Morgunblaðið - 17.10.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.10.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 19 Guðlaují María Bjarnadóttir og Sigfús Már Pétursson bragða á forboðnu ávöxtunum. LjÓMnyndir Mbl. Kmilía. Alþýöuleikhúsið: Frumsýnir „Pæld’í ðí“ í Fellahelli í kvöld I KVÖLD klukkan 19.30 frumsýnir Alþýðuleikhúsið leikritið „Pæld’í ðí“ eftir Fehrmann, Franke og Flúgge í Fellahelli. Þýðing- una gerði Jórunn Sigurðar- dóttir en Ólafur Haukur Símonarson þýddi og endursagði söngtexta, segir í frétt frá Alþýðuleikhús- inu. Leikritið er einkum ætlað fólki á aldrinum 13 til 130 ára. Það fjallar um unglinga, sem eru að byrja að skjóta sig hvort í öðru og þá erfiðleika sem upp koma í því sambandi. Ýmis konar fræðslu um kynferðismál er fléttað inn í verkið, enda er það hugsað sem kennsluleikrit um þau mál. Skólastjórar og fulltrúar skóla á Reykjavíkursvæðinu hafa séð verkið og voru viðbrögð þeirra mjög jákvæð og vonast er til að sýningar í skólum um allt land hefjist bráðlega. 5 leikarar taka þátt í sýning- unni, þau Guðlaug María Bjarna- dóttir, Bjarni Ingvarsson, Sigfús Már Pétursson, Margrét Ólafs- dóttir og Thomas Ahrens, en hann sér um tónlistina í verkinu og er jafnframt leikstjóri þess. Leikmynd og búninga gerði Geir Óttarr Geirsson. Frekari sýningar á „Pæld’í ðí“ verða svo laugardaginn 18.10. og Góðar fréttir af eldri borg- urum á Spáni FARARSTJÓRAR eldri borgara á Costa del Sol hafa sent heim kveðjur, en þar eru nú staddir um 70 eldri borgarar á vegum Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar í samvinnu við Ferðaskrifstofuna Utsýn. Kveðjan er svohljóðandi: „Öllum líður vel, heilsufar yfir- leitt gott, veðrið er alveg yndislegt og allur aðbúnaður á hótelinu til fyrirmyndar. Hópurinn sendir ættingjum og vinum heima á Fróni bestu kveðjur." Hópurinn kemur heim hinn 23. október næstkomandi, og er áætl- aður komutími á Keflavíkurflug- velli klukkan 17.25. (Fréttatilkynning). sunnudaginn 19.10. klukkan 5 báða dagana. Þessar sýningar verða einnig í Fellahelli. Kynning á danskri tungu Á NORRÆNU málaári hefur Norræna félagið i samráði við málaársnefnd sína leitað til ýmissa aðila til þess að kynna þær tungur, sem talaðar eru og ritaðar á Norðurlöndum. í Norræna húsinu hafa verið haldnar fjórar samkomur i sam- ráði við aðra aðila í þessu skyni. Grænlenska var kynnt í byrjun ársins í samvinnu við Grænlands- vinafélagið, finnska var kynnt á Runebergsdaginn í febrúar af finnska lektornum og Suomi-fé- laginu, í mars fór fram afhending verðlauna fyrir merki málaársins, sem fylgir þessari grein, á sama tíma og háð var hér þing Norður- landaráðs og las þár m.a. upp úr verkum sínum verðlaunahafinn Sara Lidmann. í apríl var kynnt færeyskt mál í samvinnu við Færeyingafélagið. Allar þessar samkomur voru mjög vel sóttar. Nú í haust er ætlunin að kynna þau Norðurlandamál sem eftir standa: dönsku, norsku, sænsku og Samamál. Leitað var til dönsku lektoranna við háskólann varðandi kynningu á danskri tungu og fer hún fram í Norræna húsinu á laugardaginn kemur kl. 15.00. Að fundinum standa auk Nor- ræna félagsins, Dansk-íslenska fé- NORDISK SPROGÁR lagið, Dansk kvindeklub, Danne- brog, Det danske selskab, Skandi- navisk Boldklub og Dönskukenn- arafélagið. Dagskrá lektoranna er á þessa leið: Peter Söby Kristensen flytur spjall sem hann nefnir: Horft á Dani með dönskum augum. Auk þess les hann upp. Bent Christian Jacobsen talar um danskt nútímatungutak. Claus Lund fjallar um danskar bókmenntir og danskt þjóðlíf í dag. Leikin verður dönsk tónlist milli atriða. í bókasafni hússins verður opin sýning á dönskum bókum og hljómplötum síðdegis á laugar- daginn. Allir eru velkomnir meðan hús- rými leyfir. (Frá Norræna félaginu) Nýtt verð á kolategundum VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs- ins ákvað á fundi sínum á mið- vikudag eftirfarandi lágmarks- verð á eftirgreindum kolategund- um. er gildir frá 1. október til 31. desember 1980: Skarkoli og þykkvalúra: 1. fl., 1251 gr og yfir, hvert kg kr. 115.00 2. fl., 1251 gr og yfir, hvert kg kr. 90.00 1. fl., 453 gr til 1250 gr, hvert kg kr. 165.00 2. fl., 453 gr til 1250 gr, hvert kg kr. 115.00 1. og 2. fl., 250 gr til 452 gr, hvert kg kr. 90.00 Langlúra og stórkjafta: 1. og 2. fl., 250 gr og yfir, hvert kg kr. 90.00 Sandkoli: 1. og 2. fl, 250 gr og yfir hvert kg kr. 90.00 Verðflokkun samkvæmt framan- sögðu byggist á gæðaflokkun Fram- leiðslueftirlits sjávarafurða. Verðið miðast við, að seljendur afhendi fiskinn á flutningstæki við hlið veiðiskips. Verðuppbót á skarkola og þykkvalúru: Með vísun til 3. gr. laga nr. 4 frá 1. febrúar 1980, skal greiða 15% uppbót á framangreint verð á skarkola og þykkvalúru allt verðtímabilið að með- töldum uppbótum á kassafisk og línu- fisk. Uppbót þessi greiðist úr verðjöfn- unardeild Aflatryggingarsjóðs og ann- ast Fiskifélag íslands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir reglum, sem sjávar- útvegsráðuneytið setur. ÞAÐ VEITIR ÞER ORYGGI LOTUS hefur einstæða lögun, sem leiðir til fullkominnar aðlögunar að líkaman- um, jafnvel í þrengstu flíkum. LOTUS veitir fyllsta öryggi, vegna tveggja trefjalaga og plasthúðaðrar bakhliðar. Á bakhliðinni er einnig límræma, sem eykur stöðugleikann. Hverjum pakka af LOTUS fylgja 10 plastpokar. LOTUS fæst í þremur stærðum: LOTUS mini, LOTUS futura og LOTUS maxi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.