Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981
13
kennurum, en eins og þessi skóli
er rekinn er býsna erfitt að greina
mun nemenda og kennara. Því
þetta er lýðræðisskóli og nemend-
ur ákveða sjálfir hvað þeim finnst
þeir hafa mesta þörf fyrir að læra.
Kennarar eru nánast aðstoðar-
menn, finna til gögn og benda á
heppilegar bækur.
Nemendur hafa hérna, með til-
liti til þess að Zimbabwe-reisa er
framundan, valið sér að læra mál
innfæddra, Shona, að svo miklu
leyti að þeir geti bjargað sér
meðal gestgjafaþjóðarinnar.
Einnig vilja þeir fá kennslu í
ljósmyndun og öllu sem viðkemur
gagnaöflun eða svokallaðri doku-
mentation á fínu máli. Þar að auki
hafa þeir ákveðið á samkomum að
hentugt væri að læra undirstöðu-
atriði byggingarfræði, ef ætlunin
á að vera að aðstoða við að reisa
skólahús í Zimbabwe.
Já, lýðræðið er í hávegum haft
hér í Tvind. Kosningar eru taldar
af hinu illa og sjaldan brugðið á
það ráð, því hér vill enginn kasta
steinum. Auk þess sem kosningar
eru alltaf óréttlátar gagnvart
þeim minnihluta sem býður lægri
hlut. Ákvarðanir eru teknar á
fundum og leitast við að fá
samþykki allra, og oftast fæst það
á endanum og þá fagnað með
lófataki. Þannig er lýðræðið í
reynd, þar er tafsamt, þrefsamt,
tímafrekt og oft á tíðum tauga-
strekkjandi því umræður geta
dregist úr hófi fram. En lýðræðið
er, og það réttlátt.
Nemendur eru komnir að úr
ýmsum áttum, frá Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, margir þeirra
eru jafnframt meðlimir í UFF
sjálfboðaliðasamtökunum. Annars
eru þeir af ýmsu sauðahúsi og á
öllum aldri, sá elsti 60 ára. Og
skólinn er í höndum nemendanna,
þeir sjá um allt sem viðkemur
viðhaldi og fjárhag. Er ekki að
tíunda það, að sú ábyrgð er
mörgum lærdómsrík.
Varla er svo hægt að yfirgefa
þennan friðsæla lærdómslund án
þess að eyða orði á mylluna sem
snýst og snýst dag og nótt, og
bætir nýju hljóði í þytinn frá
trjánum. Ekki svo að skilja að
vindmyllur séu eitthvað nýtt í
augum Dana.
Á árum áður voru þær hundruð-
um saman, dreifðar um allt land.
En hlutverk þeirra var annað í þá
daga. Þá möluðu þær mestmegnis
korn og hveiti, þessi malar gull.
Tilkoma myllunnar er mikið til
að þakka OPEC og amerísku
olíufélögunum. Ef olían hefði ekki
verið hækkuð upp úr öllu valdi
árið 1973, er eins víst að myllan
Hafliði Vilhelmsson
stæði ekki þarna. Þá birtist hin
jóska hagsýni í framkvæmd, þeir
tímdu ekki að hita upp skólana.
Þegar árið 1975 var hitakostnað-
urinn fyrir skólahverfið í Tvind
um 240.000 dkr. árlega, og ekkert
útlit fyrir að olíuverð færi lækk-
andi á komandi árum.
Það var þá sem forsvarsmenn
skólans reiknuðu út að hentugra
væri að gera efnahagsáætlun til
langs tíma og frelsa skólana frá
duttlungum auðhringanna, sem í
skjóli einokunar geta sett upp
hvaða prís sem er. Kúnninn skal
gjöra svo vel að borga, hann á
engra annarra kosta völ, nema
skjálfa undir teppum, íklæddur
þremur lopapeysum.
Forsvarsmenn skólans grufluðu
lengi í hvaða kosti þeir hefðu aðra
en olíukyndinguna, og komust að
þeirri niðurstöðu að vindurinn, en
af honum er nóg við vesturströnd-
ina, væri hentugastur. Samkvæmt
veðurstofunni pústar hér um það
bil 300 daga á ári, sem skýrir
kannski hvers vegna flestir Jótar
eru með há kollvik. m
Var strax hafist handa við
undirbúning að myllusmíðinni, en
það gekk ekki vel að fá hið
opinbera til liðs við verkið.
Orkusparnaðarnefnd taldi hug-
myndina fráleita og þótt mikið
væri predikaður orkusparnaður á
þessum árum, var umhverfismála-
ráðuneytið danska ekkert of hrifið
af framkvæmd þessari. Orka er
nefnilega samnefnari olíu og úr-
ans á þeim bænum.
