Morgunblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981
21
Npmandi við Westbury-menntaskólann í JóhannesarborK ber
skólasystur sina. sem varð tára«asi óryKRÍslöKreKlunnar að bráð,
meðvitundarlausa inn i skólaKarðinn.
Frekari óeirðir
í Suður-Afríku
JóhannesarborK. 3. júní. AI*.
Suður-afríkanska öryKgisIöK-
reKlan notaði táragas, barefli ok
hunda KeKn mótmælaKönKU
menntaskólanema af ólíkum kyn-
þáttum i JóhannesarborK í daK-
fiO nemendur voru handteknir, en
þeir voru að mótmæla handtöku
stúdentaleiðtoKans Aziz Jardine
fyrr i vikunni. Um 100 nemendur
KenKU í KönKunni.
Viðstaddir sögðu, að mörgum
hefði verið misþyrmt, en tveir
nemendur að minnsta kosti voru
fluttir á sjúkrahús með brákaðar
hendur og taugaáfall. Lögreglan
henti einnig táragassprengju inn í
jarðarfararfylgd, sem fór um
sama hverfi Jóhannesarborgar og
mótmælagangan.
Atburðir þessir koma á hæla
mikilla óeirða sem brutust út í
borginni, í kringum 20 ára sjálf-
stæðisafmæli Suður-Afríku 31.
maí sl.
Metverðbólga
í EBElöndum
Brussel. 3. júní. AP.
VERÐ Á neyzluvöru ha'kkaði um
1,6% í apríl i Efnahagsbanda-
lagslöndunum og það er mesta
hækkun sem hefur orðið á einum
mánuði í eitt ár. Verðbólgan á ári
er 12.4% i öllum löndunum.
Mesta hækkunin varð í Bret-
landi — 2,9% — , m.a. vegna
skattahækkana, en engin hækkun
varð í Belgíu vegna verðstöðvunar.
Verðhækkanirnar skiptust
þannig eftir löndum: Grikkland
2%, Frakkland og Ítalía 1,4%,
Danmörk 1,2%, Holland 1% og
Vestur-Þýzkaland og Luxemborg
0,6%. Verðbóigan í Belgíu minnk-
aði um 0,1% og tölur lágu ekki
fyrir frá írlandi.
Verðbólga veldur vaxandi
áhyggjum. Jafnvel í Vestur-
Þýzkalandi, þar sem hún er
minnst, er verðbólgan 5,5% miðað
við allt árið.
Verðbólgan í öðrum EBE-
löndum er sem hér segir: Holland
6,3%, Belgía 7,4%, Luxemborg
7,5%, Danmörk 11,8%, Bretland
12%, Frakkland 12,8%, Ítalía
20,2%, írland 21% og Grikkland
24,3%.
Atvinnuleysi hefur aldrei verið
meira í löndunum frá stríðslokum
og nemur 7,5%. Því er spáð að
atvinnuleysi aukizt í 9% á næsta
ári.
Á sama tíma hefur verðbólga
minnkað í 9,7% í Bandaríkjunum
og hefur ekki verið eins lítil í eitt
ár.
Víetnamar
gera árás á
hjálparstöð
Peking. 3. júní. AP.
VÍETNAMSKT stórskotalið
hefur ráðizt á kínverska járn-
brautarstöð, sem 400.000 lestir af
hjálpargögnum fóru um frá Kina
til Vietnam í Víetnamstríðinu. að
sögn kínversku fréttastofunnar i
dag.
Fjórir Kínverjar særðust í þess-
ari stórskotaliðsárás í Pingxiang
skammt frá „Vináttuskarðinu" á
landamærunum.
Hlýða á tónlist
á skurðarborðinu
TÓNLIST hefur oft verið notuð
til þess að auka afköst ha-ði
manna og dýra. Einnig hefur
tónlist veri notuð við endurhæf-
ingu sjúkra með ágætum ár-
angri. Og nú berast þær fregnir
frá Vestur-Þýzkalandi. að um
nokkurra ára skeið hafi þar verið
gerðar tilraunir með tónlist á
sjúkrahúsum. einkum í skurð-
stofum.
