Morgunblaðið - 25.07.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ1981
3
Langferðabíll á hliðina við Eldgjá:
Snarræði bílstjórans bjarg-
aði f ólkinu f rá stórslysi
l>annÍK leit hópferðabillinn út eftir veituna.
ÞAÐ ÓHAPP varð um hádejtis-
bilið á fimmtudag að hópferða-
bíll frá Landleiðum fór á hliðina
við Eldgjá en hann var að koma
úr Landmannalaugum. 17 far-
þegar Austurríkismenn ok Þjóð-
verjar, voru í bílnum sem er 40
sæta en meiðsli urðu sem betur
fer furðu fá, tvennt íékk þó
aðkenningu að losti og ein kona
skarst töluvert á höfði. Að sögn
fréttaritara Mbl. á Laugum
bjargaði snarræði bilstjórans
fólkinu frá stórslysi þvi nokkru
fyrir ncðan staðinn þar sem
rútan falt er kröpp beygja á
veginum sem eflaust hefði sett
rútuna útaf, á þeim hraða sem
hún var, og hefði hún þá oltið
um 30 metra niður i Eldgjána.
í samtali við Mbl. sagði bíl-
stjóri hópferðabílsins að er byrj-
aði að halla undan á leiðinni
niður í Eldgjána hefði hann
skyndilega orðið þess var að
loftið var farið af hemlum —
ætlaði hann þá að draga úr
ferðinni með því að skipta í lægri
gír en það reyndist þá ekki unnt
og fríhjólaði rútan niður brekk-
una í átt að krappri beygju á
veginum. Hann sagðist þá hafa
talið eina úrræðið vera að beygja
upp í sniðið til að stöðva bílinn —
fór rútan 3—4 metra upp í
hlíðina en valt síðan á hliðina.
Bæði fram- og afturrúður brotn-
uðu við höggið og átti fólkið því
greiða leið út.
Að sögn bílstjórans báru far-
þegarnir sig vel þrátt fyrir
meiðsli þau og óþægindi er þeir
urðu fyrir við veltuna og fór allt
vel og skipulega fram á slysstað.
Ein kvennanna fékk aðkenningu
að losti og var hlúð að henni á
staðnum. Tókst bílstjóranum
fljótlega að ná sambandi við rútu
frá Guðmundi Jónassyni sem ekið
hafði á undan niður í Eldgjá og
kom hún á staðinn að skömmum
tíma liðnum. Náðist þá samband
við byggð og lögðu sjúkrabíll og
lögregla af stað frá Vík í Mýrdal
og tók ferðin uppeftir um tvær
klukkustundir. Flutti sjúkrabíll-
inn síðan þá er fyrir meiðslum
höfðu orðið til Reykjavíkur en
flestir farþeganna héldu áfram
með annarri rútu til Víkur.
Veginum var lokað af landvörð-
um í Laugum strax og tilkynnt
var um slysið. Var vegurinn
lokaður til kl. 2 á föstudagsnótt
því ekki reyndist auðgert að
fjarlægja rútuna af veginum þar
sem hún hindraði alla umferð en
til þess varð að fá stórvirkt
moksturstæki úr Hraunvirki.
Tók tæpa 6 tíma að koma því á
staðinn en síðan var hafist handa
um að moka upp í veg fyrir aftan
rútuna til að koma henni á réttan
kjöl. Þegar verkinu var lokið
þurfti að bíða í 4 tíma áður en
hefjast mátti handa við að rétta
rútuna við, því Landleiðamenn
voru á leiðinni uppeftir til að
fylgjast með aðgerðum. Það var
því ekki fyrr en nokkuð var liðið á
nóttina að rútan var dregin upp á
„pallinn" sem gerður hafði verið.
Síðan var festur vír í ofanverða
grindina og rútunni komið á
réttan kjöl. Var hún illa farin að
sjá, að sögn fréttaritara — hægri
hliðin gjörónýt og flestir gluggar
brotnir. Hún fór þó í gang eins og
ekkert hefði í skorist og var ekið
til Reykjavíkur.
