Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 Heilbrigt efnahagslíf bezta vömin gegn ásælni Sovétmanna Sú var tíftin. að Gaafar Num- eiri, sem hefur verið víð völd í Súdan síðustu 12 ár, setti traust sitt fyrst ok fremst á Sovét- stjórnina. Nú hafa samskipti Súdans við Vesturlönd aukizt mjöK, ekki sízt eftir að Numeiri hannaði kommúnistaflokkinn í landi sínu ok rak þaðan um hundrað sovézka hernaðar- ráðKjafa árið 1977. Numeiri hafði sovézku gestina sterklexa Krunaða um aðild að hinum ýmsu byltinKartilraunum. en frá þvi að hann komst til valda hefur sex sinnum verið reynt að steypa honum af stóli. Þótt Numeiri hafi átt í vök að verjast á valdatíma sinum, eru ýmsir þeirrar skoðunar, að fáum öðrum hefði tekizt jafn vel að viðhalda friði í landinu. Þegar hann settist á valdastól, hafði borgarastyrjöld geisað í landinu og þar höfðu tíu ríkisstjórnir setið á þrettán árum. Numeiri er 51 árs að aldri. — segir Numeiri Súdansforseti Hann kveðst eiga sér þrjá drauma: Að gera Sudan, land margra þjóðflokka með margvís- lega menningu, að nútímaríki með traustan efnahag; að stemma stigu við ásælni Sovét- ríkjanna á Afríkuhorninu og að gera þjóð sína að tengilið milli Araba- og Afríkuríkjanna. Fyrirmynd Numeiris var lengi vel Nasser Egyptalandsforseti, og líkt og Nasser, taldi hann, að framtíð þjóðarinnar hlyti að grundvallast á sósíalisma, þjóð- nýtingu og nánu vináttusam- bandi við Sovétríkin. Framan af stjórnaði hann tandinu í sam- ræmi við þessa stefnu, en árið 1979 birtist hann skyndilega í sjónvarpinu til að skýra þjóðinni frá því, að hann hefði hingað til fylgt rangri stefnu og þjóðnýting væri til óþurftar. Síðan hefur hann leitazt við að koma á auknu frelsi í efnahagsmálum og sækj- ast eftir fjárfestingu erlendra aðila í landinu. Hann trúir því, að lausnin á fátækt landsmanna sé í því fólgin að græða upp landið, en til þess þarf gífurlegt fjármagn. Eitt sinn hélt Num- eiri, að það fjármagn kæmi frá Sovétríkjunum, en nú hefur hann skipt um skoðun: „Sovét- stjórnin gefur sig að fátækling- unum af því að hún heldur að þeir séu móttækilegastir fyrir þeim boðskap, að kommúnism- inn og kenningar Marx séu lausnarorðið. Bezta vörn fátæku þjóðanna gegn þessari ásælni Sovétríkjanna er heilbrigt efna- hagslíf," segir Numeiri. Einn liðurinn í viðleitni Num- eiris til að standa gegn Sovét- ríkjunum er tilboð til Bandaríkj- anna um hernaðaraðstöðu í Súd- an. Súdan er eitt þriggja Ar- abaríkja sem styðja sáttatil- Numeiri forseti Súdans. raunir Bandaríkjanna í Mið- austurlöndum og Numeiri hefur verið ein helzta stoð Sadats Egyptalandsforseta í raunum hans vegna Camp David- samkomulagsins. Eitt helzta vandamál þjóð- anna sem byggja Afríkuhornið, er djúpstæður ágreiningur milli hinna ýmsu þjóðflokka og er hann jöfnum höndum trúarlegs og menningarlegs eðlis. Án efa er það helzta afrek Numeiris að hafa bundið endi á sífelldar erjur milli múhameðstrúar- manna, sem búa í norðurhluta Súdans, og kristinna manna, sem byggja landið sunnanvert, en þegar hann tók við völdum höfðu þessar erjur staðið í sautj- án ár. Átökin höfðu kostað eina og hálfa milljón manna lífið og helzti atvinnuvegur lands- manna, landbúnaður, var í rúst. Þegar friði var komið á, var ákveðið að veita suðurhlutanum takmarkaða sjálfstjórn og nú er leitazt við að koma á slíkri