Morgunblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981
3
Utanríkisráðherra Kanada:
Bandaríkjamarkaður
nægur fyrir bæði löndin
Framkvæmdunum við breikkun Hafnarfjarðarvegarins virðist miða vel, en mynd þessa tók ljósm. Mbl.
RAX i gær.
Hafnarf jarðarvegurinn i Garðabæ:
Fullkomin lausn næst ekki fyrr en
með tilkomu Reykjanesbrautar
Fógeti f jallar um lögbannsbeiðni íbúa bæjarins í dag
Nokkrir ibúar f Garðabæ héldu á fund bæjarfógeta i Hafnarfirði i
gærmorgun og kröfðust þess, að lögbann yrði sett á framkvæmdir
Vegagerðar ríkisins við Hafnarfjarðarveg, en þar er nú unnið við
breikkun vegarins i tvisvar sinnum tvær akreinar frá Arnarneshæð að
Vífilsstaðavegi með sama hætti og vegurinn var nýverið breikkaður frá
Vífilsstaðavegi að Lyngási. Mál þetta hefur verið mikið hitamál í Garðabæ
undanfarin ár, en þó náðist full samstaða i bæjarstjórn um þær
framkvæmdir sem þegar hafa verið unnar við breikkun vegarins.
Garðbæingar hafa þó ætið verið á einu máli um að endanleg lausn á
umferðarvandamálum bæjarins náist ekki fyrr en með tilkomu Reykja-
nesbrautar, og má merkja það af samþykktum bæjarstjórnar i máli þessu.
Upphaflegum hugmyndum um Þegar tillaga þessi hafði verið
breikkun vegarins frá Arnarneshæð samþykkt kæra fulltrúar minnihlut-
að Vífilsstaðavegi með heimildum
um framhaldsbreikkun í tvisvar
sinnum þrjár akreinar var mótmælt
af íbúum bæjarins m.a. með undir-
skriftasöfnun og hafnaði bæjar-
stjórn einróma þeim hugmyndum
þá, þ.e. 1978. Fullt samkomulag
náðist síðan í bæjarstjórn 27. marz
1980 og greiddu allir bæjarfulltrúar
því atkvæði að hafist yrði handa við
breikkun vegarins frá Vífilsstaða-
vegi að Lyngási, gerð yrðu gatna-
mótamannvirki á Arnarneshæð og
lagður fyrsti áfangi Sjávarbrautar
að Vífilsstaðavegi, ásamt neðri
hluta Vífilsstaðavegar. Var í sam-
þykktinni mælst til að tenging
Sjávarbrautar við Vífilsstaðaveg
yrði sem næst því sem gert er ráð
fyrir í aðalskipulagstillögunni.
í öllum samþykktum bæjarstjórn-
arinnar kemur fram, að náðst hefur
full samstaða um að leggja beri,
samhliða úrbætum á Hafnarfjarð-
arvegi, þyngsta áherzlu á gerð
Reykjanesbrautar, sem bæjarfull-
trúar telja að verði hin eina varan-
lega lausn á umferðarþunganum á
Hafnarfjarðarvegi.
Vegamálastjóri leggur síðan til-
lögur fyrir bæjarstjórn um útfærslu
á fyrsta áfanga Sjávarbrautar með
bráðabirgðatengingu við Vífils-
staðaveg, sem bæjarstjórnin hafði
samhljóða fallist á. Þá telur minni-
hlutinn útfærsluna ekki samrýmast
aðalskipulagstillögunni og greiðir
atkvæði gegn henni þrátt fyrir fyrri
samþykkt. Meirihlutinn samþykkir
hana aftur á móti þar sem Vega-
gerðin telur aðra lausn ekki færa og
hafði þá þegar lagt mikinn kostnað í
undirbúning mannvirkjagerðar á
Arnarneshæð.
Engar af pantanir
á Spánarferðum
- segja ferðaskrifstofumenn
AÐEINS á mánudag bar á því að
(ólk afpantaði Spánarferðir, en
það hefur litil áhrif haft og full
vél fer frá okkur til Costa del Sol
á fimmtudag. sagði Örn Steinsen
hjá Fcrðaskrifstofunni Útsýn er
Mbl. spurði hvort nokkuð hefði
verið um afpantanir vegna veik-
innar. sem stungið hefur sér
niður á Spáni og landlaknir
hefur varað við að eldra fólk og
unghorn velji Spán sem sumar-
leyfisstað.
Örn Steinsen sagði ennfremur
að Heilbrigðisráð Evrópu hefði
ekki stöðvað sumarleyfisferðir til
Spánar og svo virtist sem veikin
væri í rénum. Hjá Úrvali voru
svipuð svör, ekki hefði orðið vart
við afpantanir á Spánarferðum,
fólk héldi áfram að panta þær og
biðlistar væru í næstu ferðir.
endur við Arnarneslæk.
Fyrirhugaður er fundur með
íbúunum úr Garðabæ, lögmanni
Vegagerðarinnar og bæjarfógetan-
um í Hafnarfirði árdegis í dag.