Grafa frá Hraunvirki lagar til veginn fyrir aftan rútuna og býr til
pall þar scm rútunni var komið á réttan kjöl.
Sól, sumar og brakandiþurrkur
* Mallorcaveður og
fólk baðar sig
í heita vatninu
Gréta, Reyðarfirði.
Það er svo dásamlegt veður
hérna. Það er bara Mallorcaveður.
Allir sem geta eru í sólbaði og fólk
að drekka og grilla í görðum
sínum. Við höfum bara ekki haft
svona gott veður í allt sumar og
það má eiginlega segja að núna sé
fólkið fyrst að henda sér úr
úlpunum síðan í vetur. Á sauma-
stofunni Hörpu hefur verið gefið
frí vegna veðurs og sólin skín
semsagt alveg á fullu.
Það var líka sól í gær og hérna
inn við Áreyjar var borað fyrir
heitu vatni og þar hefur verið
útbúin nokkurskonar laug og þar
er fólkið núna og baðar sig í 30
stiga heitu vatni. Það liggur alveg
óskaplega vel á öllum. Togarinn
Snæfugl kom inn hérna í gær með
yfir 180 tonn af þorski og það er
semsagt nóg atvinna fyrir hendi.
Svoleiðis óhemju hiti
Steinþór, Egiisstöðum.
Hérna er nú bara svoleiðis
óhemju hiti. Það hefur verið
giampandi sól og ég gæti ímyndað
mér að það væri 25 stiga hiti núna.
Það hefur ekki komið neitt þessu
líkt þetta sumarið. Það var sterkt
sólskin í gær, en nú er bara mikill
svækjuhiti í loftinu. Við vorum
orðnir ansi langeygir eftir þessu
góða veðri og nú vonum við bara að
það haldist áfram.
Þá þarf ekki að
taka þessar pillur
er gera menn brúna
Ásgeir, Neskaupstað
Hér er sól og mikill hiti. Ástand-
ið er gott og það eru allir létt-
klæddir og hitinn er 24 stig. Þetta
er annar dagurinn á sumrinu sem
sólin sést og mann var svo sannar-
lega farið að lengja eftir henni.
Hér er mikið að gera og togararnir
moka alveg. Það er unnið ofsalega
og jafnvel á laugardögum. Nú, það
er sama hvert horft er, fólk er úti
og drekkur kaffi eða grillar sér.
Fólk er í heyskapnum í dag, svo
maður hefur líka ilmandi töðuna.
Við vonum nú bara að þetta
haldist og fólk geti legið og orðið
brúnt. Þá þarf það ekki lengur að
taka þessar pillur sem gera menn
brúna.
„Freistandi fyrir
bændur að slá
í þennan þurrk“
Fréttaritari. Húsavik.
í fyrradag brá til betri tíðar og í
gær var sólfar mikið og í dag er
veðrið enn betra, logn, sólskin og
23 stiga hiti um nónbil. Fólk
gengur hér um götur fáklætt eins
og á suðrænum sólarströndum
væri. Þegar birti síðastliðinn
föstudag hófu margir bændur slátt
en sú augnbirta varð skammvinn
og brá aftur til norðanáttar og
kulda. En i gær hlýnaði og birti
aftur svo að í gærkvöldi var 19
stiga hiti í Reykjadal, en þá gerði
þar hellirigningu sem spillti mjög
fyrir þurrki þann daginn, en við
ströndina hefur ekkert rignt. Ef
þetta tíðarfar helst í nokkra daga
mun það laga mikið fyrir bændum
og eins og einn bóndinn mælti við
mig í dag: „Það er freistandi fyrir
bændur að slá í þennan þurrk þó
sprettan sé ekki orðin eins og
æskilegt væri því að þessir dagar
koma ekki aftur og nú er að grípa
gæsina á meðan hún gefst.“
Steikjandi hiti
en sólarlítið
Matthías, Siglufirði.
