Morgunblaðið - 17.10.1980, Síða 13

Morgunblaðið - 17.10.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 13 Næg bílastæði í Hamraborg MARGAR verzlanir eru til húsa í Hamraborg 10—14 i Kópavogi og þeir í Kópavoginum hafa það fram yfir marga aðra. að þeir hafa yfir nægum bílastæðum að ráða. Auk bilastæða við verzlanirnar i götunni eru um 270 bílastæði í bilageymslu innanhúss og þar eru yfir 200 stæði til almennra nota allan daginn. Innangengt er frá bílageymslunni i allar verzlanirnar. (Ljósm. Kristján). Hækkun á þorskblokk er ekki líkleg á næstunni Rætt við Þorstein Gíslason, forstjóra Coldwater Seafood í Bandaríkjunum í SAMTALI við borstein Gíslason. forstjóra Coldwater Seafood Corp- oration, sölufyrirtækis Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna i Bandaríkjunum. i gær kom fram. að hann er ekki sérlega bjartsýnn á að verð á þorskblokk hækki í Bandarikjunum á næstu mánuð- um. Upplýsingar þessa efnis komu fram á blaðamannafundi Stein- grims Hermannssonar sjávar- útvegsráðherra fyrr i vikunni. borsteinn var þó fyrst spurður um stöðuna almennt á Bandarikja- markaði. „Eftir tímabil mjög erfiðra mark- aðsskilyrða í sumar tókst Coldwat- er loksins í september að ná upp sölu umfram það sem var í sama mánuði árið á undan," sagði Þor- steinn Gíslason. „Enn eru þó tals- verðir erfiðleikar á sölu á ýmsum tegundum afurða okkar og ekki er hægt að segja um það enn hvort salan sé komin í eðlilegt horf. Þegar við miðum við síðasta ár í tali um sölu eins og tíðkast, þá ber að hafa það í huga, að árið í fyrra var algjört metár og í ár hefur okkur aðeins tekizt að selja svipað og árið 1978, sem á sínum tíma var einnig metár. Þótt erfitt reynist að ná eins mikilli sölu og okkur hentar hverju sinni, þá er hæpið að kalla núverandi ástand sölutregðu þegar miðað er við hina geysilegu sölu- aukningu síðustu ára.“ — Er útlit fyrir verðhæk<anir? „Þýðingarmesta tegund freðfisks, sem Islendingar selja til Bandaríkj- anna, eru þorskflök í pakkningum, sem skila miklu meira verðmæti heldur en þorskblokkir. Verðlag okkar á þorskflökum hefur verið um 43 centum hærra á hvert pund heldur en margra stærstu keppi- nauta okkar. Lengi var talið, að við gætum ekki haldið þessum mismun, en nú er orðið ljóst að við getum það. Auðvitað er sífellt sótt að okkur í sölusamkeppni meðan slík- ur verðmismunur helzt og því er ekki hægt að búast við, að við getum hækkað verðið enn og breikkað bilið milli okkar verðs og þeirra sem keppa við okkur. Það liggur ekkert fyrir um hvenær það verður mögulegt. Verð þorskblokkar mótast af þáttum, sem við eigum litla aðild að og það virðist nú að verðlag þeirra í Bandaríkjunum sé nú lægra en á öðrum mörkuðum. Verksmiðjur hér í landi, sem vinna úr þorskblokkum, hafa átt erfitt með að halda uppi nægilegri sölu undanfarið og geta því illa tekið á sig hækkanir á blokkum í bili. Það er ekki mögu- legt að spá um það nú hvenær þorskblokkir kunni að hækka eitt- hvað í verði, en takmarkaðar vin- sældir sneiðanna, sem úr þeim eru skornar, hafa ekki gefið tilefni til mikillar bjartsýni þessa dagana. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika á að ná söluaukningu á Bandaríkja- markaði í ár er lítill vafi á því, að hann verður samt þýðingarmestur allra fiskmarkaða fyrir íslenzkan fisk um langa framtíð. Hlutfallsleg neyzla á fiski á hvern íbúa í Bandaríkjunum er svo lítil að möguleikar á aukningu eru næstum ótæmandi ef fiskurinn er boðinn í heppilegri útfærslu og gæði vör- unnar eru mikil,“ sagði Þorsteinn Gíslason að lokum. Mikil síldveiði í Lóns- bug og lítill verkfalls- hugur í fólki á Hornafirði Ilöfn. HornafirAi. lfi. október. MIKIL síldveiði var í nótt í Lónsbug og voru margir bát- anna