Morgunblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981
25
Kvöldvökurnar eru vinsælar. þar cr bruKÖiö á leik ok bryddaö upp á
ýmsum atriðum. sem börnin annast sjálf.
Sumarbúðir HSK
skóla yfir mismunandi hæfileik-
um, mismunandi áhuga, mismun-
andi þroska. En eitt eiga allir
nemendurnir sameiginlegt, það er
miklar gafur. mikil greind, mik-
• II auður í huga og höndum. Hitt
er auðsætt og verkefnið er erfitt
og vandasamt að skapa öllum þær
aðstæður sem gera mögulegt að
leysa hæfni og gáfur úr læðingi.
Þá er ekki minna um vert að
sérhver nemandi finni bæði sjálf-
an sig og geri sér fulla grein fyrir
áhugasviði sínu hvert stefna skal,
hvar akurinn skal erja. Auðvitað
eru fjölbrautaskólarnir ekki „fín-
ir“ skólar í þeirri merkingu að þar
fari fram val milli hafra og sauða,
milli þeirra sem eiga ljós viskunn-
ar og hinna sem enginn slíkur
ljómi stafar frá. Að sjálfsögðu eru
fjölbrautaskólarnir og þá alveg
sérstaklega Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti ekki „góður" skóli í
þeim skilningi að hann opni dyr
sínar aðeins nemendum hárra
einkunna og vísi hinum frá sem
einhverra orsaka vegna hafa ekki
glæstan einkunnaferil að baki. En
trúr vill Fjölbrautaskólinn i
Breiðholti vera þeirra kristnu
lífshugsjón að fyrir Guði séu aliir
menn jafnir, viskan sé vafasöm til
aðgreiningar, mátturinn sé heldur
ekki einhlítur, og ættgöfgi eigi
ekki að opna eða loka leiðum. Það
er jafnt kristinn sem forngrískur
hugsunarháttur að sannur lær-
dómur, sönn menntun og sönn
menning eigi að gera einstakl-
ingana hÓKværari, umburðar-
lyndari. mennskari í efa sínum og
undrun með mannhelgina að leið-
arljósi.
Þegar danski presturinn Oscar
Geismar tók að rita minningabók
um vin sinn og starfsbróður Kaj
Munk þá lét hann þau orð falla að
greina mætti hjá mönnum þrjú
mismunandi aldursfyrirbæri. Eitt
væri aldur dagatalsins, er segði til
um hve lengi einstaklingurinn
hefði lifað. Annað væri aldur
lífsþróttarins, er bæri vitni þori
og krafti viðkomandi. Hið þriðja
fyrirbæri væri eilífðaraldurinn er
gæfi hugboð um opna sál og
litríka. Geismar taldi eilífðarald-
ur Kaj Munks hafa verið tólf ár er
hann hvarf héðan. Rithöfundurinn
Kaj Munk glataði aldrei forvitni
bernskunnar og umbrotum æsk-
unnar. Hann var alltaf þrátt fyrir
afrek og frægð stórt barn. Þannig
rækti hann köllun sína. Þannig
braut hann niður fordóma og
talaði máli þess sannleika, sem
aldrei verður í fræðum fundinn,
en birtist þeim sem auðmjúkir
eru, fullir trúnaðartrausts.
Mætti sá vera ávinningur ykkar
mestur, kæru nemendur af erfiði
og ieit í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti að við forðumst lær-
dómshrokann og mannfyrirlitn-
inguna. en gróðursettuð hógværð-
ina og mannhelgina í huga og
sinni.
III
Kæru nemendur, er fengið hafið
á þessum degi í hendur prófskírt-
eini frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti að sjálfstæður náms-
áfangi sé að baki, sumir að
lokaáfanga sé náð, ég vil að þessi
stund verði máttug í krafti afreka
ykkar, verði hugljúf vegna minn-
inga ykkar, verði óskastund vegna
áforma ykkar og framtíðar-
drauma. Eg vil því ljúka þessari
ræðu með erindum úr kvæði
Stephans G. Stephanssonar,
Bræðrabýti.
Ég les V. og VI. kafla kvæðis-
ins:
v.
Við höllumst aö sjón, ekki sögum,
oss sýnist nú örvœnt um flest.
En enn mun að ákveðnum löþfum
við aldarhátt þroskaðri fest
að hugsa ekki í árum, en öldum
að alheimta ei daglaun aö kvöldum
— Því svo lengist mannsævin mest.
