Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981
33
í móöurfaömi en þar er enga næringu aö fá.
og að eins og málum væri nú
háttað, væru liðlega 25 þúsund
manns á framfæri stofnunarinnar í
héraðinu. Hún sagði, að stofnunin
mundi halda áfram að flytja mat-
væli til Karamojo fram í ágúst í
sumar.
A síðastliðnu ári urðu yfir 30
þúsund manns hungurvofunni að
bráð í Karamojohéraði, en á svæð-
inu búa um 300 þúsund manns.
Karamojofólkið er hirðingjar og
nautgripir hafa staðið undir lífs-
framfæri fólksins. Orsakir hung-
ursneyðarinnar eru einkum tví-
þættar: annars vegar mikiir þurrk-
ar og hins vegar ræningjalýður,
sem hefur rænt fólkið nautgripum
þess. Talið er að nú séu innan við
100 þúsund nautgripir í héraðinu
en fyrir hungursneyðina voru þeir
rétt um 1,3 milljónir.
Astæður þess að ræningjar vaða
uppi er stjómleysi í landinu. Þegar
Tanzaníumenn gerðu innrás inn í
landið og steyptu Idi Amin, ein-
ræðisherranum illræmda, þá kom-
ust ræningjar yfir mikið magn
vopna. Þeir hafa síðan herjað á
fólk, myrt, nauðgað og rænt. Heilu
þorpin hafa þeir lagt í rúst. Her
landsins hefur átt í vök að verjast
gegn vel vopnuðum ræningjum,
sem fara saman í flokkum.
Þá hafa ræningjar reynst hjálp-
arfólkinu þungir í skauti. Þeir hafa
rænt flutningabíla, og jafnvel tekið
bílana herskildi. Mikill ótti er
meðal fólks á svæðinu. En ræningj-
ar eru ekki einu óvinir hjálpar-
starfsins. Samgöngur eru allar
mjög erfiðar, torfærur miklar og
fjöldi flutningabila hefur bókstaf-
lega hrunið á holóttum vegum
Úganda. Svo virðist sem Kara-
mojofólkið verði enn um sinn að
standa í skugga hungurvofunnar og
eins og alltaf þá eru það fyrst og
fremst börn og gamalmenni sem
líða mest. í hungursneyðinni miklu
í fyrra voru það einkum börn og
gamalmenni, sem féllu í valinn.
(AP)
Lokað vegna flutninga
Skrifstofur okkar veröa lokaöar vegna flutninga
föstudaginn 13. og mánudaginn 16. febrúar nk.
Opnum aftur þriöjudaginn 17. febrúar aö Hverfis-
götu 32, Reykjavík. Símanúmer veröa óbreytt.
Skattaöstoöín, sími 11070.
Lögfræöiskrifstofa Atla Gíslasonar, hdl., sími 11070.
Lögfræöiskrifstofa Björns Olafs Hallgrímssonar,
hdl., sími 29010.
Skákkeppni
stofnana 1981
Hefst í A-riðli mánudaginn 16. febrúar kl. 20.00 og í 5
B-riöli miövikudaginn 18. febrúar kl. 20.00. Teflt
veröur í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur aö i
Grensásvegi 44—46. \
Öllum fyrirtækjum og stofnunum er heimil þátttaka.
Keppt er í fjögurra manna sveitum, og veröa tefldar 7
umferðir eftir Monradkerfi í hvorum riöli um sig.
Nýjar sveitir hefja þátttöku í B-riöli.
Skráning í keppnina fer fram í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning í A-riðli veröur
sunnudaginn 15. febrúar kl. 15—17, en í B-riðli
þriöjudaginn 17. febrúar kl. 20—22.
Taflfélag Reykjavíkur,
Grensásvegi 44—46.
Sími 83540.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AÖalheiður
Tryggvadóttir
og Sigurður Sv.
Guðmundsson
foreldrar Sigurðar bjuggu. Þar
hefur verið breytt nokkru til betri
vegar. Þau eru bæði Hnífsdæl-
ingar eða Eyrhreppingar, þó að
þetta sveitarfélag hafi sameinazt
Isafirði. Hjá jæim, eins og mörg-
um öðrum Hnífsdælingum, bærist
gömul þjóðernistilfinning, Hnífs-
dalur verður alltaf til þrátt fyrir
þessa sameiningu.
Þessa tilfinningu skil ég vel. Ég
hef orðið þeirrar ánægju aðnjót-
andi að kynnast mörgu góðu fólki
á lífsleiðinni, en ég vona að ég
særi engan þó ég segi að óvíða hafi
ég kynnst betra, skemmtilegra og
mannlegra fólki en í Hnifsdal.
Gömlu góðu karlarnir, sem ráku
útgerðina í Hnífsdal, byggðu
hraðfrystihúsið, fólkið, sem maður
þekkti í leik og starfi stendur
manni alltaf fyrir hugskotssjón-
um, bæði þeir sem lífs eru og
liðnir.
Aðalheiður og Sigurður eru
dæmigerðir fulltrúar þessa góða
og elskulega fólks, sem byggir
Hnífsdal enn í dag.
Sigurður tók um langt árabil
verulegan þátt í félagsstörfum.
Hann var lengi formaður Sjálf-
stæðisfélags Hnífsdælinga og full-
trúi í kjördæmisráði. Hann lagði
ávallt gott til mála, lét skynsemi
og hyggindi ráða. Fyrir það var
hann virtur. Nú hefur hann sig lítt
í frammi, en samur er hans hugur
til þjóðmála og héraðsmála.
A afmæli Aðalheiðar vinkonu
minnar vil ég í fjarlægð minnast
hennar og Sigurðar vinar míns
með þessum fátæklegu orðum og
við Kristín sendum þeim okkar
hjartanlegustu hamingjuóskir í
tilefni dagsins um leið og við
þökkum fyrir marga góða sam-
verustund og órofa vináttu á
liðnum áratugum.
Heill og hamingja fylgi ykkur
ávallt og öllum niðjum ykkar og
samstarfsfólki. Ég vona, að dagur-
inn verði ykkur öllum ánægju-
legur, eins og stundirnar í gamla
góða „spýtuhúsinu" sem þið þekkt-
uð ennþá betur en við.
Matthías Bjarnason
Vissir þú
að það eru 10 þúsund félagar í VR?
VR er leiðandi afl í launþegamálum og innan
þess er fólk úr meira en 70 starfsgreinum.
1891-1981
VR VINNUR
FYRIR ÞIG
viðskipti
&verziun
Ema Agnarsdóttir,
afgreidslumadur
í hijómplðtuverzlun.
Páll Ólafnon,
kerfitfroibingur
i hraðfrystihúsi
Kolbrún Magnúadóttir,
afgreiðslumaöur
í apóteki
Þau eru
í stærsta
launþegafélagi
landsins,
Verzlunar-
mannafélagi
Reykjavíkur.
Björgvin HaHgrímtaon, Hóbnfríður Gunnlaugadóttir,
sendisveinn. sœtavísa í kvikmgndahúsi