Morgunblaðið - 28.03.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981
Tuttutíu félöK og samtök fatlaðra kynna á morgun, sunnudag, málefni fatlaðra. Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik ritaði fyrir nokkru ýmsum samtökum fatlaðra og kynnti hugmynd
sína um að efna til þessa opna húss i tilefni árs fatlaðra og er aðaláherzla lögð á að félögin kynni
starfsemi sína. Ljósm. Emilía
Dragnótaveiði í Faxaflóa:
Sjómenn senda Al-
þingi mótmælaskeyti
Auto-Rally ’81
hefst í dag
Bifreiðaiþróttaklúbbur
Reykjavíkur og Biigreinasam-
bands ísiands gangast fyrir
auto-rally ’81, dagana 28. og 29.
mars, i tengslum við alþjóðiegu
bilasýninguna, Auto '81.
Keppnisleiðin er 350 kílómetrar
og eru eknir 180 km. á laugardag
og 170 km. á sunnudag. Lengd
sérleiða í keppninni er um 80 km.
og er sú lengsta 20 km., en sú
stysta 1,5 km. Sextán bílar eru
skráðir til leiks.
Fyrsti bíll heldur af stað frá
Sýningahöllinni kl. 15.00, laugar-
daginn 28. mars, og koma bílarnir
þangað aftur um kvöldið kl. 20.30.
Bílarnir verða einnig ræstir frá
Sýningahöllinni á sama tíma dag-
inn eftir, sunnudaginn 29. mars,
og eru væntanlegir um kvöldið kl.
20.30 eins og fyrri daginn.
Þetta er fyrsta rally-keppnin,
sem fram fer á þessu ári, en alls
eru á keppnisskrá LÍA ’81 sex
slíkar.
Meðal keppenda eru þeir bræð-
ur, Ómar og Jón Ragnarssynir,
sem gert hafa garöinn frægan í
þessari íþróttagrein. Einnig má
nefna þá Hafstein Aðalsteinsson
og Ólaf Guðmundsson, sem urðu
nr. 2 í Ljóma-rally ’80, sem var
fyrsta alþjóðlega rally-keppnin,
sem háð var hérlendis, þá eru þeir
Bragi Guðmundsson og Ólafur
Sigurjónsson, en Bragi varð nr. 3 i
fyrrgreindri keppni. Meðal kepp-
enda er einnig „Dalabóndinn" örn
Ingólfsson, en hann hefur verið
manna iðnastur við að mæta til
leiks á Trabant-bifreið sinni.
SKIPSHAFNIR á um 30 minni
bátum frá stöðum víðs vegar við
Faxaflóa hafa sent Alþingi
skeyti, þar sem þeir mótmæla
framkomnu stjórnarfrumvarpi
um dragnótaveiðar i Faxaflóa.
Dragnótaveiðar voru bannaðar i
Flóanum fyrir áratug. en í frum-
varpinu er gert ráð fyrir, að leyft
verði að veiða 1.000—1.500 tonn í
dragnót á ári hverju og nokkrir
bátar fái að stunda þessar veiðar.
Á morgun, sunnudag, efnir Fé-
lag eigenda minni báta í Reykja-
Steindór frá
Hlöðum selur
bókasafn sitt
STEINDÓR Steindórsson frá
Illöðum hefur nú selt Guð-
mundi Axelssyni í Klausturhól-
um bókasafn sitt, sem telja
mun um 11.000 titla. Þeir elztu
munu vera frá því um 1700.
Þetta safn er með þeim stærstu
og beztu sinnar tegundar i
einkaeign á landinu, en í þvi er
fjöldi merkra bóka um nátt-
úruvisindi, ferðabækur og
ljóðabækur. auk ýmissa ann-
arra titla.
Morgunblaðið hafði tal, bæði
af Steindóri og Guðmundi, en
þeir vildu sem minnst um málið
segja og kaupverð safnsins
fékkst ekki uppgefið.
vík til fundar á Hótel Esju til að
ræða þessi mál. Fundurinn hefst
klukkan 14 og framsögumenn
verða þeir Valdimar Indriðason,
Akranesi, Sæmundur Þórðarson,
Vatnsleysuströnd, og Aðalsteinn
Sigurðsson, fiskifræðingur.
ffiiia:
Geir Hallgrimsson
Mánudagskvöld 30. marz:
Geir Hallgrímsson ræðir
utanríkis- og öryggismál
Flugmannaráðningarnar:
Loftleiðaflugmenn
tóku ekki afstöðu
„Loftleiðaflugmenn hafa hvorki
samþykkt né hafnað tillögu Flug-
leiða um ráðningar á Boeing- og
Fokker- vélar félagsins," sagði
Ingi Olsen, einn stjórnarmanna
FLF, í samtali við Mbl. í gær, en
hann kvað þessar tillögur unnar á
svipaðan hátt og þeir teldu eðli-
legt til þess að sanngirni væri
gætt við þessar ráðningar, ekki
væri óeðlilegt hvernig Flugleiðir
stæðu að þessu máli miðað við
starfsaldur flugmanna félagsins.