A FUNDi með Mark MacGuigan
utanríkisráðherra Kanada I ga-r kom
fram. að viðskipti milli íslands og
Kanada hafa tvöfaldast á síðustu
árum. Ilann sagði. að þau va ru enn
lítil. en þó stefndi í rétta átt með
tilkomu heinnar skipaleiðar milli
landanna. MarGuigan. sem kom til
landsins í fylgd með rikisstjóra Kan-
ada. sagðist vonast til. að samstarf
milli landanna á sviði vísinda og
umhverfismála vkist i framtiðinni. en
þau ættu margt sameiginlegt sem
norðlægar þjóðir.
MacGuigan sagði, að tengsl milli
íslands og Kanada hefðu löngum verið
góð. Vestur-íslendingar væru margir í
Kanada, við Háskólann í Manitoba
væri embætti í íslenzku og í Kanada
væri gefið út eina íslenzka blaðið fyrir
utan Island. Hann sagði, að samstarf
landanna í NATO væri gott og ísland
væri mjg mikilvægur hlekkur í varn-
arkeðju Norður-Atlantshafsbandalags-
ins. Hann sagði, að ísland væri nauð-
synlegur þátttakandi í bandalaginu.
Utanríkisráðherra átti fund með
Ólafi Jóhannessyni í gær. Þeir hafa
áður hitzt, en MacGuigan sagði, að þeir
hefðu átt lengri og gagnlegri viðræður
nú en þeim hefur áður gefizt tækifæri
til. Þeir ræddu utanríkismál, en ekki
varnarsamstarf Kanada og íslands sem
slíkt. Hann gerði lítið úr samkeppni
Kanada og íslands á fiskveiðimörkuð-
um í Bandaríkjum, sagði, að markaður-
inn þar væri væntanlega nógu stór
fyrir bæði löndin. Hann sagðist vera
vongóður um lausn á deilum milli
Mark MacGuigan utanrikisráðherra
Kanada.
þeirra þjóða, sem stunda laxveiðar í
Norður-Atlantshafi, áður en of langt
um líður.
MacGuigan lét vel af samstarfi
Kanadamanna og ríkisstjórnar Ronald
Reagans Bandaríkjaforseta. Hann
sagðist skilja, að stjórn Reagans hefði
viljað gefa sér tíma til að skoða
hafréttarsáttmálann, en sagðist vona,
að 12 ára starf Hafréttarráðstefnunnar
færi ekki í súginn.
ans málið fyrir samgönguráðherra,
sem lætur stöðva framkvæmdir á
grundvelli þess að aðalskipulagið sé
ekki samþykkt.
Næst gerist það í málinu að
Skipulagsstjórn ríkisins sendir bæj-
arstjórn bréf, dags. 12. marz sl., þar
sem segir m.a.: „Skipulagsstjórn
getur ekki að svo stöddu fallist á þá
hugmynd að leggja Hafnarfjarðar-
veg niður sem umferðaræð milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Hún
telur að stefna beri að því að
breikka Hafnarfjarðarveg í núver-
andi legu í fjórar akreinar þannig
að vegurinn geti þjónað sem stofn-
braut fyrst um sinn, þótt hlutverk
hans gæti síðar orðið tengibraut".
Meirihluti bæjarstjórnar féllst
síðan á þetta álit Skipulagsstjóra
þar sem „fyrirsjáanlega næst engin
samstaða um aðgerðir í þjóðvega-
málum í bænum og þess, að úrbætur
þola ekki frekari töf“, eins og segir í
svarbréfi bæjarstjórnar. Þá hafði
einnig náðst full samstaða í umferð-
arnefnd bæjarins um samþykkt
þessarar úrlausnar.
Núverandi framkvæmdir miðast
eingöngu við breikkun í fjórar
akreinar „og verður ekki fallist á
frekari breikkun vegarins", segir í
bréfi bæjarstjórnar til Vegagerðar-
innar dags. 22. apríl sl. og þar vitnað
í einróma höfnun bæjarstjórnar á
tillögum Vegagerðarinnar frá árinu
1978, sem er sú hugmynd sem
bæjarbúar mótmæltu með undir-
skriftasöfnuninni þá.
Með núverandi framkvæmd er
fyrirhugað að ljósastýring komi á
Hafnarfjarðarveginn við gatnamót
Vífilsstaðavegar. Þá verða og byggð
undirgöng fyrir gangandi vegfar-
Ntí opnast þér
npr möguiMÉim á
reglubundnu sambanÉ vié
Ákveðið hefur verið að
m/s Mánafoss komi við
í Þórshöfn í Færeyjum
í annarri hverri ferð
fram til áramóta.
Brottfarardagar skipsins frá
Reykjavík verða sem hér segir
18. júní 8. október
16. júlí 5. nóvember
13. ágúst 3. desember
10. september
yjar
o ^^tÞÓrShÖfn
Umbodsmaöur:
F.A. H.C. Möller
Havnen
3800 Torshavn (Þórshöfn)
Telex 81237
Símar 11511 & 11716
Vinsamlegast hafið samband við Norðurlandadeild félagsins,
innnanhússsímar 227 (Jóhannes), 230 (Sigurður), 289 (Magnea).
Vörumótttaka í Sundaskála. Opið kl. 8.00 - 16.30. Sími 27794
Leynast e.t.v. nýir vióskiptamöguleikar
fyrir þig í Færeyjum?
Alla leið meó
EIMSKIP
SIMI 27100