Morgunblaðið - 04.06.1981, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ1981
35
unnar. Margrét bjó þeim yndislegt
heimili þarna á Vesturgötunni.
Styrkur Margrétar, einstæð um-
hyggja og gleðin yfir því minnsta,
sem fyrir hana er gert, er mér
næsta óskiljanleg. Hvernig hún
hélt við gleði og vellíðan Hálfdans
hin síðustu ár, verður af engum
fullþakkað. Pálmi, hálfbróðir
Hálfdans, er kominn frá Kanada.
Hann ætlaði að halda upp á
áttræðisafmælið með bróður sín-
um 24. júní.
Ég hlýt að minnast Háifdans
með virðingu og þakklæti í huga.
Hann gaf mér dóttur sína, sem er
mín mesta gæfa í þessu lífi.
Hálfdan trúði því einlæglega, að
handan jarðnesks dauða biði ann-
að líf. Ég vona að honum hafi
orðið að trú sinni og sé kominn í
hóp vina hinu megin Við móðuna
Karl Karlsson
Kveðja frá
TónlistarfélaBinu
Þegar Tónlistarfélagið var
stofnað á árinu 1932, þá gerðist
Hálfdan Eiríksson, kaupmaður og
tónlistarunnandi, einn af tólf
stofnendum þess félags.
Einlægni hans og hjartahlýja
ollu því að frá fyrsta degi varð
hann vinur okkar allra og sam-
herji. Á þá vináttu hefur aldrei
borið skugga.
Við vorum lýðræðissinnar og
því allir jafnir. Hver félagi vann
þau störf, sem hentuðu honum
best og veittu mestan unað, því
önnur voru launin ekki.
Við, sem enn þreyjum þorrann,
þökkum nú að leiðarlokum 50 ára
samfylgd og ánægjulegt samstarf.
Við óskum Hálfdani góðrar
heimkomu. Hann efaðist aldrei.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar. tengdafööur og afa,
MAGNUSAR HANNESSONAR,
rafvirkjameistara,
Hagamel 25, Reykjavík,
verður gerð frá Neskirkju þriöjudaginn 9. júní kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vilja minnast hins
látna, er bent á Frændasjóö í vörslu Páls Lýössonar, Litlu-
Sandvík, eöa Líknarsjóö Barnaspítala Hringsins.
Guörún Margrét Þorsteinsdóttir,
Hannes Nordal Magnússon, Ásta Valdimarsdóttir,
Magnús Þór Magnússon, Hrefna María Gunnarsdóttir,
Margrét Oddný Magnúsdóttir, Stefán Jóhann Hreiðarsson
og barnabörn.
t
Þökkum af hjartans einlægni, auösýnda samúö vegna andláts og
útfarar ástkærs sonar okkar og bróöur,
GUÐRÁDS DAVÍOS BRAGASONAR,
sem lézt af slysförum 16. maí sl.
Guö blessi ykkur öll.
Erna Þorleifsdóttir, Bragi Guöráösson,
Vigdís Bragadóttir, Stefanía Bragadóttir,
Sigríöur Bragadóttir, Gunnar Sigurösson,
Helga Bragadóttir, Erla Bragadóttir.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Hvammi, Eyjafjöllum.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös Borgarspítalans sem
önnuöust hana í veikindum hennar.
Magnús Sigurjónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Í
Hjartanlegustu þakkir okkar fyrir hlýhug og vináttu viö andlát og
útför eiginmanns mfns, fööur, tengdafööur, afa og langafa
RAGNARS V. JÓNSSONAR,
veitingamanns.
Guö blessi ykkur öll.
Júlíana S. Erlendsdóttir,
Rakel B. Ragnarsdóttir, Björgvin Árnason,
Jón Ó. Ragnarsson, Hrafnhildur Valdimarsdóttir,
Þór Ragnarsson, Vilhelmína Hauksdóttir,
Ruth Ragnarsdóttir, Ómar Hallsson,
Hilmir Hinriksson, Hulda Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auösýndu okkur
samúö og hlýhug viö hiö sviplega fráfall bræöranna,
JÓELS OG BJARNA GUÐMUNDSSONA,
sem fórust meó mb. Béru VE 141.
Sérstakar þakkir færum viö Slysavarnadeild kvenna Garöi og
kvenfélaginu Gefn fyrir ómetanlega aöstoö viö minningarathöfn
þeirra, svo og öllum öörum sem þátt tóku í leitinni til sjós og lands.
Guös blessun fylgi ykkur öllum.
Guörún Pétursdóttir og börn,
Laufey Siguróardóttir og systkini.
+
Þökkum sýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar,
fósturmóöur, tengdamóöur og ömmu,
GUDRUNAR GRÍMSDÓTTUR
frá Oddsstööum, Vestmannaeyjum.
F.h. stjúpbarna og annarra vandamanna.
Ingólfur Guðjónsson, Árni Guöjónsson,
Guölaugur Guójónsson, Anna Siguröardóttir,
Vilborg Guöjónsdóttir, Jón Aðalsteinn Jónsson,
Hjörleifur Guönason, Inga Halldórsdóttir,
Jóna Pétursdóttur, Sigurgeir Björgvinsson
og barnabörn.
