Morgunblaðið - 12.02.1981, Page 25

Morgunblaðið - 12.02.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 25 Frakkinn Jean-Pierre Jacquillat stjórnar flutningnum Sinfóníuhljómsveit íslands og Söngsveitin Filharmónia á æfingu í Háskólabiói. Myndir: Emili* Á áskriftartónleikum Sinfóniuhljómsveitar íslands sem hef jast i kvöld kl. 20.30 verður flutt óperan Fidelio eftir Beethoven. óperan verður flutt i tónlcikaformi og er það í fyrsta skipti sem hún er flutt i heilu lagi hér á landi. Flytjendur eru alls um 230, sjö einsöngvarar, Karlakór Reykjavikur og Söngsveitin Fílharmonia ásamt Sinfóniuhljómsveitinni. Fjórir einsöngvaranna koma frá Þýskalandi. Þjóðverjarnir Astrid Schirmer (Leónóra) og Manfred Schenk (Rocco), Rúmeninn Ludovico Spiess (Florestan) og Daninn Bent Norup (Pizarro). Islensku söngvararnir þrir eru Elin Sigur- vinsdóttir (Marzelline), Sigurður Björnsson (Jacquino) og Kristinn Hallsson (Don Fernando). Stjórnandi er Jean-Pierre Jacquillat. óperan verður endurtekin laugardaginn 14. febrúar kl. 14. Erlendu einsöngvararnir hafa allir sungið í Fidelio áður. Manfred Schenk hefur sungið hlutverk Roccos yfir 200 sinnum en þetta er í fyrsta skipti sem hann syngur hlutverkið í tónleikaformi. Astrid Schirmer er alin upp í Schwarzwald og Friburg en stundaði söngnám í Berlín fyrst og fremst. Hún hefur sungið stór hlutverk í óperum Wagners, Mozarts, Beethovens, Verdis og Strauss í mörgum frægustu óperuhúsum álfunnar. Á fundi með frétta- mönnum í gær sagði Sigurður Björnsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, að eiginlega hefði engin önnur söngkona komið til greina í hlutverk Leónóru er farið var að ræða um flutning Fidelio hérlendis. Schirmer hefur ein útlendinganna komið hingað til lands áður, það var árið 1978 og söng hún þá m.a. hluta úr Fidelio. Ludovico Spiess er fæddur og uppalinn í Rúmeníu. Hann hefur sungið aðalhlutverk í óperum austan hafs og vestan. Þó hefur hann starfað mest í Þýskalandi, Berlín og Múnchen. Bent Norup hefur komið fram við konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn síðan árið 1968 og verið fastráðinn við óperurnar í Braunschwig og Núrnberg. Hann hefur einnig sungið sem gestur við mörg stærri óperuhús, m.a. í Brússel, Marseilles, Ósló og Bonn. Manfred Schenk er frá Stuttgart en hann hefur sungið flest meiriháttar bassahlutverk við óperur um þvera og endilanga Evrópu og einnig í Bandaríkjunum. Hann er nú fastráðinn við óperurnar í Frankfurt og Vín. Schenk hefur sungið með Sigurði Björnssyni erlendis og er fyrrum skólabróðir eiginkonu hans, Sieglinde Kah- mann. Þótt söngvararnir syngi við sitt hvort óperuhúsið hittast þeir oft og þekkjast vel. Sendiráð Vestur-Þýska- lands hér á landi hefur séð um komu þeirra hingað og greiðir allan kostnað við ferðina og laun gestanna. Á fundi með fréttamönnum í gær sögðu söngvararnir að flutningur óperunnar legðist mjög vel í þá. Astrid 230 manns flytja óperuna FIDELIO Ludovico Spiess og Astrid Schirmer syngja hlutverk hjónanna Leónóru og og Florestans. Schirmer var að vísu ekki vel frísk en sagðist vera mjög ánægð að hafa fengið tækifæri til að koma hingað á ný og hefur mikinn áhuga á að koma hingað aftur. Það kom einnig fram á fundinum að þótt Fidelio teljist vera eitt af meiriháttar sviðsverkum óperunnar þá njóti hún sín ekki síður vel í tónleikaformi. I Fidelio er m.a. einn af þekktustu óperukórum sögunnar, Fangakórinn, sem Karlakór Reykjavíkur mun syngja hér. Fyrst flutt 1805 og síðan endurbætt Fidelio var fyrst flutt í Vín árið 1805 og bar þá nafnið Leónóra. Beethoven samdi verkið upp úr sögu eftir franskan líberettisma, J.N. Bouilly. Frumsýningin var í nóvember aðeins nokkrum dögum eftir að herir Napóleons héldu innreið sína í Vín. Má kannski kenna því um að sýningar á óperunni urðu þá aðeins 3 fyrir hálftómu húsi. Níu árum seinna var óperan færð upp á ný eftir að Beethoven hafði endurskoðað hana og samið við hana þrjá mismunandi forleiki til viðbótar þeim fyrsta. í þetta skipti gengu sýningar sæmilega. Fidelio greinir frá björgun Florestans (Ludovico Spiess) frá því að verða hungurmorða í fangelsinu hjá hinum afspyrnu vonda virkisstjóra, Don Pizarro (Bent Norup). Kona Florestans, Leónóra (Astrid Schirmer), dulbýr sig sem karlmaður, Fidelio, og vinnur hylli feðginanna, Roccos fangavarðar (Manfred Schenk) og Marcelline (Elín Sigurvinsdóttir), og fær þannig aðgang að virkinu. Nú fréttir Don Pizarro að Don Fernando (Kristinn Hallsson) ráðherra sé í þann veginn að koma í eftirlitsferð til virkisins. Óttast hann að ráðherrann muni finna fangann sem þarna situr án allra saka og biður því Rocco að drepa Florestan hið snarasta. Rocco færist undan, en segist muni taka fanganum gröf ef virkisstjórinn komi honum fyrir sjálfur. Leónóra heyrir á tal þeirra félaga og formælir Don Pizarro. Hún telur Rocco á að leyfa sér að fylgja honum í svartholið sem hjálparsveinn. í svartholinu syngur Florestan um ógæfu sína þegar þau Rocco og Leónóra koma til að taka honum gröf. Leónóra heyrir til hans og á sem von er erfitt með að leyna tilfinningum sínum. Rocco leyfir henni hins vegar að gefa fanganum brauð. Don Pizarro kemur þá og afhjúpar sig fyrir Florestan sem hans versti óvinur og er um það bil að reka hann í gegn þegar Leónóra hleypur á milli. Pizarro ætlar þá að drepa þau bæði en Leónóra hefur byssu sem hún otar að honum. í sama mund heyrist að ráðherrann er að koma og leikurinn fær á sig geðugri mynd. Ljfem. ÓI.K.M. Sex af þeim sjö einsöngvurum sem syngja i Fideiio i kvöld og á laugardag. Talið frá vinstri: Sigurður Björnsson, Ludovico Spiess, Manfred Schenk, Astrid Schirmer, Bent Norup og Kristinn Hallsson. Á myndina vantar Elinu Sigurvinsdóttur. Hluti söngsveitarinnar Filharmóniu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.