Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 37

Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 37 áfanga endurbyggingarinnar að miklu leyti með fyrirframgreiðslu húsaleigu. Hann sagði þá í samtök- unum vera mjög óánægða með það fyrirkomulag þar sem það setti þeim miklar skorður. Það fólk sem Torfusamtökin vildu helst fá í húsin væri ekki allt fjársterkt. Hann sagðist telja það eðlilegt að ríki og borg aðstoðuðu við fram- kvæmdirnar með því t.d. að tryggja samtökunum lán sem síðar yrðu borguð í formi húsaleigu. í því sambandi hafa Torfusam- tökin farið fram á viðræður við ríkið og Reykjavíkurborg um fram- tíðarfyrirkomulag framkvæmda. Þorsteinn sagði að Torfusamtökin hefðu hug á því að skipa sérstaka framkvæmdanefnd sem sæi um áframhaldandi endurbyggingu Bernhöftstorfunnar og yrði eðlilegt að ríki og borg ættu þar sína fulltrúa. Samtökin sjálf færu þá að snúa sér meira að útgáfu- og kynningarstarfsemi, t.d. væru uppi hugmyndir um að efna til ritgerða- og teiknisamkeppni meðal skóla- barna um eldri bæjargerð og bæjar- lífsmynd. Nú hýsir það m.a. veitingahúsið Torfuna. er aflað með opinberum fjársöfn- unum víða um lönd. í ágúst 1979 urðu mikil flóð í Gujarat á Indlandi. A.M. safnaði þá fé hér á landi, sem svaraði helmingi kostnaðar af uppbygg- ingu á einni bújörð af hundrað, sem hreyfingin hafði með að gera. Leitað var samstarfs við hjálpar- stofnun kirkjunnar, sem hefur aðsetur á biskupsskrifstofu, en þeirri málaleitun var hafnað. Nýlega var sett á stofn hér á landi sérstök barnahjálp til að styrkja starf barnaheimila í Ind- landi, Ghana, Portúgal og Para- guay. Á heimilunum dveljast for- eldralaus börn eða börn, sem foreldrarnir hafa ekki bolmagn til að sjá farborða, „vandræðabörn" og börn sem mundu komast á vonarvöl án hjálpar. Aðstoðinni er hagað þannig að hjón, einstakl- ingar eða ópersónulegir aðilar geta „ættleitt" tiltekið barn, sem þó dvelst áfram og elst upp í heimkynnum sínum. „Meðlag" greiðist mánaðarlega og samsvar- ar dvalarkostnaði barnsins á við- komandi heimili. Féð er ýmist sent beint til viðkomandi heimilis eða í banka í Hamborg, þaðan sem söfnunarfé hvaðanæva úr Evrópu er komið í réttar hendur. Ofsóknir og ofsamenn Ananda Marga hefur ekki farið varhluta af ofsóknum fremur en kristin kirkja. í fyrri stjórnartíð Indiru Ghandi var leiðtogi hreyf- ingarinnar hnepptur í fangelsi eins og flestir leiðtogar fjölda- hreyfinga annarra en Þjóðþings- flokksins. Ráðist var á miðstöðvar hreyfingarinnar, mannvirki jöfn- uð við jörðu og menn meiddir. Kennarar hreyfingarinnar sættu meiðingum í fangelsum. Þá átti hreyfingin í útistöðum við komm- únista, einkum í þeim ríkjum Indlands þar sem þeir voru við völd. Af þessum sökum voru stofnaðar sérstakar varnarsveitir í tengslum við hreyfinguna, og síðan hefur þjálfun í sjálfsvarn- artækni verið þáttur í starfi sam- takanna, enda er varnarleysi gegn siðlausu ofbeldi fjarri hugmynda- fræði A.M. Rétt er að taka fram að hreyfingin hefur ekkert að kvarta yfir kommúnistum í Evr- ópu og getur, eins og t.d. Sjálf- stæðisflokkurinn, hugsað sér að eiga samstarf við þá um góð málefni. Innan hreyfingarinnar hafa komið upp vandamál vegna ofsa og öfga í fari sumra þeirra, sem leitað hafa inn í hreyfinguna og aðstandenda þeirra, einkum í löndum kristinna manna. Þeir sem þekkja Tantra, vita að menn geta tiltölulega fljótt eftir að æfingar eru hafnar orðið fyrir sterkum andlegum áhrifum, sem erfitt er að hemja. Við ber að öfgafullir nýliðar vilja tafarlaust gerast munkar og nunnur, gefa eigur sínar eða hefjast þegar handa við að frelsa heiminn við litla hrifningu aðstandenda sinna. E.t.v. hefur sumt af þessu fólki villst á hreyfingum eins og biskup íslands, sem telur A.M. í hópi hættulegra