Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 17

Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981 65 Ljósm.: Emilía Björg Björnsdóttir Texti: Bragi Óskarsson stöðin komi til með að stækka með honum. Við munum byggja hér tvö ker í viðbót í vor og fimm í haust. Þessi fiskur sem er hér núna verður orðinn um 2,5 kg í desember og verður honum þá slátrað. Framleiðslugeta stöðvar- innar verður þó enn meiri er eldishúsið verður komið í gagnið. Þar verður starfrækt klak og eldi á seiðum upp í 100—105 g stærð við það sem kallast mætti nost- urskilyrði en síðan flutt í útikerin. Þannig leggur stöðin sér til seiði af þessari stærð á sjö mánaða fresti — en vöxturinn í eldishús- inu jafngildir 3—4 ára vexti í ám við náttúruleg skilyrði plús 2 mánuðum í sjó. Þessi seiði vaxa svo upp og verða 2,5 kg fiskar eftir sjö mánaða eldi. Þannig verður fram- leiðslugeta stöðvarinnar um 46 tonn af laxi á ársgrundvelli. Þessi fiskur fer allur til útflutnings og er verðið varlega reiknað 40—50 kr. hvert kíló og verðmæti árs- framleiðslunnar þannig um 1.600.000 kr. Helstu kostnaðarliðir eru launa- kostnaður og launatengd gjöld, fryst loðna og þurrfóður og svo raforka til dælingar á vatni og til ljósa. Stofnkostnaður fiskeldisstöðvar af þessari stærð er um 2 millj. kr. Þá reikna ég með að kostnaður við að reisa 10 útiker og byggja yfir þau sé um 1 millj. kr. og eldishúsið kosti fullbúið 1 millj. kr. Fyrir- tækið er í hlutafélagsformi og eru hluthafar 10 einstaklingar. Við höfum fengið nokkur lán úr Byggðasjóði og einnig nokkra styrki úr Fiskiræktarsjóði og orkusjóði. Þá er í athugun að taka lán erlendis frá til framkvæmd- anna í sumar. Fiskeldi sem búgrein Eg tel að fyrir rekstri svona fyrirtækis sé góður rekstrar- grundvöllur sé stöðin vel í sveit sett og þar sé hægt að framleiða sem nemur 40—50 tonnum á ári. Nú er mikill áhugi fyrir fiskeldi sem nýrri búgrein og þyrfti stofn- kostnaður stöðvar með þessa framleiðslugetu ekki að vera nærri eins mikill og þessarar ef seiðaeldinu yrði sleppt. — Slík stöð yrði um helmingi ódýrari. Þessi stöð hér er einmitt hugsuð sem grundvöllur slíkrar starfsemi — hér væri hægt að ala upp sjóeldisseiði bæði fyrir flotkvía- og strandkvíaeldisstöðvar í stór- um stíl. Til seiðaeldis þarf mikla kunnáttu og mjög góðar og sér- hæfðar aðstæður og ekki ráðlegt að aðrir en kunnáttumenn fáist við það. Eldi fisksins eftir að 100—150 g stærð er náð er hins vegar miklu auðveldara og minni hætta á stóráföllum. Við höfum reyndar þegar hafið slíkt samstarf við Sjóeldi hf. í Höfnum. Þeir verða þar með 3.000 fiska, um 1.500 þeirra eru frá okkur, og 1.500 annars staðar frá, í flotkví í sumar og fram eftir vetri. Það er hagstæðasta tímabil- ið til fiskeldis í flotkvíum hér við land. Það er fullt starf fyrir einn mann að fóðra þessa fiska en út úr þessu ættu að fást um 9 tonn af laxi. Er ekki hætta á að verð á laxi fari lækkandi ef framboðið eykst svona mikið? — Eldislax mun nær allur fara á markað erlendis því hér heima má heita að markaðurinn sé þegar alveg mettaður. Markaðurinn er- lendis hefur hins vegar farið vaxandi hin síðari ár en er í nokkuð góðu jafnvægi núna — ég held að þetta sé nokkuð traustur markaður og fiskeldi hér stafi ekki hætta af því að hann komi til með að dragast saman á næstunni. Það mundi jafnvel heldur ekki koma að sök þó verðið myndi lækka nokkuð eftir að fiskeldis- stöðvarnar væru komnar í fullan rekstur