Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
Yfirlýsing frá Torfusamtökunum:
Vangaveltum um lögbrot
vísað til f öðurhúsanna
Laxaseiði
FORMAÐUR Torfusamtakanna.
l>orsteinn Berjísson. hefur fyrir
hönd samtakanna sent fjölmiðl-
um eftirfarandi texta til birt-
ingar:
„Á fundi stjórnar Torfusamtak-
anna þann 11. þessa mánaðar var
samþykkt eftirfarandi yfirlýsing í
kjölfar frétta- og blaðaskrifa um
málefni Torfusamtakanna.
Að undanförnu hefur verið
/
1
Góðar heimtur á laxi
Lárósi og Súgandafirði
MJ()G GÓÐAR heimtur hafa ver-
ið á laxi i fiskeldisstöðvunum i
Botni í Súgandafirði og Lárósi
rétt vestan við Grundarfjörð.
Mhl. náði samhandi við Birki
Friðbertsson i Súgandafirði og
Jón Sveinsson. framkva*mda-
stjóra fiskcldisstöðvarinnar i
Lárósi og innti þá frétta af
starfscminni í sumar.
„Lónin eru tvö, um fjórir hekt-
arar að staerð og eru í því núna um
9000 seiði. Heimtur hafa verið
hetri þetta árið en síðasta. Það er
komið nokkuð á þriðja hundraðið
af laxi en á sama tíma í fyrra voru
komin 130 stykki. Við erum ekki
ánægðir fyrr en heimtur eru
orðnar 10%, þá er hægt að segja
að þetta sé orðinn ágætur búskap-
ur,“ sagði Birkir Friðbertsson, en
hann er einn af hluthöfum í
laxeldisstöð þar á staðnum.
„Þetta eru náttúrulega tilraunir
fyrst og fremst og búið að vera í
nokkurn tíma. Það er Veiðimála-
stofnunin sem raunverulega er
með tilraunina, þó við veitum
þeim aðstöðu. Þeir útvega seiðin.
Við höfum fóðrað seiðin í þrjár
vikur, mánuð undanfarin ár, en nú
vorum við með þrjú holl á fóðrum
í einn og hálfan mánuð til tvo
mánuði. Við erum ekki búnir að
sleppa þeim ennþá og er það
partur af tilrauninni, að venja þá
betur við lónið og gera þau betur
fær undir lífsbaráttuna áður en
þeim er sleppt.
Seiðin eru í nokkuð söltum sjó.
Við vorum áður með uppeldistjörn
og líka nokkur búr í lónunum og
það hefur komið betur út það sem
við höfum verið með í lónunum og
höfum við því lagt tjörnina af í ár.
Það er að vísu ekki hægt að tala
um hásaltan sjó. Fjörðurinn er
grunnur og það er ekki hægt að
tala um hásaltan sjó fyrr en
nokkuð langt út í honum. En það
gefst betur að hafa seiðin í söltum
sjó hvort sem það er saltinu að
þakka eða því að það er styttra út
á dýpið og ekki eins mikil hætta á
að fuglinn taki seiðin," sagði
Birkir að lokum.
Mest 3000 laxar í Lárósi
„Það hafa skilað sér um 1100
laxar, en í fyrra voru það ekki
nema 400 stykki sem skiluðu sér.
Mesta endurheimt okkar á einu
ári var yfir 3000 laxar," sagði Jón
Sveinsson, framkvæmdastjóri lax-
eldisstöðvarinnar í Lárósi, sem er
rétt utan við Grundarfjörð, er
hann var inntur eftir heimtum
þetta sumarið.
„Heimturnar í sumar byggjast
að nokkru leyti á tilraun með
sjógönguseiði frá Kollafjarðar-
stöðinni. Þau voru fóðruð í einn
mánuð í innra lóni stöðvarinnar,
sem er alveg tært og því ytra, en
það er sjóblandað. Af 7000 sjó-
gönguseiðum sem notuð voru í
tilrauninni var 1200 sleppt frjáls-
um í innra lónið við svokallað
Lárvatn, í beinni sleppingu. Hin
voru höfð í eldi í kvíunum í röskan
mánuð og þeim síðan sleppt.
Árangurinn af þessum tilraun-
um er að koma fram núna eftir
eitt ár hjá seiðunum í hafi. Það er
rúmlega 10 prósent endurheimt og
má líka gera ráð fyrir að eitthvað
komi af þessum árgangi næsta ár.
Það er að segja að nokkuð af
seiðunum verði í sjónum í tvö ár,“
sagði Jón Sveinsson.
Sagði hann einnig að um hálfri
milljón til 1,7 milljónum
kviðpokaseiða væri sleppt árlega
og þau látin alast upp frjálst. Ekki
vissi Jón það ennþá hvort það
gæfist betur að sleppa seiðunum í
saltblandaö vatn þar sem niður-
stöður rannsóknar á því eru ekki
komnar fram.
nokkur umræða í fjölmiðlum um
endurbyggingu húsa á Bernhöfts-
torfu og útitafl fyrir framan þau.
Stjórn Torfusamtakanna telur
að sú umræða hafi á köflum verið
lítt málefnaleg og blandast nokk-
uð pólitískum tilþrifum til að
koma höggi á höfuðbaráttumál
samtakanna, þ.e. endurbyggingu
Bernhöftstorfu.
Umræðu um húsvernd og hús-
friðun er þörf, en ekki er þó
vanþörf á, að menn kynni sér hvað
um er að ræða hverju sinni, áður
en til fjölmiðla er gripið.
Stjórnin vill því í kjölfar þess-
arar umræðu taka eftirfarandi
fram:
1. Af hálfu Torfusamtakanna
hefur stjórn þeirra yfirumsjón og
eftirlit með endurbyggingu og
rekstri húsa á Bernhöftstorfu.
