Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 27 Árni Sighvatsson, Sigurður Bragason, Viðar Gunnarsson og Elísabet Waage — á myndina vantar Signýju Sæmundsdóttur. Mynd Emiiia. 5 söngnemendur halda tónleika Mánudagskvöldið 25. og þriðjudagskvöldið 26. mai nk. halda 5 söngnemendur sina VIII stigs tónleika i Söngskóianum i Reykjavik. Að þessu sinni þreyttu 5 nem- endur VIII stigs söngpróf og stóðust allir prófið. Þeir eru: Árni Sighvatsson — baritone, Elísabet Waage — mezzo-sopran, Signý Sæmundsdóttir — sopran, Sigurður Bragason — tenor og Viðar Gunnarsson — bassi. Þessir tónleikar eru ekki út- skriftartónleikar frá skólanum heldur er hér um að ræða lið í VIII stigs prófi, sem er lokapróf úr almennri deild, og um leið inn- tökupróf í einsöngs- og kennara- deild. Prófdómari að þessu sinni var Mr. Reymond Thorpe frá Kon- unglegu tónlistarháskólunum í Bretlandi. Á tónleikunum mánudagskvöld- ið 25. maí syngja Árni Sighvats- son og Elísabet Waage, við undir- leik Láru Rafnsdóttur og Debru Gold. Á tónleikunum þriðjudags- kvöldið 26. maí syngja Sigurður Bragason, Signý Sæmundsdóttir og Viðar Gunnarsson, við undir- leik Debru Gold, Guðrúnar A. Kristinsdóttur og Katrínar Sig- urðardóttur. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og eru í tónleikasal Söng- skólans, að Hverfisgötu 44. Fyrirlestur um eldsneyti§fram- leiðslu á Islandi MÁNUDAGINN 25. mai kl. 17.15 mun dr. James H. Kelley frá Tækniháskólanum i Kaliforniu flytja fyrirlestur á vegum Verk- fræði- og raunvisindadeildar Ilá- skóia Islands um hugsanlega framleiðslu eldsneytis á íslandi úr innlendri orku og innlendu hrá- efni. Fyrirlesturinn verður flutt- ur á ensku og nefnist: „Mcthanol from peat and hydro-power as an energy independence approach for Iceland". Fyrirlesturinn er öllum opinn og verður haldinn i húsi Verkfræði- og raunvisind- adeildar (VR II) stofu 158. Dr. Kelley er starfsmaður Jet Propulsion Laboratory, sem er hluti af Tækniháskólanum í Kali- forníu. Hann er jafnframt forstöðumaður fyrir deild, sem fæst við rannsóknir á framleiðslu vetnis og notkun þess í aflvélum, annað hvort á þann hátt að brenna því beint eða breyta því fyrst í fljótandi eldsneyti, t.d. methanol. í Kaliforníu er nú lögð á það mikil áhersla að rannsaka fram- leiðslu og notkun tilbúins eldsneyt- is, er komið gæti í stað núverandi bensíns og olíu. Af líklegum elds- neytistegundum er methanol fram- leitt úr vetni og kolefni (kolum eða mó) talið einna álitlegast. Þar sem methanol er ein þeirra eldsneytis- tegunda, sem til greina kemur að framleiða og nota á íslandi, er ekki ólíklegt að þarna sé um að ræða rannsóknarsvið áhugavert fyrir bæði ísland og Kaliforníu. Erindi dr. Kelleys til íslands er meðal annars að kanna áhuga á slíkri rannsóknarsamvinnu landanna. (Frétt frá Háskóla íslands, Verkfræði- og raunvís- indadeild.) Teikning vöðva og beina mannsins Sigurður Eyþórsson SIGURÐUR Eyþórsson listmál- ari heldur þriðja námskeiðið í einkaskóla sinum fyrir byrjend- ur og áhugamenn sem eru lengra komnir, en fyrri námskeiðin í vor voru fjölsótt. Á þriðja námskeiðinu verður lögð sérstök áherzla á teikningu vöðva mannslíkamans og beina- byggingu. Skóli Sigurðar er til húsa að Borgartúni 19 og geta þeir sem vilja komið til viðtals með verk sín síðdegis til kl. 9 á mánudag og þriðjudag, 25. og 26. maí, en námskeiðið hefst föstu- dagin 29. mai og stendur til 11. júlí. Mér hefur borist lyfseðill frá Árna frá Múla, er hann sendi Kristni Jónssyni í Reykjavíkur-Apóteki. Það var á bannárunum. Lyfseðillinn var svona: Þungan geng ég þrautastig þorstinn brennir kokið. Svo er ekki meir um mig, mér er öllum lokið. En þarflegt væri það ég finn þó að önd mín visni að hella í mig i hinsta sinn hundaskammt frá Kristni. Um svipað leyti sendi Þórarinn Sveinsson á Kílakoti í Kelduhverfi svohljóðandi bréf til héraðs- læknisins á Kópaskeri: Mér vill ama meinlegt bann, munnur þráir stútinn. vertu svoddan sjentilmann að senda mér á kútinn. Heimskan mér í huga