Ingi kvaðst ekki gera ráð fyrir að
Loftleiðaflugmenn gerðu neina
samþykkt um málið, en hann kvað
þá vonast til þess að sameigin-
Aðalfundur
Iðnaðarbank-
ans í dag
AÐALFUNDUR Iðnaðarbanka ís-
lands hf. verður haldinn í dag kl. 2
að Hótel Sögu. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf auk
breytinga á samþykktum og reglu-
gerð bankans. Hluthafar í Iðnað-
arbankanum eru nú 1340 og hluta-
fé einn milljarður gkr.
legur starfsaldurslisti yrði sam-
þykktur.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík,
Hvöt, Heimdallur, óðinn og Vörð-
ur, efna til almenns fundar um
utanrikis- og öryggismál nk.
mánudagskvöld, 30. marz i Sjálf-
stæðishúsinu, Valhöll, og hefst
fundurinn kl. 20.30.
Á fundinum mun Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis flytja ræðu,
sem hann nefnir: „Hverjir hafa
lykilaðstöðu í utanríkis- og örygg-
ismálum íslands?" Þennan dag,
30. marz 1949, gerðu kommúnistar
aösúg að Alþingishúsinu, eins og
kunnugt er, og gerðu tilraun ti! að
hindra störf Alþingis, sem þá
fjallaði um aðild Islands að Atl-
antshafsbandalaginu.
Að lokinni ræðu Geirs Hall-
grímssonar mun hann svara fyrir-
spurnum og síðan verða almennar
umræður. I fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu hefur borizt frá
Sjálfstæðisfélögunum í Reykjavík
segir m.a.: „Utanríkismál eru nú í
brennidepli almennrar umræðu og
menn spyrja, hvort kommúnistar
hafi m.a. með neitunarvaldi í
ríkisstjórninni náð völdum og
áhrifum í öfugu hlutfalli við
kjörfylgi þeirra."
Jakob Jónas-
son rithöfund-
ur látinn
JAKOB Jónasson rithöfundur lést í
gsrmorgun í Landakotsspítala 83
ára að aldri.
Jakob var fæddur 26. des. 1897 að
Gunnarsstöðum í Bakkafirði, sonur
hjónanna Jónasar Jakobssonar
bónda þar og Kristínar Jóhannes-
dóttur. Hann stundaði nám við
Bændaskólann á Hólum, Samvinnu-
skólann og loks Kennaraskólann, og
var lengst af farkennari með námi.
Síðan var hann við verslunarstörf til
ársins 1948 að hann gerðist bókari
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
var þar til 1966. Þá vann hann í tvö
ár sem handrita- og prófarkalesari
hjá Morgunblaðinu.
Jakob Jónasson var kunnur rithöf-
undur og sendi frá sér allmargar
skáldsögur, en auk þess birtust eftir
hann greinar í blöðum og tímaritum.
Jakob var kvæntur Maríu Jóns-
dóttur frá Reykjanesi í Árneshreppi
og er hún látin.
Minningarat-
höf n í dag
MINNINGARATHÖFN um sjó-
mennina tvo, Albert Ólason og
Guðna Guðmundsson, sem drukkn-
uðu er þá tók út af Heimaey frá
Vestmannaeyjum aðfaranótt 17.
febrúar sl., verður haldin í Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum í dag.
Hefst athöfnin kl. 14 og annast hana
sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson
sóknarprestur.
Guðný klár á sjóinn eftir brunann:
Missti aðeins 3 róðra umfram aðra báta
Ísaíirói, 26. marz.
ÚTGERÐARMAÐUR mb.
Guðnýjar ÍS sem kviknaði í á
dögunum var aldeilis lukku-
legur í dag þegar fréttaritari
Morgunblaðsins hitti hann að
máli við skipshlið. Strax þeg-
ar báturinn kom að landi og
skemmdir höfðu verið kann-
aðar, var byrjað að panta ný
tæki í skipið og menn fengnir
til að rífa i burtu brunnar
innréttingar og ónýt tæki.
Nú, tíu dögum seinna, er
Guðný tilbúin til róðra og
sagðist skipstjórinn reikna
með að halda út um miðnættið
í nótt. Starfsmenn M. Bern-
harðsson hf. sáu um innrétt-
ingasmíði í hluta brúar og allt
bestikkið ásamt gluggum og
gluggabúnaði. Rifið var innan
úr káetunni, en hún að öðru
leyti látin bíða til vorsins.
Vélsmiðir úr Þór hf. og Vél-
smiðju Isafjarðar fóru yfir
vélar og vélbúnað, sem reynd-
ist að mestu leyti í lagi. Skipta
þurfti um alla raflögn aftan í
skipinu og smíða nýja töflu.
Þau verk unnu rafvirkjar frá
Pólnum hf. Öll siglingar- og
fiskileitartæki voru sett ný.
Tæknimenn frá Pólnum og
Oddi Friðrikssyni sáu um þá
vinnu. Sigurður Sveinsson út-
gerðarmaður átti engin orð til
að lýsa þeim frábæru vinnu-
brögðum sem hann hafði notið
undanfarna daga. Taldi hann
augljóst að svona skjót og góð
vinna næðist ekki nema með
samstilltu átaki allra sem að
málum hafa unnið. Vegna
ógæfta undanfarið verður út-
koman sú, að Guðný missir
ekki úr nema þrjá róðra um-
fram aðra landróðrarbáta héð-
an.
Úlfar
Útgerðarmaðurinn Sigurður
Sveinsson hefur ekki farið úr
vinnugallanum þessa daga sem
unnið hefur verið við viðgerð-
irnar. Á myndinni sem tekin
var á miðnætti, er hann að
kveðja skipstjórann, Jón Pét-
ursson. áður en lagt er af stað í
fyrsta róðurinn eftir brunann.