Morgunblaðið - 17.10.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980
5
Mótmæla vinnubrögðum við
samkeppni um biðskýli
Morgunblaðinu hefur bor-
izt eftirfarandi frétt.
í tilefni af samkeppni um
strætisvagnabiðskýli sem
nú stendur yfir á vegum
Strætisvagna Reykjavíkur í
samvinnu við Arkitekta-
félag íslands. vilja stjórnir
Félags húsgagna- og innan-
húsarkitekta. Listiðnar, og
Félags landslagsarkitekta,
lýsa yfir eftirfarandi:
Samkeppni á sviðum sem
snerta umhverfi fólks er
brýn nauðsyn og viljum við
hvetja til þess að þeim sé
komið á svo oft sem kostur
er. Samkeppni stuðlar að því
m.a. að fleiri hugmyndir
koma fram að lausn verkefn-
is heldur en ef aðeins einum
aðila er falin umsjón þess.
Sú umræða sem skapast
við aukinn fjölda þátttak-
enda er nauðsynlegur undan-
fari þess að fólk almennt
hafi möguleika á að hafa
áhrif á mótun umhverfis
síns.
Verkefni eru misjafnlega
til þess fallin að hafa um þau
samkeppni sem öllum skuli
standa opin. Iðnhönnunar-
verkefni á borð við strætis-
vagnabiðskýli sem teljast til
daglegra þarfahluta alls
þorra fólks í þéttbýli er
kjörið til slíkrar opinnar
samkeppni. Reyndin er hins
vegar sú að samkeppni þessi
er einskorðuð við þær fáeinu
starfsstéttir sem réttindi
hafa til að leggja uppdrætti
af húsum fyrir byggingar-
nefnd Reykjavíkur.
Með þessu er brotið gróf-
lega á þeim stéttum hönnuða
sem hafa menntun og þekk-
ingu til að fást við verkefni á
borð við það sem hér um
ræðir.
Hér hefur auk þess að
okkar mati farið forgörðum
kjörið tækifæri til að stuðla
að almennri þátttöku fólks í
mótun umhverfisins, sem
jafnframt er ein meginfor-
sendan fyrir framförum á
þeim sviðum.
Við viljum eindregið mót-
mæla þessum vinnubrögðum
en jafnframt hvetja opinbera
aðila og einkaaðila til að
rjúfa þá einokun sem virðist
hafa myndast í þessum efn-
um.
Loðna og togara-
fiskur á Skaganum
VÍKINGUR AK 100 kom hingað í
vikunni með 200 lestir af loðnu til
löndunar og er það í annað sinn,
sem hann kom hingað á þessari
vertíð. Hugrún frá Bolungarvík
kom einnig með 460 lestir og var
þessum afla landað í Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjuna. Allir
Akranestogararnir þrír komu
einnig í vikunni með 130 lestir
hver, sem fór til vinnslu í frysti-
húsunum. Skipin eru nú farin til
veiða. _ Júlíus.
Leiðrétting
í BLAÐINU í gær misritaðist
eftirnafn Guðrúnar Egilson í
myndatexta með frétt frá mála-
ársnefnd Norrænafélagsins á Is-
landi og er hún hér með beðin
velvirðingar á þessum mistökum.
LIONSMENN gáfu tvo heita potta við sundlaugina Ásgarði, Garðabæ. Hér eru þeir að störfum við pottana.
en þeir hafa nú verið teknir i notkun.
Garðabær og Bessastaðahreppur:
Lionsmenn selja ljósaperur á morgun
LIONSMENN í Garðabæ og
Bcssastaðahreppi munu ganga
í hús og bjóða ljósaperur til
kaups á félagssvæði sínu á
morgun. Allur ágóði af sölunni
rennur t líknarsjóð klúbbsins.
Verkefni klúbbsins undanfar-
in ár hafa verið margskonar á
„ÞAÐ ER ekki mikill áhugi fyrir
því að breyta miklu í málefna-
samningum þvi okkur finnst
þetta býna gott,“ sagði Kristján
Benediktsson horgarfulltrúi
Framsóknarflokksins i samtali
við Mbl. í gær þegar hann var
spurður að þvi hvernig liði
cndurskoðun á málefnasamningi
hor garst jór n a r m ei r i h I u ta ns.
„Við erum búin að sitja á
fundum um málið," sagði Krist-
ján, „en breyting byggist á því að
sviði mannúðar-, líknar- og
menningarmála. Á þessu ári
hefur klúbburinn gefið tvo heita
potta við sundlaugina í Garða-
bæ. Þá hafa þeir gefið Hjálpar-
sveit skáta í Garðabæ hjálpar-
og björgunartæki og vistheimili
áfengissjúklinga að Vífilstöðum
þrír aðilar séu sammála um að
breyta. Það hafa engar breytingar
verið gerðar og ég get alveg eins
búizt við því að haldið verði áfram
eftir óbreyttum málefnasamningi,
enda verður minni áhugi á því að
breyta eftir því sem nær dregur
kosningum. Við framsóknarmenn
munum ná því fram sem við
vildum breyta á annan hátt en í
breytingu á málefnasamningi og
t.d. verður kosið í stjórnkerfis-
nefnd í borgarstjórn á næstunni
samkvæmt vilja okkar."
voru gefnar fræðslumyndir. Á
verkefnaskrá þessa árs er aðstoð
við aldraða.
I fréttatilkynningu frá
Lionsklúbbnum segir að félagar
þakki stuðning á undanförnum
árum og vona þeir að íbúar
Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps taki vel á móti þeim nú
sem áður og styrki líknarsjóð
klúbbsins um leið og þeir kaupa
ljósaperur til vetrarins.
Endurskoðun málefnasamnings
borgarstjórnarmeirihlutans:
„Okkur fiirnst málefnasamn-
ingurinn býzna góður“
— segir Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi og telur litla þörf á breytingum
Þjóðviljinn um viöskiptaráðherra:
„Tómas losnar ekki við hauginn af
því hann er bundinn við drauginn44
í ritstjórnargrein í Þjóðviljanum
i gær er Tómasi Árnasyni,
viðskiptaráðherra ráðlagt, að
„moka verðhækkanahaugnum út
úr verðlaginu en ekki inn í það“.
Tilefni þessarar ráðleggingar
ÞjMviljans til viðskiptaráðherra
eru ummæli hans fvrir nokkrum
dögum þess efnis. að hroll setti að
honum er hann hugsaði til verð-
bólguöldunnar, sem skella mundi
yfir eftir 1. desember nk.
Orðrétt eru ráð Þjóðviljans til
Tómasar Arnasonar á þessa leið:
„Tómas losnar ekki við hauginn (þ.e.
verðhækkanahauginn) af því hann
er bundinn við drauginn. Það er
niðurstaðan af þessu spjalli. Hins
"Vegar gæti hann tekið úr sér
hroilinn með því að spreyta sig á að
moka verðhækkanahaugnum út úr
verðlaginu en ekki inn í það. Þá
myndi hann losna við drauginn.
Svona einfalt er málið á pappírnum
og í kjaftinum fyrir kosningar, en
„að endingu standa sig þeir einir,
sem vanda sig frá upphafi í því, sem
er innan handar að standa sig í“.
Það hefði Tómas Árnason átt að
athuga áður en hann samþykkti að
byrja að telja niður verðlagið á
undan verðbótunum."