býr, hálfvelgjan og sútin, en þetta hyski þaðan flýr, þegar ég fæ á kútinn. Lotinn geng ég út og inn með augu rauð og þrútin, en unaðslíf ég aftur finn, ef ég fæ á kútinn. Hamingjan, sem hef ég treyst, hrapaði í grútinn, en hún verður endurreist, ef ég fæ á kútinn. Jón Friðriksson frá Hömrum í Reykjadal orti áttræður: Ég er að bíða, bíða eftir þér, bölvaður karlinn með stóra, skörðótta ljáinn. en það skaltu vita og það skal sannast á mér að þú þarft að brýna á elstu og seigustu stráin. Fyrir nokkru kom nýr og glæsilegur togari til Húsavíkur, Kolbeinsey, og var þá mikið um dýrðir. Þegar bæjarstjóri hvatti menn til þess að taka til máls, helst í bundnu máli, flutti ég togaranum þessa kveðju: Alla dreymir fagurt fley, föng úr sjó að draga. — Að komin sé hún Kolbeinsey er kynleg fiskisaga. I vísnasafni Péturs Guðmundssonar er þessi vísa, eignuð Friðrik Þeydal, og sögð ort eftir Kristján Jónsson í Úlfsbæ: Aldurhniginn féll á fold — felldu margan örlög köld —, sjaldan hef ég svartri mold seldan vitað betri höld. Eiríkur Eiríksson frá Dagverðargerði segir mér aftur á móti að vísan sé í sínu minni eftir Karl Jónasson, sem lengi var spítalaráðsmaður á Seyðis- firði. Mér bárust fyrir skömmu nafnlausar stökur, sem bera yfirskriftina „Oft er í holti heyrandi nær“: Skáldið hefur við og við vægt á dyrnar barið. En nú ég held að helvítið hérumbil sé farið. P.s. Vandi er að velja úr virkjunum í bili. Ein í moll og önnur dúr og ansi reimt á Kili. Þetta er svona hógvært spé út af vandræðaskapn- um kringum virkjanirnar, þar sem engir nema innvígðir geta áttað sig á hvað sé rétt og hvað rangt. Upplýsingarnar sem lagðar eru á borð fyrir menn eru sem sé ekki til upplýsingar heldur til þess að villa fyrir þeim. Til áréttingar er rétt að rifja upp limru Jóhanns Hannessonar: Að í lýrík sé mikið um mjúkyrði og mikið í satírum fúkyrði er víst til að hrósa, en í vönduðum prósa það virðist mér hvorugt sé brúkyrði. í fyrri iðnaðarráðherratíð Hjörleifs Guttormsson- ar lét hann verða sitt síðasta embættisverk að fyrirskipa Bessastaðaárvirkjun, og síðan var það fyrsta embættisverk Braga Sigurjónssonar að aft- urkalla þá ákvörðun. Þessi virkjun hefur verið kölluð gælunafninu Bessí. Móri kvað: Þar sem Hallormur helgaði staðinn er Hjörleifur nýuppstaðinn. Til Bessíar fer með sitt virkjunarver. Sökum vatnsleysis bættur er skaðinn. Þegar mest var um leyniplagg ríkisstjórnarinnar skrifað var varpað fram í vísnaleik þessum fyrri- hluta: Þó leyniplagg þeir létu gera er lítils virði trygging slík. Sigurður Pétursson botnaði: Laumukommar látast vera lausn á okkar pólitík. Það halda áfram að berast botnar við fyrrihlut- ann: Einatt hefur lítil limra lífgað upp á kveðskapinn. Andrés Kristjánsson botnar: Og úr smiðju orða fimra opnað í þrívídd sjónhringinn. Eða: En verði úr henni illvíg flimra afvopnar hún höfund sinn. Eða: Á Akureyri er nú dimmra, ekkert sólfar, Dóri minn. Eða: í Hólmi út fer Árna að svimra ef hann lítur í Moggann sinn. Jón F. Hjartar botnar: Þú mátt áfram að því imra elsku besti Halldór minn. Og Jón heldur áfram: Mér líkar stakan stórum betur straumurinn þaðan ei liggja má. Hún endist mönnum alla vetur ef þeir vilja kveðast á. í framhjáhlaupi lætur Jón F. Hjartar þess getið að vitaskuld hafi hann gaman af limrum og lesi þær sér til stórrar ánægju. I síðasta Vísnaleik var varpað fram þessum fyrrihluta Margrétar Ólafsdóttur: Kannast þær við karlagrobbið konurnar. Margrét lét fylgja að þetta væri dverghenda. Og hér kemur svo hringhenda, einnig eftir hana: Saman hrannast skúraský skapi manna breyta. Ekki verður meira kveðið að sinni. Halldór Blöndal Limran Tam.: listamannsnafn Jóns söngkonu. Tilamundu „Ég syng,“ maelti söngmeyjan Tam „hvert sumar á eyjunni Guam. Mig elska þeir þarna og óðfúsir barna sem hverannan á kappleik í Pram.“ K.K. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl' AK.I.YSIR IM ALLT LAND t>E(. \R W ALG- LYSIR I MORGl NRLADINl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.