2. Öll hús á Bernhöftstorfu, sem
og Stjórnarráðshúsið og Mennta-
skólinn í Reykjavík, eru friðuð í
B-flokki og hefur verið haft fullt
samstarf við Húsafriðunarnefnd
um útfærslu teikninga, þannig að
vangaveltum um lögbrot af hálfu
þessara aðila verður að vísa til
föðurhúsanna.
3. Um tilvist útitafls hefur
margsinnis verið fjallað í stjórn
samtakanna og á félagsfundum.
Verður því að teljast nokkuð
hlálegt að tala um einstaklings-
hagsmuni í þeim efnum.
4. Hvergi er fjallað um boðun
félagsfunda í lögum Torfusamtak-
anna. Greint var frá þeim fundi er
haldinn var þann 28. júlí sl. með 6
daga fyrirvara í fjölmiðlum og
hann síðan auglýstur þrisvar í
útvarpi, þannig að fundarboðun
verður að teljast eðlileg.
5. Öllum félagsmönnum Torfu-
samtakanna hlýtur að teljast
heimilt að taka til máls á fundum
þeirra og greiða atkvæði eftir
eigin sannfæringu, án tillits til
þess hvort þeir gegni einhverri
opinberri trúnaðarstöðu eða ekki.“
ÞEYR í hljómleikaferð
NÚ í vikunni fór hljómsveitin
Þeyr í hljómleikaferð, aðallega um
Norðurland. Ferðin mun standa i
scx daga og mun hljómsveitin
leika öll kvöldin.
Fyrstu tónleikarnir verða í Borg-
arnesi þann 19. og hefjast tónleik-
arnir, sem haldnir verða í Sam-
komuhúsinu, kl. 21. Þann 20. spilar
Þeyr í Sjálfstæðishúsinu á Akur-
eyri og kvöldið eftir í æskulýðs-
heimili þeirra Akureyringa, Dyn-
heimum. Á laugardagskvöldinu
verða Húsvíkingar sóttir heim og
spilað í Félagsheimilinu. Sunnu-
dagskvöldið þann 23. verða haldnir
tónleikar í íþróttaskemmunni á
Akureyri, en auk Þeys standa að
þessum tónleikum Bara-flokkurinn
og Þursaflokkurinn.
Á leið suður mun Þeyr staldra við
á Sauðárkróki þar sem síðustu
tónleikarnir í þessari yfirreið verða
mánudagskvöldið 24. ágúst.
Minni mjólkurframleiðsla
SAMKVÆMT fréttum frá Búnað-
arfélaginu var innvegin mjólk
8,G% minni fyrstu 6 mánuði þessa
árs en sömu mánuði í fyrra.
Munurinn er rétt um 4,5 millj-
ónir lítra. Hlutfallslega var sam-
drátturinn mestur hjá mjólkur-
samlaginu í Neskaupstað, eða
22%. Hjá tveim mjólkursamlögum
var smávegis aukning en það var á
Þórshöfn og Vopnafirði, hjá öðr-
um samlögum var samdráttur.
Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var
tekið á móti tæplega 1,8 milljón-
um lítra minna fyrstu 6 mánuði í
ár en sömu mánuði í fyrra eða
munurinn var 9,12%. Hjá Mjólk-
ursamlagi KEA var mjólkin 707
þúsund lítrum minni eða 6,9%.
Hjá mjólkursamlaginu í Borgar-
nesi hafði mjólkin minnkað um
15% eða tæplega 798 þúsund lítra.
Innvegin mjólk hjá öllum 17
mjólkursamlögunum reyndist
vera um 48,5 milljónir lítra. í júní
var tekið á móti 11,1 milljón lítra,
en það var 6,06% minna en í júní
1980.
Samkvæmt upplýsingum frá
Grétari Símonarsyni mjólkurbús-
stjóra, þá var innvegin mjólk hjá
Mjólkurbúi Flóamanna rétt um
1% meiri í júlí í ár en í sama
mánuði í fyrra.
Móttaka á heimili sendiherra
íslands í Lundúnum í tilefni
*
komu forseta Islands
Er forseti íslands, Vigdís rað manns voru í móttök-
Finnbogadóttir, kom til unni, íslendingar búsettir í
Lundúna til að vera viðstödd Bretlandi, enskir embætt-
brúðkaup Karls Bretaprins ismenn og sendiherrar er-
og lafði Díönu Spencer, buðu lendra ríkja. Sigríður Ella
íslensku sendiherrahjónin, Magnúsdóttir, söngkona,
Sigurður Bjarnason og Ólöf söng einsöng við góðar und-
Pálsdóttir, myndhöggvari, til irtektir gesta og fór veislan
móttöku í sendiherrabú- hið besta fram, en að henni
staðnum til heiðurs forseta lokinni hélt forseti til Kaup-
þ. 30. júlí sl. Á annað hund- mannahafnar.
Sendiherrafrúin, forseti Islands og Maclean lávarður, hirðmarskálkur drottningar, sendiherra og
lafði Maclean.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands og Olöf Pálsdóttir,
myndhöggvari og sendjherra-
frú íslands i London. Á milli
þeirra er Ólafur Egilsson,
sendiherra, sem var í fylgdar-
liði forseta.
Frú Þórunn Sigurðardóttir Tunnard, dóttir Sigurðar skólameist-
ara, sem mörgum íslendingum er að góðu kunn, eiginmaður
hennar og dóttir, ræða við sendiherrafrúna.
Forsetinn með prófessor Ben Enowomwu frá Nígeriu, Norman St.
John Stevas, þingmanni og fyrrv. menntamálaráðherra Bretlands
og dr. Peter Scott og konu hans.