Morgunblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 48
Símtnn á ritstjóm og skrifstofu: 10100 2n«r0un!»lai»it> Síminn á afgreiðslunni er 83033 2flor0unblní)ií> LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981 Verðlags- stofnun kær- ir eggjafram- leiðendur VERÐLAGSSTOFNUN hef- ur kært þrjá eggjaframleið- endur til Rannsóknarlög- reglu ríkisins og fleiri kærur munu fylgja í kjölfarið, sam- kvæmt upplýsingum Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra. Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri sagði að eggjaframleiðend- urnir væru kærðir fyrir brot á 1. grein bráðabirgðalaga rík- isstjórnar frá síðustu áramót- um um verðstöðvun. Þeir væru taldir hafa hækkað heildsöluverð á eggjum úr 25 í 30 krónur kílóið án samþykkis réttra yfirvalda. Þegar Rannsóknarlögregla ríkisins hefur lokið rannsókn málsins verður það sent ríkis- saksóknara og hann tekur ákvörðun um það hvort mál verður höfðað gegn hinum kærðu eða ekki. Helmings lækkun launa og afkasta Starfsfólk frystihúsa á ísafirði hefur bundist samtökum um að halda vinnuafköstum í lágmarki og voru hanfjtökin því ekki hröð í vinnslusal Hraðfrystihússins Norðurtanga. Sjá nánar á miðsíðu. Jón Jónsson jarðfræðingur um byggð á Rauðavatnssvæði: Svæðið ekki tilbúið vegna ókannaðs sprungusvæðis ÉG TEL alls ekki að Rauðavatnssvæðið sé til- búið til að ákveða að taka það undir byggingar- svæði. Þarna er sprungu- svæði, sem þarf að vara sig á, sagði Jón Jónsson, jarð- fræðingur. En greinar- gerð frá honum um jarð- fræðiathuganir á höfuð- borgarsvæðinu hafði af Skipulagsstofnun höfuð- borgarsvæðisins verið send til Borgarskipulags og Skipulagsstjórnar ríkisins vegna tillagna frá Reykjavíkurborg um að ákveða næsta byggingar- svæði upp af Rauðavatni. Jón sagði að misgengi væri í berginu á þessu svæði, sprungur næðu þangað, en sínar rannsóknir væru aðeins byrjunarathuganir. Áður en hugsað væri til þess að ákveða þar byggð þyrfti því vegna jarðskjálftahættu að afmarka nákvæmlega allar stórar og smáar sprungur, sem hlytu að vera þarna, svo að öruggt væri að hús yrðu ekki byggð ofan á þeim. Annar jarðfræðingur, dr. Helgi Torfason á Orkustofnun, sem hef- ur verið að athuga sprungusvæðin á Suðurlandi og tengsl þeirra vegna jarðhitasvæðanna, sagði, er fréttamaður bar þetta undir hann, að í greinargerð Jóns væri síst tekið of djúpt í árinni. Þá kvað Jón varhugavert að leggja niður Bullaugnasvæðið sem vatnsból, svo sem gert er ráð fyrir í nefndri tillögu um byggð á svonefndum austursvæðum í Reykjavík, þar sem þar fáist bæði of dýrmætt neysluvatn til að nota eingöngu til iðnaðar og auk þess sé mikill kostur að hafa ekki vatns- ból fyrir svo stórt byggðasvæði (Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog) á sama grunnvatns- svæði. Sjá grein og kort á bls. 26. * Formannaráðstefna ASI: 50 manna nefnd móti kröfur Björn ÞórhallsNon, varaforseti ASÍ, i ræðustól á íormannaráðstefnu ASÍ i gær. FORMANNARÁÐSTEFNU ASÍ lauk í gær, föstudag, og voru þar reifaðar kröfugerðir og aðferðir í því sambandi. Þá var ákveðið að kjósa nefnd, sem móti kröfur og skipuð verði miðstjórn ASÍ, formönnum félaga og landssamtaka, auk þess sem þau munu tilnefna í hana fleiri menn og alls munu 50 geta átt þar sæti. Því var síðan beint til félaga og landsamtaka innan ASÍ að þau sendu nefndinni hugmyndir sínar um kröfugerð og aðferðir í fyrrihluta mai. I þessu tilefni hafði Morgun- blaðið samband við Björn Þór- hallson, varaforseta ASÍ og sagði hann, að megin markmið ráð- stefnunnar, en hana sætu for- menn allra félaga og samtaka innan ASÍ, væri að kanna mis- munandi viðhorf manna til kröfugerðar og leita nýrra hug- mynda, auk þess sem með þessu væri stefnt að því að hafa kröfugerðir tilbúnar það tíman- lega að ekki þyrfti að koma til vandræða eins og við síðustu samninga, heldur gæti samning- ur tekið við af samningi. Hann sagði síðan að hann byggist við að nefndin gæti hafið störf um mánaðamótin maí-júní, en að kröfugerð gæti hugsanlega orðið tilbúin í september. Samn- ingar ASÍ renna út 1. nóvember. Á síðasta þingi ASÍ, sem haldið var í nóvember á siðasta ári, ályktaði þingið, að stefnt skyldi að því að hefja viðræður við vinnuveitendur áður en nú- gildandi samningur rynni út, þannig að nýr kjarasamningur gæti þá þegar tekið við af hinum gamla. Fíkniefna- smyglarinn frajnseldur til Islands ÍSLENDINGURINN, sem hand tekinn var á Kastrup-flugvelli í síðustu viku með mikið magn af amfetamini verður að öllum lík- indum framseldur til íslands fljótlega, samkvæmt upplýsing- um, sem Mbl. fékk i Kaup- mannahöfn i gær. Eins og fram kom í blaðinu í gær höfðu íslenzk yfirvöld krafizt þess að maðurinn yrði framseld- ur, þar eð hann tengdist um- fangsmiklu fíkniefnamáli, sem var til rannsóknar í Reykjavík í febrúar sl. Islendingurinn, sem er 23ja ára gamall situr nú í gæzluvarðhaldi í Vestre-fangelsinu í Kaup- mannahöfn og er búist við að dómur falli í máli hans innan skamms. Hann var tekinn með 300 grömm af amfetamíni auk smávægilegs magns af öðrum fíkniefnum. Samkvæmt dönskum lögum getur refsing fyrir slíkt smygl orðið allt að 18 mánaða fangelsi. Tillögur fískifræðinga: Loðnuafli fari ekki yfir 700 þús. tonn ÍSLENZKIR og norskir fiski- fræðingar hafa í sameiningu lagt til, að afli úr íslenzka loðnustofninum sumar og haust 1981 og á vetrarvertíð 1982 fari ekki yfir 700 þúsund lestir. Þessi tiilaga þeirra verð- ur síðan endurskoðuð að lokn- um bergmálsmælingum á stofninum næsta haust. í samningum íslendinga og Norðmanna um Jan Mayen er kveðið á um, að Norðmenn megi veiða 15% þess afla, sem leyft er að veiða hverju sinni. I fyrra fóru þeir fram yfir þessa hlutfallstölu heildaraflans og ef þessi tillaga fiskifræð- inganna verður samþykkt fá Norðmenn um 100 þúsund lest- ir af þessu aflamagni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.