Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI1981
PLOTUR — PLOTUR — PLOTUR
PLOTUR
Shakin’ Stevens — Sly !
& Robbie — Whitesnake
„THIS OLE HOUSE"
Shakin' Stevens
(Epic)
Shakin’ Stevens virkar
kannski sem eftirherma á gamla
Elvis Presley-unnendur og
Rockabilly-unnendur. En þeir
ættu að gefa honum aðeins meiri
tíma því náunginn gerir plötur
sem eru heilsteyptar og hressar
rockabilly-, eða rock ’n ’roll-
plötur. Stevens er ekki einn af
þessum sem eru nýbyrjaðir að
spila og syngja og ganga undir
merkjum „nýbylgju-rockabilly-
pönk“ heldur er hann bara að
yngja rokkið, eða rokkabillí eins
og hann hefur gert í mörg ár
með hljómsveitinni Sunsets.
Stevens gerði tónlistina ekki að
fullri atvinnu fyrr en 1970 þegar
Dave Edmunds (Rockpile) tók
upp plötuna „Shakin’ Stevens &
The Sunsets: Legend". Síðan
Clapton) og Geraint Watkins,
sem er þrælgóður píanisti og
fleiri.
Skemmtiplata af betri gerð —
púra rokk. hia
„TAXI“
Sly & Robbie
(laland)
Það var Bob Marley sem kom
mér á spor reggae-tónlistarinnar
og ég var einmitt að hlusta á
nýja stórgóða reggae-plötu
kvöldið sem ég frétti lát Mar-
leys. Það er plata sem heitir
„Taxi“ og gefin út undir nöfnum
þeirra Robbie Shakespeares og
Sly Dunbars sem er með betri
trommu- og bassaleikurum í
reggae. A þessa plötu hafa þeir
valið saman lög sem aðrir hafa
gefið út en þeir leikið í. Á
öllum öðrum á plötunni þá eru
Sly og Robbie stjörnurnar.
hia
„COME AN’ GET IT“
Whitesnake
(Liberty)
Whitesnake er eflaust með
betri heavy metal grúppunum í
dag. Á „Come And Get It“ er
hreint boggie-blues-rock eins og
svona músík á að vera. David
Coverdale, Jon Lord, Ian Paice,
allir fyrrum Deep Purple með-
limir, voru meðal þeirra sem
lögðu grunninn á sinum tíma og
vita hvar ræturnar liggja. Mick
Moody, Bernie Marsden og Neil
Murray, léku allir í svona
hljómsveitum líka. Coverdale
semur megnið af tónlistinni og
hún byggist lika mikið á blúsaðri
rödd hans sem liggur nokkuð á
hafa ekki komið nema 2—3
plötur frá kappanum þrátt fyrir
allan þennan tíma, en hann sló í
gegn fyrst með laginu „Marie
Marie“ og síðan kom „Hot Dog“
og nú „This Ole House" sem
landinn ætti að kannast við
undir heitinu „Ég er kominn
heim í heiðardalinn, ég er kom-
inn heim með slitna skó ...“
o.s.frv. Á þessari plötu sem kom
reyndar út fyrir jól undir heitinu
„Marie Marie“! (með öðru lagi í
stað „This Ole House“) er að
sjálfsögðu hið víðfræga titillag,
„Marie Marie" standardinn
„Slippin’ and Slidin’” mjög vel
gert, „Lonly Blue Boy“, lagið sem
hljómar nefndu sig eftir um
tíma, „Hey Mae“ og „Revenue
Man“. Stevens hefur ekta rokk-
rödd, sama hvort hann þarf að
öskra, titra, vera sætur eða hvað
sem hann gerir. Með Stevens eru
góðir karlar eins og B.J. Cole á
fetilgítar (en hann hefur spilað á
ísl. plötum!), Albert Lee á gítar
(hann leikur í hljómsveit Eric
plötunni eru 12 lög frá lista-
mönnum eins og Dennis Brown,
Black Uhuru, Gregory Isaacs og
Junior Delgado, Tamlins, Vic-
eroys, Wailing Souls, General
Echo, Jimmy Riley og Sly Dun-
bar.