Hálfdan Eiríksson var einn af
stofnendum Félags matvörukaup-
manna árið 1928, en hann átti þá
og rak verzlunina Kjöt & Fisk að
Þórsgötu 17 hér í Reykjavík. Hann
starfaði af miklum áhuga í félag-
inu meðan hann var kaupmaður,
og sat um tíma í stjórn þess og
gegndi þar ritarastörfum.
Hálfdan var sæmdur gullmerki
Kaupmannasamtaka íslands á
fimmtán ára afmæli Félags mat-
vörukaupmanna árið 1978.
Stjórn Félags matvörukaup-
manna þakkar störf Hálfdans
Eiríkssonar í þágu félagsins og
vottar ástvinum hans dýpstu sam-
úð.
Ólafur Björnsson
formaður
Félags matvörukaupmanna.
í dag, fimmtudag, verður heim-
ilisvinur okkar Hálfdan Eiríksson
til moldar borinn frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík. Þessi mæti
maður lauk lífsgöngu sinni sáttur
við alla menn, bjartsýnn á það,
sem bíður hans við umskiptin. Það
hlýtur ávallt að verða sælt að
sofna þeim sem þreyttir eru, eftir
langan vinnudag,
Ég átti þess kost fyrir meira en
hálfri öld að kynnast í raun
þessum sómamanni, sem nú er
kvaddur. Margar myndir og fagr-
ar koma upp í hugann.
Árið 1929 setti hann á stofn
verslunina Kjöt & Fiskur á horni
Þórsgötu og Baldursgötu, og gekk
því ávallt undir nafninu Hálfdan í
Kjöt & Fisk.
Eins og nafnið gaf til kynna var
þjóðarréttur landans aðal verslun-
arvaran og því oft mikið að gera
og var því þessi verslun um-
fangsmikil og rekin með miklum
myndarskap. Á þessum árum voru
miklir erfiðleikatímar, og mikið
um atvinnuleysi. Mikill varð þá
vandi þessa mikla mannvinar, sem
allir í hverfinu töldu sig eiga að
vini. Ég hygg hann hafi engum
neitað, þegar leitað var bónbjarg-
ar, þótt greiðsla hafi verið ótrygg.
Hálfdan var glæsimenni í sjón
og raun, tilfinningasamur og ljúf-
ur og vann hylli allra, sem kynnt-
ust honum. Hann var mikill unn-
andi fagurs mannlífs. Tónlist
heillaði Hálfdan og var hann einn
af 12 postulum, sem svo voru
kallaðir, að stofnun Tónlistar-
félagsins. Þá var hann liðtækur
skákmaður og mun hafa átt drjúg-
an hlut í skákframa Jóns, sonar
síns, sem flestir skákmenn þekkja
vel til.
Einnig var öllum ljóst, sem
Hálfdan þekktu, að þar fór mikill
trúmaður, sem þakkaði og lofaði
hvern dag að kvöldi, og víst mun
hann hafa næsta dag beðið til að
gleðja og hugga þá, sem voru á
vegi hans.
Hálfdan var algjör reglumaður
og hafði ungur að árum ásett sér
að kynnast aldrei vímugjöfum né
hafa um hönd.
Nú þegar leiðir skilja er þakk-
læti efst í huga fyrir að hafa
eignast slíkan samfylgdarmann
sem Hálfdan.
Við hjónin þökkum langa vin-
áttu og tryggð.
Jafnframt vottum við fjölskyldu
hans innilega samúð.
Vinarkveðja,
Björgvin Grímsson.
LÖNG HELGI í LÚXENBORG
Brottför á laugardagsmorgni 13. og 27. júní,
18. og 25. júlí, 8. og 15. ágúst.
Komið til Luxemborgar um hádegi
Gisting á Sheraton-Aerogolf, laugardags, sunnudags-
og mánudagsnótt
Brottför frá Luxemborg á þriðjudegi um tvöleytið
Komið til Keflavíkur um fimmleytið
RF HVERJU LÚXENBORG?
AF ÞVÍ AÐ: -
Flugferð og gisting eru ódýr. Sheraton-Aerogolf er
mjög þægilegt hótel í fallegu umhverfi við hliðina á
góðum 18 holu golfvelli. Luxemborg býður upp á einn
besta mat í heimi - þú getur meira að segja fengið
íslenskan mat hjá honum Valgeiri á Cockpit Inn við
Boulevard G.Patton, eða þá safaríka dádýrasteik á ein-
hverjum veitingastaðnum í Clervaux. í Clervaux dvaldi
Halldór Laxness í klaustri á sínum tíma. Svo má líka
koma við í brugghusinu þar og bragða örlítið á fram-
leiðslunni. Við Place de Bruxelles í Luxemborg er svo
splunkunytt diskótek, Pole Nord (Norðurpóllinn) með
tónlist við allra hæfi. Bátsferð á Mósel er alveg tilvalin,
og svo má nú ekki gleyma helgar-afslættinum hjá Con-
tinental bílaleigunni, sem gerir þér kleift að bruna til
Frakklands, Þýskalands, Belgíu eða Hollands á
skömmum tíma.
<
&
SEMSAGT:
Flugferð og gisting í þrjár nætur
FYRIR —KRÓNUR
FLUGLEIDIR
Traust fólk hja goóu felagi