Morgunblaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
77
Hlífið trjágróðrinum!
okkur verið sagt að við séum
vitlaus að byrja ekki bara að
spila á kerfið, eins og allir
aðrir. Fjölmargir af þeim sem
nú sæki, ætli sér alls ekki að
fara að byggja. Geti það raun-
ar alls ekki, en þeir séu bara
að safna punktum. Með því að
vera hafnað tvisvar sinnum,
þá hafi menn í þriðja sinn
fengið næga punkta til að eiga
sjans. Það hafi jafnvel komið
fyrir í þessu happdrætti, þeg-
ar dregið er úr fjölda umsókna
þeirra með fæsta punktana, að
einhver sem alls ekki ætlar
eða getur byggt núna, fái lóð.
Ef svo fer, þá missir hann
punktana, ef hann hafni
henni. Er það nú gæfulegt að
pína þannig húsbyggjendur til
að byrja að byggja löngu áður
en þeir eru tilbúnir og þar sem
þeir kæra sig í rauninni alls
ekki um að vera.
Einnig lætur ungt fólk, sem
ekki á næga punkta, bara
foreldra sína sækja um fyrir
sig, ef þeir hafa það sem til
þarf.
Látið er líta svo út sem allir
séu jafnir gagnvart punkta-
kerfinu. En það er nú eitthvað
annað. Meira að segja eru
teknir út úr kerfinu ákveðnir
einstaklingar. Okkur sýnist að
þeir borgarar sem yfirvöld
vilja hafa í Reykjavík í fram-
tíðinni séu miðaldra fólk, sem
hefur búið lengi í borginni án
þess að hafa komið yfir sig
húsnæði. Helst fólk sem ekki
hefur komist úr heilsuspill-
andi húsnæði. Við munum
aldrei falla í þann hóp, þar
sem við erum venjulegt starf-
samt ungt fólk, og viljum búa
um okkur eins og við viljum og
höfum bolmagn til. Nú og
leggja svo til í skattgreiðslum
þeim, sem minna mega sín.
Við höfum heldur ekki geð í
okkur til að taka þátt í þessum
leik, sem þarf til að ná sér í
punkta, rétt eins og í spilavít-
unum. Og við förum — farvel
Reykjavík.
Kona í Árbæ skrifar:
Ég hefi verið að furða mig á
því hvernig farið er með trjá-
gróður, sem þarf að víkja af
lóðum hér í Selásnum. Fólk
hefur lengi verið að koma þess-
um gróðri upp, en nú skilst mér
að borgin hafi keypt spildurnar
og á að fara að byggja þar. Fólk
virðist svo ganga í þessi tré, eins
og það eigi þau. Rífur upp á
þessum tíma árs trén, til að
flytja í garðana sína. En það er
alveg vonlaust að flytja tré
svona seint úr misjafnlega rækt-
uðu landi. Það bara skemmir
þau. T.d. sá ég að einhver var að
rífa upp 3ja m há aspartré til
flutnings, sem er vonlaust.
Hvers vegna er ekki
garðyrkjustjóra borgarinnar
falið að sjá um þetta strax að
vorinu? Hann er kunnáttumaður
og veit hvernig á að fara með
trén og hvar og hvernig þau hafa
möguleika á að lifa. Það verður
að láta hann vita nógu snemma,
enda hlýtur byggingarsvæði að
hafa einhvern aðdraganda.
Mér sýnist umgengnin við
ræktaðar trjáspildur orðin allt
önnur en var. T.d. hefi ég séð illa
gengið um trjálundi á væntan-
legu byggingarsvæði í Fossvogi
og nú nýlega veitti ég því athygli
hjá Kleppi að skógarrjóður var
eyðilagt. í okkar landi skiptir
miklu máli að virðing sé borin
fyrir gróðri og virt það sem
ræktað hefur verið af alúð.
