Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981
5
Sjónvarp á mánudagskvöld kl. 21.20:
„Stína“
Á dagskrá sjónvarps á
mánudagskvöld kl. 21.20 er
leikrit frá Þýska alþýðulýð-
veldinu, Stína, byggt á
skáldsögu eftir Theodor
Fontane. Þýðandi er
Kristrún Þórðardóttir.
Sagan gerist á síðari
hluta nítjándu aldar og
fjallar um ástir Stínu,
stúlku af alþýðustétt, og
Valdimars, pilts af góðum
ættum.
Úr leikritinu „Stína“, sem er á dagskrá á mánudagskvöld ki. 21.20.
Kl. 21.00 er
fimmti og síðasti
þáttur sænska
sjónvarpsleikrits
ins Karlotta
Löwenskjöld o^
Anna Svárd. Þýð
andi Dóra Haf
steinsdóttir. Á
myndinni eru
Anja Laijonmaa
og Lars Green í
hlutverkum sín-
um i lcikritinu.
„Og þá var kátt í hölliimi“
Á dagskrá sjónvarps kl. 18.20 er finnsk teiknimyndasaga, „Og þá
var kátt i höllinni“. býðandi og sögumaður Guðni Kolbeinsson.
Á þjóðhátíðardaginn býður forsetinn vinum sinum til veislu, meðal
annarra bjarnarfjölskyldunni i Bjarnarskógi.
Sjónvarp kl. 18.20:
Gisli Magnússon og Gunnar Kvaran
Tónlistarmenn kl. 21.55:
Gunnar Kvaran sellóleikari
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.55 er þátturinn Tónlistarmenn, og fjallar hann að þessu sinni um Gunnar Kvaran
sellóleikara. Egill Friðleifsson kynnir Gunnar og raeðir við hann. Stjórn upptöku Viðar Víkingsson.
Kaupfélag Suðurnesja:
Tap á rekstri
frystihúss
og togurum
AÐALFUNDUR Kaupfélags Suð-
urnesja var haldinn í Samkomu-
húsinu Garði laugardaginn 9.
mai sl. í skýrslu kaupfélags-
stjóra, Gunnars Sveinssonar,
kom fram að velta félagsins hefði
aukist um 77%. Eigið fé kaupfé-
lagsins er um 38,5% af efnahags-
reikningi.
Hjá kaupfélaginu var slátrað
rúmlega 11 þús. fjár. Meðalþungi
dilka var rúmlega 14,01 kg. og
hafði hækkað um 1,65 kg. frá fyrra
ári.
Benedikt Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins,
flutti skýrslu um rekstur þess. I
skýrslu hans kom m.a. fram, að
afli tveggja togara hússins hefði
verið um sex þúsund tonn, en tap
hefði verið á rekstri þeirra.
Rekstrarhalli varð einnig á rekstri
frystihússins. Aðalorsökin fyrir
hallanum er mikil aukning fjár-
magnskostnaðar og aukinn olíu-
kostnaður.
Á fundinum var skýrt frá fyrir-
huguðum framkvæmdum við
byggingu vörumarkaðar í Njarð-
vík og áformum um að hefja þær
nú í sumar.
Formaður kaupfélagsstjórnar-
innar er Sigfús Kristjánsson.
Stal úri
AÐFARANÓTT föstudagsins var
skorið gat á rúðu úraverzlunar-
innar að Skólavörðustíg 3 í
Reykjavík. Þjófurinn teygði sig
inn í sýningargluggan en svo
virtist sem hann hefði aðeins haft
eitt úr upp úr krafsinu.
Rimini
Ferðirnar til Rimini - einnar af
allra bestu baðströndum
Evrópu - fyllast nú óðum. Við
hvetjum væntanlega Rimini-
farþega til þess að staðfesta
pantanir sem fyrst og tryggja
sér þannig réttu ferðinatiman-
lega.
Á Rimini bjóðum við fyrsta
flokks íbúðar- eða hótel-
gistingu og frábærar skoðun-
arferðir til Rómar, Feneyja,
Flórenz, San Marino og víðar.
Rimini-ströndin sjálf býður
gestum sínum að auki enda-
laus spennandi verkefni fyrir
börn og fullorðna, iðandi
mannlíf allan sólarhringinn og
veitinga- og skemmtistaði í
sérflokki.
Þess vegna liggur leiöin til
Rimini i sumar!
Fyrsta brottför
31. maí
örfá sæti laus
Juni: 10., 21.
Júli: 1., 12., 22.
Ágúst: 2., 12., 23.
September: 2., 13.
11 dagar - 21 dagur
Verð frá kr. 4.210
Sumarhús
Danmörku
Biðlistar hafa myndast í allar
ferðir til Karlslunde, Karre-
bæksminde og Helsingor.
Nokkuð er þó um óstaðfestar
pantanir og því ráðlegt að skrá
sig á biðlista.
Fyrsta brottför
5* r r
. jum
Biölisti
Orlof
aldraðra
PORTOROZ
20. maí
Enn höfum við aukið sæta-
framboðið i orlofsferð
aldraðra til Portoroz. Farar-
stjóri Ásthildur Pétursdóttir.
Toronto
Sjálfstætt leiguflug okkar
vestur um haf hefur vakiö
mikla athygli. Fullbokað er i
nokkrar ferðir, en ennþá er
skráð á biðlista fyrir alla brott-
farardaga.
3. júní - örfá sæti laus vegna
forfalla - 3 eða 6vikur
24. júní-laussæti
Munið framlengdan
frest til greiðslu
staðfestingargjalds
Aðildarfélagar sem staðfesta
'v* 3. júní
fá fullan aðildarfélagsafslátt
fyrir alla fjölskylduna.
Portoroz
Við höfum hliðrað til
flugferðum og getum því
boöið bæði 11 og 21 dags
ferðir. Fyrsta flokks hótel-
gisting á Palace hótelunum
þremur sem annáluð eru
meðal íslenskra Portoroz far-
þegar á liðnum árum.
Næsta brottför
31. maí
örfá sæti laus
Júní: 10., 21.
Júli: 1„ 12., 22.
Ágúst: 8., 12., 23.
11 dagar - 21 dagur
Verð frá kr. 4.450
Aðildarfélagsafsláttur - barnaafsláttur - tölur sem geta skipt sköpum!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899