Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 Jakob Björnsson orkumálastjóri: Horfur í alþjóðlegum orkumálum og 11. alþjóðlega orkumálaráðstefnan Inngangur 11 alþjóðlega orkumálaráð- stefnan var haldin í Miinchen dagana 8,—12. sept. sl. Tvo næstu daga á undan, 6. og 7. sept. var haldinn árlegur fundur í mið- stjórn ráðstefnunnar, hinu svo- nefndu alþjóðlega framkvæmda- ráði. Á ráðstefnunni í Munchen mættu um 3500 þátttakendur hvaðanæva úr heiminum, auk nál. 1500 maka þátttakenda og ann- árra gesta, þannig að um 5000 manns alls tóku þátt í henni. Héðan frá íslandi sóttu alls 19 manns ráðstefnuna, þar af 11 þátttakendur: Tveir frá Iðnaðar- ráðuneytinu, þrír frá Orkustofn- un, þrír frá Landsvirkjun, einn frá Rafmagnsveitum ríkisins, einn frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og einn frá Hitaveitu Suðurnesja. Alþjóðlega orkumálaráðstefnan er samtök manna og stofnana er starfa að orkumálum víðsvegar um heim. Þau eru óháð stjórnvöld- um einstakra ríkja, en hafa hins vegar mikla samvinnu við þau, svo og margar sérstofnanir Samein- uðu þjóðanna og ýmis alþjóðleg samtök önnur. Þetta eru gömul samtök. Þau voru stofnuð í London 1924 og hafa starfað óslitið síðan, að undanteknum styrjaldarárunum. Tilgangur þeirra er að „stuðla að virkjun orkulinda og nýtingu þeirra í friðsamlegum tilgangi, svo að verða megi öllum til sem mestra nytja, bæði í einstökum löndum og á alþjóðlegum vett- vangi". Ráðstefnur eru nú haldnar á þriggja ára fresti, til skiptis í ýmsum hlutum heims. Alþjóðlega framkvæmdaráðið, stjórn ráð- stefnunnar, heldur fund árlega, einnig til skiptis í þátttökulöndun- um. Samtökin hafa aðalskrifstofu í London. Alþjóðlega orkumálaráðstefnan starfar í svonefndum landsnefnd- um. Er ein í hverju landi. Hvert land hefur eitt atkvæði á fundum alþjóðlega framkvæmdaráðsins, án tillits til fólksfjölda, og greiðir árlegt tillag til samtakanna, sem ræðst m.a. af orkunotkun á mann í viðkomandi landi, heildarorku- notkun og fleiri þáttum. Island greiðir lágma.ksgjald, 346 sterl- ingspund á ári. Auk landsnefndanna í hverju landi starfa margar sérnefndir milli þinga, að sérstökum við- fangsefnum. Eru þær gjarnan skipaðar mönnum víðsvegar að úr heiminum. Þeirra veigamest hefur nú að undanförnu verið svonefnd Orkusparnaðarnefnd, sem hefur gcrt úttekt á horfum í orkumálum heimsins næstu 40 ár, fram til ársins 2020; líklega hina um- fangsmestu og vönduðustu úttekt af þessu tagi sem gerð hefur verið. Orkusparnaðarnefndin starfar áfram. Nýlega var önnur slík nefnd sett á laggirnar til að fja.lla um orkumál þróunarlandanna sérstaklega, og á fundi Fram- kvæmdaráðsins í Munchen var ákveðið að hún skyldi starfa til frambúðar. Er þess vænst að þessi nefnd verði brátt hin aðsópsmesta allra sérnefndanna, svo mjög sem orkumál þróunarlandanna eru nú i brennidepli. Ráðstefnan í Mtinchen Hver ráðstefna hefur sitt höfuð- viðfangsefni. Viðfangsefni 11. ráðstefnunnar var: „Orka handa heimi okkar." Efninu var skipt í fjórar deildir: 1. Orkuframboð. 2. Orka og samfélag. 3. Orka og umhverfi. 