Úr árgöngum vortíða og vetra
það vitinu sjálflærðast fer
aö umskapa ið besta í betra
or byggja upp það farsælast er.
VI.
Það er ekki oflofuð samtíð
en umbætt og ^ladari framtíð
sú veröld er sjáandinn sér.
Gangið út í birtuna og gróand-
ann með eldmóð æskunnar. Ver-
ið vorsins börn í draumum og
dáðum.
Guð blessi ykkur öll. Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti er
slitið.
Eins og undanfarin ár mun
Héraðssambandið Skarphéðinn
starfrækja sumarbúðir fyrir börn
og unglinga. Sumarbúðirnr hafa
oftast farið fram á Laugarvatni og
ávallt verið vel sóttar og geysi-
vinsælar.
I ár verða sumarbúðirnar starf-
ræktar á Selfossi í tengslum við
nýja íþróttamiðstöð sem þar verð-
ur rekin. Á Selfossi er óvenjugóð
íþróttaaðstaða sem býður upp á
mikla möguleika, en sumarbúðirn-
ar munu fá til afnota öll íþrótta-
mannvirkin auk þeirrar aðstöðu
annarrar sem þörf er á til starfs-
ins.
Sumarbúðirnar eru ætlaðar
tveimur aldurshópum, 7—11 ára
og 12—14 ára, sem dveljast munu
í búðunum 7 daga í senn, frá 21.
júní til 5. júlí.
Sumarbúðastarfið verður með
líku sniði og undanfarin ár. Hóp-
arnir fá fullt fæði og gistingu á
staðnum ásamt venjulegu sumar-
búðastarfi sem kennarar sumar-
búðanna hafa þegar skipulagt og
má þar nefna fjölþætta íþrótta-
kennslu, leiki ýmiskonar, göngu-
ferðir með náttúruskoðun ásamt
suttum dags eða hálfsdagsferðum
í næsta nágrenni. Ekki má svo
gleyma kvöldvökunum sem alltaf
reynast geysivinsælar enda fé-
lagsandinn ávallt mjög góður í
sumarbúðastarfi sem þessu.
Héraðssambandið Skarphéðinn
hefur alltaf átt mjög góðum
íþróttamönnum á að skipa og hafa.
margir þeirra byrjað þátttöku í
íþróttum í sumarbúðunum þar
sem þeir hafa fengið forsmekkinn.
Aðsókn í sumarbúðirnar er þegar
orðin veruleg og rétt að benda
fólki á að láta innrita börnin
tímanlega.
(Fréttatilkynning).
ÖSA
Ef þú gerir hröfur um gæói f Ijósritun,
en tehur fá eintöh á ári,
er nýja u-bix 90 jjösritunarvélin
fyrir þig
U-BIX 90 notar eina tegund af dufti ftonerj.
U-BIX 90 Ijósritar á allan venjulegan pappír, einnig þitt eigiö bréfsefni.
U-BIX 90 skilar fyrsta afriti eftir 6 sekúntur.
U-BIX 90 kostar 25.780.-
SKRIFSTOFUV6LAR H.F.
4. =
Hverfisgötu 33
Simi 20560
SIEMENS
Vestur-þýzkur
gæöa-gripur
Nýja
SIWAMAT
þvottavélin er fyrir-
feröarlítil, nett, en full-
komin.
Smith & Norland hf.,
Nóatúni 4,
sími 28300.
Poppe-
loftþjöppur
Utvegum þessar heims-
þekktu loftþjöppur í öll-
um stærðum og styrk-
leikum, meö eöa án raf-,
Bensín- eöa Diesel-
mótors.
SöynllgEögtuiir
<§t (S<o)
Vesturgötu 16,
GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR
Lftum bara á hurðlna: Færanleg fyrlr
hægri eða vinstri opnun, frauðfyllt og
niðsterk - og f atað fastra hillna og
hólfa, brothættra stoða og loka eru
færanlegar fernu- og flöskuhillur úr
málmi og laus box fyrlr smjör, ost, egg.
álegg og afganga, sem bera má beint
á borð. jdi'
Dönsk gæðl með VAREFAKTA, vottorðl
dönsku neytendastofnunarinnar DVN
um rúmmál, einangrunarglldl, kæll-
svlð. frystlgetu, orkunotkun og
aðra elginleika.
GRAM BÝÐUR EINNIG 10 GERDIF. AF
frystiskApum og FRYSTIKISTUM
^onix
HATUNI 6A • SIMI 24420