Morgunblaðið - 04.06.1981, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JUNI 1981
t Eiginkona mín, ELÍSABET JÓNSDÓTTIR, Reynimel 35, lést á Landakotsspítala 2. júní. OddurJónasson.
t Faöir okkar, SIGFÚS JÓNSSON, bóndi, Laugum, Hraungeröíshreppi, lést Þ 20. maí sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir eru faeröar Árna Björnssyni lækni og hjúkrunar- fólki á deild 4b Landspítalanum fyrir frábæra umönnun í veikindum hans á undanförnum árum. Þökkum auösýnda samúö. Bergljót Sigfúsdóttír, Sigmar Sigfússon.
t Útför eiginmanns míns, fööur okkar og afa, STEFÁNS ÁSGRÍMSSONAR, bónda, Stóru-Þúfu, veröur gerð frá Fáskrúöarbakkakirkju laugardaginn 6. júní nk. kl. 14. Ferö veröur frá BSÍ kl. 9. Laufey Stefánsdóttir, börn og barnabörn.
t Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, DAGBJARTAR JÓHANNESDÓTTUR, Kleppsvegí 69, veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. júní kl. 15. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
t Móðir okkar, SIF BJARNADÓTTIR, Kirkjuteig 27, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. júní kl. 4.30. Bjarni Ómar Guðmundsson, Ólafur Ragnarsson.
t Eiginmaður minn, faöir okkar og sonur, SKJOLDUR GUÐMUNDSSON, Einholti 6c, Akureyri, veröur jarðsunginn föstudaginn 5. júní kl. 14 frá Akureyrarkirkju. Eiginkona, börn og móðir.
t Systir mín og máqkona, GÍSLÍNA SVANDÍS ERLA JÓNSDÓTTIR, ''eröur iarn Hátúni 10 A, sungin í dag, fimmtudaginn 4. júní, kl. 16.30 frá Fossvogskirkju, Ingibjörg Jónsdóttir, Finnbogi Þorbergsson, Jóhannes Jónsson, Guöbjörg Arndal, Hreióar Jónsson, Jóna Pétursdóttir, Ulfljótur B. Jónsson, Bjarni V. Jónsson, Margrét Þorsteinsdóttir.
t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, ÓLAFUR PÁLMI ERLENDSSON, Tunguvegi 34, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju föstudaginn 5. júní kl. 2. Blóm vinsamlegast afþökkuö, Dagmar Gunnlaugsdóttir, Guðrún Ó. Regan, James Regan, Vilhelmína Ólafsdóttir, Albert Sigurösson, Eyjólfur Ólafsson, Guðný Karlsdóttir Olafur Valur Ólafsson, og barnabörn.
t Útför móöur okkar, tengdamóöir, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR JÓNSDÓTTUR, Stigahlíö 18, Reykjavík, fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 5. júní kl. 13.30. Jarösett verður í Hafnarfjaröarkirkjugaröi. Sigrún Jónsdóttir, Stella J. Miller, Frank P. Miller, Kristján H. Jónsson, Ásdís G. Konráösdóttir, Jón Konráö Kristjánsson, Sólveig Krístjánsdóttir, Finnur Oskarsson, Sigríöur Kristjánsdóttir, Björn Svavarsson, Krístján R. Kristjánsson, Stella Kristjánsdóttir, Ragnar F. Kristjánsson, Kristján Ómar Björnsson.
Hálfdan Eiríksson
- Minningarorð
Fa'ddur 24. júní 1901.
Dáinn 28. maí 1981.
A sólbjörtum maídegi, eins og
þeir gerast fegurstir við Flóann,
hné niður á heilsubótargöngu
sinni roskinn, hljóðlátur borgari.
Hann Hálfdan Eiríksson í „Kjöt &
Fisk“, eins og svo margir borgar-
búar könnuðust við hann. Þetta
var 21. maí og lést hann síðan að
morgni 28. sama mánaðar í Borg-
arspítalanum.