4. Orka, samfélag og umhverfi. Á ráðstefnunni voru lögð fram alls 164 almenn erindi. Úr þeim voru unnin fjögur yfirlitserindi, eitt fyrir hverja deild. Loks komu fram á ráðstefnunni fjölmargar svonefndar „stöðuskýrslur" um einstök afmörkuð svið orkumála. Stöðuskýrslur þessar voru samdar af mönnum, sem sérstaklega höfðu verið til þess fengnir. Þær voru lagðar til grundvallar hring- borðsumræðum og vinnuhópa- umræðum á ráðstefnunni. Frá Islandi komu tvö almenn erindi: „Olíusparnaður í húshitun á íslandi með nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu“ eftir Jakob Björnsson orkumálastjóra, og „Al- þjóðlegt jarðhitaþjálfunarnám- skeið á Islandi í tengslum við Háskóla Sameinuðu þjóðanna" eftir Ingvar Birgi Friðleifsson, jarðfræðing á Orkustofnun, sem veitir námskeiðinu forstöðu, og W. Shearer, frá Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tokýó. Ekki leikur vafi á því að fyrsti þátturinn af þeim fjórum, sem taldir voru, orkuframboðið, varð fyrirferðarmestur á ráðstefnunni, þótt um hina væri vissulega fjall- að líka, ekki síst hinn fjórða. Fyrsti þátturinn fjallaði einmitt um hið brennandi vandamál okkar tíma; orkukreppuna svonefndu. Verður nægilegt framboð á orku til að mæta vaxandi þörf? Því að verði óhæfilegt misvægi milli framboðs og eftirspurnar getur það leitt til þess, að verðlag á orku fer úr öllum böndum, með efna- hagskreppur og jafnvel styrjaldir sem afleiðingu. Bakgrunnur umræðna um orkuframboðið var ítarleg úttekt sem Orkusparnaðarnefnd Alþjóð- legu orkumálaráðstefnunnar hef- ur unnið að mörg undanfarin ár, og birtist í sjö bindum árið 1978. Á ráðstefnunni í Múnchen kom fram, að þær niðurstöður eru taldar óbreyttar enn í öllum meg- inatriðum. Vegna mikilvægis þessa máls fyrir hvjsrt einasta mannsbarn á jarðarkringlunni er ekki úr vegi að rekja niðurstöður Orkusparnaðarnefndarinnar í allra stærstu dráttum. Horfur í orku- málum heimsins fram til 2020 Meginniðurstöður í könnun Orkusparnaðarnefndarinnar má draga saman þannig: 1. Heildarorkuþörf heimsins mun fjórfaldast á tímabilinu 1972—2020, en raforkuþörf rúmlega áttfaldast. 2. Vöxtur orkuþarfarinnar verð- ur mjög misrr.unandi í ýmsum hlutum heimsins. í OECD- löndunum sem heild (þ.e. iðn- ríkjum Vesturlanda, Japan, Ástralíu og Nýja Sjálandi) er áætlað að orkuþörfin tæplega tvöfaldist, tæplega fimmfald- izt í ríkjum með áltlunarbú- skap, en nær fimmfaldist í þróunarlöndunum sem heild. 3. Áætlað er að þessi vöxtur orkunotkunar nægi til að halda uppi 4,2% hagvexti á ári til jafnaðar í OECD-ríkjum; svipuðum hagvexti í löndum með áætlunarbúskap og ríkt hefur í þeim sem heild undan- farna þrjá áratugi, en 5,7% á ári í þróunarlöndunum. Þetta verði þó því aðeins mögulegt að til komi víðtækur orkusparnaður og bætt orku- nýting, þannig að árið 2020 megi ná 1% vexti í þjóðar- framleiðslu með aðeins helm- ingi þeirrar orku, sem slíkur vöxtur kostar í dag í OECD- löndum og með þriðjungi minni orku í þróunarlöndum. 4. Bregðist þessi orkusparnaður hlýtur það að koma fram í minni hagvexti er ofangreind- ar tölur sýna, þar eð ekki er talið gerlegt að mæta meiri orkuþörf en áætlunin segir til um, og raunar er engan veginn tryggt að unnt verði að mæta henni. Verulegt misvægi milli framboðs og eftirspurnar á orku myndi tákna stórhækkað verð á henni og harða sam- keppni um hana. Hætt er við að það yrðu fremur þróunar- löndin en iðnríkin sem yrðu Jakob Björnsson orkumálastjóri. undir í slíkri keppni, þannig að það kæmi fyrst og fremst niður á þeirra hagvexti, og þar með lífskjörum í þeim, ef ekki reynist unnt að mæta orkueft- irspurninni. 5. Talið er, að unnt eigi að vera að halda viðunandi, en að vísu ótryggu, jafnvægi milli fram- boðs á olíu og eftirspurnar eftir henni, og komast þannig hjá því að verðlag á olíu fari upp úr öllu valdi á tímabilinu fram til 2020. Þetta er þó því aðeins mögulegt að nú þegar verði stórlega dregið úr vexti olíunotkunar frá því sem hann hefur verið, og olía takmörkuð við svonefnd forgangsnot, sem eru samgöngur og efnaiðnað- ur. Hætta verður hið bráðasta að nota olíu til hitunar, hvort heldur er í iðnaði eða á heimilum, og til raforku- vinnslu. 