Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981
REYKJALUNDUR í MOSFELLSSVEIT
Lilja Hallgrímsdóttir, lengst til vinstri é myndinni, heldur hér af staö í gönguferö með nokkrum
vistmanna. Gönguferöir stuttar og langar, eftir getu þátttakenda, er vinsælt heilsusport á staönum.
Heldur upphaflegu
merki sínu, að
styðja sjúka til sjálfs-
bjargar, hátt á loft
Allar aöstæður fyrir hendi til aö þar geti orðið
bezta og vandaðasta endurhæfingarstöð landsins
Reykjalund í Mosfellssveit þarf vart að kynna fyrir lesendum Morgunblaösins. Flestir tengja í huga sár
Reykjalund og Vöruhappdrætti S.Í.B.S. og vita aö Reykjalundur var upphaflega stofnsettur sem
sjúkrastofnun og heimili fyrir berklasjúklinga. Sú breyting sem oröiö hefur á starfsemi Reykjalundar frá
stofnun heimilisins 1945 verður ekki slitin úr samhengi viö þá staöreynd aö okkur íslendingum tókst aö
útrýma vágestinum berklaveiki úr tilvist okkar.
í dag er Reykjalundur í hrööum uppvexti sem endurhæfingarstofnun og heldur upphaflegu merki sínu
hátt á lofti, þ.e. aö styöja sjúka til sjálfsbjargar. Starfsemin er fjölbreytt og síöustu árin hafa átt sór staö
miklar framfarir á sviöi endurhæfingar eftir hvers kyns áföll og sjúkdóma, jafnt líkamlega sem andlega.
Vistrými er þar nú fyrir um 150 einstaklinga og vistrýmanýting síöustu árin um 100%. Um 140 manns starfa
viö heimilið.
Starfsemi Reykjalundar veröur best lýst meö því aö kynna þaö starf sem innt er af hendi af fjölmennu
starfsliði, og gefa innsýn í daglegan rekstur stofnunarinnar. Því heimsóttum viö Reykjalund nýveriö,
ræddum við starfsmenn og vistmenn og fer árangur heimsóknarinnr hér á eftir.
Haukur Þóröarson yfirlæknir og Björn Ástmundsson fram-
kvæmdastjóri.
Jón Þóröarson framleiöslu-
stjóri sýnir okkur nýju
lyfjaglösin.
Arnljótur Jóhannesson var
mjög ánægður í vinnu
sinni.
Fyrst hittum við að máli Hauk
Þórðarson yfirlækni og Björn
Ásmundsson framkvæmdastjóra.
Þeir sögðu miklar breytingar hafa
orðið á starfseminni siðasta árið
og bæri þar hæst tilkoma nýrrar
þjónustu til handa vistmönnum,
sem hlotið hefur nafnið heilsu-
sport. Heilsusport er fólgið í
marj^víslegum íþróttum, leikjum
og tómstundastarfi utanhúss og
innan. Sögðu þeir heilsusjjortið
hafa sýnt og sannað að það ætti
rétt á sér. „Með tilkomu þess sést
fólk ekki lengur hanga yfir engu.
Eina vandamálið á stundum er að
dagurinn endist varla fyrir
dagskrána." Haukur sagði að
ákvörðun um tegundir heilsu-
sports fyrir hvern og einn væru
teknar af starfsliði og vistmanni
sameiginlega. Heilsusport kæmi
þó aldrei í stað sjúkra- og iðju-
þjálfunar enda ekki ætlunin, en
það hjálpaði mikið til við endur-
hæfingu, auk þess sem það styrkti
mjög andlega líðan vistmanna.
Nýjasta verkefnið í starfsemi
Reykjalundar er undirbúningur að
endurhæfingu hjartasjúklinga.
Reykjalundur hefur í samvinnu
við Hjartaverndarfélag Reykja-
víkur hafið undirbúning að slíkri
endurhæfingu og m.a. sent sjúkra-
þjálfa og hjúkrunarfræðing af
Reykjalundi utan til að kynna sér
slíka starfsemi.
Haukur sagði dvalartíma vist-
manna á Reykjalundi mjög breyti-
legan. Vistmenn kæmu annað
hvort af öðrum sjúkrastofnunum
eða af heimilum sínum og væri um
helmingaskipti þar í milli.
Aðspurður sögðu þeir félagar að
aðstöðuleysi aldraðra í þjóðfélag-
inu væri áberandi hvað viðkæmi
rekstri Reykjalundar. Mikið af
fullorðnu fólki, sem þyrfti daglega
aðstoð, héldi plássum, sem betur
myndu nýtast fyrir endurhæf-
ingarsjúklinga, sem þyrftu aðeins
tímabundna endurhæfingu.
Að loknu viðtalinu við þá Hauk
og Björn heimsóttum við iðnaðar-
deildina þar sem 60—70 vistmenn
ganga daglega til ýmissra starfa.
Ákvörðun um starfstíma og teg-
und vinnu er tekin af læknum,
verkstjórum og þjálfurum í sam-
vinnu við vistmenn sjálfa að sögn
Hauks. Framleiðslustjóri iðnaðar-
deildarinnar og yfirmaður er Jón
Þórðarson og fylgdi hann okkur
um deildina. í fyrsta salnum sem
við komum í voru nokkrir vist-
menn við standsetningarvinnu á
plastvörum og gat þar að líta ýmis
konar hluti, s.s. raftengi, dósir,
fjármerki o.fl.
Vistmaður
númer eitt
Arnljótur Jóhannesson sat við
að festa skrúfur í tengi, svonefnd
sexvíratengi og gáfum við okkur á
tal við hann. Hann sagðist una sér
vel við starf sitt. „Þetta er ágætt
og launin einnig dágóð," sagði
hann. Enn eru nokkrir af fyrstu
vistmönnum Reykjalundar á
staðnum og eiga þeir reyndar
forgangsrétt að vistun, sem vera
ber. Vistmaður númer eitt, þegar
Reykjalundur hóf starfsemi sína
árið 1945 var Ólafur Jóhannsson.
Við hittum Ólaf að störfum þarna
í samsetningardeildinni og vann
hann við pökkun á fjármerkjum.
Hann sagði miklar breytingar
hafa orðið á starfsemi Reykja-
lundar frá því á fyrstu starfsdög-
unum. „Ég er ánægður með ver-
una hér og starfið er ágætt, en
vertu ekkert að hafa eftir mér í
blaðinu," sagði hann hlédrægur.
Guðrún Kristjánsdóttir vann
iðnum höndum við talningu á
plastdósum. Hún hefur verið á
Reykjalundi í 21 ár og sagðist hafa
fengið aðkenningu að berklum.
Ágúata t.v. og Valgeröur standa hér hjé þrekhjóli. Þær sögöu aö
mikil nauösyn væri aö té fleiri og vandaöri hjól, þegar til
endurhæfingar hjartasjúklinga kæmi.
I
J