Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 35 sig enginn frí,“ en þess skyldi minnst, að förin til annars og betra heimkynnis, er áreiðanlega gleðiviðburður þeim, sem lengi hefur þjáðst og þolað ólæknandi sjúkdóm, eins og þann, sem hér var um að ræða. Nú veit ég að Vilhjálmur lifir sæll í landinu fagra í ríki himn- anna, þar sem hann hefur búið sér farsæla framtíð með breytni sinni hér, og þar sem eftirlifandi ástvin- ir munu síðan hitta hann, þegar þeirra brottfararstund rennur upp. Við hjónin vottum eftirlifandi konu hans innilega samúð okkar, og biðjum þess að henni veitist sá æðri styrkur, sem hún þarf á að halda á ókomnum dögum. Ingvar Agnarsson Nú er hann Villi horfinn frá okkur. Fregnin um lát hans kom ekki mjög á óvart, því síðastliðin tvö ár barðist hann við erfiðan sjúkdóm, er að lokum dró þennan kraftmikla mann til dauða. Það er erfitt að lýsa hughrifun- um frá manni, sem stendur óbug- aður í helstríði sínu á meðan jarðargróðurinn er að vakna til lífsins. Nokkrum dögum fyrir and- lát sitt ræddi Villi við okkur um veru sína á sjónum fyrr á árum — ekki hetjusögur, heldur, hve sjó- veikur hann var fyrstu árin til sjós. Þetta lýsir Villa ágætlega. Hann hafði góða og kímniríka frásagnargáfu, en aldrei heyrði ég hann hæla sjálfum sér. Sjálfsagt hefur hann þó marga hildi háð við öldur hafsins og hefur þá sama hugarróin og hann sýndi í síðustu hildinni efalaust dugað honum vel. Nú að leiðarlokum kemur mér í hug hinn hressandi andblær í kvæði Magnúsar Stefánssonar um sjómanninn Stjána: .Ilorfi ég út á himinlána. HuKur eygir ííla'simynd: Mér er sem ég sjái Stjána sigla hvassan beitivind austur af sói ok suður af mána, sýður á keipum himinlind.' Villi fæddist í Mjóafirði eystra 21. ágúst 1907. Foreldrar hans voru Haraldur Jónsson og Sigríð- ur Magnúsdóttir og átti hann einn bróður, Magnús, er býr í Hafnar- firði. Árið 1919 fluttist fjölskyldan til Hafnarfjarðar, og stundaði Villi þar fiskvinnu í landi, þar til hann fór til sjós um tvítugt. Sjóinn stundaði hann síðan óslitið á fjórða áratug — bæði á togurum og línuveiðurum. Árið 1961 kvænt- ist hann eftirlifandi konu sinni, Kristensu Tómasdóttur og hóf um það leyti vinnu í landi — lengst framan af tengda sjómennskunni. Villi var ekki márgmáll maður, en óhætt var að taka mark á því, sem hann sagði og athyglisgáfu hans og lifandi áhuga á öllu mannlegu var við brugðið. Alltaf var hann rólegur í fasi og hnitmið- aður í athöfnum og þá mest, þegar mest lá við. Ég kynntist Villa fyrir rúmum tveim áratugum, eða þegar kynni tókust með honum og ömmu. Hann reyndist mér sem hinn besti afi. Gott þótti mér að leita til þeirra í rólegt og hlýtt andrúms- loftið, er ríkti á heimili þeirra. Dvaldi ég þar oft dögum saman yfir próflestri eða öðru, er þarfn- Legsteinn er varanlegt minnismerki Framleiðum ótal tegundir legsteina. Allskonar stærðir og gerðir. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASONHF STEINSMHMA SKEMMUVH31 48 SlMI 76677 aðist næðis og alltaf mætti mér sama hlýjan og ástúðin, er veitt var skilyrðis- og vafningalaust. Sambúð þeirra hjóna var mjög ástúðleg og farsæl. Voru þau hvort öðru hin mesta stoð og kom það ekki hvað síst í ljós í veikindum þeirra beggja. Annaðist amma, sem lengi hefur átt við vanheilsu að stríða, mann sinn á heimili þeirra í hinum erfiða sjúkdómi hans, þar til mánuði fyrir andlát- ið, að hann lagðist inn á sjúkra- hús. Frá því fyrsta hefur Villi verið einn af fjölskyldu ömmu — í fyllstu merkingu þess orðs og sjálfsagt finnst okkur öllum, að hann hafi alltaf verið það. Hvar sem erfiðleikar steðjuðu að, voru amma og Villi komin til að rétta hjálparhönd og greiða úr málum. Það skarð, sem nú hefur verið rofið, verður aldrei fyllt. En þögul umhyggja og ástríki Villa munu ætíð lifa í huga okkar, og hin mikla hetjulund hans í baráttunni við hinn banvæna sjúkdóm er okkur öllum ógleymanlegt for- dæmi. Ég veit, að sjálf endur- minningin ’ um þennan trausta mann, sem aldrei kiknaði undan álaginu, hversu þungt sem það var, mun styrkja eftirlifendur í sorg sinni. Ég vil kveðja hann Villa, og það er bjart yfir endurminningunni um hann. Megi algóður guð styrkja ömmu í sorg hennar. ólafur Halldórsson t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, ÁGÚSTS ÓSKARS SÆMUNDSSONAR, rafvirkjameistara, Skólabraut 1, Guöný Karlsdóttur, Edda Ágústsdóttir, Halldór Ingólfsson, Daöi Ágústsson, Halldóra Kristjánsdóttir, Gústaf Agústsson, Sara Ólafsdóttir, Hrönn Ágústsdóttir, Sigurbjörn Fanndal, Baröi Ágústsson, Hrafnhildur Ingadóttir, Auður Agústsdóttir, Höröur Ágústsson og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Lokað Lokaö veröur eftir hádegi mánudaginn 25. maí vegna jaröarfarar HAKONAR HAFLIÐASONAR. Fiskverslun Hafliöa Baldvinssonar Eruðþid tílbuin garðvinnuna? Helmingur ánægjunnar viö útistörfin felst í góðum garðáhöldum, — vönduðum verkfærum frá Lysbro! áhöld til útivinnu! umboósmenn: K.Þorsteinsson &Co.,Sundaborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.