Morgunblaðið - 18.08.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
31
Forystumenn verkalýðsfélaga um kröfur ASV:
„Geta ekki komið
neinum á óvart“
segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR
MORGUNBLAÐIÐ hrfur leitað
álits nokkurra forystumanna
verkalýðsfélaKa á kröfum þeim.
sem Alþýðusamband Vestfjarða
hefur mótað ok sent aðildarfélög-
um sínum. sem endanlega móta
kröfur í komandi kjarasamninj;-
um. Svör forystumannanna fara
hér á eftir:
Formaður stjórn-
ar Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna
f FRÉTT í MorKunblaðinu fyrir
heÍKÍ var ranglega frá því sagt,
hver formaður stjórnar Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna er um þessar
mundir. Það er Jóhann J. ólafsson
stórkaupmaður.
Gangandi mað-
ur fyrir bíl
GANGANDI maður brotnaði illa á
fæti þegar hann varð fyrir bíl á
Suðurlandsbraut, gegnt Hótel Esju,
aðfaranótt laugardagsins. Bílnum
var ekið vestur Suðurlandsbraut, en
maðurinn var á leið suður yfir
götuna og lenti hann á bílnum.
Maðurinn er tæplega þrítugur að
aldri.
Magnús Geirsson, formaður
Rafiðnaðarsambands íslands:
„Mér finnst kröfugerð Vestfirð-
inganna ekki óeðlileg. Ég átti
heldur ekki von á neinum svörum
frá vinnuveitendum öðrum en
þessum, sem lýst hefur verið. Þau
hafa ekki verið önnur þau 26 ár,
sem ég hefi fengizt við kjaramál
og samningagerð.“
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
íslands kvaðst ekkert vilja um
kröfur ASV segja. „Maður á ekki
að skipta sér af málum í öðrum
sóknum,“ sagði Guðmundur.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur sagði: „Það getur ekki komið
neinum á óvart að verkalýðshreyf-
ingin fari fram á það að ná upp
þeim kaupmætti, sem stefnt var
að 1977. Reyndar tel ég, að verka-
lýðshreyfingin hafi sýnt mjög
mikið langlundargeð og sætt sig
við þá kaupmáttarrýrnun sem
orðið hefur síðan. Verzlunar-
mannafélögin hafa ekki mótað
endanlegar kröfur varðandi
launataxtana sjálfa, en ég hygg að
krafan geti aldrei verið langt frá
því að ná upp þeim kaupmætti,
sem stefnt var að með samningun-
um frá 1977. Hvort það verður
með beinum kauphækkunum eða
öðrum hætti, skal ég ekki segja á
þessu stigi."
A uppboðinu var boðið upp hestfolald undan Kulda á Brimnesi. Hér sést
það ásamt móður sinni sem ber nafnið Þórdis ósk Harðardóttir. Á bak
við Þórdísi stendur fyrrverandi eigandi folaldsins, Tómas Brandsson á
Ormsstöðum.
var 61,5 sek. Eigandi Þróttar er
Sigurbjörn Bárðarson en knapi á
honum var Hörður Þ. Harðarson.
Eigandi Reyks ok Don er Hörður G.
Albertsson, en knapi á Reyk var Jón
Ó. Jóhannesson og á Don Kristín
Sigurfinnsdóttir.
I átta hundruð metra brokki var
mjög mikil þátttaka og var heldur
bjartara yfir þessari keppnisgrein
en oft áður í sumar.
Faxi sigraði á 1.43,2 mín, eigandi
hans er EgKert Hvanndal en knapi
var Sigurbjörn Bárðarson. Annar
varð Brimur Sævars Leifssonar á
1.43,8 mín, knapi á honum var Jón
Þ. Ólafsson. í þriðja sæti varð Sörli
á 1.45,0 mín. Eigandi hans er
Magnús Halldórsson og var hann
einnig knapi.
Sörladóttir
á tíu þúsund
Að afloknum kappreiðum var
haldið hrossauppboð og var það
fjáröflunarnefnd íslenska landsliðs-
ins í hestaíþróttum sem gekkst fyrir
því. Verður hluti af ágóða uppboð-
sins látinn ganga upp í ferðakostnað
landsliðsins á Evrópumótið í Nor-
egi. Boðin voru upp ellefu bandvön
og reiðfær trippi frá Sandhótaferju
og fjögur folöld undan kunnum
kynbótahrossum. Var eitt folaldið
boðið upp óséð og er það sennilega
einsdæmi að boðinn sé upp óséður
hlutur eða skepna.
Ekki settu menn það fyrir sig þótt
folaldið sem er frá Ey í Landeyjum
væri víðsfjarri og var það selt á níu
þúsund krónur, sem verður að telj-
ast gott folaldsverð. Dýrasta folald-
ið fór hinsvegar á tíu þúsund
krónur. Var það merfolald undan
Sörla 653 frá Sauðárkróki og fyrstu
verðlauna hryssu frá Stóra-Hofi.
Kaupandi var Óli P. Gunnarsson í
Reykjavík. Dýrasta trippið fór hins-
vegar á sextán þúsund krónur og
var það Jóhannes Þ. Jónsson í
Reykjavík sem það fékk. Að uppboði
loknu héldu menn glaðir heim, og
var gleðin ekki hvað minnst hjá
þeim er eignast höfðu gæðingsefni
fyrir lítinn pening.
VK.
Þessi loftmynd er tekin af væntanlegu íbúðahverfi í Seljahverfi, þar sem verið er að leggja grunn að
húsum. Athygli skal vakin á að á myndinni er engin malbikuð gata, en nú munu nær 15 ár vera frá því
að sú regla náðist að malbikun gatna væri lokið áður en byggingaframkvæmdir hefðust.
Ljósm.: Kristján.
20
maiuia
MITSUBISHI
Getum afgreitt strax hinar glæsilegu 20 manna
fólksflutningabifreiðar frá MITSUBISHI.
Mjög hagstætt verð.
Hafið samband við sölumenn okkar.