Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 1
115. tbl. 68. árg. SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tilræðismaður nefnir glæpanaut RómahorK. 23. mai. AP. HÁTTSETTUR lögreKlumaður skýrði frá því i dag. að Mehmet Ali Ajjca. tilræðismaður Jóhann- esar Páls páfa. hefði skýrt frá því, að i vitorði með honum hefði verið Tyrki, er talinn væri félajíi í öfKasamtökum tyrkneskra þjt»ð- ernissinna i Vestur-Þýzkalandi, er nefnd væru „>?ráu úlfarnir“. Lögreglumaðurinn sagði, að ekkert benti til þess að glæpa- nautur Agca hefði tekið beinan þátt í tilræðinu við páfa, en hann kynni að hafa aðstoðað Agca við aðra glæpi. Aðeins stundu fyrir árásina mun Agca hafa hringt í glæpanaut sinn, sem hafði aðsetur í Sarstedt við Hannover og heitir Hassan Taskin. Taskin fór í felur strax eftir tilræðið og ekki er vitað um dvalarstað hans. Læknar, sem annast hafa páfa, tilkynntu í-morgun, að hann væri nú úr lífshættu, og að ástæðulaust væri að gefa út daglega tilkynn- ingu um líðan hans. Síðustu saum- arnir eftir skurðaðgerðir voru fjarlægðir og frá því greint, að sár páfa greru framar vonum. Sagði, að af öllu forfallalausu færi páfi af sjúkrahúsi innan tveggja mán- aða. Vatikanið skýrði í morgun frá orðaskiptum páfa og einkaritara hans, er hann hneig niður í jeppa sinn eftir tilræðið. Þeir töluðu saman á pólsku: „Eg finn til mikils sársauka," sagði páfi, og er hann var spurður hvar, sagði hann „í maganum." Stundi hann síðan margsinnis á pólsku: „Jesús, Jes- ús, María, móðir mín.“ Uppreisn fanga í þremur fangelsum Jarkson. Ionia. CarsonborK. 23. mai. AP. FANGAR gerðu uppreisn í þremur handarískum fang- elsum í dag og kveiktu m.a. í fangelsisáimum, en uppþotin öll tókst að bæla niður án þess að manntjón hlytist af. Fyrsta uppreisnin var gerð í Suður-Michigan-fangelsinu, sem hefur hæstu fangelsismúra í heimi, er um 800 fangar náðu á sitt vald tveimur fangelsisálmum og fangelsisflötinni í gær. Báru þeir eld í byggingar og það var ekki fyrr en eftir ellefu klukku- stunda umsátursástand að kyrrð var komin á að öllu leyti. Alls eru 5.600 fangar á bak við lás og slá í fangelsinu. Um 1.000 fangar gerðu upp- reisn í öðru fangelsi í Michigan og slösuðust 11 fangar og fjórir verðir áður en sérþjálfuðu liði tókst að bæla uppreisnina niður. Talið er að uppreisnin í Suður- Michigan-fangelsinu hafi hvatt fangana til uppreisnar. Loks gerðu fangar í rammgirtu fangelsi í Nevada uppreisn, er stóð í skamma stund. Tóku þeir þrjá verði í gíslingu, börðu einn fanga í klessu og brutu og brömluðu glugga og innan- stokksmuni. • • 8. skærulið- inn i mót- mælasvelti Bolfast. 23. mai. Al’. ÓEIRÐIR héldu áfram í nótt óg t morgun i Bclfast og London- dcrry. tvcimur stærstu borgum N-íríands. Ilcrmcnn skutu gúmmíkúlum að mótmadcndum. 18 mánaða gamalt stúlkuharn fckk skot í hakið á hcimili sínu. Ilún var þcgar flutt á sjúkrahús og cr líðan hcnnar stigð góð cftir atvikum. Þá kom til skotbardaga og særðist einn liðsmaður IRA þeg- ar hann fékk skot í kviðinn. Þá var 15 ára unglingur fluttur á sjúkrahús með alvarleg höfuð- meiðsl. Sinn Fein, hinn stjórn- málalegi armur IRA, hélt því fram, að pilturinn hefði orðið fyrir gúmmíkúlu brezkra her- manna. Lögreglan sagði, að stað- hæfing Sinn Fein væri nú í rannsókn. Kaþólikkar köstuðu benzínsprengjum og heimatil- búnum sprengjum, sem eru fyllt- ar með nöglum, að hermönnum. Attundi skæruliðinn hóf í morgun mótmælasvelti í Maze- fangelsinu skammt fyrir utan Belfast. Hann heitir Kevin Lynch og afplánar 10 ára fangelsisdóm fyrir hermdarverk. A fimmtudag létust tveir skæruliðar IRA eftir um það bil tveggja mánaða mótmælasvelti. Alls hafa fjórir skæruliðar IRA látist eftir mót- mælasvelti. Nú eru fjórir skæru- liðar í mótmælasvelti. Ofgamenn taka banka í Barcelona herskildi Uarcelona. 