6. Áætlað er að olíuvinnsla muni enn vaxa nokkuð og ná há- marki í kringum 1990, um 5 milljörðum tonna á ári, borið saman við nál. 3 milljarða tonna nú. Eftir það mun olíu- vinnsla dragast saman, niður í um 4 milljarða tonna árið 2005 og 2,3 milljarða árið 2020. Svipað er að segja um jarðgas, nema hámarkinu er þar talið munu verða náð um aldamót- in. Aukningin frá núverandi vinnslu upp í hámarkið er talin verða mun meiri en fyrir olíu. 7. Ef hætta á að nota olíu og gas til raforkuvinnslu, jafnframt því sem hún á að áttfaldast að magni, er ljóst að aðrir orkugjafar verða að bera byrð- ar raforkuvinnslunnar. Kom- ist er að þeirri niðurstöðu að meginþunginn muni hvíla á kolum og kjarnorku, þrátt fyrir að áætlað er að raforku- vinnsla úr vatnsafli muni fjór- faldast frá 1972 til 2020. Kolin ein geta þó ekki tekið á sig það sem á vantar þegar vatnsork- unni sleppir. Kjarnorka verð- ur að sjá fyrir verulegum hluta. Áætlað er, að vinnslu- geta kjarnorkustöðva muni 150-faldast milli 1972 og 2020. Tekið er fram, að fyrir heim- inn í heild sé aðeins um það að velja að nýta kjarnorkuna eða ná ekki þeim hagvexti sem áætlaður er. Þar sé enginn þriðji möguleiki til. Aftur er hætt við að slík takmörkun hagvaxtar kæmi fremur niður á þróunarlöndum en iðnríkj- um. Þessi niðurstaða varðandi kjarnorkuna á við um tímabil- ið fram til 2020, en þar með er ekki sagt að hún þurfi að gilda um alla framtíð. Þegar kemur lengra fram á næstu öld gætu aðrir orkugjafar leyst kjarn- orkuna (þ.e. klofningskjarn- orku þá sem nú er nytjuð) af hólmi, og hlutverk hennar Jiannig orðið tímabundið. 8. Áætlað er, að nýting óhefð- bundinna, varanlegra orku- linda, svo sem sólarorku, jarð- varma, orku úr lífrænum efn- um, eða samrunakjarnorku, muni vaxa hægt fram yfir 1990, en hraðar úr því, og hafa árið 2020 nálægt fjórfaldast frá því sem var 1972, sem þýðir, að hlutdeild þeirra í orkuvinnsl- unni í heild er nánast óbreytt. talið er, að einmitt þessar óhefðbundnu orkulindir séu megin-orkuvon mannkynsins, séð til langrar framtíðar, mið- biks næstu aldar eða svo. Á hinn bóginn er talið óraunhæft að vænta þess að þær leysi aðsteðjandi vanda. Það hljóti óhjákvæmilega að taka langan tíma að breyta hinu risavaxna orkukerfi heimsins, sem er tregt í eðli sínu. Minnt er á, að það hafi tekið olíuna meira en heila öld að ná þeirri yfirburð- arstöðu sem hún hefur á orkumarkaði heimsins. Það hljóti einnig að taka nýjar orkulindir sinn tíma að ná yfirburðarstöðu, enda þótt stytta megi þann tíma mikið með markvissum ráðstöfunum. 9. Orkuframtíð mannkynsins, séð til lengri tíma, er talin björt. En ódýr olía og gas, meginorkulindir dagsins í dag, eru á þrotum, og framundan eru miklir breytingartímar, þar sem orkukerfi heimsins þarf að laga sig að breyttum aðstæðum. Þessir breytingar- tímar eru v rasamir og erfið- ir. Vandinr er ekki sá að orkulindir skorti, þegar á heil- dina er litið. Vandinn er fólg- inn í sjálfum breytingunum. Orkukerfi heimsins er tregt, og þegar það byrjar að taka stakkaskiptum er vandi að stýra því. Tregðan er mesfci vandinn. Mest hætta er á að aðlögunin að nýjum aðstæðum gangi ekki nægilega fljótt fyrir sig og upp komi tíma- bundið misvægi milli fram- boðs og eftirspurnar á orku. Vegna mikilvægis orkunnar nú á tímum geta slíkar trufl- anir, þótt tímabundnar séu, valdið stórvandræðum; efna- hagskreppum, félagslegu um- róti og jafnvel stefnt friði og öryggi í voða. Það er meiri skortur á tima til að koma nauðsynlegum breytingum i kring nægilega snemma held ur en á orkuiindum. 