skipan í öðrum landshlutum. Nýlega lýsti Numeiri því yfir, að svo stóru og dreifbýlu landi sem Súdan væri ekki hægt að stjórna frá einum stað — svæðisstjórnir væru eina skynsamlega fyrir- komulagið. Numeiri er vinsæll með þjóð sinni, þrátt fyrir 50% verðbólgu og óánægju með hægar framfar- ir. Fábrotið líferni þessa þjóð- höfðingja á þátt í vinsældum hans. Hann býr í látlausu húsi og heldur sig ekki ríkmannlegar en hver annar venjulegur her- foringi. Hann var í æsku fyrir- liði fótboltaliðs, og enn á hann það til að bregða á leik á vellinum með hermönnum sín- um. Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Ostapönnukökur með gúrkufyllingu (Ilanda fjórum) Fyrst eru bakaðar venju- legar pönnukökur og útbúnar gúrkur í ostasósu. Fyllingin er svo sett í pönnukökurnar og þær bakaðar í ofni. Pönnukök- urnar getið þið bakað daginn áður, og sömuleiðis búið til gúrkulausa ostasósuna þá og geymt í kæliskáp. En bezt er að setja ekki fyllinguna í pönnu- kökurnar fyrr en rétt áður en þær eru borðaðar, svo þær blotni ekki um of í sósunni. Auk þess sem þessar pönnu- kökur sóma sér vel sem aðal- réttur, eru þær fyrirtaks forrétt- ur. Þá ætti að vera óhætt að reikna með 1—2 á mann, eftir því hvað kemur á eftir. Auk þess eru pönnukökurnar ljóm- andi náttverður eða sem osta- réttur á kaffiborð. Ef þið viljið bæta og breyta til, getið þið sett bita af reykt- um laxi í fyllinguna, eða skinku- bita eða rækjur. En þá notið þið auðvitað ekkert slíkt í aðra rétti, sem eru bornir fram með pönnukökunum. Pönnukökur (15—20 stk.): 3 egg l'/i dl hveiti, gjarnan óhvíttað 5—6 dl mjólk nýrifið múskat 2 msk hrætt smjör eða olia um 50 gr rifinn ostur, gjarn- an óðalsostur 1. Blandið deigið, en án ostsins. Byrjið á því að setja aðeins um 4 dl af mjólk í það. Síðan er gott að láta deigið standa í a.m.k. 1 klst. Á þeim tíma blotnar hveitið vel og bólgnar út. Þá er hægt að hella meiri mjólk í það en ella og deigið verður drýgra. Þið getið notað hvort sem þið viljið smjör eða olíu. Ágæt kona stakk þessu með olíuna að mér og fannst pönnukökubaksturinn ganga liprar með olíu en smjöri. Ef þið eigið rafmagnskvörn, þá hrærir hún deigið fljótt og vel. 2. Þegar að bakstrinum kem- ur, athugið þið þykktina á deiginu og blandið meiri mjólk i það, ef ykkur sýnist svo. Bakið nú pönnukökurnar. Þegar þið eruð búin að snúa kökunum við á pönnunni, setjið þið um msk af að gista, þar til osturinn er bráðinn og gullinn og pönnu- kökurnar stökkar að ofan. Berið strax fram. Ath. Ef þið af einhverjum ástæðum viljið ekki nota mjólk í pönnukökur er ekki úr vegi að nota pilsner. Slíkt er gjarnan gert meðal annarra pönnu- kökuþjóða, t.d. Frakka og Þjóð- verja. Fyrir þá, sem þola ekki mjólk og mjólkurvörur, er pilsner góður kostur, en þeir Vormáltíð II rifnum osti á þær og látið hann bráðna á kökunum. Fylling (á um 12 pönnukökur): 1 væn gúrka 2 dl rjómi 150 gr ostahitar eða grófrif- inn ostur nýrifið múskat og nýmalaður pipar 1. Afhýðið gúrkuna, skerið hana i um 5 cm bita, hvern bita í tvennt og að endilöngu og síðan í stöngla eða stafi. Hitið vatn, látið gúrkustönglana út í sjóð- andi vatnið og látið suðuna koma upp. Nú á gúrkan að sjóða um 3 mín. Hellið stönglunum í sigti og látið vatnið renna vel af þeim. 2. Hitið rjómann og látið hann sjóða um stund á lægsta straumi, ásamt múskati og pip- ar, þar til hann þykknar svolít- ið. Setjið ostinn út í og látið hann bráðna í sósunni. Ostur- inn á það til að verða svolítið kekkjótturí sósunni, en það ger- ir ekkert til. Þegar sósan er orðin sæmilega þykk og jöfn, setjið þá gúrkurnar út í. 3. Setjið ofninn á háan hita, gjarnan á grill. 