Svæfingalæknar eru þeirrar
skoðunar, að tónlistin eyði versta
ótta sjúklinga fyrir uppskurð og
lini kvíða þeirra, og þar með megi
draga úr deyfingu. Hafa sjúkl-
ingarnir sjálfir valið tónlistina,
sem leikin er í skurðstofunni fyrir
og undir uppskurðinum, og kennir
þar margra grasa, danstónlistar,
popptónlistar eða klassískrar.
A sjúkrahúsinu í Lúdenscheid
hafa rúmlega 2.500 sjúklingar
gengist undir uppskurð þar sem
tónlist seytlar úr hátölurum. Leið
þeim öllum vel undir uppskurðin-
um og höfðu tilraunirnar engin
eftirköst i för með sér. Á sjúkra-
húsi í Frankfurt hafa 80 af
hundraði sjúklinga, þar sem deyf-
ing er staðbundin, hlustað á tón-
list í stað þess að láta svæfa sig.
Gátu þeir valið um eigin tónlist
eða útvarpsstöðvar til að hlusta á,
en þar hafa sjúklingarnir heyrn-
artæki til að tónlistin trufli ekki
störf skurðlæknanna og aðstoðar-
fólks þeirra.
Af þessum sökum hefur notkun
tónlistar breiðzt út, og hafa lækn-
ar með einkastofur farið inn á
Utanrikisráðherra Nicaragua.
Miguel dEscoto, vék sér undan
þvi í dag að svara spurningum
um hvort Rússar hefðu sent
skriðdreka til landsins. en lagði
áherzlu á rétt Nicaragua til að
kaupa hergögn hvar sem væri.
Aðspurður sagði hann að Nicar-
agua hefði ágætt samband við
Sovétríkin og óska eftir góðum
samskiptum við Bandaríkin. Hann
sagði að Nicaragua-stjórn þyrfti
hergögn til að verja byltinguna og
landið, en ekki til árása.
Hann sagði að þrjár þyrlur
hefðu verið pantaðar í Bandaríkj-
unum, en tvær hefðu ekki verið
afhentar þar sem útflutningsleyfi
hefðu ekki fengizt.
þessa braut og einnig tannlæknar.
Á þessum stöðum er til fjöibreytt
úrval af tónböndum að velja úr, en
jafnframt geta sjúklingar komið
með eigin tónbönd til að hlýða á
við aðgerð eða meðferð.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins segir að sam-
kvæmt bandarískum leyniþjón-
ustuheimildum kunni sovézkir
skriðdrekar að hafa verið sendir
til Nicaragua auk þess sem aðrir
skriðdrekar bíði sendingar á
Kúbu.
ERLENT
Þögn um vopn
í Nicaragua
Vín. 3. júní. AP.
TCLEX 2033 ROLFIS
CABLE ADDRESS
ROLFIMPEX, REYKJAVIK
TELEPHONE : 06700
* emmwmww
aJ(M olesale on ercíianls
LAUGAVEG 178
P. O. BOX 338
REYKJAVÍK
I C E L A N D
1. júní 1981
TILKYNNING
TIL HJÖLBARÐAKAUPENDA
það tilkynnist hér meé, aó viö höfum ákveÖió aÖ hætta
viöskiptum meö BRIDGEST0NE hjólbaröa frá Japan eftir
nær aldarfjóröungs árangursríkan innflutning.
Jafnframt er okkur ánægja aö tilkynna, aö samkomulag
hefur náöst um aö BÍLAB0RG h/f., taki viö BRIDGEST0NE
umboöinu frá og meÖ 1. júní 1981.
Um leiö og viö þökkum af heilum hug hinum fjölmörgu
kaupendum okkar viöskiptin í gegn um árin, viljum viö
eindregiö láta í ljós ósk okkar um aÖ þeir beini
hjólbaröaviöskiptum sínum til BÍLAB0RGAR h/f.,
í framtíÖinni.
Meö bestu kveÖju,