Hálfdan Eiríksson fæddist á
Húsavík 24. júní 1901. Foreldrar
hans voru Jakobína Jakobsdóttir,
kennari, Hálfdanarsonar, bónda á
Brenniási í Bárðardal og Gríms-
stöðum við Mývatn, síðar kaupfé-
lagsstjóra á Húsavík, og konu
hans Petrínar Kristínar Péturs-
dóttur, bónda í Reykjahlíð, og
Eiríkur Þorbergsson, snikkari og
Ijósmyndari á Húsavík, Eiríksson-
ar, bónda í Syðri-Tungu á Tjörnesi
og konu hans Sigríðar Andrés-
dóttur.
Jakobína og Eiríkur slitu sam-
vistum haustið 1903. Næstu 3 ár er
Jakobína heimiliskennari í Öxar-
firði, Hafnarfirði og Djúpavogi
með drenginn sinn hjá sér. Frá
Djúpavogi fer svo Jakobína vorið
1906 til Hálfdans bróður síns, sem
þá er nýkominn frá Ameríku, og
gerist ráðskona hjá honum á
Héðinshöfða. í árslok 1908 er
Jakobína ráðin kennari við skól-
ann í Héðinsvík, sem var niðri við
sjóinn neðan við Héðinshöfða. Þar
kennir hún þar til vorið 1914, að
hún flytur til Húsavíkur og fylgir
Hálfdan henni alltaf. Kennir hún
við barnaskólann á Húsavík
1914—1915. Hálfdan fermdist í
Húsavíkurkirkju vorið 1915. Voru
þau mæðgin í heimili hjá systrum
Jakobínu, sem þá bjuggu á Húsa-
vík.
Árið 1915 flytja Jakobína og
Hátfdan til Reykjavíkur og fer
hann mjög fljótlega að vinna hjá
dönskum kjötkaupmanni, Milner
að nafni, sero þá hafði kjötverslun
að Laugavegi 20A. Nemur Hálfdan
kjötiðn hjá Milner. Haustið 1918
hefur Hálfdan nám við Verslun-
arskóla íslands og útskrifast það-
an vorið 1920. Jafnframt námi
vann hann hjá Milner sér til
framfæris, en móðir hans var þá
orðin kennari á Eyrarbakka.
Að framanskráðu athuguðu
hafa einstæð foreldri, í þessu
tilviki Jakobína, þurft mikið á sig
að leggja til að brauðfæða og ala
upp börn sín ekki síður en í dag. Á
þessum tima kynnist Hálfdan
Þórnýju Jónsdóttur Þveræings,
Jónssonar frá Þverá í Laxárdal og
Halldóru Sigurðardóttur frá Arn-
heiðarstöðum á Fljótsdalshéraði.
Voru þau Þórný heitbundin, þegar
Hálfdan fór til Winnipeg, Kanada,
að hitta Eirík föður sinn, en það
var í árslok 1920. Eiríkur fór
vestur um haf 1913 og kvæntist
Jþar Margréti Sigurðardóttur
Áttu þau tvo syni, Pálma og
Thorberg. Dvaldi Hálfdan nú í
Kanada næstu 4 árin og vann þar
ýms störf s.s. við þreskingar á
ökrum, en mest mun hann hafa
unnið sem matreiðslumaður.
Haustið 1924 snýr hann heim til
Islands og gengur að eiga heitmey
sína 23. maí 1925. í febrúar sama
ár höfðu þau Þórný keypt verslun
Milners „Kjöt & Fisk“, sem nú var
að Laugavegi 48. Unnu þau bæði
mikið og af áhuga við verslunina
og farnaðist vel. Árið 1929 fluttu
þau verslunina í nýtt hús, sem þau
byggðu ásamt bróður Þórnýjar,
Jóni Víðis, að Þórsgötu 17. Ráku
þau báðar verslanirnar í ein 2 ár,
en seldu þá verslunina að Lauga-
vegi 48.
