Morgunblaðið - 07.12.1980, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980
41
66 Konur munu taka þátt í
geimferðum framtíðarinnar,
rétt eins og þær eru flugfreyjur
í dag. Rannsóknir hafa sýnt
fram á það að líkamsbygging
konunnar þolir geimferðir alveg
jafn vel og líkami karlmanna
og heimsfriðar ef fleiri Rússar
lærðu erlend tungumál?
„Auðvitað er auðveldara að tala
við nágranna þinn ef þú skilur
tungumál hans. En mér finnst það
vera mikilvægara fyrir kennara
og foreldra að kenna börnum
sínum að virða aðrar þjóðir og
menningu þeirra, hverjar sem þær
þjóðir kunna að vera.“
Áður en Tereschkova kom til
Danmerkur hafði hún tvisvar
komið til Svíþjóðar og nokkrum
sinnum til Finnlands. Finnst
henni staða konunnar betri í
Skandinavíu en í Sovétríkjunum?
„Það er ljóst, að ríki ykkar hafa
tekið upp ýmislegt sem er konum
til góðs. En við Rússar getum
státað af því að við krefjumst ekki
aðeins réttinda fyrir konuna,
henni eru tryggð réttindi í stjórn-
arskránni."
Falleg en lítil
Finnst þér konur á Vesturlönd-
um öðru vísi á einhvern hátt en
þær í Rússlandi? Eða eru þarfir
þeirra og vandamál þau sömu?
„Meðan á kvennaráðstefnu SÞ
stóð, hitti ég konur frá um 140
mismunandi þjóðum og víðs vegar
úr heiminum. Persónueinkenni
þeirra eru auðvitað mismunandi.
Hvert land á sína eigin menningu
og þjóðfélagskerfi. Við, sem erum
frá Sovétríkjunum, erum fulltrúar
sósíalísks lands. En það er eitt
sem umfram allt sameinar konur,
af hvaða kynstofni sem er og með
hvaða bakgrunn sem er, þær vilja
allar koma í veg fyrir stríð og vilja
að friðsæll og hamingjuríkur
heimur bíði barna þeirra og
barnabarna. Þessi þrá var það sem
hæst bar, bæði opinberlega og
milli fjögurra veggja á ráðstefn-
unni í Kaupmannahöfn."
Hvað geta konur gert til að
koma í veg fyrir stríð?
„Konur í dag hafa mikil völd.
„Berjumst-fyrir-friði" er hreyfing,
sem leikur sífellt stærra hlutverk.
Kurt Waldheim var færð orðsend-
ing frá konum í Skandinavíu við
setningu ráðstefnunnar í Kaup-
mannahöfn. Þar lýstu þær
áhyggjum sínum vegna vaxandi
spennu í heiminum og kváðust
ákveðnar í því að gera allt sem i
þeirra valdi stæði til að varðveita
heimsfriðinn. Allir fulltrúar á
ráðstefnunni tóku undir þessa
orðsendingu.”
Ertu bjartsýn á að dóttir þín
muni alast upp i friðsælum heimi,
fullum af vinsemd?
„Ég er bjartsýn á, að mannleg
skynsemi muni sigra, þrátt fyrir
allt. í staðinn fyrir að eyða
gífurlegum fjármunum í vopna-
búnað, muni konur og menn læra
að nota peningana til að mæta
margvíslegum félagslegum þörf-
um, sem viða blasa við, allt frá
menntunarmálum og ræktun
landssvæða til upprætingar fá-
tæktar og sjúkdóma."
Hvernig leit jörðin út þegar þú
flaugst kringum hana í 200 kíló-
metra fjarlægð.
„Hún var falleg, en mjög lítil."
GROHE
LÝS/MG
EYKUfí
FEGURÐ
Með GROHE CRYSTAL
PRINSESSE ljósalínunni skapast
möguleikar til aukinnar fegurðar
í yngri sem eldri hýbýlum.
Listrænt útlit og sérstæð hönnun
sameinast í hinni viðurkenndu
GROHE framleiðslu.
RR
RYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Hún gefur
honum_
Pier re Rober t
t>að er eitthvað sérstakt við
Pierre Robert herrasnyrtivörur.
Eitthvað öðruvísi - eitthvað
spennandi. Þess vegna velur hún
Pierre Robert handa honum.
Og þess vegna velur hann líka
Pierre Robert.
Pierre Robert herrasnyrtivörur
- fullkomið úrval auðveldar valið.
imiiisvi . ,
cMmerióací
H
F
ffa