Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 15

Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRUAR 1981 15 „Hér er yndislegt að vera, allt gert fyrir mann sem hugsast getur. Það hafa orðið geysilegar breyt- ingar á öllu frá því ég kom fyrst, sérstaklega hvað varðar húsrýmið. Ég stunda heilsusport, já, blessuð vertu. Fer í laugarnar og geri hvað ég get.“ Við kvöddum Guðrúnu og sam- starfsfélaga hennar og héldum til skrifstofu Jóns framleiðslustjóra til að rabba við hann um þennan þátt til starfsemi Reykjalundar. Nýjar uppfinningar Jón hefur yfirumsjón með fram- leiðslunni og stjórnar henni. Þá er Jón þekktur fyrir uppfinningar sínar og nýverið fann hann upp nýja gerð meðalaglasa, sem þegar eru komin á markaðinn. Einnig fann hann upp sérstakt plast- filmukælitæki, sem verið hefur í notkun á Reykjalundi frá árinu 1965. Jón sagði um uppsetningu deildarinnar: „Hún er mest og stærst í plaströraframleiðslunni, þá í umbúðafilmu og sem dæmi má nefna að við notum um eitt þúsund tonn af hráefni árlega í röragerð og um 800 tonn í filmu- gerðina.“ Við spurðum Jón um hin nýju lyfjaglös og að hvaða leyti þau væru frábrugðin þeim sem fyrir hendi voru á markaðinum? „Ég hef verið að rannsaka erlendar gerðir af slíkum glösum og hannaði þessi með hliðsjón af þeim. Þessi er ekki hægt að opna nema með sérstökum snúningi og handtaki, sem lítil börn eiga ekki að ráða við. Þó þarf ekki utanað- komandi áhald til að opna þau. Einnig eru þau ljósþétt og hafa ákveðinn brotstyrk." Fleira nýtt er að finna í fram- leiðslunni hjá Jóni. Verið er að taka í notkun nýjar vélasamstæð- ur sem framleiða eiga dósir undir mjólkurvörur og er framleiðsla þegar hafin á dósum fyrir jógurt. Tækniframfarir hafa verið örar í plastgerð að sögn Jóns og þróunin sú, að meira og meira af fram- leiðslunni er alfarið vélunnin og mannshöndin nær eingöngu bund- in við stjórnun véla. — En hvernig gengur að samræma störf vist- manna og þessa öru framþróun í framleiðslunni? Höfuðmarkmiðið að skapa vinnu „Samkeppni er ætíð hörð á markaðinum í þessari fram- leiðslugrein sem öðrum og við njótum engrar opinberrar vernd- ar. Rekstrarlega séð er ekki hag- stætt að nota þennan starfskraft, en annað er ekki til umræðu og hefur ekki verið, því þetta er markmið Reykjalundar númer eitt. Ég lít þannig á þetta, að rörin og filmuframleiðslan styðji við bakið á annarri framleiðslu. Vinn- an við þessa undirstöðufram- leiðslu hentar illa fyrir vistmenn, þó einn og einn hafi getað stundað þau störf. Hagnaðurinn af henni dekkar þó aðra framleiðslu, sem vistmenn geta unnið við og þannig er tilganginum náð. Jón sagði mikið vandamál hversu efni til plastgerðar hefði hækkað gífur- lega samhliða olíuverðshækkun- | um í heiminum og kallaði það sífellt á aukna tæknivæðingu. „Sem dæmi get ég nefnt nýju vélasamstæðuna til mjólkurvöru- umbúðaframleiðslunnar. Hún framleiðir plastdósirnar úr mun þynnra efni en áður var notað í sams konar dósir. Slíkar vélar gefa möguleika til margs konar umbúðaframleiðslu fyrir matvæli, en sú tegund framleiðslu krefst þess í sífellt auknum mæli að mannshöndin komi hvergi nærri. Jón sagði í lokin: „Höfuðmark- mið þessarar starfsemi hér er að skapa vinnu, en það verður að viðurkennast, að það skapar einn- ig veruleg vandamál. Hér gildir hinn gullni meðalvegur." Við yfirgáfum framleiðsludeild- ina og héldum yfir í aðalhluta bygginganna að Reykjalundi, íverustað vistmanna og endurhæf- ingarstöðina. Fyrst heimsóttum við þar sjúkraþjálfara staðarins en þeir hafa aðstöðu sína í kjall- ara byggingarinnar. Þar hittum við fyrir Birgi Johnsen og tjáði hann okkur, að sjúkraþjálfar í föstu starfi væru sex að Reykja- lundi, auk þess væri aðstoðarfólk þeim til hjálpar. „Það má segja að húsnæðismálin séu okkur erfið- ust,“ sagði Birgir. „Við höfum svo til