Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
17
Forseti Finnlands, Uhro Kekkonen, kom til íslands í gær, en hann er á
ieið norður i iand til laxveiða, svo sem hann hefur gert um mörg
undanfarin ár. Flugvél forsetans lenti á Reykjavíkurflugvelli rétt
fyrir hádegið og snæddi Kekkonen siðan hádegisverð i boði forseta
íslands Vigdisar Finnbogadóttur. Myndin er tekin er Vigdís tók á
móti Kekkonen á tröppum Bessastaða. Ljósm.: Guðjón
Laxveiðin í sumar:
Vantar vænan
fisk í árnar
LAXVEIÐIN í sumar hefur víðast
hvar verið mjög treg. i mörgum ám
mun lélegri en i fyrra. Þó er
sæmileg veiði i einstaka ám, sam-
kvæmt heimildum sem Morgunblað-
ið hefur aflað sér. í fyrrasumar
varð mikill aflabrestur i flestum
laxveiðiám og virtist mönnum að
smálaxinn skorti. Þvi bjuggust
margir við þvi að sá lax myndi
ganga i árnar i sumar sem vænn
fiskur, 10—15 pund að þyngd, og
byggðu þá skoðun á þvi að vegna
kuldanna sumarið 1979, hcfðu seið-
in sem þá áttu að ganga til sjávar.
frestað þirri för um tíma og því
gæti þessi árgangur komið i sumar
scm vænn fiskur. Þetta hefur ckki
reynst rétt, a.m.k. ekki enn sem
komið er, því litið er um fisk scm
gengið hefur i sjó 1979.
í mörgum fengsælum laxveiðiám
um áratugaskeið hefur sumarið ver-
ið með eindæmum lélegt. í Laxá í
Aðaldal hafa um 950 fiskar komið á
land, en það er um helmingi minni
afli en á sama tíma í fyrra og þar er
mest um smálax, en stærri laxinn
skortir algerlega. Til dæmis hefur
aðeins einn 20 punda fiskur komið úr
ánni í sumar og er ak fiskur
stærstur, þá hafa tveir 19 punda
fiskar veiðst og þrír 18 punda. í
Langá, sem var ein besta laxveiðiáin
á landinu árin 1970—1979, hafa
veiðst um 650 laxar og allt útlit fyrir
að í sumar komi þar á land um
þriðjungur þess sem veiddist að
meðaltali árin 1970—1979. Hins veg-
ar er Langá vel setin af seiðum. í ár
hefur laxinn verið smærri en venju-
lega, meðalþyngd um 5 pund, en það
er minna en í eðlilegu ári.
I Haffjarðará hefur veiðin gengið
allvel, þó árið í ár verði ekki metár.
Nú eru komnir um 450 laxar úr ánni,
en það er lítið eitt minna en í fyrra.
Veiði undanfarinna ára í Haffjarð-
ará hefur numið 550—600 löxum að
meðaltali, og er talið að það mark
náist í ár. í Hrútafjarðará hefur
veiðin gengið allvel, en ekki er
Morgunblaðinu kunnugt um aflatöl-
ur þaðan. í Laugardalsá í Ögursveit í
Isafjarðardjúpi hefur veiðin verið
ákaflega treg í sumar og eru þar nú
komnir upp um 240 laxar, en í fyrra
veiddust þar 266 laxar, en veiðin í ár
og í fyrra er ekkert svipuð því sem
var árin þar á undan. í Laugardals-
ánni skortir ekki einn árgang frekar
en annan, en lítið er af laxi af öllum
stærðum. Þá mun veiðin einnig
ganga treglega í Langadalsá.
I ánum í Húnavatnssýslu hefur
veiðin gengið misjafnlega, sæmilega
í Vatnsdalsá og Víðidalsá, treglega í
Miðfjará, en mjög vel í Laxá í Ásum
að sögn heimildarmanna Morgun-
blaðsins. í Laxá eru nú komnir á
land liðlega 1000 fiskar, sem er
meira en veiddist allt árið í fyrra, en
þá var veiðin léleg. í Laxá er
einungis veitt á tvær stengur, þann-
ig að iíklega er aflinn þar mestur
yfir landið, ef miðað er við veidda
laxa á stöng. Þá mun heldur ekki
vera áberandi skortur á 10—15
punda fiski. Í Vatnsdalsá er veiðin
lítið eitt betri en í fyrra, en þar
vantar stærri laxinn eins og víðast
hvar annarsstaðar. í Vatnsdalsá
hefur 771 lax veiðst í sumar. í
Miðfjarðará er veiðin minni en í
fyrra, um 1000 laxar hafa veiðst og
er þaðan sömu sögu að segja og úr
mörgum ám, vænan lax vantar. í
Víðidalsá hefur veiðin verið þokka-
leg, lítið eitt betri en í fyrra og hafa
þar veiðst liðlega 1000 fiskar. Hins
vegar vantar þar lax af stærðinni
10—15 pund.