En eftir allnokkurt þref við
báknið fékkst leyfi til að reisa
mylluturninn, en ekki fyrr en að
aflokinni mikilli rannsókn, sem
átti að finna út hvort mylla sem
þessi ylli ekki of mikilli mengun.
Það þýtur nefnilega í mylluvængj-
um sem snúast og þyturinn gæti
valdið geðtruflunum hjá skóla-
nemendum í grenndinni. Það er þó
kosturinn við kjarnorkuverin að
þau hafa enga vængi, virtist vera
skoðun orkumálayfirvalda Dana.
Fyrsta skóflustungan var svo
tekin í vormánuði 1975, og það var
ekki orkumálaráðherrann sem
hélt á spaðanum, heldur 300 nem-
endur skólanna og aðkomnir sjálf-
boðaliðar sem báru umhyggju
fyrir framkvæmdinni.
Myllan reis hægt og hægt, og
verkið gekk ekki eins fljótt og
fyrst hafði verið haldið. Það voru
mörg ljón í veginum og yfir
margan erfiðan lækinn að stíga.
Kostnaðurinn varð líka sex sinn-
um meiri en fyrst var áætlað,
fullbyggð reyndist hún hafa
kostað 6 milljónir danskra og er
þá ekki reiknað með vinnulaunum,
því mest af vinnunni var gefið. En
þessi kostnaðarhækkun er líka því
að kenna að upphaflegri áætlun
var breytt, menn höfðu upphaf-
lega ætlað að hafa hana eingöngu
til upphitunar á vatni, en síðan
var bætt við rafmagnsframleiðslu.
En myllumenn létu ekki deigan
síga þótt dáldið syrti í álinn og
úrtölumenn höfðu engin áhrif á
brennandi áhuga þeirra á að koma
mylluskrattanum upp. Þeir voru
sér allan tímann vel meðvitaðir að
það væri þess virði að seilast í
þann óþrjótandi orkuforða sem
vindurinn er. Og það sem er best,
vindorkuna getur enginn eignað
sér, hún er eign allra, ekki eins og
olían eða kjarnorkan sem aðeins
stendur þeim fáu og ríku til boða,
til að hagnast á.
Og loks hefur hún snúist nokkuð
jafnt og þétt, en reynslutíma
hennar er ekki lokið. Það er sífellt
verið að gera tilraunir með hana,
prófa hverju hún fær áorkað,
betrumbæta og fínpússa.
En síðan í febrúar hefur myllan
skilað góðri orku. Vélarhúsið, sem
trónir efst á mylluturninum er
útbúið með 200 kw rafal, sem
getur framleitt árlega um 2 millj-
ónir kílówattstunda sem er álíka
orka og 300 tonn af olíu gefa við
brennslu.
Þetta nægir til að sjá skólunum
hér • í Tvind fyrir bæði hita og
rafmagni en afgangsorkan er seld
til rafveitunnar í sveitinni. Það
hefur verið reiknað út að með
núverandi verði á olíu þýði þetta
um 600.000 dkr. árlegan sparnað,
og er þó ekki notast við alla þá
orku sem vindmyllan getur fram-
leitt, hún gæti verið 2000 kw, en af
þeim eru aðeins 900 kw brúkuð
sem stendur.
Myllumenn líta á vindmylluna
sem svar við ást ráðamanna á að
koma upp kjarnorkuverum, en
ráðamenn geta hugsanlega stjórn-
ast af vinum sínum í oliubransan-
um, og öðrum áiíka einokunarfyr-
irbærum.
Ef mönnum finnst myllan vera
dýr má til gamans gera saman-
burð á henni og kjarnorkuveri því
sem ELSAM rafmagnshringurinn
hugðist reisa við Gyllingnæs.
Þeirra áætlun hljóðaði upp á
kjarnorkuver sem framleiddi
800.000 kílówött eða 800 mega-
wött, sem gefa áttu h.u.b. 4200
milljónir kílówattstunda árlega.
Það þýðir með öðrum orðum að
ellefu hundruð myllur af því tagi
sem er hér í Tvind þyrfti til að ná
sömu rafmagnsgetu og kjarnorku-
verið fyrirhugaða. Kostnaður var
fyrirhugaður sjö til átta milljarð-
ar danskar krónur, og geta menn
borið saman kostnaðinn.