Börnin urðu 4, Hildur Árdís, f.
22. febrúar 1931, skrifstofustjóri
hjá bæjarfógeta í Kópavogi og
húsmóðir, gift Karli Karlssyni,
vélfræðingi, Hadda Árný, fædd 12.
júní 1935, húsmóðir í Hafnarfirði,
gift Gunnari Jóhannessyni, vél-
virkja, Jakob Jón, fæddur 1. janú-
ar 1942, tæknifræðingur hjá Vega-
gerð ríkisins, kvæntur Margréti
Sveinsdóttur, og Jón Grétar dr. í
eðlis-efnafræði hjá Járnblendifé-
laginu á Grundartanga, kvæntur
Kristínu Steinsdóttur. Barnabörn
eru 11 á lífi og barnabarnabörn 3.
Haustið 1935 festu Þórný og
Hálfdan kaup á 114 ha. lands að
Fossvogsbletti 20 og byggðu þar
sumarhús. Hófst nú mikil ræktun
garðávaxta, blóma og trjáa og
gerðu þau staðinn að miklum
unaðsreit. Utheimti það geysi-
mikla vinnu og vörðu þau öllum
tómstundum í garðvinnu næstu 20
sumur. Var mikið um gestakomur
í sumarbústaðinn og oft glatt á
hjalla.
Kynni okkar Þórnýjar voru
stutt en ánægjuleg fyrir mig. Ég
minnist þessarar hljóðlátu, góðu
konu, sem bar sjúkdóm sinn með
ofurmannlegu hugrekki, þar til
miskunn dauðans liknaði henni 7.
des. 1955.
Nú er genginn enn einn alda-
mótamaðurinn. Einn þeirra, sem
hafa gert líf okkar fyllra og
frjórra, vegna atorku sipnar að
ýmsum lista- og framfaramálum.
Hálfdan var einn af 12-menning-
unum, sem 1932 stofnuðu Tón-
listarfélagið í Reykjavík, en það
var félag, sem stofnað var til að
ábyrgjast rekstur Tónlistarskól-
ans í Reykjavík, sem hafði verið
Gíslína S. E. Jóns-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 2. október 1937.
Dáin 30. maí 1981.
Ég kvéð Gíslínu með þakklæti
fyrir þau gleðiríku ár, sem við
áttum saman á hennar stuttu
lífsleið. Hún var yngst í stórum
systkinahópi. Foreldrar hennar
voru sú mæta kona Lilja Björns-
dóttir og Jón Erlendsson. Við
áttum saman unglingsárin, unn-
um saman og margar ánægju-
stundir áttum við saman.
Þegar lífið blasti við eins og
ævintýri, aldrei rofnuðu tengslin.
Voru sterk þó leiðir skildu, eftir að
við gengum báðar í hjónaband.
Gíslína veiktist af þeim sjúkdómi
er dró hana til dauða fyrir rúmum
4 árum. Hún barðist svo hetjulega,
að það var aðdáunarvert, náði sér
um tíma, og gekk til vinnu sinnar
og var búin að koma sér vel fyrir í
litlu skemmtilegu íbúðinni sinni.
Þá kom reiðarslagið aftur.
Ég vil muna Gillu eins og hún
var, stolt og glæsileg.
Drottinn gaf henni lausn frá
öllum jarðneskum þjáningum.
_í hljÚKri ha-n uk þ«kk til þin.
Ó K<WVi (iuú. kom þú til min.
Ék kalla á þÍK. GuA leiddu mÍK.
Ú kúAí GuA. kom þú til mín."
(Sáimur).
Með hinstu kveðju frá vinkonum.
Ása og Geirlaug.