Lögin eru hvert öðru betra
og gott sýnishorn af tónlistar-
mönnum frá Jamaica. Gregory
Isaacs á á plötunni afskaplega
. fallegt lag, „Oh What a Feeling"
og rétt er að benda á Black
Uhuru sem á besta lagið, „World
Is Africa“, en tvær síðustu plöt-
ur hans voru valdar tvær síðustu
reggae-plötur ársins í Melody
Maker ef mig minnir rétt. „Sit-
ting And Watching", lag Dennis
Browns, er gott, enda hefur hann
átt góðu fylgi að fagna um langt
skeið. Lög Tamlins og Jimmy
Rileys eru ljúf og falleg, en
tónlistin á þessari plötu er öll í
ljúfara lagi. Sly Dunbar er þó
sjálfur með lag sem nær því að
vera „funky", „Hot You’re Hot“.
Og með fullri virðingu fyrir
milli Ian Gillan og Robert Plant
nema hvað hún er karlmann-
legri. Marsden og Moody fá að
leika mörg sóló á gítarana sína
og „boogie" fram og til baka. Jon
Lord lætur mun minna á sér
bera í Whitesnake heldur en í
Deep Purple, þar sem hann var
reyndar aðalnúmer oft á tíðum
enda stofnandi hljómsveitarinn-
ar.
Eftir nokkra spilun kemur í
ljós að „Come Ánd Get It“
inniheldur sterka rokkara á borð
við „Would I Lie To You“ og „Hit
And Run“, „Come And Get It“,
„Hot Stuff“ og „Wine Women
An’ Song“ og lagið sem er að slá
í gegn hjá þeim, „Don’t Break
My Heart Again". Auk blúsara
eins og „Lonely Days Lonely
Nights“. Til samanburðar má
líka benda á Free og Bad Co.
Heavy metal músík er vinsæl í
dag og Whitesnake liklega bestir
af liðinu sem þá tónlist flytja.
hia
Any Trouble á leiðinni
Við megum búast við nokkr-
um popphljómleikum er-
lcndra hljómsveita hér á
Fróni þetta sumar. Á hæla
B.A. Robertson-æðisins kemur
breska hljómsveitin Any
Trouble fimmtudaginn 4. júni
og verður hér á landi i heila
viku. Any Trouble koma til
með að halda stóra hljómleika
i Laugardalshöllinni ásamt
Start, Taugadeildinni og
Bara-flokknum laugardaginn
6. júni (hvitasunnuhelgina).
Auk þess leika þeir á Borginni
föstudaginn 5. júní ásamt Start
í Selfossbíói á mánudeginum, í
Stapa á þriðjudeginum og aftur
á Borginni á miðvikudeginum,
og Start leika með þeim allan
tímann. -Any Trouble á sér ekki
langa né mikla sögu í poppinu,
en frá þeim hefur komið ein stór
plata til þessa sem Melody
Maker bar á örmum sér en
blaðamenn þar höfðu mikið álit
á hljómsveitinni.
Það má segja að þeir fylgi
hefðbundnum stíl (allavega eru
þeir orðnir hefðbundnir) Elvis
Costellos og Graham Parkers,
nema hvað þeirra stíll er
kannski ögn léttari og textarnir
glettnari heldur en alvarlegir
textar.
Hljómsveitin ku vera góð á
sviði en liðsmenn hennar eru
Clive Gregson gítarleikari,
söngvari og lagasmiður, Philip
Barnes bassagítarleikari, Chris
Parks gítarleikari og Martin
Hughes trommuleikari, en auk
þess kemur hingað Nick Coler
hljómborðsleikari með þeim.
Rétt eftir dvöl þeirra hér er
væntanleg önnur LP-plata
þeirra sem Steinar hf. mun gefa
út á íslandi sem umboðsaðilar
Stiff Records.
Þess má líka geta að breið-
skífa frá Start verður gefin út
skömmu síðar en báðar hljóm-
sveitirnar flytja efni af væntan-
legum plötum sínum.