Það er steikjandi hiti hérna en
þó sólarlítið. Hitinn hefur mælst
allt upp í 24 gráður. Annað slagið
var sól í gær og í dag er fólkið
fáklætt hérna. í gær dró færabátur
hér stóra og fallega síld á hand-
færin.
Að minnsta kosti
sól þessa stundina
Katrin, Vopnafirði.
Þaö er nú að minnsta kosti
sólskin þessa stundina. Þó hefur
verið ákaflega kalt hérna hjá
okkur í sumar. Það er ansi stutt
síðan að snjórinn náði niður í
miðjar hlíðar og aðeins nokkrir
dagar síðan Hellisheiðin var ófær.
Það var sól hérna í gær og það er
hlýtt í dag, en þó ekki mikil sól.
Fólk reynir að nota tækifærið og
vera úti núna. Annars er ósköp lítil
spretta og ég man varla eftir svona
köldu sumri. Það var heitast í
morgun og nú er 16 stiga hiti held
ég.
Opnuðum sundlaug
í júlíbyrjun
Ingimar, Djúpavogi.
Það er alveg skínandi veður
hérna hjá okkur, 20 stiga hiti, sól
og blæjalogn. Þetta er bara það
besta veður sem komið hefur á
sumrinu. Við höfum haft sóiar-
laust veður og kalt, en nú hefur
þetta alveg breyst í dag og í gær.
Allir eru í skínandi skapi og þeir
sem mögulega geta eru úti og
slappa af, annars verða allir að
vinna. Þeir sem eru í sumarfríum
eru að dytta að lóðum sínum. Þetta
gengur annars allt sinn vanagang
og það er frekar lítil vinna þessa
stundina. Sundnámskeiði var að
Ijúka hjá okkur en það hefur staðið
í þrjár vikur. Núna snemma í júlí
var tekin i notkun ný sundlaug, um
90 manns hafa verið í sundnámi og
auk þess á milli 40 og 50 manns í
frjálsum tímum á kvöldin. Það má
segja að sundlaugin hafi verið
mikið notuð síðan hún var opnuö
en hún er ansi erfiður baggi á
sveitarfélaginu af því að við þurf-
um að hita vatnið með olíu. En
aðra lausn verðum við líklega að
finna á því ef halda á lauginni
opinni. Hér hefur verið mikil
umferð og mikið af ferðafólki. Það
hefur verið stöðugur straumur af
útlendum bílum og þá frá Smyrli.
Lofthitinn er
svo mikill
Ilelgi, Raufarhöfn.
Við erum búin að hafa leiðinlegt
sumar hérna en nú er komin sól og
algjör bliða. Það eru allir úti og nú
er ágætt handfærafiskerí hérna
svo það má enginn vera að því að
liggja og sóla sig. Lionsklúbburinn
ætlar í ferðalag um helgina með
fjölskyldurnar. Hitinn hérna er
óskaplega mikill, en skýjað við og
við þó kólni ekki þar sem lofthitinn
er svo mikili.
Allir eru í léttu skapi
en fáir farnir að heyja
Ragnar, Kópaskeri.
Það er sól svona oftast núna,
enda veitti ekki af, við vorum
bókstaflega að fara á sálinni. Það
hefur verið einn og einn sólardagur
í sumar en sl. daga höfum við haft
sól og hita. Allir eru í léttu skapi
en fáir eru farnir að heyja. Ég veit
nú ekki nema um einn bónda sem
farinn er að slá. Hann Ingimundur
Pálsson á Katastöðum hérna er nú
alveg í sérflokki sem bóndi.
Alveg einmuna
blíða í dag
Trausti, Dalvik.
Það er búin að vera hér alveg
einmuna blíða bæði í dag og í gær,
og hitinn er um 25 stig hérna í dag
í forsælunni. Fólk spókar sig hérna
og það er erfitt að hafast við inni
vegna hita. Þetta hefur verið svo
langvarandi þetta leiðinda veður
svo nú er eins og fólk losni bara úr
álögum. Það virðist vera sem fólk
sé að hugsa um að fara í útilegur
þar sem áframhaldandi góðviðri er
nú spáð.