Morgunblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981
43
Samningar Bayern og Standard:
Er vonandi að smella saman'
- sagði Ásgeir Sigurvinsson í gær
„FUNDURINN tók allt aðra steínu en bjóst við og éj? held að það sé
óhætt að segja að þetta sé að smella saman. Ef allt fer að óskum verður
vonandi gengið frá félagaskiptum i næstu viku.” sagði knattspyrnu-
knapinn Asgeir Sigurvinsson í samtali við Mbl. í gær.
• Ásjfeir Sijíurvinsson er vongóður um að samningar takist á milli
Standard og Bayern.
Islandsmet
í spjótkasti
Ásgeir var þá kominn til Liege
frá Briissel, þar sem hann átti
leynilegan fund með Ule Höeness
framkvæmdastjóra Bayern
Miinchen og Petit, framkvæmda-
stjóra Standard Liege. Fyrir fund-
inn var Ásgeir fremur svartsýnn
enda hafði Petit margsinis lýst því
yfir að hann vildi ekki selja Ásgeir
til Bayern.
„Við áttum tveggja tíma fund í
Briissel og satt að segja kom það
mér á óvart hve Petit var jákvæð-
ur. Hann og Höeness eru langt
komnir í samningagerðinni og
verður næsta skrefið það að þeir
bera málið undir stjórnir beggja
félaganna. Ef útkoman úr því
verður jákvæð verður endanlega
gengið frá félagaskiptunum í
næstu viku, annað hvort í Munch-
en eða Liege. Eg er mjög ánægður
hvernig málin hafa þróast,“ sagði
Ásgeir og var að vonum mjög
hress í bragði.
Þótt fundurinn í Brússel hafi
verið leynilegur höfðu margir
fréttamenn spurnir af honum og í
gær linnti ekki símhringindum til
Ásgeirs frá blöðum í Belgíu og
Þýzkalandi. Þegar Mbl. hringdi til
Ásgeirs, hafði hann t.d. nýlega
talað við blaðamann Bild Zeitung í
Þýzkalandi.
„Nú er ekki annað fyrir mig að
gera en gleyma þessu máli í bili og
snúa mér að bikarúrslitaleiknum
gegn Lokeren á sunnudaginn,"
sagði Ásgeir. Hann æfði í gær en
átti frí í dag. Á föstudag og
laugardag verða léttar æfingar en
liðið mun dvelja á móteli frá
föstudegi til sunnudags. Eins og
margoft hefur komið fram í frétt-
um mætast þeir Ásgeir Sigur-
vinsson og Arnór Guðjohnsen í
bikarúrslitunum svo að leikurinn
verður sannkallaður Islendinga-
slagur. _ SS
„ÉG ER að sjálfsögðu í sjöunda
himni. Þetta kom mér á óvart.
því ég cr eiginlega ennþá á
„þungu" prógrammi, og tak-
markið var að kasta rétt yíir 44
metra. Þetta eykur mér von og
takmarkið er að kasta yfir 50
metra í sumar." sagði íris Grön-
feldt frjálsiþróttakona úr Borg-
arnesi í samtali við Morgunblað-
ið í fyrrakvöld. en stundu fyrr
hafði hún sett nýtt og glæsilogt
íslandsmet í spjótkasti. kastað 47
metra slétta og því bætt ís-
landsmctið um hálfan metra.
íris sagði, að keppnin hefði ekki
byrjað vel, en í þriðja kasti fór
hins vegar að ganga betur og
kastaði hún þá rúma 44 metra. I
fjórðu umferð kastaði hún svo rétt
rúma 46 metra og metkastið kom í
Skuldbundnir til
aö gangastund-
ir lyfjapróf
„Sambandsstjórnarfundur ÍSÍ
sem haldinn var 16. maí 1981.
samþykkti að allir keppcndur á
vegum sérsambanda ÍSÍ séu
skuldbundnir til að gangast und-
ir lyfjapróf. sem ISÍ kann að
ákveða.