Gæsluvöllum lokað
í góða veðrinu
að fara á þessa ákveðnu staði,
sem alltaf eru þeir sömu, eða vera
með í nákvæmlega svona skipu-
lagi. Því má ekki bara senda heim
ávísun, jafnvirði þess sem orlofs-
ferðin kostar, til þeirra sem rétt
eiga á hvíld. Þá geta konurnar
valið. Sjálf vildi ég t.d. helst fara
nú um bjarta sumarnóttina upp í
fjall, til Vestmannaeyja, eða út í
Grímsey, setja niður tjald og
vaka fagra vornótt. Kýs það
mikiu heldur en sitja inni á
kvöldin undir fyrirlestri eða
skemmtiatriði og vera í hóp með
fyrirfram dagskrá. Húsmæður
ættu að fá að velja sitt orlof, eins
og aðrar stéttir.
Við vinkonurnar höfum verið
að ræða þetta, og viljum varpa
því fram.
Þuríður Magnúsdóttir í Ár-
bæjarhverfi kom að máli við
Velvakanda og var gröm.
Gæsluvöllurinn í hverfinu
verður lokaður 24. júní til 4.
ágúst. Hvers konar fyrirkomu-
lag er það hjá Reykjavíkurborg
að loka gæsluvöllunum í heilan
mánuð yfir hásumarið, þegar sól
er hæst á lofti og börnin njóta
þess að vera úti. Það er erfitt að
halda þeim inni á þessum árs-
tíma, og verður til þess að skapa
slysahættu að loka fyrir þeim
völlunum, þar sem þeirra er
gætt. Nær væri að loka að
vetrinum, ef þarf að loka ein-
hvern tíma, þegar varla er hægt
að fara með þau út fyrir snjó og
óveðri.
EKTACHROME
littramköHun
SAMDÆGURS
EKTACHROME OG FUJICHROME E-6 litfilmur lagöar
Inn fyrir hádegi, afgreiöast samdægurs.
Viö framköllum samkvæmt ströngustu körfum efna- og
vélaframleiöenda um gæöaeftirlit, m.a. meö daglegum
.densltometer“-prufum.
Okkur þætti vænt um, ef þú vildir treysta okkur fyrir
dýrmætum filmum þínum.
Verslið hjá
fagmanninum
L LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 SÍMI 85811
Taktu vel
eftir þessu
Það er ekki skylda að þú færir öll þín bankaviðskipti til_>
okkar. En gefðu okkur Átaksfólki tækifæri til að sanna '
okkur með því að hefja reynsluviðskipti.
Félögum, stofnunum og hinum mörgu ein-
staklingum sem sendu mér heillaóskir og
gjafir eöa heiöruöu mig á annan hátt á
áttræöisafmæli mínu, vil ég og kona mín
: þakka fyrir alúö og vinsemd, sem gladdi
okkur innilega.
Haraldur V. ólafsson.
^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmma^
LJÓSMYNDAÞJÖNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 SIMI 85811
ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVfK: Týli, LtósmyndaþJOnustan. Hagkaup.
Bókabúð Jónasar Rolabæ, Rama s.f. Brelðholti, Holtasport Breiðholtl.
KÓPAVOGUR: Veda Hamraborg, Kaupgarður. MOSFELLSSVEIT: Snerra
HAFNARFJÖRÐUR: Myndahúsið. SELFOSS: Kaut. Arnesinga, Fossnesti.
SAUÐARKRÓKUR: L)ósm.st. Stefáns Pedersen. DALVfK: Yflr.
AKUREYRI: FÍlmubúsíð. ^EYét#JÖWétfWf Vu iffúlúi'f ÍMáWi^
ESKIFJÖRÐUR: Pöntunarf. Eskfirðinga.
Gram
Teppi
100 PRÓSENT OLL'
LJÓSIR NÁTTÚRULITIR
KOMIDSKOÐID BERID SAMAN VERD OC CÆÐI
FRMDRIK BERTELSEN TEPPAVERSLUN
RRMÚLR 7 S.BE2E6