sértrúarflokka. Stund- um yfirgefur þetta fólk hreyfing- una þegar það kemur til sjálfs sín, ber þá hreyfingunni illa söguna og telur sig hafa orðið fyrir álögum. Áhyggjufullir foreldrar og tor- tryggnir makar gera stöku sinnum merkileg upphlaup. Fyrir hefur komið að unnin hafa verið óhæfu- verk í nafni hreyfingarinnar. Þannig reyndu 4 félagar að ræna rússneskri flugvél í farþegaflugi milli Oslo og Moskvu fyrir fáein- um árum til að mótmæla ófrelsi í Sovétríkjunum. Farþegi yfirbug- aði ræningjana og þeir hlutu væga dóma í Svíþjóð. Áf hálfu hreyf- ingarinnar var þessu fólki veitt öll sú aðstoð sem hægt var við réttarhöldin og meðan á fangelsis- vistinni stóð. Engum þeirra var afneitað, og öllum var tekið opnum örmum við lok refsivistar. Eigi að síður var atferli þeirra í fullkominni mótsögn við siðfræði samtakanna og tiltækið undirbúið án vitundar ábyrgra aðila í hreyf- ingunni. Þessi atburður hefur, ásamt ýmsu öðru slæmu, orðið víti til varnaðar í starfi samtakanna. Kreddur trúar- bragðanna Sú hugmyndafræði, sem starf Ananda Marga grundvallast á viðurkennir ekki sköpunarsögu Biblíunnar bókstaflega, en byggir á fornum þróunar- og afstæðis- kenningum innsæisvísinda. Hún viðurkennir ekki að Guð hafi skapað manninn í sinni mynd, að Guð eigi til að stíga til jarðar og fljúgast á við okkur dauðlega, geta börn við konum okkar eða rísa upp í holdinu. Hvorki vill hún gangast við tilvist helvítis né himnaríkis annars staðar en í sálum mann- anna. Hún hafnar þeirri kenningu að laun syndarinnar sé dauði, að óskírð börn verði ekki hólpin, að draugar eigi sér tilvist annars- staðar en í hugskoti manna. Svo mætti lengi telja, en ef til vill má segja með sanni að þeim sé vorkunn, sem á að stýra stofnun og söfnuði, sem hafa aðhyllst slíkar hugmyndir með einum eða öðrum hætti, þótt hann hafi horn í síðu Tantra-hreyfingar eins og Ananda Marga, sem þó telur Krist meðal hinna mestu meistara í sögu mannsandans, og einn hinn sérstæðasta. Við afbiðjum okkur aðeins með öllu að vera blandað í deilur klofningshópa úr hinni al- mennu kirkju og hinna ýmsu kristnu sértrúarsafnaða, og vísum á bug öllum dylgjum um skugga- legar starfsaðferðir og vafasama fjármeðferð. Ódýrt í hádeginu Alla daga vikunnar bjóðum við hádegisverð á aðeins 56 kr. Ódýrt en gott. VIÐTALSTÍMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík Alþingi.menn og borgarfulltrúar Sjálfataaöiaflokkaina veröa til viötala (Valhöll, Háalaitiabraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til 16.00. Er þar takiö á möti hvara kyna fyrirapurnum og ábondingum og ar öllum borgarbúum boöið aö notfnra aár viðtalatima þaaaa. 23. leikvika — leikir 7. febr. 1981 Vinningsröö: 1X2 — 1X1 — 1XX — 111 1. vinningur: 12 róttir — kr. 26.075.- 3767 36344*+ 36565* 2. vinningur: 11 réttir — kr. 588.- 1127 5677 15458+ 27092 34406 38682+ 43750 1941 6311 16806 27637 34550 41259” 43847 2099+ 7696 18384+ 30696 35581 41831 44719 2566 10306 18738+ 31354 35584 41893 45576 2599 10310 21978 31765 35615 42101 59182 2714 14706 25522 33387 36784 42365 3495+ 15203 26789** 33579 37843 42994 * =(4/11) ** =(2/11) Kærufrestur er til 2. marz 1981 kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) veröa að framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK SCHAUFF Hjólasport Gnoðavogí 44, 8. 34580 Vestur-þýsku Schauff reiðhjólin. Febrúartilboö Tökum notuð reiöhjól uppí greiöslu á nýjum hjólum. Komiö meö notuöu hjólin hrein og viö verömetum þau, og þú ferö meö nýtt glæsilegt vestur-þýskt Schauff reiöhjól heim. Veröiö mjög hagstætt, greiöslukjör. Hjólasport, Gnoðavogi 44 viö hliöina á Vogaveri, sími 34580. Opiö frá kl. 1—6 í dag og alla virka daga. Opiö föstudaga kl. 1—7 og laugardaga 9—12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.