Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 44

Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 HÖGNI HREKKVISI ,\lim 6FMIKLÁ tFltöt) UJ'A M-' ... aðfara saman í gamla gleðileiki. TM Rsg U S Pat. Off. -aH rights raaarvad • 1978 Los Angatas Timas Syndicata Hvað er orðið aí geislabaugnum þinum? COSPER Þegar hann sá ’ann sagði hann við mig: Jæja, vina vel af sér vikið og nú erum við hætt. — En þú veist nú hvernig hann er ... 011 skáld vildu Lilju kveðið hafa Gunnar Finnhogason skóla- stjóri skrifar 3. febrúar: í upphafi þessa árs birtist í flestum eða öllum dagblöðum nokkurs konar tilvitnun sem átti að vera sótt aftur í aldir. Þar var nefnilega vitnað í kvæðið Liija, sem ort var á 14. öld eftir Eystein Ásgrímsson, og sagt: Hann kvað það ljóð sem allir vildu kveðið hafa. — Síðan voru þessi orð tekin upp í umræðum í sjónvarpi og var þá mælirinn fullur að vorum dómi. Ég held að hér sé farið rangt með og ég tel þetta meira að segja afkáralegt að segja að allir vildu Lilju kveðið hafa og því hef ég leitað frekari heim- ilda um þetta atriði. Það er tiltölulega auðvelt því að marg- ir hafa orðið til að skrifa um Lilju, enda eru útgáfur kvæðis- ins orðnar margar. Skulu hér nú rakin nokkur dæmi sem sanna mál mitt: 1) í útg. Lilju á íslensku og latínu, Khöfn 1858, segir í formála á bls. 1: í bókmenntalegu tilliti er Lilja eitthvert hið merkilegasta verk frá miðöldunum, því enn muna menn eptir hinu forn-* Gunnar Finnbogason kveðna: „öll skáld vildu Lilju kveðit hafa.“ 2) The Lily all bards would fain have sung (öll skáld vildu Lilju kveðið hafa) is the short and pithy award which Iceland accords to the following song. — (The Lily etided by Eiríkr Magnusson, London 1870, bls. V.). 3) Jeg var barn að aldri þegar jeg heyrði fyrst talað um Lilju og orð haft á því, að „öll skáld vildu Lilju kveðið hafa“. (Guð- mundur Björnsson: Mesta skáldið okkar (1912), bls. 1). Einkunnarorð hjá höfundi, prentuð fyrst: „Öll skáld vildu Lilju kveðið hafa.“ Gamalt orðtak. 4) Lilja er hið dýrðlegasta kvæði, sem kveðið hefur verið á íslenska tungu, enda segir orð- takið: „öll skáld vildu Lilju kveðið hafa.“ (íslensk smárit, bls. 11, Khöfn 1913, Finnur Jónsson bjó til prentunar, tilv. dags. 28. des. 1912, B.Th.M.) 5) — höfundur Lilju, sem sagt var um „að öll skáld vildu Lilju kveðið hafa.“ (Jónas Jónsson: Islandssaga, Reykjavík MCMXXX V. bls. 20) 6) I erindi um Lilju, sérprent- að, Reykjavík 1958, segir Magn- ús Kjaran, bls. 11: „Öll skáld vildu Lilju kveðið hafa,“ segir í Árbókum Espólíns og Kirkjusögu Finns biskups. Hefur það verið orðtak manna." 7) Braglist og orðsnilld er slík að flestum finnst kvæðið koma sér við, og margir þekkja það sem mælt var fyrir löngu að öll skáld vildu Lilju kveðið hafa. (Stafafell 1974, úr formála eftir undirritaðan, bls. 11). Ég ætla nú að nóg sé sagt og alleinarðlega. Ég þykist vita að allir vilji hafa það sem sannara reynist. DÁINN eftir Sigurð Júlíus Jóhannesson Hún átti sér lítinn og laglegan son, og Ijósan á hörund sem snjáinn; þar fannst henni vera sín framtíöarvon, því faöir hans löngu var dáinn. Á meöan hann liföi, þá leiö þeim svo vel; hann leitaöi fiskjar á sjáinn, hann æöraöist sjaldan og hræddist ei hel, þótt hvessti og svignaöi ráin. Hann skammt upp frá ströndinni byggt haföl bæ, og byttan hans stóö þar við sjáinn, hann fátækur var, en þó ánægöur