og einnig væri þá mögu- Þessi seiði eru notuð við saltþolstilraunir sem miða að þvi að finna aðferð til að auka saltþol þeirra þannig að þau geti gengið um 6 mánaða gömul i sjó. leiki að söðla yfir á aðrar tegundir í einhverjum mæli. Maður má ekki gleyma að það kostar sitt að reka fiskiskipin og með fiskeldi er aflinn vísari þó fisksjúkdómar skapi óhjákvæmilega nokkra áhættu. Þú minntist á eldi fleiri tegunda en lax — hvaða tegundir kæmu þar helst til greina? — Það væri hugsanlegt að hefja fiskeldi á nær öllum fiski — skilyrðið er bara að þekking á viðkomandi tegund sé til staðar og verðið nógu hátt. Ástæðan til að laxeldi er svona mikið er ekki síst sú að meira er vitað um lífeðlis- fræði hans og almenna líffræði en nokkurs annars fisks. Þar við bætist svo auðvitað að lax er í góðu verði. Það er þó töluvert um eldi annarra tegunda — í Bretlandi veit ég til dæmis að flatfiskeldi er starfrækt í töluverðum mæli og eru það tegundir eins og flundra, lúða o.fl. Þá mætti nefna athyglis- verðar tilraunir sem farnar eru að bera árangur í Noregi sem snúa að eldi sjóeldisseiða nytjafisks s.s. þorsks til styrktar fiskistofnun- um. Tilraunastarfsemi undirstaða fiskeldis Aðstæður til slíkra tilrauna eru mjög góðar hér — en í eldishúsinu eru um 60 fermetrar ætlaðir til rannsókna. Ég er tilbúinn til að leggja hluta af þessu rými undir tilraunir með nytjafisk ef áhugi verður fyrir hendi. Þar mætti standa að ýmsum lífeðlisfræðitil- raunum sem hefðu hagnýtt gildi fyrir fiskeldi. Þó ég starfi ekki lengur við Háskólann þá held ég við hann náinni samvinnu og það eru einmitt tveir háskólanemar að ljúka lokaverkefni sínu í lífeðlis- fræði hér núna. Sjálfur hyggst ég þó helga mig eingöngu rannsóknum á laxeldi enn um sinn. Tilraunir þær sem ég hef gert miða fyrst og fremst að því að kanna áhrif hita og seltu á vöxt og viðgang laxins. Ég hef þegar gert umfangsmiklar til- raunir með þessa tvo þætti en þó alls ekki náð að prófa samvirkni þeirra við hin ýmsu þroskastig fisksins. Þá er enn hvergi nærri vitað til fulls hvað veldur því að þessir tveir þættir hafa svo mikil áhrif á vöxt fisksins — hvort það er vegna fóðurnýtingar, stafi af breyttum orkubúskap og saltbú- skap í fisknum, breyti ensímvirkn- inni eða hvort til koma aðrar ástæður. Til þessara rannsókna hef ég fengið styrki úr Vísinda- sjóði og Fiskimálasjóði. Þá hef ég einnig verið með rannsóknir sem snúa að seiðaeldi. I Kollafirði hefur nú tekist að rækta seiði upp í göngustærð á 6 mánuðum í stað eins árs áður. Spurningin er hvort hægt sé að flýta fyrir saltþroskanum líka þannig að þeim væri hægt að sieppa í sjó um 6 mánaða gömlum. Ég hef gert töluverðar tilraunir í þá átt að flýta fyrir saltþroska seiðanna en það er ekki tímabært að fjalla um niðurstöður þeirra tilrauna enn. Á þessari mynd sjást dælurnar sem dæla vatninu úr borholunum til eldiskerjanna sem sjást i baksýn ásamt eldishúsinu. Hjónin Guðrún Matthíasdóttir og Sigurður St. Helgason ásamt syni sínum Matthíasi Sigurðssyni. Þau sitja þarna á tröppunum fyrir framan íbúðarhúsið á Húsatóftum. Ljósm. Ólafur Rúnar Eldishúsið á Ilúsatóftum er um 600 fermetrar og mun kosta fullbúið 1 milij. kr. Það er enn ófullgert að innan en þar mun verða starfrækt umfangsmikið seiðaeldi ásamt margskonar tilraunastarfsemi. Þarna er Sigurður að fóðra fiskinn i kerjunum. Hann stóð andviðris svo við nailum betri mynd sem leiddi til þess að mest af fóðrinu fauk