Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981 19 Kosningabarátta er hafin í Noregi Skæruliðar IRA munda byssur sínar yíir kistu skæruliðans Tom Mcllwees, sem lést í Maze-íangelsinu eftir mótmælasvelti. Níundi fanginn í mótmælasvelti Ósló. lfi. áKÚst. AP. BARÁTTAN fyrir þingkosn- innarnar í Noregi 14. september hófst um helKÍna með ræðum Gro Haarlem Brundtlands. forsætis- ráðherra Verkamannaflokksins. ok Kaare Willochs, leiðtoKa Ha'trri flokksins <>k forsætisráð- herraefnis borgaraflokkanna. „Bendið mér á eitthvert land í heiminum, sem borgaraflokkar stjórna og hefur staðið sig betur en við,“ sagði frú Brundtland í bænum Hamar. „Ástandið er samt ekki nógu gott,“ sagöi Willoch í Ósló. Frú Brundtland tók við af Odvar Nordli sem forsætisráð- herra og Reiulf Steen sem flokks- formaður í vetur þegar Hægri flokkurinn ógnaði Verkamanna- flokknum í skoðanakönnunum og virtist vera orðinn stærsti stjórn- málaflokkurinn. Á fundinum í Hamri hafði hún sér við hlið leiötoga sænskra sósíaldemókrata, Olof Palme, sem hefur margoft kvartað yfir „duglausri stjórn borgaraflokkanna" í Svíþjóð. Hún hélt því einnig fram að öllu velferðarkerfinu í Noregi og at- vinnuöryggi stafaði hætta frá Hægri flokknum. „Það er lygi. Við viljum jafnvel betri félagsmálastefnu," sagði Willoch í ræðu sinni á götunni Karl Johan í Ósló. „Fyrst og fremst þurfum við nýja efna- hagsmálastefnu til að bæta sam- keppnisgetu Norðmanna erlend- is,“ sagði hann. Aðgerðir Portúgala skipta litlu Lissahon. 17. ágúst. AP. PORTÚGALSKIR flugumferð- arstjórar neituðu á mánudag að aðstoða vélar á leið yfir Atlants- hafið milli Evrópu og Bandaríkj- anna í samúðarskyni við handa- ríska flugumferðarstjóra. scm eru I verkfalli. Aðgerðirnar höfðu lítil áhrif á flug yfir hafið og verulegar seinkanir hlutust ekki af. Samúðaraðgerðirnar hófust klukkan eitt á mánudagsmorgun og munu standa í 48 tíma. Ritari samtaka portúgalskra flugum- ferðarstjóra viðurkenndi á mánu- dag, að aðgerðirnar skiptu í raun litlu máli. Þær gerðu lítið annað en sanna stuðning portúgalskra flugumferðarstjóra við starfs- bræður sína vestanhafs. Páfi kom- inn til sumar- hallar sinnar ('aslel Gandollo. Itallu. 17. áxúst. AP. MIKIL fagnaðarlæti mættu Jó- hannesi Páli páfa II, þegar hann kom til sumarhallar sinnar fyrir sunnan Róm á sunnudag. 3000 pílagrímar fögnuðu honum óspart, og hann talaði við þá i um 30 minútur. Læknar páfa sögðu, að hann hefði náð fullum bata eftir skotár- ásina 13. maí sl. Þeir munu þó skoða hann reglulega, á meðan hann dvelst í Castel Ganolfo. Páfi yfirgaf Gemelli-sjúkrahúsið í síð- ustu viku. „Við erum svo fegin, að hann er kominn," sagði systir María Grazia, ein pílagrímanna. „Okkur finnst hann vera einn af okkur, þegar hann kemur." Willoch og aðrir leiðtogar hægri manna seldu áheyrendum þylsur á því verði sem þær fengust fyrir áður en stjórn Verkamannaflokks- ins var mynduð — á 2.83 kr. í stað 8.50. Óðaverðbólga, sem er talin vera 14 af hundraði og neyddi Verka- / stuttu máli Fleiri hringir í kringum Saturn Pasadcna. Kalilnrnlu. 17. áxúst. AP. Á myndum, sem hafa borist frá Voyager 2, scm nálgast nú stjörnuna Saturn óðfluga, má sjá, að mun fleiri hringir en þeir sex, sem vitað var um, umlykja stjörnuna. Hundruðir og jafnvel þúsundir hringja virðast vera í kringum stjörn- una og eru sérfræðingar agn- dofa yfir þessu. Eyðileggst Rembrandt? laondon. 17.áKÚst. AP. Listfræðingar á Englandi óttast nú, að lítii Rembrandt- mynd, sem var stolið úr lista- safni Dulwich College í suður Ixrndon á föstudag, krumpist og eyðileggist, nenta hún finn- ist sem allra fyrst. Myndin er af Jacob de Gheyn III og metin á eina milljón punda. Fimm f jall- göngumenn farast Chamonix. Frakkiandi. 