4. Setjið nú um 2 msk af fyllingu á miðja hverja pönnu- köku og brjótið hana saman eins og pakka. Setjið þessa pakka á smurt fat og látið samskeytin snúa niður. Stráið um 50 gr af rifnum osti yfir og setjið inn í ofn. Þar eiga nú pönnukökurnar þola þá auðvitað heldur ekki fyllingu eins og stungið er upp á hér. í staðinn er hægt að sjóða gúrkurnar eins og lýst er hér, og nota þær þannig í pönnukök- urnar, gjarnan kryddaðar með múskati, kryddjurtum, og e.t.v. með nokkrum matarolíudrop- um á. Annað grænmeti kemur einnig vel til greina. Með pilsner, en einnig sóda- vatni, er hægt að búa til pönnukökur til að nota sem sætar kökur. Nú fást lífrænt ræktaðar gúrkur í Kornmarkaðnum. Þeir sem sækjast eftir slíku, geta því fengið þær þar. Það væri óskandi að slíkt grænmeti væri til sem víðast og það kemur áreiðanlega meira af því, ekki sízt ef grænmetisbændur verða varir við eftirspurn. Jógúrtsítrónuís (Ilanda f jórum) Þá er loksins komið á mark- aðinn hrein jógúrt, sem við getum sjálft spreytt okkur á að bragðbæta, eins og okkur sýn- ist, auk þess sem auðvitað liggur beint við að nota hana eins og hún kemur fyrir úr dollunni. Rétturinn hér á eftir er eiginlega nokkurs konar kæld jógúrt, fremur en venju- legur ís. í stað sítrónusafa er tilvalið að nota appelsínusafa, eða annan þann ávaxtasafa, sem ykkur sýnist. í stað hun- angs getið þið notað púðursykur eða venjulegan sykur, en hun- angið gefur býsna gott og sérstakt bragð. 4 jógúrtdollur 2 egg 4 msk fljótandi hunang eða brætt hunang safi úr 1 sítrónu. og börkur- inn, ef ykkur sýnist svo 1. Þeytið eggin og hunangið, þar til eggin freyða. Blandið þessu þá saman við jógúrtina ásamt sítrónusafanum. Setjið skálina í frysti. Eftir um klst. takið þið skálina út og hrærið í. Þá er jógúrtin liklega farin að frjósa við jaðrana og frosnu bitunum hrærið þið þá saman við afganginn. Látið þetta nú enn standa í kælinum í klst. Berið þá fram eftir að hafa hrært vel í. Þessi ís á að vera mjúkur og þykkur, en ekki frosinn og stífur. í stað þess að búa til ís, getið þið einnig búið til jógúrtbúðing, með því að leggja um 5 matar- límsblöð í bleyti í köldu vatni í 10 mín., kreysta vatnið úr og leysa þau síðan upp með því að hræra þeim saman við hitaðan sítrónusafann. Eftir að hafa þeytt eggin, eins og áður er lýst, og blandað saman við jógúrtina, þeytið þið sítrónusaf- ann, sem blöðin voru leyst upp í, saman við. Síðan þarf ekkert annað en að steypa blöndunni í form eða skál, láta stífna í kælinum í 2—3 klst, og bera fram. Það er auk þess alveg óhætt að búa búðinginn til daginn áður en þið ætlið að bera hann fram. Ábætir Mér sýnist að nú megi fá sænskt óhvíttað hveiti, Juvel- krona, í KRON-búðunum og ef til vill víðar. Samkvæmt prent- máli á pakkanum er hægt að fá ýmsar aðrar korntegundir frá þessu fyrirtæki. Þær koma von- andi í kjölfar hveitisins. Á pakkanum eru auk þess leið- beiningar um gerbakstur og býsna girnilegar geruppskriftir. r(Q'* V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.