Jafnframt samþykkti sam-
handsstjórnarfundur reglur til
bráðabirgða um tilgang og fram-
kvæmd lyfjaprófs. sem gilda
skulu. þar til næsta þing ISÍ
kemur saman."
Arsþing HSI
Ársþing HSÍ verður haidið um
helgina í húsi Slysavarnafélags
tslands, Grandagarði 14. Þingið
hefst föstudaginn 5. júní, kl.
20.00. en á laugardag hefst fund-
ur kl. 13.00.
Engin stórmál, umfram venju,
liggja fyrir þinginu, en Reglugerð
HSI um handknattleiksmót verð-
ur til verulegrar umfjöllunar. Eru
ýmis atriði varðandi íslandsmót
innanhúss og bikarkeppni tekin til
meðferðar, má þar nefna: tekju-
skiptingu, úrslit í riðlum og flokk-
um o.s.frv., en auk þess verður
þingið að ákveða hvernig þátttak-
andi í IHF-keppninni skal valinn.
Dómaramál ber að sjálfsögðu
nokkuð hátt, enda ástand þeirra
mála óviðunandi.
Aðildarfélögum HSÍ er bent á að
þátttöku ti lky n n i ngar fyrir Bik-
arkeppni HSÍ og Islandsmót inn-
anhúss 1981-82 skulu berast eigi
síðar en á fyrri degi þingsins, 5.
júní næstkomandi. Jafnframt skal
gengið frá greiðslu á þátttöku og
dómaragjöldum.
sjöttu og síðustu umferð. Metið
setti hún á innanfélagsmóti
UMSB í Borgarnesi. Margir ungir
og efnilegir íþróttamenn kepptu á
mótinu, og sagði Iris einstaka
veðurblíðu líklegast hafa ýtt undir
árangurinn, en margir settu per-
sónuleg met á mótinu.
Þannig stökk 17 ára piltur úr
Borgarnesi, Hafsteinn Þórisson,
1,91 metra í hástökki, sem er gott
miðað við það að stökkva varð af
grasi, þar sem atrennubrautir úr
möl eru enn slæmar eftir vetur-
Belgiskur unglingalands-
liðsmaður í stjörnuleikinn
ENN IIEFUR bæst liðsauki í
stjörnulið það sem ma tir Val á
Laugardalsvcllinum 17. júni
na-stkomandi. Er það belgiski
unglingalandsliðsmaðurinn
Marc Verbruggen, sém leikur
með Lokeren og kemur með
Arnóri Guðjohnsen. Verbrugg-
en er vinstri bakvörður og
þykir vera með efnilegri
knattspyrnumönnum Belgíu
um þessar mundir.
Þá er stjörnuliðshópurinn orð-
inn æði mikill og harðsnúinn, en
ef við rifjum snöggvast upp
hvaða leikmenn eru þegar ör-
uggir, þá eru það Janus Guð-
laugsson frá Fortuna Köln
ásamt félögum sínum Jupp Pauli
og Flemming Nielsen, Ásgeir
Sigurvinsson frá Standard Liege
ásamt Dardenne og Simon Ta-
hamata, Magnús Bergs og Atli
Eðvaldsson frá Borussia Dort-
mund ásamt einhverjum mið-
vallarleikmanni þess félags. Þá
bendir flest til þess að Teitur
Þórðarson og Albert Guð-
mundsson mæti til leiks, óvíst
með Pétur Pétursson, en það
skýrist þegar félagaskipti hans
eru um garð gengin.
Leikurinn verður sem fyrr
segir miðvikudaginn 17. júní á
Laugardalsvellinum og hefst
hann klukkan 18.30. Klukku-
stund fyrr, eða klukkan 17.30
hefst hins vegar skemmti-
dagskrá og koma þar meðal
annars fram nokkrar hljóm-
sveitir. Þess má svo geta að
lokum, að varamarkvörður
stjörnuliðsins verður enginn
annar en Sigurður Dagsson.
—gg-
KR —
Breiðablik
Laugardalsvöllur
kl. 20
í kvöld