Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981
19
Barátta gegn
hryðjuverkum
Tyrkneska stjórnin mun vænt-
anlega nota mál Agca til að afla
fylgis við harða herferð sína gegn
hryðjuverkum. Fyrir nokkrum
dögum voru 78 grunaðir borgar-
skæruliðar leiddir fyrir frétta-
menn og ljósmyndara í Istanbul.
Lögreglan kallaði þá félaga úr
„Vopnaðri áróðurssveit marxista
og lenínista" og sagði að þeir væru
ákærðir fyrir morð á tveimur
bandarískum hermönnum og
þremur bandarískum tækni-
mönnum í tveimur árásum 1979.
Kenan Evren hershöfðingi,
þjóðarleiðtogi og leiðtogi bylt-
ingarinnar í fyrra, hefur kvartað
yfir því að evrópskar ríkisstjórnir
hafi ekki sýnt baráttu Tyrkja
fyrir útrýmingu hryðjuverka sam-
úð. Hann hefur jafnvel gefið í
skyn að þær hafi hundsað tilmæli
herforingjastjórnarinnar um sam-
starf í því skyni að hafa uppi á
hryðjuverkamönnum, sem hafa
flúið land og eru í felum í Evrópu.
Hryðjuverkamenn í Tyrklandi
myrtu 5.000 manns á árunum 1975
til 1980. Hryðjuverkin hófust á
árunum fyrir 1970 þegar vinstri-
sinnaðir háskólastúdentar efndu
til mótmæla gegn Bandaríkja-
mönnum. Herskáir vinstrisinnar
og hægrimenn komu sér til áhrifa
á öllum sviðum þjóðlífsins í Tyrk-
landi, jafnvel innan raða lögregl-
unnar og í ríkisstofnunum. And-
NATIONAL ALKALINE
RAFHLÖÐUR Ávallt
fyrirliggjandi
Rafborg sf.
Rauöarárstígl
Sími11141
NMIon*1
Hl TOP
Hl TOP
006P-DE
T0GVÍRAR
11/2“ 13/4“ 2“ 2!4“ 21/2“ 31/2“ fyrirliggj-
andi. Hagstætt verö.
Jónsson & Júlíusson,
Ægisgötu 10, sími 25430.
Leysir stœrsta vandann
í mmnsla baðherberginu
Flest baðherbergi og salerni eru í minna lagi fyrir steypiböð, og
þrengsli koma tíðum í veg fyrir uppsetningu sturtuklefa.
En nýju Huppe-sturtuklefarnir leysa þennan þrengslavanda.
, Þeir opnast á horni með tveimur stórum rennihurðum, sem hafa
J vatnsþétta segullokun, niður og upp úr.
Þess vegna kemst hann fyrir á ótrúlega litlum gólffleti. Einnig
I" eru til einstakar rennihurðir. Hringið — skrifið — komið og við
veitum allar nánari upplýsingar um stærð, gerð og verð fljótt og
örugglega.
$ Kaupfélag Héraðsbúa
Egilsstöóum
stæðir pólitískir hópar drukku te
á aðskildum veitingastöðum og að
minnsta kosti 25 létu lífið daglega
í árásum hryðjuverkaflokka fyrir
byltinguna.
Þegar herforingjarnir tóku
völdin í fyrrahaust hófu þeir
baráttu fyrir útrýmingu hryðju-
verkastarfsemi. Hópar hryðju-
verkamanna voru að minnsta
kosti 40 taisins og félagar þeirra
um 30.000. Um 32.000 grunaðir
hryðjuverkamenn hafa verið
handteknir, margir þeirra vinstri-
sinnar, og vopn að verðmæti um
400 milljónir dollara hafa verið
gerð upptæk.
Fréttir hafa borizt um að pynt-
ingum hafi verið beitt í yfirheyrsl-
um yfir grunuðum hryðjuverka-
mönnum. Málið hefur nokkrum
sinnum komið til umræðu í Evr-
ópuráðinu, sem Tyrkir eiga aðild
að, og nefnd sérfræðinga Amnesty
International skýrði frá því að 18
menn hefðu látizt í vörzlu lögregl-
unnar síðan byltingin var gerð.
Tyrkneskir herforingjar segja
að „pyntingar séu ekki stefna nýju
stjórnarinnar" og hafa lofað að
rannsaka fullyrðingar um pynt-
ingar. Nokkrir embættismenn við-
urkenna i einkaviðræðum að grun- j
aðir hryðjuverkamenn, sem bíða
réttarhalda, séu beittir „gerræðis-
legum yfirheyrsluaðferðum", en
stjórninni er annt um álit sitt,
hún gerir sér grein fyrir við-
kvæmni Vestur-Evrópuríkja í
svona málum og heldur því fram
að herforingjarnir muni ekki láta
viðgangast að virðing fyrir
mannréttindum verði fyrir borð
borin í Tyrklandi.
Lamy penni
er vel valin stúdentagjöf
IAMY
Hallarmúla 2. Haínarstræti 12, Laugavegi 84.