I lotninKU krýp ók hjá IriAinu þinu
hjá litprtiAa. fúlnaAa hlominu mínu
ok hiA um þá náA. aA ók skýrt rnt’KÍ skilja
míns skapara. Drottins. hinn hrilaKa vilja.
Gilla frænka, eins og við kölluð-
um hana, andaðist á Landspítal-
anum langt um aldur fram þann
30. maí sl. Það hvarflar þó að
manni að hún hafi orðið hvíldinni
fegin eftir hina löngu og erfiðu
sjúkdómsbaráttu sína.
Hún var dóttir hjónanna Lilju
Björnsdóttur og Jóns Erlendsson-
ar sem lengst af bjuggu á Þingeyri
við Dýrafjörð.
Þegar við vorum litlar stúlkur
vorum við fullar aðdáunar á þess-
ari fallegu frænku okkar.
En lífið varð henni ekki dans á
rósum og kom þar margt til sem
ekki verður tíundað i þessari
stuttu kveðju.
stofnaður haustið 1930. Næstu 20
árin var mikil vinna lögð fram af
þeim félögum. 1938 var stofnuð
leiknefnd innan félagsins og var
Hálfdan kosinn framkvæmda-
stjóri hennar. Voru nú fluttar
ýmsar óperettur á vegum Tón-
listarfélagsins og Leikfélags
Reykjavíkur, svo sem Bláa kápan,
Meyjaskemman, Nithouch, svo
eitthvað sé nefnt. Eftir 1952 hvílir
vinnan að tónlistarmálunum ekki
eins þungt á 12-menningunum, en
þau eru þó ávallt undir umsjón
þeirra.
Hálfdan var um tíma formaður
Vestur-íslendingafélagsins, sem
starfandi var á fjórða áratugnum.
Hann var einn af stofnendum
Félags matvörukaupmanna árið
1928. Starfaði hann af áhuga í
félaginu meðan hann var kaup-
maður, og sat um tíma í stjórn
þess sem ritari. Hálfdan var
sæmdur gullmerki Kaupmanna-
samtaka Islands á 50 ára afmæli
Félags matvörukaupmanna 1978.
Hann hafði gaman af taflmennsku
og var dyggur stuðningsmaður
skákhreyfingarinnar. Hann vann
að félagsmálum á þeim vettvangi
og sat í stjórn Taflfélags Reykja-
víkur um tíma. Hann var mikill
áhugamaður um líkamsrækt, og
stundaði fimleika með „old boys“ í
IR í mörg ár. Gerði hann sína
morgunleikfimi á hverjum degi
fram til síðasta dags.
10. nóv. 1957 kvænist Hálfdan í
annað sinn eftirlifandi konu sinni,
Margréti G. Björnsson, dóttur
Guðmundar Björnssonar, fyrrv.
sýslumanns í Borgarnesi og Þóru
L. Júlíusdóttur Björnsson frá
Klömbrum í Húnavatnssýsiu. Með
henni voru 2 börn hennar af fyrra
hjónabandi, Guðm. Karl Sveins-
son, fæddur 12. júní 1941 og
Margrét Sveinsdóttir, fædd 3. apr-
íl 1947. Störfuðu Margrét og Hálf-
dan saman við verslunina, þar til
þau seldu „Kjöt & Fisk“ árið 1959.
Hálfdan hóf þá störf hjá skatt-
stofu Reykjavíkur og starfaði þar
fram á sumar 1975.
1961 festu þau Hálfdan og
Margrét kaup á íbúð að Vestur-
götu.54A. Frá þeim störfuðu þau
mikið innan Co-Frímúrararegl-
Við viljum þakka henni fyrir
margar góðar stundir sem við
áttum saman bæði sem börn og
fullorðnar.
Við geymum í minningunni
mynd þá sem greyptist í huga
okkar ungra systurdætra hennar.
Við kveðjum hana með söknuði
og biðjum Guð að vera með henni.
Systkinum hennar og ástvinum
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kiddý og Lilja.