Þess ber einnig að geta að
kjarnorkuverin þurfa að borga
fyrir það hráefni sem þau vinna
orkuna úr, og það er ekki beinlínis
ódýrt. Og ekki má gleyma að
rekstrarkostnaður annar, svo sem
öryggisgæsla, er mjög hár. En
vindurinn er ókeypis, og það er
lítil hætta á að menn verði
geislavirkir þótt á þá blási, en
úrgangurinn úr kjarnorkiiverun-
um er til eilífra vandræða og
stórhættu fyrir umhverfið.
Að menn skuli láta sér detta í
hug að reisa kjarnorkuver, er
óskiljanlegt, nema út frá sjónar-
miði einkagróðans. Eins og fyrr-
um forsvarsmaður skólanna í
Tvind sagði árið 1975 og gildir
ennþá: „Það eru ekki Danir sem
þarfnast kjarnorkuvera, það eru
kjarnorkuverin sem hafa þörf
fyrir peninga Dana.“
Myllan í Tvind er tákn nýrra
tíma, það er að segja ef skynsem-
is- og mannúðaröflin ná yfirhönd-
inni yfir skammtíma gróðasjón-
amiðum einokunarsinnaðra auð-
hringa og spekúlanta.
Er því tilhlýðilegt að enda þessa
grein með vonglöðu baráttuhrópi
myllumanna: „Látum hundruð
myllna spretta."
Einstaklings-
bundin teikni-
kennsla og
myndbygging
SIGURÐUR Eyþórsson teikni-
kennari og listmálari mun halda
námskeið i teikningu og mynd-
byggingu i febrúar og mars i
vinnustofu sinni, en slíkt er
nýmæli hjá listamönnum hér-
lendis.
Námskeiðið er ætlað fólki með
byrjendakennslu sem hefur hug á
að þróa hæfileika sina á einstakl-
ingsbundinn hátt, en námsefnið
spannar alla þætti teikningar svo
sem efnismeðferð, form og birtu
og útfærslu. Vinnustofa Sigurðar
er að Borgartúni 19, 3. hæð og
verður listamaðurinn á staðnum
kl. 19—22 á morgun, fimmtudag
12. febr. til þess að skrá nemend-
ur.
Leigubílastöð í
Mosfellshreppi
OPNUÐ hefur verið leigubilastöð
i Mosfellshreppi. Litlabilastöðin
s.f., sem er til húsa að Iliiðarási 2.
Aðalsteinn Björnsson stöðvar-
stjóri, sagði í samtali við Mbl. að
fyrst um sinn yrðu aðeins leigu-
bifreiðar á stöðinni og eru þær nú
4, en fljótlega yrði einnig gert ráð
fyrir notkun sendibifreiðum.
Vinnusvæði stöðvarinnar er Mos-
fellshreppur og Kjalarneshreppur
og verður stöðin opin alla daga til
miðnættis og á næturnar um
helgar.
Hljómtæk-
in f undust
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
upplýst þjófnað á dýrum hljóm-
tækjum úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Tveir piltar höfðu
verið þarna að verki og fundust
tækin á heimili annars þeirra.
Tækin voru af gerðinni TEAK og
var verðmæti þeirra áætlað nær
40 þúsund nýkrónur.
Stúdenta-
leikhúsið
endurvakið
SUNNUDAGINN 15. febrúar
verður haidinn stofnfundur hins
nýja og endurvakta leikfélags
stúdenta i Féiagsstofnun stú-
denta.
Leikfélag stúdenta var virkur
aðili .í leikhúslífi bæjarins hér á
árum áður. Sviðsleikir, útvarps-
leikir og útgáfustarfsemi voru
fastir liðir í starfinu. Einhverra
hluta vegna Iagði það upp laupana
fyrir mörgum árum og allar til-
raunir góðra manna til að endur-
vekja það sem virka stofnun, hafa
runnið út í sandinn.
Núverandi stjórn stúdentaráðs
hefur ákveðið að styðja við bakið á
nokkrum áhugasömum einstakl-
ingum sem hafa tekið höndum
saman í því augnamiði að endur-
vekja þessa virðulega stofnun.
Stúdentar hafa sýnt málinu
mikinn áhuga og 1. dese. nefnd
sýndi áhuga sinn í verki með því
að veita drjúgum hluta ágóðans af
1. des. dansleiknum til hins nýja
leikfélags.
Það er von undirbúningsnefnd-
ar, að áhugasamt fólk fjölmenni
og leggi hönd á plóginn til þess að
draumurinn verði að veruleika.
Fréttatilkynning.
FALLEGT OG STERKT
Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi
verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og
sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á
að þær þy Idu mikla notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum
þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga.
Hríngdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema
innréttingahúsiö
SIIMOREMA
Háteigsvegi 3
Verslun sími 27344