framan í hann. Undir tilraunastarfsemina gætu svo einnig fallið ýmsar breytingar sem ég hef verið að gera eða eru fyrirhugaðar hér á fiskeldisstöð- inni. Við rekstur stöðvarinnar undanfarin ár hef ég komist að því að það er ekki hægt að viðhalda kjörskilyrðum í kerjum undir beru lofti hér á landi. Á veturna verður vindkælingin einfaldlega of mikil — það skaðar að vísu ekki fisk sem náð hefur nokkurri stærð en dregur hins vegar töluvert úr vexti hans. Ég hef því ákveðið að setja þak á öll kerin hérna og _ verður það gert fyrir næsta vetur. Það á ails ekki að koma að sök þó fiskurinn sé í luktum kerjum sé lýsingin rétt. Þá hef ég einnig gert tilraun með hafbeit héðan frá stöðinni. — Gallinn er bara sá að móttökuað- staða er engin fyrir hendi en því væri auðvelt að bæta úr. Ég er nær viss um að þau seiði sem ég sleppti á sínum tíma skiluðu sér aftur því mér var sagt af sjómönn- um í Grindavík að lax hefði sést stökkva hér við ströndina einmitt á þeim tíma sem passaði að þau kæmu til baka. Ég mun að sjálf- sögðu sleppa héðan seiðum í sumar til að ganga betur úr skugga um þetta. íslendingum ekki vandara um en öðrum Að lokum mætti svo minnast á sjúkdóma og þær ráðstafanir sem ég hef gert til að koma- í veg fyrir að fiskisjúkdómur komist hér upp aftur. Eins og ég minntist á áðan kom hér upp sjúkdómur í seiðun- um í fyrravor og var stöðin í sóttkví í þrjá mánuði síðastliðið sumar fyrir bragðið. Það hefur tekist að greina hvaða baktería var á ferðinni en hinsvegar ekkert hægt að fullyrða um hvaðan smitunin barst. Þær ráðstafanir sem hafa verið gerðar hér til að hindra að þetta endurtaki sig eru: að loka stöðinni fyrir allri utanaðkomandi umferð sem reyndar er eitt af skilyrðun- um sem bresk tryggingafélög setja fyrir að tryggja fiskinn. Að hafa einingar innan stöðvarinnar ein- angraðar svo sem kostur er hvora frá annarri þannig að smit berist síður á milli þeirra og loks að viðhafa sem allra mest hreinlæti og hafa stöðugt heilbrigðiseftirlit með fiskinum — en þetta tvennt síðasttalda er auðvitað frumskil- yrði í fiskeldi. En þrátt fyrir að allra varúð- arráðstafana sé gætt er aldrei hægt að útiloka með öliu að sjúkdómur komi upp í fiskeldis- stöð. Sérstaklega eru það seiðin sem eru viðkvæm fyrir sjúkdóm- um og smitunarleiðin greiðari á milli þeirra en nokkurs staðar úti í náttúrunni vegna þess hversu þétt þau eru í kerjunum. í þessu efni ætti okkur íslendingum þó ekki að vera vandara um en öðrum þjóðum því víða hefur tekist að gera fiskeldi að verulega arðbær- um atvinnuvegi þrátt fyrir lakari skilyrði til fiskiræktar en hérlend- is. Að lokum spyr ég Sigurð hvern- ig honum falli að búa á Húsatóft- um og hverjum augum hann líti framtíðina. — Við höfum búið hér allt frá árinu 1977 og kunnað mjög vel við okkur — þetta er afskaplega skemmtilegur staður. Ég vil ekki kannast við annað en að ég sé bjartsýnn og vonandi hefur það komið fram í viðtalinu — þetta er allt að komast á góðan skrið hjá okkur aftur núna. Það versta er hversu bundinn maður er af þessu — undanfarið ár hef ég ekki haft neinn starfs- mann sem gæti annast reksturinn þegar við þurfum að skreppa af bæ. Þannig höfum við hjónin ekki farið neitt saman síðan um jól. Þetta breytist auðvitað þegar um- svifin aukast og við getum ráðið hingað starfsfólk — en eins og nú háttar er fiskeldið hérna meira bindandi en nokkur beljurass. — bó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.