Morgunblaðið - 12.02.1981, Page 34

Morgunblaðið - 12.02.1981, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 5. hverfafundur Sjálfstæðisflokksiiis um borgarmál Fimmti og síðasti hverfafundur Sjálfstæðis- flokksins var haldinn með íbúum Breiðholtshverfis að Seljabraut 54 síðastlið- inn laugardag. Frummæl- endur á fundinum voru þeir Davíð Oddsson oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn. Magn- ús L. Sveinsson og Markús Örn Antonsson borgar- fulltrúar. Fundarstjóri var Hreið- ar Jónsson, en fundarrit- arar voru þeir Kristján Guðbjartsson og Guð- mundur H. Sigmundsson. Greiðsluþol borgar- anna á þrotum Fyrstur tók til máls Davíð Oddsson. í yfirgripsmikilli ræðu sinni drap Davíð á marga þætti borgarmála, kynnti stefnumið borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins og fjallaði um getuleysi vinstrimeirihlutans í borgar- stjórn. Davíð sagði að meginhugs- un í stjórnmálum skipti miklu máli á sviði sveitarstjórnarmála og benti á að Sjálfstæðisflokkur- inn væri andvígur skattpíning- unni í Reykjavík, en þar skildi á milli Sjálfstæðisflokksins og vinstrj meirihlutans. Þá sagði Davíð að sjálfstæðismenn teldu að einstaklingarnir ættu að vera sem sjálfstæðastir og einn þáttur í því væri að stuðla að því að sem flestir væru í eigin húsnæði. Sagði Davíð að í Reykjavík væru fleiri íbúðareigendur en tíðkaðist í sam- bærilegum borgum. Davíð sagði það einn þátt í frélsi hvers ein- staklings að hið opinbera skerti ekki tekjur hans umfram ákveðið mark. En undir stjórn núverandi meirihluta væri greiðsluþol borg- aranna á þrotum og nefndi Davíð dæmi um hækkanir opinberra gjalda í tíð núverandi meirihluta. Sagði hann að fasteignagjöld, að- stöðugjöld útsvör hefðu hækkað og nýverið hefðu gatnagerðargjöld hækkað verulega. Nefndi hann að Sigurjón Pétursson, forseti borg- arstjórnar, hefði rökstutt gatn- agerðargjaldahækkunina með þeim rökum að þau væru hærri í nágrannasveitarfélögunum. Davíð sagði að ekki hefði meirihlutanum það til hugar komið að lækka önnur gjöld til samræmis við önnur sveitarfélög, allt yrði að hafa í toppi í Reykjavík. „Meiri- hlutinn fann einn punkt þar sem eitthvað var hærra í nágranna- sveitarfélögunum og fannst nauð- synlegt að hækka þar til samræm- is,“ sagði Davíð. Davíð sagði það hlutverk sjálf- stæðismanna að snúa við þessari þróun. Sjálfstæðismenn teldu það óþarft að það kostaði hverja fjölskyldu 4—500 þúsund gkr. meira að búa Reykjavíkurmegin við Nesveginn, slíkur væri munur- inn á milli Reykjavíkur og Sel- tjarnarness. Afturhaldsstefna Alþýóuhandalatísins Þessu næst rakti Davíð söguna í skipulagsmálum, og sagði að aðal- skipulagið sem samþykkt var í borgarstjórn árið 1977 hefði ekki enn hlotið staðfestingu, vegna þess að Alþýðubandalagið hefði sæst á það. Slíkt hefði lóðaskort í för með sér. Meirihlutinn reyndi nú að bjarga eigin skinni með sífelldum skammtímalausnum, með því að byggja á íþrótta- og útivistarsvæðum. Davíð sagði sjálfstæðismenn ekki á móti „Þéttingu byggðar" á öllum svið- um, en skammtímalausnir Al- þýðubandalagsins og meðreiðar- Magnús L. Sveinsson: Borgin að koðna niður í höndum meirihlutans - verðum að losa hana úr þessum álagaham Markús örn Antonsson i ræðustól. Aðrir á myndinni eru Magnús L. Sveinsson, Davið Oddsson og Hreiðar Jónsson fundarstjóri. sveina þeirra væru tómar innan- sleikjur í lóðamálum. Davíð sagði það frumskyldu hvers sveitarfé- lags að sjá fólkinu fyrir bygg- ingarlóðum, en þeirri skyldu hefði lítið verið sinnt í tíð núverandi meirihluta. Til dæmis hefði ein- ungis verið úthlutað tveimur lóð- um undir atvinnuhúsnæði á þessu kjörtímabili og hefði önnur lóðin farið til KRON en hin til SÍS! - Þá sagði Davíð að stefna Al- þýðubandalagsins í skipulagsmál- um væri afturhaldsstefna og nú ætluðu þeir að gera ráð fyrir því að íbúum i borginni fjölgaði ekk- ert fram til aldamóta. Það væri ekki frumlegt. Þó hefði aðeins örlað á frumleika þegar Alþýðu- bandalagið barðist sem ákafast fyrir því að keyptir yrðu hingað svokallaðir Ikarus strætisvagnar, en