Morgunblaðið - 17.06.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 17.06.1981, Síða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981 Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri svarar spurningum lesenda um garðyrkjumál spurt og svarad Lesendaþjonusta Ræktun kærleiksblóms í hjarta b. GuAmundsson, Reykjavík, hringdi og óskaði svars við því hvernig ætti að rækta kærleiks- blóm í hjarta? SVAR: Þótt auðheyrilega sé spurt af gamansemi, þykir mér ástæðu- laust að skorast undan þessari spurningu fremur en þeim er varða ræktun blóma í moldar- beði. Flestir munu geta orðið sammála um að sá sem aldrei sáir nýtur aldrei uppskeru eigin verðieika og allur vandinn við ræktun kærleiksblómsins er sá að hafa ráð á hinu eina sanna sáðkorni. Á ad grafa á fast? Árni Kristjánsson, Logalandi 7, hringdi og spurði hvort grafa þyrfti á fast þegar setja ætti hollur meðfram garði þ.e.a.s. í hallandi brekku eða á stalla í lóð? SVAR: Ef um venjulegan halla er að ræða ætti að vera fullnægjandi að leggja hellur á mold án þess að treysta undirstöðu og jafnvel sjálfsagt að gróðursetja stein- brjóta, hnoðra eða aðrar fjölær- ar jurtir í glufur á milli þeirra. Hallinn þarf þá helst að vera sem næst einn á móti einum. Sé um vegghleðslu að ræða verður að tryggja undirstöðuna með því að púppa eða sandfylla niður fyrir venjulega frostdýpt og setja grófa möl innan við hleðsl- una til að fyrirbyggja að mold sprengi ekki vegginn fram í frostum. Maökur á brekkuvíði bór Guðmundsson, Rauða- hjalla 7, Kópavogi, hringdi og spurði hvernig maður ætti að MORGUNBLAÐSINS bregðast við maðkinum í brekkuvíði, og hvernig ætti að eitra fyrir hann. Þór vildi einnig vita hvers vegna blöðin gulna þegar úðað hefur verið á brekku- víðinn? Að lokum vill hann fá vit- neskju um gljávíði þ.e.a.s. hvort klippa megi hann snemma á vorin vegna kulda. SVAR: Nokkuð hefur áður verið fjall- að um varnir gegn maðki og lúsum og vísast til svars 12. og 13. júní enda virðist fyrirspyrj- andi hafa nokkra reynslu af úðun með skordýraeitri, því fyrir kemur að það geti valdið skaða á laufblöðum sé styrkleikablöndun þess önnur en gefin hefur verið upp af framleiðsluaðilum. Eink- um er hætta á blaðsviðnun sé sprautað eftir langvarandi þurrviðri og í sterku sólskini. Gljávíði hættir fyrst og fremst við kali þegar kemur fram á útmánuði og því er eðlilegast að klippa hann til um það leyti sem annar gróður er að laufgast. Annars er í þessu sambandi ástæða til að vekja athygli á þeirri staðreynd að gljávíðir getur orðið ljómandi fallegt og hávaxið tré og upphaflega var hann ræktaður þannig hér á landi. Eitt af elstu trjám í Reykjavík sem enn lifir er einmitt gljávíðir (gróðursettur 1884). Sá gljávíðir sem komin er út af þessum elstu trjám, kelur hér mjög sjaldan, en hinsvegar er það stofninn sem fluttur var inn 1947 og '48 og nú er mest notaður í limgerði, sem er mun viðkvæmari fyrir vetrarstormunum. Paprika og piparjurtir Michela Jespersen, Bjarma- landi 11, Sandgerði, hringdi og langaði að vita um papriku og piparjurtir. Hvort þær deyji þegar þær eru búnar að bera ávöxt eða hvort eigi að klippa þær niður. Á að bera áburð á jurtina og hvenær má borða ávextina? SVAR: Garðyrkjuskólinn hefur nú um nokkurra ára skeið haft allveru- lega ræktun á kryddjurt þeirri sem þekkist á almennum mark- aði undir nafninu paprika. Latn- eska heitið er CAPSICUM ANNUUM, og mun jurtin upp- runnin af svipuðum slóðum og kartöflur og reyndar vera sömu ættar og þær eins og tómat- plantan, tóbaksjurtin og fleiri nytjajurtir. Af þessari plöntu eru til fjölmörg afbrigði með all mismunandi ávöxtum, sem eru hol aldin oftast peru- eða drop- laga og geta verið með ýmsum litbrigðum jafnan 7—10 sm löng. Til plöntunnar er oftast sáð síðla vetrar og kjörhiti er 20—25°C. Ræktun hennar fer fram á sama hátt og tómatplöntunnar. Fremur þykir mér ótrúlegt að fólk hefji almennt ræktun þeirr- ar plöntu í heimahúsum, en ávöxturinn er einkum notaður í salöt og stundum sem bragðauki með áleggi á brauð og í súpur eða sósur. Mér er ekki kunnugt um að hinn raunverulegi pipar- runni hafi nokkru sinni verið reyndur hér á landi og sú piparjurt sem Michela spyr um er trúlega planta sú sem hér hefur oft verið seld í blómabúð- um sem stofublóm. Kemur með lítil rauð kúlulaga aldin afar bragðsterk og nefnist „spánskur pipar". Jurt þessi er nánast eitt afbrigði papriku eða CAPSICUM ANNUUM en er smávaxnari og allt önnur í