur hann sýnt með Septem- hópnum. — Þessi þarna, segir Valtýr og bendir á mynd númer 29, það er í henni skammdegisgeggjun. Þeir eru margir, sem sjá skammdegið sem rigningar- sudda — skammdegið sem er fullt af litum! Og þar er þessi eilífa barátta milli ljóss og skugga sem skapar þessa ágætu geðveiki sem einkennir íslend- inga. Þeir sögðu mér úti í Þýzkalandi, að það væri kannski ný útgáfa af norrænum express- íonisma í þessari mynd. Ég veit ekkert um það, en það er í henni skammdegisgeggjun. Já, þetta hefur verið erfitt hjá mér undanfarið. Ég var með sýningu í Þrastalundi í sumar, og svo með verk á Septem og nú á haustsýningu FÍM. Já, það hefur verið mikið álag, enda ætla ég að leyfa mér að vera geðveikur það sem eftir er af skammdeginu. Eins og þú sérð, eru myndirn- ar á þessari sýningu allt aðrar en í Septem. Þessar myndir mínar hér eru ekkert framhald af Septem-sýningunni. Rithöf- undurinn myndi segja, að þetta væri ný bók hjá sér — ekki seinna hefti. Og það er eitthvað í þessu samvali hérna hjá mér sem ég skammast mín ekki fyrir. — Það kemur ekki málinu við hvað maðurinn er, heldur hvað hann gerir, sagði einu sinni góður maður. Við Islendingar getum vel við unað þá grósku sem hér ríkir í öllum listum. Bíddu samt við, menningin er ágæt til frásagnar — það er annað að hafa hana fyrir augun- um ... (Myndin sem Valtýr situr við er ekki „skammdegisgeggjunin", heldur Kaffibrúsinn). — J.F.Á. Maður hugsar ekki svoleiðis... ÁSGERÐUR Búadóttir vefja- listakona. Hún hefur tekið þátt í f jölda samsýninga, hér- lendis og erlendis. Og á haustsýningu FÍM á hún 7 myndir ofnar. Ein þeirra heitir sjö listfletir. — Já, ég óf þessa mynd í minningu sjö kollega minna í listinni, og allar konur. Við vorum á svipuðu reki og allar í FÍM utan ein, sumar okkar voru vinkonur, aðrar saman í skóla og nú eru þær dánar. Þær voru Nína, Gerður, Eyborg, Bar- bara, Aslaug, Ragnheiður, María. Mér þykir bezt að vinna stórar myndir, segir Ásgerður. Mér finnst ég þá vera að takast á við stærri hluti. Ég hef selt þrjár, já, þær minnstu. Nei, það er mér ekki hvatning til þess að snúa mér að lit- minni myndum. Maður hugsar ekki svoleiðis, það er annað sem sækir á mann ... Það er fleira gler en í glugga Leifur Breiðfjörð glerlistar- maður. Hann á að baki langan námsferil á fslandi og í útlönd- um. Hann hefur sýnt á fjöl- mörgum samsýningum og hald- ið tvær einkasýningar. Og það stendur í sýningarskrá, að Leifur sé félagi í „The British Master Glasspainters Society" í Lundúnum. Hann á tíu verk, Leifur, á þessari haustsýningu FIM. — Þessi verk, segir hann, eru háð umhverfi sínu. Um- hverfið speglast í verkunum. Ég vinn mikið með umhverfið í huga. Og þau er síbreytileg, þessi verk, eftir birtunni, sem leikur um þau. Þess vegna er haustið kannski ekki bezti tím- inn til sýninga á verkum unnum í gler, en ljóskastararnir lýsa vel á kvöldin. Já, það heitir Valdafl þetta verk sem ég stend við. Ég er að reyna að sýna fram á aukna möguleika glersins — glerið má nota í fleira en glugga. Og sú er kannski fyrst og fremst ætlun mín, að sýna fram á það á þessari sýningu. Þessir speglar já, sem liggja á gólfinu, þeir hafa vakið eftirtekt. Þetta er eins konar loftsýn. Eins og þú veist þá er ekki til sá maður, sem ekki talar illa um þetta loft hér á Kjarvalsstöðum, allir vilja það burt og þeir voru að segja, að eiginlega væri þetta fyrsta til- raunin til að ná þessu fallega lofti niður. Hugleiðingar - ekki speki... Þórður Ilall. Hann nam á íslandi. svo í Svíþjóð og síðan hefur hann kennt og málað. Hann hefur sýnt á fjölda samsýninga innan- lands og utan. Ilann á níu verk á haustsýningu FÍM. Fimm svokölluð sáldþrykk og fjórar teikningar. En hvað er sáldþrykk? — Það er þegar það er litur í grafíkmyndum, segir hann. Og teikningarnar finnast mér vega svolítið upp á móti litnum í sáldþrykkinu. Ég hef reyndar aldrei sýnt teikningar fyrr. Eigum við ekki að 3egja, að ég vinni út frá landslaginu, náttúruformum. Þessi verk eru kannski hugleiðingar um sam- band mannsins við landið, við náttúruna. Nei, þetta er engin speki. Og haustsýning FÍM er í heildina sterk. Það er rétt stefna að láta eins konar kjarna mynda uppistöðu sýn- ingarinnar, og það skapar skemmtilega fjölbreytni, þetta að velja menn úr ólíkum grein- um í kjarnann. Nei, ég er ekkert að hugsa um einkasýn- ingu. Ég læt hverjum degi nægja sínar þjáningar, segir Þórður Hall.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.