eingöngu aðstöðu til bekkja- meðferðar, aðstöðu til hópmeð- ferðar vantar tilfinnanlega. Þetta er þó það sem fyrirhugað er að bæta með næsta áfanga í bygg- ingarframkvæmdum." Meiri kröfur samfara aukn- um skilningi Birgir sagði að þróunin í sjúkra- þjálfun hefði verið ör síðustu árin. „Þörfin hefur áreiðanlega ætíð Árið 1979 voru veittar 18.026 einstaklingum veitt meðferð í sjúkraþjálfun á Reykjalundi. Þá er sundlaug staðarins mikið notuð til sjúkraþjálfunar og á árinu 1979 sóttu 10.532 laugina. Heilsusport hefur oft borið á góma í vitölum okkar hingað til og lék okkur því forvitni á að kynnast því nánar. Við hittum að máli Lilju Hallgrímsdóttur, sem er annar umsjónarmaður heilsu- sportsins að Reykjalundi og spurðum við hana fyrst: — Hvað er heilsusport? „Það er heildar- heiti, sem við höfum valið yfir íþróttir, útivist og tómstundastörf ýmis konar. Það má segja að hér hafi sl. ár farið fram brautryðj- endastarf hérlendis hvað þetta varðar og að við séum núna fyrst að sjá hvar við stöndum í þessu," svaraði hún. inn hefur eflst og einstaklingar sýnt af sér mikla hjálpsemi og umburðarlyndi.“ Næst litum við inn á iðjuþjálf- unardeild og röbbuðum þar við iðjuþjálfana Ingibjörgu Péturs- dóttur og Kristjönu Fenger. Að þeirra sögn vinnur iðjuþjálfi fyrirbyggjandi starf, hæfir, endurhæfir og veitir eftirmeðferð fólki með líkamleg, andleg og félagsleg vandamál. Markmið iðjuþjálfunar er að auka mögu- leika einstaklingsins til að búa og þrífast í eigin umhverfi. Þær sögðu meðferð sjúklinga með lík- amleg vandamál hafa að mark- miði að gera sjúklinginn eins óháðan hjálp annarra og hægt væri, og fælist hún í vinnuprófun, heimilisathugunum og síðan færi þjálfun fram eftir aðstæðum og ástandi hvers og eins. Ljósm. Mbl. Emilía Björ^ Bjórnsdóttir. Þe«*i föngulegi hópur telur sjúkraþjálfara Raykjalundar og aóstoóarfólk. Birgir Johnsen er lengst til vinstri á myndinni. Guórún Kristjánsdóttir vann iðnum höndum viö talningu á dósum, á meöan viö röbbuöum viö hana. Ein grein heilsusportsins er dagblaöalestur. Hér les Lilja Hallgrímsdóttir upp erlendar fróttir úr Morgunblaöinu fyrir dagblaöalesturshópinn. verið sú sama — það segir sig sjálft — en nú eru gerðar mun meiri kröfur, samfara auknum skilningi." Það kom fram í viðtölum við sjúkraþjálfara og yfirlækni að samfara hækkun meðalaldurs vistmanna á Reykjalundi, en hann hefur farið síhækkandi síðustu árin og var rúmt 61 ár í árslok 1979, mætti segja að sjúkraþjálfun sem sneri að öldruðum væri frem- ur orðin keppni við hrörnun en markviss endurhæfing sem skilaði endanlegum árangri, þ.e. að fólk næði fullum bata, eða þeim bata sem gerði það vinnufært á ný og fært um að fara út í þjóðlífið. Þá sögðu sjúkraþjálfararnir að heilsusportið gæfi ýmsa mögu- leika og hefði reynst vel, en kæmi þó aldrei að fullu í stað einstakl- ingsmeðferðar sem margir þyrftu á að halda. Heilsusport fyrir alla Aðalgreinar heilsusportsins að Reykjalundi sagði Lilja vera göngur, sund, boccia (boltaleikur), dagbiaðalestur, útreiðar, skíða- göngur o.fl. Lilja útskýrði síðan nánar nýtingu þessara íþrótta- greina. „Einum vistmanni getur verið meiri ávinningur að komast út á bekkinn hér fyrir utan en öðrum að hlaupa upp á næstu hæð. Eins getur það að halda á dagblaði og lesa nokkrar línur verið einum vistmanni jafnerfitt og öðrum þátttaka í erfiðum boltaleik. Hér gildir að eitthvað sé fyrir hendi fyrir alla.