æ, á engum sást glaölegri bráin. Hvern einasta morgun, ef ekki var hvasst, hann ýtti meö dögun á sjáinn, og kugginn meö árunum knúði hann fast, þótt kolmórauö beljaöi láin. En svo var þaö kvöld eitt, hann kom ekki í land, er kári átti í brösum við sjáinn; og bárurnar kveöju hans kváöu viö sand, þær kváöu hann nú vera dáinn. Og konunni flutti hann kári þá fregn, hann kvaö hana í sífellu á skjáinn; þaö var líkt eins og hjarta hennar lagt væri í gegn; hún leiö niöur rétt eins og dáin. Svo stóö hún upp aftur, en studdi sig þó, hún staröi meö ekka, út á sjáinn; í hug hennar var ekki hvíld eöa ró, því hann, sem hún unni, var dáinn. En þó mátti ei æörast og þaö vissl hún glöggt, en þrútin og döpur var bráin, og hvarmarnir vöknuöu og hjartaö var klökkt, hvert sinn er leit hún á sjáinn. Hún hugsaöi oft um sitt elskaöa jóö, þaö aöeins var heitasta þráin, aö framtíöin hans yröi fögur og góö, þótt faöir hans væri nú dáinn. Hún vissi þaö ekki, hvaö yröi honum best, en ei mátti hann róa út á sjáinn, því þá gat hann brimaö og þá gat hann hvesst, og þá var hann óöara dáinn. En senda hann í skóla? Það skást henni fannst, þótt skildinginn brysti, var þróin svo sterk þaö var undur hve vel henni vannst; en von bræöir hörmunga snjáinn. En hann var svo lítið og leikfjörugt barn, hann lék sér viö blómin og stráin, svo ungur og kátur og glaöværöargjarn, hann galaöi og söng út í bláinn. Og tímarnir liöu og tíöanna hjól, þaö tifaöi um lönd og um sjáinn. Hann nú haföi iifaö hin níundu jól, og nú var til bókmennta þráin. Úr skólanum hafói hann svo fjöldamargt frétt, því fæddist í huga hans þráin, aö komast í hópinn og klæöa sig nett, þaö kaus hann og losna viö sjáinn. Svo býst hann í skóla, og vió skaparann sver, aö nú skuli hann ei lifa út í bláinn, og móöirin faömaöi soninn aö sér, af söknuöi hnyklaöist bráin. Þótt brottfararstund væri bitur og sár, þá bætti þaö vonin og spáin, því læröur hann kom eftir ákveöin ár, og öll var ná hörmungin dáin. Svo fór hann aö lesa, honum lét það svo vel, hann liföi nú ekki út í bláinn, en letingjar sögöu: þú lest þig í hel! Þótt Ijótt sé, þá rætist sú spáin. Uss, skoöaöu heiminn og skunda meö oss, en skruddunum fleygöu út í bláinn, og lát sem þú vitir aö lífiö er hnoss, og láttu ekki sem þú sért dáinn. Og þeir voru læröari og lesnari en hann; og Ijárinn er beittari en stráin — og slægur á saklausum sigurinn vann, um síöir hann stökk út í bláinn. Á kvöldin svo lék hann sér langt fram á nátt, viö lestur var áhuginn dáinn, og miklu hann eyddi, en innvann sér fátt, hann álpaöist rétt út í bláinn. En mamma hans var heima, hún undi sér ei, því ástin og vonin og þráin, þær hvísluöu: .Hann kemur", en hræöslan kvað: „Nei". En hvor var þá réttari spáin. Hann spilaöi og dansaói, en lítiö hann las, var lifandi réttnefndur dáinn. Hann fór inn á knæpur og fékk sér þar glas, og flúin var göfuga þráin. Hann labbaöi drukkinn eitt laugardagskvöld, er Ijós voru hvarvetna dáin, og niður á bryggju, en kjör voru köld, hann kollsteyptist beint út í sjáinn. Og lífið var horfiö aö lítilli stund, hann lá þar í fjörunni dáinn; hann sofnaöi eilífum brennivinsblund og bylgjurnar léku við náinn. Er móöir hans heyrði þá hörmungafregn, aö hann væri kominn í sjáinn, hún varóist ei lengur, þaö var henni um megn, hún varp aóeins öndinni, dáin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.