23. mai. AP. IIÆGRI-ÖFGAMENN á Spáni tóku i morgun stærsta banka Barcclona hcrskildi og hótuðu að sprcngja hygginguna I loft upp. Þcir krefjast þess, að allir þcir scm voru viðriðnir byltingartil- raun hluta hersins fyrir þremur mánuðum verði látnir lausir úr fangelsi. Þeir krefjast þess, að flugvélar verði til reiðu til að fljúga hinum fangelsuðu mönnum til Argentínu. Mennirnir halda yfir 200 gíslum í byggingunni. Lögreglan sagði, að einn að minnsta kosti hefði særst í Halda yf ir 200 gíslum skotbardaga þegar ráðist var inn í bankann, en líkast til eru þeir fleiri. Talið er að öfgamennirnir séu 20 talsins og eru þeir vel vopnum búnir, meðal annars hríðskotabyssum. Sjónarvottar segja, að sjúkra- bílar hefðu ekið um 15 gíslum á brott eftir töku bankans. Ögfa- mennirnir hóta að skjóta gísl á klukkustundar fresti þar til geng- ið verður að kröfum þeirra. Um leið og fréttist af töku bankans þustu lögreglumenn á staðinn og umkringdu bygging- una. Þá voru sérþjálfaðir hermenn á leið til Barcelona. Um 400 starfsmenn voru í bankanum þeg- ar öfgamennirnir réðust inn en hann er til húsa í fjögurra hæða byggingu. Lögreglan sagði, að sprengjum hefði verið komið fyrir í nokkrum gluggum byggingarinn- ar. Leopoldo Sotelo, forsætisráð- herrar Spánar, kallaði öryggisráð landsins saman til fundar í Mad- ríd um leið og fréttin af töku bankans barst. Líbanon: Haig vísar hugmynd um ráðstefnu á bug Hcirut. WashinKton. 23. maí. AP. ALEXANDER Ilaig. utanrikis- ráðherra Bandaríkjanna. hafnaði á fundi með fréttamönnum i Washington alfarið hugmyndum Leonid Brezhnevs, forseta Sov- étríkjanna. um alþjóðlega ráð- stefnu um ástandið i Líbanon. Haig sagði. að áður en kæmi til ráðstefnu um Libanon yrði fyrst að kalla saman ráðstefnu um innrás Sovétríkjanna í Afganist- an. Haig sagði, að vonir stæðu til, að friðarviðleitni Philip Habibs, sérlegs sáttasemjara Ronald Re- agans. forseta Bandarikjanna. bæri árangur. Habib fór í morgun frá Beirut til ísrael. í Beirut átti hann viðræður við Elias Sarkis, forseta Líbanon. Búist hafði verið við, að eftir viðræðurnar í Beirut, myndi Habib fljúga til Damaskus til viðræðna við Hafez Assad, Sýr- landsforseta. Engar skýringar voru gefnar á förinni til ísraels en sýrlenskir embættismenn höfðu sagt, að Habib væri velkominn til Damaskus. Assad gagnrýndi Hab- ib í vikunni fyrir að koma ekki fram með neinar sáttatillögur, heldur hefði hann aðeins lagt fram kröfur Israels hverju sinni. Þrýstingur á Habib jókst mjög í gær þegar Sýrlendingar skutu niður að minnsta kosti eina mannlausa könnunarflugvél ísra- ela með hinum sovésk-smíðuðu SAM-6-eldflaugum, sem staðsett- ar eru í Líbanon. I Beirut voru harðir bardagar milli kristinna hægri manna og sýrlenskra her- manna. Báðir aðilar beittu stór- skotaliði og eldflaugum. Læknar aftur til vinnu Frá Ih Björnhak. írcttaritara Mbl. í kaupmannahofn. LÆKNADEILAN í Danmörku lcystist í morgun. laugardag. er 4.500 hrknar sneru aftur til vinnu sinnar. Læknarnir hafa þ«» hótað öðru verkfalli verði ekki orðið við öllum kröfum þcirra. Eftir átta klukkustunda fund í nótt tókst loks að kjósa nýja stjórn læknasamtakanna, en fyrri stjórn sagði af sér í vikunni. Deila læknanna snýst fyrst og fremst um nýja vinnu- tímatilhögun. Meðan á verkfallinu stóð, komu miklu færri sjúklingar á sjúkrahúsin en undir venju- legum kringumstæðum, en álag á heimilislæknum og sérfræð- ingum á einkastofum var mikið í staðinn. Kynnt var undir verkfallið af hálfu forystu læknasamtakana, sem var nær eingöngu skipuð vinstrimönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.