“ Lilja sagði að sér fyndist mestur ávinningur fólginn í heilsusportinu hvað varð- aði félagsandann. „Ég hef séð ótrúleg dæmi þess hvað félagsand- „Þjálfun eftir t.d. slys getur verið fólgin í því að aðstoða einstakling við að endurskipu- leggja daglegar athafnir," sagði Ingibjörg, „þá er miðað við lík- amsgetu og aðstæður heima fyrir, útvegun hjálpartækja og æfing við notkun þeirra. Þá er heimilisat- hugun og aðstoð við lagfæringar heima fyrir stór þáttur, einnig samhæfing fjölskyldunnar og samband hennar." Þá sögðu þær stöllur að iðjuþjálfun ætti ekki síður við sjúklinga með andleg vandamál og þroskahefta. Með- ferð þeirra gæti bæði verið ein- staklingsmeðferð og hópmeðferð. Þá væru notaðar athafnir með sérstök markmið í huga, t.d. minnka kvíða, auka virkni, hvetja til félagslegra samskipta o.fl. Þá sögðu þær samvinnu við iðnaðar- deild vegna iðjuþjálfunar mikla. Vantar samband eftir útskrift — Hvernig eru aðstæður hér til iðjuþjálfunar? „Þær mættu vera betri og er fyrirhugað nýtt húsnæði fljótlega fyrir iðjuþjálfun." Ingibjörg og Kristjana sögðu í lokin, að þær hefðu oftsinnis rekið sig á þörf fyrir meira og betra samband við vistmenn eftir að þeir útskrifuðust frá Reykjalundi. Vistmenn fengju endurhæfingu, næðu umtalsverðum árangri, færu síðan heim til þátttöku í hinu daglega lífi. Þá kæmi það oft fyrir að þeir rækjust á óvænta hindrun og lokuðust inni í skel sinni í stað þess að leita hjálpar, enda oftast orðnir illa á sig komnir andlega þegar því stigi væri náð. Ágústa S. Winkler hjúkrunar- fræðingur og Valgerður Gunnars- dóttir sjúkraþjálfari fóru utan fyrir skemmstu á vegum Reykja- lundar og kynntu sér endurhæf- ingu fyrir hjartasjúklinga á sér- stökum stofnunum í Noregi, Sví- þjóð og Þýzkalandi. Þessi könnun- arferð var farin vegna ákvörðunar um að tekin verði upp slík þjón- usta innan skamms á Reykjalundi. Við ræddum í lokin við þær Ágústu og Valgerði og sögðu þær þessa þjónustu hugsaða fyrir fólk, sem fengið hefur hjartaáfall eða verið í hjartaaðgerðum. Þær sögðu endurhæfinguna hugsaða þannig, að sjúklingarnir kæmu 4—12 vik- um eftir áfall eða aðgerð. Þrek hvers og eins yrði þá mælt og síðan færi þjálfun eftir þoli hvers og eins. — Að hvaða leyti er endurhæf- ing hjartasjúklinga öðru vísi en annarra endurhæfingarsjúklinga? „Það má fyrst geta þess að sérstaklega þarf að fylgjast með hjartasjúklingum með hjartalínu- riti og mjög misjafnt er hversu mikið hver og einn þolir. Þá þarf einnig að byggja upp sjálfstraust þeirra. Flestir eru mjög hræddir við alla áreynslu eftir slíkt áfall, þeir stunda t.d. ekki dans, hætta allri íþróttaiðkun, óttast jafnvel kynlíf. Við reiknum með að verða með 4—6 vikna meðferð fyrir hvern og einn. Þessi endurhæfing verður skipulögð og rekin í sam- vinnu við hjartasérfræðinga sjúkrahúsanna og Hjartaverndar- félagið í Reykjavík. Endurhæfing hjarta- sjúklinga brýn — Hversu marga hjartasjúkl- inga munið þið taka? „Það verða aðeins fjórir til að byrja með, en síðan er reiknað með einhverri fjölgun. Það fer eftir árangri og eftirspurn. En við vitum að þörfin er gífurleg, því slíka endurhæfingu er hvergi að fá hérlendis nú. Hjartasjúklingarnir munu koma inn eins og aðrir vistmenn og verða ekki í sérhópi eða á nokkurn hátt aðskildir frá öðrum vistmönnum." — Þarf að breyta hér miklu með tilkomu þessarar viðbótar og hvað með tækjabúnað? „Sérstakur tækjabúnaður þarf að vera fyrir hendi og mun grunnbúnaður kosta um 30—40 millj. gkr. Meðal tækja eru sérstök neyðartæki, s.s. hjartastuðtæki og þá verðum við einnig að hafa hjartalínurita og sérstök þrek- hjól“ Ágústa og Valgerður sögðust hafa mikla trú á framtíð Reykja- lundar sem endurhæfingarstöð- var. Við látum Valgerði eiga lokaorðin í þessari heimsókn okkar að Reykjalundi, en hún sagði: „Reykjalundur getur áreið- anlega orðið bezta og vandaðasta endurhæfingarstöð okkar hérlend- is. Hér er öll aðstaða fyrir hendi sem þarf og staðsetning er mjög góð með hliðsjón af staðsetningu stærstu sjúkrastofnana landsins. Er vonandi, að heilbrigðisyfirvöld gefi þessu gaum svo hægt verði að fá sem bezta og mesta nýtingu á Reykjalundi hvað þennan þátt heilbrigðiskerfisins varðar.“ F.P. t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.