útliti. Yfirleitt eru plöntur þessar ræktaðar sem einærar en þó er hugsanlegt að varðveita rætur og fá þær til að bera lauf og aldin að nýju en tæpast borgar sú fyrirhöfn sig þar sem auðveldara er að sá fræi. Eru úöunarefnin mismunandi? Ingibjörg Ilannesdóttir. Skólavörðustíg 30, hringdi og spurði hvort úðunarefnin sem boðin væru til úðunar, væru mismunandi og ef svo væri hvert þeirra væri bezt. SVAR: Eiturefni þau sem fáanleg eru til útrýmingar skordýrum eru flokkuð í X-A-B-C, eftir því hve hættuleg þau eru talin. Á frjáls- um markaði fást aðeins efni í B- og C-flokki. Undir þann flokk heyrir t.d. ROGOR, sem ég hygg að sé hagstæðast þeirra eitur- efna sem almenningur á aðgang að. X- og A-flokka fá aðeins þeir að meðhöndla sem fengið hafa leyfi lögreglustjóra og eiturefna- nefndar. Þau eiturefni eru yfir- leitt mun mikilvirkari og jafnan notuð af þeim garðyrkju- mönnum sem taka að sér að úða garða fyrir fólk. Blööin gulna og detta af 8659—6083, Akurgerði, hringdi og sagði að rósirnar hjá henni byrjuðu að verða gular. Yst á blöðunum kæmi gulur hringur, en síðan gulnuðu þau öll og dyttu af. í túrbanlilju þegar knúppar eru komnir verða endar blaðanna brúnir. Hvað vantar jurtirnar? SVAR: Flest bendir til að um vöntun ákveðinna áburðarefna sé að ræða en erfitt er að segja til um hver þau eru nema eftir könnun á efnafræðistofu hjá sérfræðing- um. Hinsvegar benda öll ein- kenni til að í þessu tilfelli gæti verið um manganskort að ræða (bendi á þangmjöl). Hvað túrb- anliljuna varðar, hygg ég að allt geti verið eðlilegt. Strax eða fljótlega eftir blómmyndun fara blöðin að visna í blaðoddana. Liljum þessum hentar best að vaxa mörgum saman annars er hætta á að þær nái ekki blómg- un, og þeim er eðlilegt að visna hægt meðan laukurinn safnar forðanæringu til næsta vaxt- arskeiðs. Hugsanlegt er að of þunnt moldarlag sé yfir rótinni og næring sé af skornum skammti. Annars eiga túrbanliljur að vera sæmilega harðgerar, en þær eru hinsvegar oft ekki búnar að ná sér vel á strik, fyrr en á öðru eða þriðja ári og þarf vel að þeim að búa. „Kappreiðaveðmál" Getraun um hverjir verða þrír fyrstu hestar í 250 m skeiði og 350 m stökki á Fjórðungsmótinu á Hellu „KAPPREIÐAVEÐMAL“ nefnist getraun, sem Landssamband hestamannafélaga og Fjórð- ungsmót sunnlenskra hesta- manna efna til í tengslum við Fjórðungsmót hestamanna, sem haldið verður á Hellu dagana 2.-5. júlí n.k. Getraunin felst i þvi að þátttakendur eiga að geta sér til um nöfn og róð þriggja fyrstu hesta bæði í 250 metra skeiði og 350 metra stökki. Getraun þessi er nýjung og meðal annars hugsuð sem tilraun til að leita nýrra leiða varðandi veðmálastarfsemi í tengslum við kappreiðar. Veðmál á kappreiðum hafa lengi tíðkast bæði hérlendis og erlendis, en hér á landi hafa kappreiðaveðmál ekki náð að vekja þann almenna áhuga, sem kunnur er víða erlendis. Með þessari getraun vilja samtök hestamanna gefa sem flestum, og þá ekki bara hestamönnum, tæki- færi til að taka þátt í kappreiða- veðmálum. Vinningar í getrauninni verða 20% af heildarandvirði seldra miða en söluverð hvers miða er 20 krónur. Sem fyrr sagði eiga þátt- takendur að geta sér til um nöfn og röð þriggja fyrstu hesta bæði í 250 metra skeiði og 350 metra stökki. Fylla á út bæði stofn miðans og þann hluta miðans, sem þátttakandinn heldur eftir. Að útfyllingu lokinni á að skila stofni miðans til auglýstra móttöku- stöðva eða á afgreiðslu á mótsstað á Hellu fyrir kl. 15 sunnudaginn 5. júlí n.k. Berist fleiri en ein rétt lausn (6 línur réttar) skiptist vinningsupphæð jafnt milli þeirra, sem hafa flestar línur réttar, og hafa þá allar línur sama vægi. Gefin hefur verið út sérstök skrá með upplýsingum um þá hesta, sem skráðir eru til keppni í 250 metra skeiði og 350 metra stökki á Fjórðungsmótinu á Hellu. Verður henni dreift endurgjalds- laust til kaupenda getraunamið- anna. Sala á getraunamiðunum er að hefjast og annast hestamannafé- lögin söluna hvert á sínu félags- svæði. Þá verða getraunamiðarnir til sölu á mótsstað á Hellu móts- dagana. Hestar er keppa á kappreiðum Fjórungsmótsins verða allir að hafa staðist tiltekinn lágmarks- tíma, sem er 25 sek. á 250 metra skeiði og 26,5 sek. í 350 metra stökki. Alls eru skráðir 20 hestar í 250 metra skeiði og 26 hestar í 350 metra stökki. Þarna verða því samankomnir flestir bestu kapp- reiðahestar landsins og eflaust verður keppnin spennandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.