í Laxaá í Dölum hafa um 420
fiskar veiðst, en þess ber að geta að
Laxá er ekki fullnýtt, því útlend-
ingar sem þar eru að veiðum, nýta
tíma sinn illa og ekki er veitt í ánni
alla daga. Að sögn heimildarmanns
Morgunblaðsins er talsvert af fiski í
ánni en þar, sem víðast, skortir
stærri fiskinn. í Norðurá í Borgar-
firði hefur veiðin gengið mun verr en
í fyrra, sem var þó ekki gott
laxveiðiár þar. Nú hafa veiðst i
Norðurá um 1100 fiskar, sem er um
400 löxum færra en í fyrra. Að sögn
heimildarmanns Morgunblaðsins
virðist sem síðsumarsgöngurnar
vanti og einnig tekur laxinn illa. Þá
er smálaxinn algengur, en lítið af
vænni laxi. í Grímsá hafa veiðst um
700 laxar, sem er mjög lélegt og
virðist hreinlega vanta fisk í ána.
Svipaða sögu er að segja úr Laxá í
Leirársveit, þar hefur veiðin verið
léleg og lítill fiskur í ánni. Þar hafa
nú veiðst rúmlega 440 fiskar, sem er
nálaga helmingi minni veiði en í
meðalári. Þá er dæmi um að útlend-
ingar sem þar voru að veiðum, hafi
farið úr ánni í skemmtiferðir í aðra
landshluta. Til dæmis skruppu Þjóð-
verjar sem þar voru, í tveggja daga
ferð til Mývatns, en slíkt gera menn
varla ef vel veiðist.
I Selá í Vopnafirði hefur veiðin
gengið treglega og verr en í fyrra og
er laxinn þar fremur smár. Vantar
þar sérstaklega stærri fiskinn, eins
og í mörgum öðrum ám, en fremur
lítið er af laxi í ánni, að sögn
heimildarmanns Morgunblaðsins.
I ánum í nágrenni Reykjavíkur
hefur veiðin gengið slælega, ef á
heildina er litið. i Elliðaánum hafa
nú veiðst um 900 fiskar, sem er
meira en í fyrra. Hins vegar vantar
göngur í ána, nú eru komnir um 2100
laxar upp fyrir teljara, sem er mun
minna en í meðalári. í Stóru-Laxá í
Hreppum hefur veiðin verið treg, en
þó skárri en í fyrra, en þess ber að
geta að þá veiddist verr en nokkru
sinni og kenndu menn hlaupi í Hvítá
um. í Leirvogsá er veiðin betri en í
fyrra, en þá var hún ákaflega léleg.
Veiðin í Soginu er einnig dræm og
vantar fisk í ána.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Jón Kristjánsson fiskifræðingur, að
ekki væri hægt að skýra þennan
aflabrest út enn, því eftir væri að
rannsaka hreistursýnishorn og
veiðibækur. Því yrði ekki hægt að
segja til um ástæður þessa fyrr en
með haustinu.
-ój
Sjálfvirkur
númeraveQarí
viö
simann
FreeCalter
DS-IOI
£
I^IAííJ
.Efj1-- J
o; o s 1 m J
D ■
8 °
□ Q □
t
m
3
dSZl
111 ij
Geymir 31 númer í minni.
Geymir síöasta númer til
endurhringingar.
Hringir án þess að lyfta þurfi
taltólinu.
Auðveldur í notkun.
Verð aðeins kr. 2.130.-
Leitið upplýsinga.
vJMCATe.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33
Simi 20560
Seltuvaröar álplötur meö innbrenndum litum.
Auðveldar í uppsetningu, hrinda frá sér
óhreinindum og þarf aldrei að mála.
Álklæöið þökin og losnið við eilíft viðhald - það
er ódýrara þegar til lengdar lætur.
Einnig bjóðum við ýmsar gerðir klæðninga á
veggi og loft - úti sem inni.
Leitið upplýsinga, við gefum verðtilboð og
ráðleggingar ef óskað er.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012
SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
VARANLEC
LAUSN
á þök, loft og veggi