••••( i
••••< i
••••( i
••••( i
• •••<
••••( i
• •••( i
••••( >
••••( i
••••< >
••••( i
••••( i
••••<>
••••( i
■•••( i
••••( >
••••i
••••i
•••• i
• •••i i
-•••i >
•••••i (
■••••( (
■••••( (
•••••( (
■•••«
•••( >
■••••(
•••I
*•••
•••# )
••••( )
•••«
-••#( )
*•••( I
«•••( >
*•••( í
-••#
•••( >
•••«
-••( I
••••( )
fH«#( )
-•••( )
—••( )
-•••( )
••••#
s s
. • •
11
S S i
:?*
• ••••••••#•*•
•••••••••••• •-•!
isUUiiitiiiÍi
s-.-*
Vinsœldarlistar
ISLAND
TOPP 12
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Bully for You .............. B.A. Robertson (LP)
45 RPM .Utangarðsmenn (EP)
Come An’ Get It ............... Whitesnake (LP)
Hi Infidelity ........... REO Speedwagon (LP)
Ballade d’Amour ....... Richard Clayderman (LP)
Stars on 45 .................... Star Sound (SP)
Greatest Hits .................... Dr. Hook (LP)
Hair ................................ Ýmsir (LP)
Eins og skot ...... Áhöfnin á Halastjörnunni (LP)
Loverboy .................................. (LP)
Ómar Ragnarsson syngur fyrir börnin ....... (LP)
Heyr mína bæn ................ Ellý Vilhjálms (LP)
BRETLAND
STÓRAR PLÖTUR
1 1 Kings of The Wild Frontier . Andam & The Ants
2 4 This Ole House .......... Shakin’ Stevens
3 8 Roll on ................. Ýmsir (Polystar)
4 6 Hotter Than July ......... Stevie Wonder
5 - Wha’ppen ........................ Beat
6 5 Future Shock .................... Gillan
7 - Bad for Good .............. Jim Steinman
8 3 Chart Blasters 81 ......... Ýmsir (K-Tel)
9 9 Jazz Singer ............... Neil Diamond
10 - Chariots of Fire .............. Vangelis
LITLAR PLOTUR
1 1 Stand and Deliver ......... Adam & The Ants
2 5 You Drive Me Crazy ......... Shakin’ Stevens
3 2 Stars on 45 .................... Star Sound
4 6 Grey Day ..................S...... Madness
5 3 Chi Mai .................... Ennio Morricone
6 4 Making Your Mind Up ............. Bucks Fizz
7 - Keep on Loving You ....... REO Speedwagon
8 - Ossie’s Dream (Way to Wembley)
................... Spurs FA Cup Final Squad
9 - Chequered Love .................. Kim Wilde
10 - Swords of A Thousand Men ..... TenpoleTudor
BANDARIKIN
STÓRAR PLÖTUR
1 1 Hi Infidelity ......... REO Speedwagon
2 2 Paradise Theatre ................ Styx
3 3 Arc of A Diver .......... Steve Winwood
4 6 Dirty Deeds Done Dirt Cheap ... AC/DC
5 5 Winelight .......... Grover Washington jr.
6 7 Moving Pictures ................. Rush
7 4 ...................... Face Dances ...
8 8 Another Ticket ............ Eric Clapton
9 9 Double Fantasy .... John Lennon/Yoko Ono
10 - Face Value .................. Phil Collins
LITLAR PLOTUR
1 1 Bette David Eyes ............... Kim Carnes
2 3 Being With You ............ Smokey Robinson
3 2 Just The Two of Us ..... Grover Washington jr
4 4 Angel of The Morning .......... Juice Newton
5 - Stars on 45 .................... Star Sound
6 6 Take It on The Run ........ REO Speedwagon
7 7 Living Inside Myself ........... Gino Vanell.
8 8 Sukiyaki ................... A Taste of Honey
9 10 Too Much Time on My Hands ............ Styx
10 - Watching the Wheels ........... John Lennon