17. áKÚnt. AP. Fimm fjallgöngumenn fór- ust og átta slösuðust í ólíkum slysum í frönsku Ölpunum um helgina. Einn þeirra var Breti, sem féll nokkuð hundruð metra á leiðinni upp Mont Blanc. Efnahagsstefna stefnir öllu i strand liaaK- 17. a*/«st. AP. Ósamkomulag um efna- hagsstefnu stofnaði stjórn- armyndunarviðræðum, sem hafa staðið í þrjá mánuði i Hollamii.í hættu í dag. For- maður kristilegra-demókrata vildi, að Verkamannaflokkur- inn og demókratar ’66 sam- þykktu efnahagstillögur sínar, sem fela meðal annars í sér 2 milljarða dollara niðurskurð á fjárlögum. Enn einn fangi í hungurverkfall ItrllitNt. 17. áxÚHt. AP. Írskur fangií Maze-fangels- inu, sem situr inni fyrir hryðjuverkastarfsemi, gekk til iiðs viö sex félaga sina í dag og hóf hungurverkfall. Hann krefst betri meðhöndlunar í fangelsinu. Fjórir látast i lestarslysi Vin. 17. áRÚNt. AP. Fjórir létust og minnsta kosti hundrað slösuðust alvar- lega, þegar austurrísk lest rakst á öryggishlið í dag. Slysið átti sér stað á mesta annatíma á lestarstöð í suður- hluta Vín. mannaflokkinn til að koma á verðstöðvun 3. ágúst, verður eitt mikilvægasta mál kosninganna. Önnur helztu mál eru varnar- og öryggismál, ríkiseftirlit, stefnan í olíu- og orkumálum og fóstureyð- ingar. I fyrra var verðbólgan 10% miðað við 4,5% 1979 þegar Verka- mannaflokkurinn kom á kaup- og verðstöðvun frá september 1978. „Hvað hefur Verkamannaflokk- urinn gert við alla olíupeningana okkar?" spurði Willoch í ræðu sinni. „Okkur vantar skóla og sjúkrahús. Við eigum ekki nóg af nýju húsnæði handa gömlu og ungu fólki og dagvistunarstofnan- ir vantar handa börnum. Efna- hagslífið hefur aldrei áður staðið eins höllum fæti úti á landsbyggð- inni.“ Verkamannaflokkurinn hefur verið við völd í fjögur ár, þótt sósíalistaflokkarnir hafi aðeins haft eins þingsætis meirihluta. Hægri flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristilegi flokkurinn hafa lýst því yfir að þeir hyggist mynda nýja samsteypustjórn eins og þá sem var við völd 19C5-1970 og Vinstri flokkurinn s:yður þá. Stefnuyfirlýsing verður þó ekki samin fyrr en eftir kosningarnar. liclíast. 17. ágúst. AP. SJÖUNDI fanginn á Norður- írlandi hof mótmælasvelti I dag. jafnframt því sem vonir. sem hafa verið hundnar við brezka áætlun um ráðgjafanefnd með þátttöku mótmælenda og kaþólskra. dvín- uðu. Samtímis kvaðst Margareth Thatcher forsætisráðherra hörð á því að stjórnin hefði ekki gengið á bak orða sinna gagnvart hungur- verkfallsmönnum. Yfirvöld segja að Jackie McMull- an hafi hafið svelti í morgun með því að neita að snæða morgunverð í Maze-fangelsi skammt frá Belfast. Hann kemur í stað hungurfangans Thomas Mcllwee, sem lézt 8. ágúst, á 62. degi föstu sinnar. Níu hung- urfangar hafa látizt síðan fastan hófst 1. marz. McMullan er úr „Provisional"- armi írska lýðveldishersins (IRA) og var dæmdur í ævilangt fangelsi 1976, gefið að sök að hafa haft vopn í fórum sínum og hótað að drepa lögreglumann. Annar hungurfangi, Michael Devine, er aðframkominn á 57. degi föstu sinnar að sögn yfirvalda. IRA sagði í yfirlýsingu að Devine væri orðinn blindur og ældi blóði. Völundar hurðir Timburverzlunin Völundur framleiðir spónlagðar hurðir með bezta fáanlega spæni. Spjaldahurðir eða sléttar hurðir, eftir vali kaupandans. m Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð. Gjörið svo vel og lítið inn í sýningarsali okkar á Klapparstíg 1 og Skeifunni 19. Yfir 75 ára reynsla tryggir.gæðin. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 !;i é i .njio-I i i i ’iú'l/'l j.c lit’Kive -í\í iunvj-'e (i ii >.sd i; > n 11 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.