Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981 Noregur: Deilt um járnbrautar- lagningu Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Mbl. i ÓkIó 21. mai. Það verður dýrt fyrir norska ríkið að leKKja járnbrautarkerfið í Norður-Noregi. Núna nær járn- brautin að Bodo en ef hún verður len«d til Narvíkur. Harstad ok Tromsö mun það kosta 4,4 millj- arða norskra króna samkvæmt núverandi verðlaKÍ. Er nú mikið deilt um það meðal stjórnmála- manna hvort það borjíi sij? að leKKja í svo kostnaðarsaipa fram- kvæmd. Járnbrautin í Norður-Noregi hefur verið viðkvæmt mál í sam- göngumálum Norðmanna sl. ár. Nú hefur nefnd lagt fram áætlun um væntanlegar framkvæmdir. Að meðtalinni hliðarbraut til Harstad verður að leggja 476 kílómetra braut og næstum helm- inginn verður að leggja í gegnum fjöll. Það mun taka 10 ár að leggja járnbrautina og má búast við að verðbólgan komi til með að hækka kostnaðinn til muna á þeim árum. Ef lögð verður braut fyrir raf- magnsknúnar lestir en ekki lestir sem ganga fyrir dieselolíu verður kostnaðurinn enn meiri. Ibúar Norður-Noregs telja það mikilvægt að járnbrautin verði Iögð. Framkvæmdin sjálf kemur til með að útvega 1000 mönnum atvínnu. Eftir að brautin er komin í gagnið verða meiri möguleikar á að koma upp atvinnufyrirtækjum á svæðinu. Einnig gefur hún þeim fyrirtækjum sem fyrir eru á svæðinu meiri möguleika til að bæta við starfsemi sína og er talið að það muni útvega um 2000 manns atvinnu. Mikið atvinnu- leysi er nú ríkjandi í Norður- Noregi. I ríkisstjórninni og á þinginu eru menn nokkuð efins um það hvort járnbrautarframkvæmdirn- ar muni borga sig. Sumir benda á það að bæta megi samgöngur á sjó svo jafngildi betra járnbrautar- kerfi fyrir mun minna fé. Búist er við miklum umræðum um málið á þinginu. Maggí cjlmandi ámatborðið Maggi sújmr eru svissnesk gœöaframleiðsla 1 —þær eru Ijúffengar og hollar, enda framleiddar úr úrvals | hráefnum, eftir uppskriftum færustu matreiðslumanna. Maggi súpur fást i fjölbreyttu úrvali og þú getur valið um 15 ólikar tegundir. Maggi súpur eru alltaf vinsælar á matboröiö —þess vegna mælum vió meö Maggi. Einkaumboösmenn Gunnar Kvaran Hei/dverzlun Vatnagarðar 10 104 Reykjavik Simi83788 Maggi Fjölskylda andófsmannsins Anatöly Shcharanskys óttast nú, að hann sé gleymdur íhúum Vesturlanda, tæpum þremur árum eftir að hann var dæmdur í fangelsi i Sovét- ríkjunum. sakaður um að stunda njósnir í þágu Bandarikjam- anna. Vesturveldin sendu frá sér kröftug mót- mæli, er Sheharansky var dæmdur í 13 ára fangelsi árið 1978. Nú segir fjölskylda hans, að hann sé hafður í einangrun í vinnubúð- um í Úralfjöllum og heilsu hans hraki stöðugt. Móðir Shcharansk- ys, Ian Milgon, 72 ára, hundsar reglulegar fréttir um, að í gangi séu leynilegar samn- ingaviðræður sem miði að því að láta Shcharansky lausan. „Ég er hrædd um, að þessar fréttir hafi slæm áhrif á hann,“ segir hún í nýlegu viðtali. Ég trúi því ekki, að Sovétmenn láti í té réttar upplýs- ingar um málið, það gerðu þeir ekki einu sinni þótt slíkar við- ræður væru í gangi." Bróðir Shcharansk- ys, Leonid, segir, að Anatoly sé fórnar- lamb hins mikla póli- tíska sjónarspils stór- veldanna tveggja. „Það er rétt hjá þér, móðir mín, að hafa áhyggjur af augum mínum." Og einnig: „Þú skalt ekki hafa áhyggjur af þyngd minni. Ég býst við, að hún sé svipuð því sem hún var, er ég Anatoly Shcharansky Heilsu Shcharanskys hrakar „Vesturveldin, sérstaklega þau sem voru nefnd í réttar- höldunum, ættu að finna til sérstakrar ábyrgðar gagnvart bróður mínum," segir hann. „Ef yfirvöld sjá, að máli hans er haldið vakandi, gæti það orðið til þess að hann yrði látinn laus.“ Shcharansky, sem er 33 ára, var fyrst hafður í haldi í Chistopol-fangelsinu um 800 kílómetrum austur af Moskvu. í apríl 1980 var hann fluttur í vinnubúðir um 1100 kílómetr- um norðaustur af Moskvu, í fjöllin sem skilja að Evrópu og Asíu. Shcharansky getur aðeins gefið óljósar ábendingar um líðan sína vegna þess að fang- elsisyfirvöld lesa bréfin sem hann sendir og enginn fær að heimsækja hann það sem eftir er ársins. I 14 síðna bréfi, sem hann sendi móður sinni í mars sl., gefur hann til kynna, að hann hafi lést mikið og að heilsufari hans fari stöðugt hrakandi. Sumar skýrslur segja, að hann hafi lést um 48 kíló. í bréfinu segir hann m.a.: stöðugt var í Chistopol." Leonid segir, að þegar bróðir hans hafi verið í Chistopol, hafi líkamsþungi hans verið langt fyrir neðan það sem eðlilegt getur talist. Skýrslur um slæmt heilsufar Shcharanskys hafa vakið upp mótmæli á Vesturlöndunum og fundir hafa verið haldnir um aðgerðir, sem geti orðið til þess að hann verði látinn laus. Fólk, sem hrópaði: „Shcharansky lausan“, truflaði nýverið tón- leika Fílharmoníuhljómsveitar Moskvu í London. Utanríkis- ráðherra Frakka hitti móður Shcharanskys að máli í París og sagðist hann ætla að ræða um mál Shcharanskys við sov- ésk yfirvöld. Ekkert bendir til þess, að Sovétmenn hyggist láta Shcharansky lausan á næst- unni og ólíklegt þykir, að þeir verði þvingaðir til þess. Sumir vestrænir fréttaskýrendur benda þó á, að möguleikar séu á því að hann verði látinn laus í skiptum fyrir sovéska fanga á Vesturlöndum. Ýmsir andófs- menn, þar á meðal Alexander Ginzburg, hafa verið látnir lausir í slíkum skiptum. Fermingar- barnamót í Skálholti Á ÞESSÚM vordögum eða nánar tiltekið dagana 27.-29. mai og 29.—31. mai eru fyrirhuguð fermingarbarnamót i Skálholti á vegum Árnesprófastsdæmis. Aðalefni mótanna er kynning á kristniboði í tilefni af 1000 ára afmæli kristniboðsins hér á landi. Dagskrá verður fjölbreytt, bæði fræðsla og leikir, og góða gesti ber að garði. Kvöldvökur verða og er foreldrum fermingarbarna sér- staklega boðið að koma þá í heimsókn og ennfremur að taka þátt í guðsþjónustum, sem verða föstudaginn 29. maí kl. 11 og sunnudaginn 31. mai kl. 2. (FréttatllkynninK (rá seskulýAxnefnd Ár- nexprófa.xtsdæmÍN).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.