Morgunblaðið - 28.03.1981, Síða 31

Morgunblaðið - 28.03.1981, Síða 31
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981 31 SJÁ NÆSTU SÍÐU Jóhanna Norðfjörð hefur nú tekið við hlutverki prófessors Þjóðlaugar í leikriti VaÍRarðs Einlssonar. Dags hriðar spor, sem sýnt verður i siðasta sinn i daif. Sýningum fækkar á Oliver Twist Sýningum fer nú að fækka á barna- og fjölskylduleikritinu Oliver Twist eftir Charles Dick- ens í leikgerð Árna Ibsens. Leik- stjóri er Bríet Héðinsdóttir og Messíana Tómasdóttir gerði leik- mynd og búninga. Verkið hefur þegar verið sýnt yfir tuttugu sinnum við ágæta aðsókn og mjög góðar undirtektir. Sölumaður deyr fyrir fullu húsi Ekkert lát er á aðsókninni að leikriti Arthur Millers, Sölumað- ur deyr, sem sýnt hefur verið fyrir fullu húsi undanfarið. Svo sem kunnugt er þá eru aðalhlut- verkin í höndum Gunnars Eyj- ólfssonar, Margrétar Guðmunds- dóttur, Hákonar Waage og Andra Arnar Clausen. Auk þeirra eru stór hlutverk í höndum Róberts Arnfinnssonar, Bryndísar Pét- ursdóttur og Árna Tryggvasonar. Síöustu áskriftartón- leikar á þessu starfs- ári á Kjarvalsstööum FJÓRÐU og síðustu áskriftartón- leikar Kammersveitar Reykjavikur á þessu starfsári verða haldnir á Kjarvalsstöðum á morgun, sunnu- daginn 29. mars og hefjast þeir kl. 17. Á þessum tónleikum verða flutt työ íslensk verk sem ekki hafa heyrst hér áður. Er annað þeirra „Sex sönglög" eftir Hjálmar H. Ragnarsson við ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson, sem Hjálmar samdi í tilefni áttræðisafmælis föður síns, Ragnars H. Ragar, og flutt var að hluta á afmælistónleikum, sem haldnir voru á ísafirði Ragnari til heiðurs. Sðnglögin hafa verið flutt erlendis við mikið lof gagnrýnenda en verða nú flutt í fyrsta sinn í heild hérlendis. Þau eru samin fyrir mezzo-sópran, flautu, selló og píanó og fer Ruth Magnússon með ein- söngshlutverkið. Hitt íslenska verkið er eftir Þorkel Sigurbjörns- son, „Stef án tilbrigða" fyrir klarin- ett, selló og píanó. Er verkið samið fyrir tilstuðlan Kammersveitarinnar eins og flest þau íslensku verk sem heyrst hafa á tónleikum sveitarinn- ar og er hér um frumflutning að ræða. Síðast á efnisskránni er „Sag- an af dátanum" eftir Stravinsky. Á Listahátíð 1976 flutti Kammersveit- in í samvinnu við Leikfélag Reykja- vikur Söguna af dátanum í leiksviðs- gerð, þ.e. með leikurum og dansara, en í þetta sinn verður tónlistin flutt einvörðungu, enda er hér um að ræða eitt af þekktustu kammerverk- um Stravinskys. Páll P. Pálsson mun stjórna þessu sígilda meistaraverki. Með þessum tónleikum lýkur Kammersveit Reykjavíkur sjöunda starfsári sínu. Hefur mikil gróska verið í starfi sveitarinnar og mörg öndvegisverk verið flutt á tónleikum hennar, sem aldrei hafa heyrst hér áður. Kammersveit Reykjavikur á æfingu undir stjórn Páls P. Pálssonar. Kirkjukór Lögmannshlíðarkirkju. Tónleikar í Háskólabíói í DAG heldur hljómsveit og lúðrasveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur tónleika í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 14.00. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. Frá æfingu hjá Leikfélagi Mennta- skólans á Akurcyri Lúðrasveit Tónmenntaskóia Reykjavikur. Kór og hljómsveit Tónlistarskólans i Reyjavik á æfingu. í dag verða tónleikar í Háteigskirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Kór og hljómsveit Tónlist- arskólans í Reykjavík flytja „Requiem" eftir Max Reger og „Laudate Dominum" eftir nú- tímatónskáldið Twardowski. Stjórnandi er Marteinn H. Friðriksson. Einnig munu nemendur úr Tónmenntar- Kirkjukór Logmannshlíðarkirkju: Tónmenntaskóli Reykjavíkur: Kammersveit Reykjavíkur: Heldur fjölbreytta tón- leika í Akureyrarkirkju ANNAÐ kvöld heldur Kirkjukór Lögmannshliðarkirkju tónleika i Akureyrarkirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Stjórnandi er Áskeli Jónsson, sem hefir stýrt kórnum i 35 ár og verið organisti Lög- mannshliðarkirkju jafnlengi. Einsöngvarar verða Eiríkur Stefánsson, bassi, Helga Alfreðs- dóttir, sópran, og Þórarinn Hall- dórsson, tenór. Með kórnum kem- ur fram 15 manna strengjasveit úr Tónlistarskóla Akureyrar, að mestu skipuð ungum hljóðfæra- leikurum. Hjónin Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson, sem nú eru að ljúka tónlistarnámi í Diissel- dorf í Þýskalandi, munu koma fram á tónleikunum og leika samleik á selló og orgel. Verkin sem þau flytja eru Sónata nr. 6 eftir Antonio Vivaldi og Sjö lög fyrir selló og orgel eftir César Franck. Á efnisskrá kórsins er ýmisleg erlend og innlend kirkjutónlist, þar á meðal lag eftir söngstjór- Háteigskirkja: ann, Áskel Jónsson. Aðalviðfangs- efnið verður Messa nr. 2 í G-dúr eftir Franz Schubert. í því verki leikur Hörður Áskelsson á orgel með kórnum ásamt strengjasveit- inni. Tónleikarnir verða ekki endur- teknir á Akureyri. Tónleikar kórs og hljóm- sveitar Tónlistarskólans Þjóðleikhúsið: kennaradeild stjórna lögum eftir Pepping og Distler. Leikfélag Mennta- skólans á Akureyri: „Er á meðan er*‘ eftir Rúnar Vilhjálmsson ANNAÐ kvöld frumsýnir Leikfélag Menntaskólans á Akureyri banda- ríska gamanleikritið „Er á meðan er“ eftir þá Kaufman og Hart, og hefst sýningin kl. 20.30 i Samkomu- húsinu á Akureyri. Leikstjóri cr Guðrún Alfreðsdóttir. „Er á meðan er“ er frægt gaman- leikrit og hefur hvarvetna hlotið góða dóma. í leikritinu gefa höfund- ar mynd af bandarísku þjóðlífi í kreppunni á gamansaman en þó raunsæjan hátt. „Dags hríðar spor44 í allra síðasta sinn Kl. 15.00 f dag verður allra síðasta sýningin á leikritinu Dags hriðar spor i Þjóðleikhús- inu. Verkið samdi Valgarður Eg- ilsson, en Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gíslason leikstýrðu og leikmynd er eftir Sigurjón Jóhannsson. — Ein breyting hef- ur orðið á hlutverkaskipan. Jó- hanna Norðfjörð tekur við hlut- verki prófessors Þjóðlaugar úr höndum Herdísar Þorvaldsdótt- ur. — Annars eru aðalhlutverkin i höndum Rúriks Haraldssonar, Þóris Steingrímssonar, Árna Blandon, Guðbjargar Þorbjarn- ardóttur, Helga Skúlasonar, Helgu Bachmann, Helga Skúla- sonar og Sigurðar Sigurjónsson- ar. Ein aukasýning á „Líkamanum“ Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 verður aukasýning á leikriti Jam- es Saunders, Líkaminn — annað ekki. Síðasta sýning var sl. fimmtudagskvöld og þá var upp- selt. Ekki er hægt að gera ráð fyrir fleiri sýningum, þar eð nýtt verk verður frumsýnt á Litla sviðinu hinn 7. apríl nk. Það hefur verið samdóma álit þeirra sem um þessa sýningu hafa fjallað að fágaðri leik og trúverðugri túlkun sé vart að finna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.