10. Bent er á mikilvægi þess að bregðast skjótt við vandanum. Meiriháttar ákvarðanir, sem kosta gífurlega fjármuni, þarf að taka strax og hrinda í framkvæmd án tafar. í þessu er langstærsti hluti núverandi orkuvanda heimsins fólginn — ekki í skorti á orkulindum. Breytingar frá olíu yfir í aðrar orkulindir eru svo stórkostlegt átak, að hún mun reyna til hins ítrasta á framsýni, skipu- lagshæfni og samstarfsvilja ráðamanna og þjóða. Veruleg mistök hér geta haft geigvæn- legar afleiðingar. Nánar frá umræðum Sem fyrr segir, kom það fram á ráðstefnunni í Múnchen, að horfur þær í orkumálum heimsins, sem hér voru raktar eru taldar hafa mjög lítið breyst síðan 1978, er Orkusparnaðarnefndin skilaði áliti. Einnig kom fram, að á þessum tveimur árum hafa fáar þær meiriháttar ákvarðanir verið teknar sem Orkusparnaðarnefnd- in taldi svo brýnt að teknar væru án tafar. Enn er haldið áfram að brenna olíu til hitunar og raforku- vinnslu. Ákvarðanir, sem leitt gætu til meiriháttar aukningar kolavinnslu, láta standa á sér. Andstæðingahópum kjarnorku- vera hefur mjög víða tekist að tefja byggingu þeirra, og stuðlað með því að áframhaldandi brennslu olíu til raforkuvinnslu. Raunar hefur hin almenna efna- hagskreppa dregið úr sárustu áhrifum af þessum töfum, vegna þess að hún hefur haft í för með sér að raforkuþörfin hefur um sinn aukist hægt eða jafnvel ekkert. En menn eru sammála um að bati ( efnahagsmálum myndi strax leiða til aukinnar eftir- spurnar eftir raforku. Það gæti fljótlega leitt til vandræða, og myndi, fyrst í stað að minnsta kosti, enn auka eftirspurnina eftir olíu. Fram komu raddir frá þróunar- löndunum, sem átöldu mjög þenn- an slóðaskap iðnríkjanna. Töldu þær, að iðnríkjunum bæri skylda til að eftirláta þróunarríkjunum hluta þeirrar ódýru, auðunnu olíu sem enn er eftir í jörðu, með því að nota heima fyrir þá háþróuðu orkuvinnslutækni sem þau ráða yfir, einkum kjarnorkutæknina, og draga með því úr olíunotkun sinni. Þróunarlöndin réðu ýmist ekki yfir þessari háþróuðu tækni, eða hefðu ekki efni á henni vegna aðkallandi þróunarverkefna. Þeim væri mikil nauðsyn á að eiga tafarlausan aðgang að ódýrri, auð- nýtanlegri orku, til að bæta hið hörmulega efnahagsástand sitt, en hefðu hvorki efni á né tíma til að tileinka sér vandasama tækni né til að stunda tilraunastarfsemi. Olía væri því kjörin orka handa þróunarlöndunum meðan þau væru að ná sér á strik. Mótmæl- endahópar gegn kjarnorku í iðn- ríkjunum sýndu því mikið ábyrgð- arleysi, sögðu þessar raddir, og afstaða þeirra bæri síður en svo vott um skilning á þörfum þróun- arríkjanna. Þetta dæmi, og raunar fleiri, eru til marks um vaxandi kröfur frá þróunarlöndum um að orku- vanda þeirra sé meiri gaumur gefinn af Alþjóðlegu orkumála- ráðstefnunni en verið hefur til þessa. Þessar kröfur eru nú settar fram með sívaxandi þunga. Á fyrri ráðstefnum hafa umhverfis- verndarmenn í iðnaðarríkjum stundum verið mjög gagnrýndir af fulltrúum þróunarríkja fyrir skort á jafnvægi í afstöðu sinni til umhverfisverndar í iðnríkjunum annars vegar og þróunarríkjum hins vegar. Þeir geri mikið úr umhverfisáhrifum af orkuvinnslu og orkunotkun í iðnríkjunum, en sleppi næstum alveg að tala um hina hrikalegu spillingu umhverf-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.