borgarstjóri hefði sagt að það þýddi skref aftur á bak, sem næmi allt að 20 árum í tækni og þægindum. Davíð sagði að þetta væri flokkurinn sem barist hefði fyrir því að strætisvagnar og strætisvagnaskýli yrðu gerð þægi- leg. Meðal annars hefði Alþýðu- bandalagið vilja að „kliðmjúk" tónlist yrði leikin í vögnunum! Þá minntist Davíð á að meiri- hlutinn hefði fellt tillögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins, þess efnis að fyrirhug- aðri skrefatalningu á símum yrði mótmælt. Meirihlutinn hefði talið að sér bæri frekar að gæta hagsmuna ríkisvaldsins í þessu efni, en borgaranna. skrefagjaldið væri óréttlátt og kæmi harðast niður á öldruðum, sjúkum og fötluðum sem halda þyrftu sam- bandi við sína nánustu í gegnum síma. Þetta væri allt saman gert undir yfirskini jöfnuðar og rétt- lætis! Flestir eignist sínar eigin íbúðir Næstur tók til máls Magnús L. Sveinsson. I upphafi máls síns bað hann fundarmenn um að reyna að hugsa sér meirihlutaflokkana á hverfafundi sem þessum. Hvort menn héldu ekki að það myndi reynast flokkunum þremur erfitt. „Sjá menn ekki fyrir sér oddvit- ana þrjá hrósa hverjum öðrum af frægðarverkunum og afrekunum í borgarstjórn á þessu kjörtíma- bili,“ sagði Magnús. Magnús sagði í ræðu sinni að flokkslegir erfiðleikar Sjálfstæð- isflokksins hefðu ekki náð inn í raðir borgarstjórnarflokksins, þar ríkti einhugur með mönnum. í ræðu sinni ræddi Magnús nokkuð um Breiðholtshverfið og sagði að hverfið hefði byggst upp með útrúlegum hraða, þar hefði risið byggð 20 þúsund manna á 13—14 árum. Það væri fyrst og fremst einstaklingunum að þakka hve hratt og myndarlega Breið- holtið hefði byggst. Magnús sagði það skoðun sína að byggðin í Breiðholtinu væri arðbær fjárfest- ing, en vangaveltum um hið gagn- stæða vísaði hann á bug. „Við munum öll kosningaloforð vinstri flokkanna sem þeir gáfu fyrir síðustu kosningar," sagði Magnús. „Þeir gáfu kosningalof- orð í trausti þess að þeir kæmust ekki í meirihluta, enda hafa efndirnar reynst litlar," sagði Magnús. Magnús sagði að vinstri flokkarnir hefðu gert mikið úr slæmri fjárhagsstöðu borgarsjóðs þegar þeir tóku við. Hins vegar hefði fjárhagur borgarinnar verið skoðaður af velmetnum endur- skoðanda í borginni og þar hefði komið í ljós að fjárhagur Reykja- víkurborgar stæði vel. „Eftir að þetta kom í ljós þá hættu meiri- hlutamenn að tala um slæma fjárhagsstöðu borgarinnar, því endurskoðunin hrakti þeirra eigin fullyrðingar," sagði Magnús. Atvinnumál sagði Magnús und- irstöðu mannlegs lífs í sveitarfé- lögum. Hann sagði sjálfstæðis- menn hafa úthlutað miklu af iðnaðarlóðum síðustu sjö árin sem flokkurinn var við völd í borgar- stjórn. Hann sagði ekki útlit fyrir að einni einustu lóð yrði úthlutað á þessu kjörtímabili, og hingað til hefði aðeins verið úthlutað tveim- ur, einni til KRON og einni til SÍS. „Það er engin hreyfing sjáanleg hjá meirihlutanum til að tryggja lóðir fyrir atvinnuhúsnæði," sagði Stefán Vagnsson spuröi m.a. aó því hvort sjálfstaBðismenn væru hlynntir því hve gatnagerö- argjöld fyrir einbýlishús í Hólahverfi væru mikil. Þá spuröi Stefán og að því hver stefna flokksins væri í þess- um málum. Kristinn Ragnarsson spuröi um afstööu sjálf- stæðismanna til bilastæöa í miöborginni og nefndi hann aö áöur heföi verió fyrirhug- aö aó byggja bAageymslu- hús á lóö noröan Tryggva- götu og vestan Lækjargötu. spuröi um félagslega hjálp til aldraöra, en hana taldi hann hafa fariö úr böndun- um. Sigurjón Jónsson spuröi aó því hvort ekki væri ástæöa til aö skipu- leggja atvinnu- og þjónustu- starfsemi í Breiöholtinu. Hildegard Þórhallson spuröi hvort borgin væri tilbúin til þess aö taka aó sér rekstur barnaheimilis aó Asparfelli 12, en heimilið væri þungur fjárhagslegur baggi á íbúum hússins. Erlendur Kristjánsson spuröi hvort von væri á íþróttahúsi vió Hóiabrekku- skóla, hvort vænta mætti frágangs á svæöum í Hóla- hverfl og um stefnu Sjálf- stæóisflokksins í umhverf- ismálum, þ.á m. í málum Elliöaárdals. /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.