með 5—600 tunnur af síld. Skúmur og Ólafur Bjarnason munu hafa verið aflahæstir og voru búnir að tilkynna 6—700 tunnur hvor. Nokkrir bátanna verða að ianda á Austfjörðum. allt frá Djúpavogi og norðureft- ir. Hingað til Hornafjarðar er búist við að komi 4—5 þúsund tunnur. í Söltunarstöð Fiskimjölsverk- smiðju Hornafjarðar á Höfðanum verður tekið á móti tæpum 2 þúsund tonnum og í Fiskiðjuveri KASK verða frystar 850- 900 tunnur. Stemma tekur í dag á móti 1700 tunnum til söltunar. Síldin virðist á hreyfingu suður á bóginn og má í því sambandi nefna, að síldin hvarf úr Berufirð- inum í gær, en fannst síðan aftur í Lónsbug. Mikil vinna hefur undanfarið verið á Höfn og mikil vinna er fyrirsjáanleg á næstunni. T.d. var unnið í Stemmu hf. til klukkan 4 síðastliðna nótt og byrjað aftur klukkan 8 í morgun. Duttlungar síldarinnar gera það að verkum, að ýmist er of eða van, en sem sagt; síldarstemmn- ingin er að komast í hámark hér á Höfn og vonandi helzt hún til loka síldarvertíðar. Sá grunur læðist að mönnum hér, að síldarfólkið sé með hugann víðs fjarri öllum verkföllum í nánustu framtíð meðan silfrið berst á land, því þó að það hafi beðið eftir síldinni með óþreyju í lengri tíma, er það deginum ljósara, að síldin bíður ekki eftir fólkinu meðan verkföll standa. — Einar. Fjórir bátar með síld Fáskrúðsíirði 16. október. FJÓRIR bátar komu hingað i dag með 1560 tunnur og hafði Sigurður. Ólafsson mestan afla. 550 tunnur og er hann nú kominn með rúmlega 4700 tunn- ur. Siglunes SH kom með 450 tunnur. Hafnarey SF með 400 og Sólhorg SU. sem er á hringnót. kom með 150 tunnur. Aflinn fékkst á Mjóafirði og Ilellisfirði. Reiknað er með að heildarsöltun verði komin í 11 þúsund tunnur hjá Pólarsíld í kvöld. Saltað verður í alla nótt, en 60—70 manna hópur, ásamt 5 kennurum, kemur úr Menntaskól- anum á Egilsstöðum í kvöld og tekur við söltuninni í kvöld og verður að til morguns. Vinnulaun- in lætur skólafólkið renna til Afríkusöfnunarinnar, sem Rauði kross íslands stendur fyrir um þessar mundir. í gærkvöldi, klukkan 21.30, fór allt rafmagn af bænum og komst ekki á aftur fyrr en eftir klukku- stund. Var þetta mjög bagalegt fyrir síldarsöltunina, sem féll niður þennan tíma. Af einhverj- um ástæðum komst rafmagn ekki á hluta bæjarins fyrr en um hádegi í dag. — Albert. Söltuðu samfleytt í 42 klukkustundir Eskifirði. 16. október. SÖLTUN lauk hjá Auðbjörgu um miðnætti í nótt og hafði söltunar- fólkið þá staðið við samfleytt í 42 klukkustundir. Ilvildin varð þó ekki löng. því aftur var byrjað að salta i morgun. í dag var tekið á móti sild úr fimm bátum og fengu þeir aflann hér í fjörðun- um. Ekki var hægt að taka við síld af reknetabátum. sem fengu góðan afla i Lónsbug í nótt. Áfram verður saltað fram eftir kvöldi og þegar því lýkur er ærinn starfi við að ganga frá því sem saltað hefur verið. Hingað er nú kominn um 50 manna hópur nemenda og kennara úr Mennta- skólanum á Egilsstöðum og verð- ur hann í vinnu hjá Auðbjörgu og Friðþjófi fram á morgun, en þá tekur skólinn við að nýju. Vinnu- launin ætlar fólkið að gefa í Afríkusöfnun Rauða krossins. — Ævar. Haukur Lrtiö brölt, ný hljónnplata, ny lög Hauki til aðstoðar erm.a. hljómsveitin Mezzoforte. Lögin eru öll eftir Jóhann Helgason. Textar eftir Jóhann Helgason, Jón Sigurðsson, Þorstein Erlingsson, Kristján frá Djúpalæk og Matthías Jochumsson. r Utkoman er ovenju vonduð og skemmtileg hljómplata Haukur áritar plötu sína í hljómplötudeild Karnabæjar í Glæsibæ kl. 5-6 í dag. 4 rtLJÖMOFH.O Qtn\KARNABÆR l augavegi 66 — Qles>0a - Austurst'Kti 22 w Simi tré skiotiboröi 85055 Hoildsöludreifing: itelnor •ímar 85742 og 85055 lítið brölt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.