Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
33
, J]g hef trú á kappanum“
- segir Steinar Berg um Peter Sarstedt, en fyrirtæki hans mun gefa út
plötur með söngvaranum bæði hérlendis og erlendis
IIÉR á landi er staddur Peter
Sarstedt. sem var stórt nafn í
tónlistarheiminum 1969. er
las hans „Where do you go to
my lovely“ var 8 vikur í efsta
sæti á brcska vinsældarlistan-
um.
Peter Sarstedt hefur gert
samning við Steinar hf. eða
Steinar Record Limited eins
og Plötuútgáfan heitir í Eng-
landi, en nýlega setti fyrirtæk-
ið upp útibú þar í landi.
„Samningurinn við Peter
Sarstedt hljóðar upp á útgáfu
tveggja laga plötu er hér um
ný lög að ræða, sem nú er
verið að taka upp í Hljóðrita.
Það er hljómsveitin Mezzo-
forte, sem annast undirleik en
sjálfur spilar Sarstedt á
kassagítar," sagði Steinar
Berg forstjóri.
„Þetta eru mjög góð lög að
mínu mati, annars væri ég
ekki að standa í þessu.
Samningurinn hljóðar einn-
ig upp á endurútgáfurétt á
öllum lögum Sarstedt á Norð-
urlöndum og Englandi og gef-
in verður út stór plata með
nýjum og gömlum lögum
Sarstedt á næstunni.
Síðan söngvarinn gerði
Fjölmenni við
Hólahátíð
Bæ á llofðastrond. 17. áxúst 1981.
Á Hólahátíð 16. ágúst skartaði
SkaKafjörður í blíðviðri eins oj?
venja er á Hólahátíð. RÍKndi þó
nokkuð seinni partinn. sem kom
hændum illa. sem mikið áttu úti
af hálfu þurru hcyi. Ilóladóm-
kirkja var alveg fullsetin. þetíar
tólf skrýddir prestar, biskup ís-
lands ok vígslubiskup. gen»ru i
kirkju.
Eins og alltaf áður var prýði-
legur söngur hjá Kirkjukór Sauð-
árkróks, undir stjórn Jóns
Björnssonar tónskálds. Sérstaka
athygli mína vakti þó tvísöngur
Ragnhildar Óskarsdóttur og Þor-
bergs Jósefssonar, Ave Maria eftir
Eyþór Stefánsson, sem flutt var
sem stólvers.
Biskup íslands flutti að venju
mjög athyglisverða stólræðu, en í
messulok var fjöldi fólks tekinn til
altaris. Eftir fjölmenna kaffi-
drykkju hófst samkoma klukkan
16, sem fram fór að öllu leyti eftir
áður auglýstri dagskrá. Hinn góð-
kunni söngvari, Jóhann Jóhanns-
son frá Keflavík, söng fjögur lög,
og skilaði þeim með ágætum.
Sérstaka athygli vakti móðir hans,
sem sat á sama bekk og ég, en hún
söng sýnilega með syni sínum, þó
ekki væri hátt sungið.
Hólahátíð er alltaf minnisstæð
öllum er hana sækja, enda óum-
deilanlega hin mesta kirkjuhátíð
landsins. Ánægjulegt fannst mér
að nýskipaður skólastjóri á Hól-
um, Jón Bjarnason, og fjölskylda
hans, sátu í fyrsta skipti þessa
hátíðaguðsþjónustu. Áreiðanlega
er einhugur allra unnenda Hóla að
Guð og góðar vættir fylgi þeim í
starfi.
— Björn i Bæ.
Steinar Berg ásamt þeim sem sjá um rekstur Steinar Records
í Bretlandi. TIl hægri við hann er Stephen Bankler-Jukes en
til vinstri við hann er Tim Hollier.
garðinn frægan hefur hann
búið á búgarði sínum á Eng-
landi. Hann hefur ferðast um
með kassagítarinn sinn og
sungið fyrir fólk. Skömmu
áður en hann kom hingað
spilaði hann á útihátíð á
Irlandi fyrir 10 þúsund manns
og fékk geysi góðar viðtökur.
Peter Sarstedt hefur verið.
„á toppnum", en honum líkaði
ekki það líf, hann vill fá að
vera í friði á búgarðinum
sínum og er það meðal annars
ein af ástæðunum fyrir því að
ekki hefur heyrst mikið í
honum á undanförnum 10 ár-
um. Tónlistin, sem hann sem-
ur og syngur er mjög góð og ég
hef tru á kappanum," sagði
Steinar Berg.
„Markmiðið með þessari er-
lendu fyrirtækjastofnun er
ekki aðeins að koma á fram-
færi íslenskri tónlist heldur
einnig að gefa út lög með
erlendum skemmtikröftum og
er þetta fyrsta skrefið í þá
átt,“ sagði Steinar Berg að
lokum.
Húsbyggjendur
Get bætt viö mig trésmíöavinnu. Hef á aö skipa
vönum og samæföum trésmiöum bæöi viö útivinnu
og innréttingasmíði. Gudbjörn Guömundsson,
trésmíöameistari,
sími 34777.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Snyrtivöruverslun
Af sérstökum ástæöum er snyrtivöruverzlun á
einum bezta stað í Reykjavík í fullum rekstri
til sölu. Gróiö fyrirtæki með góða veltu.
Þeir sem hafa áhuga sendi tilboð til augl.
deildar Mbl. fyrir 20. ágúst merkt: „Snyrti-
vöruverslun — 1867“.
húsnæöi óskast
Starfsmaður okkar
óskar eftir lítilli íbúð í Austurborginni, sem
næst vinnustað. Aðeins tvö í heimili og
ársfyrirframgreiðsla boöin.
Hringið til okkar á verslunartíma.
Húsgagnahöllin, Bíldshöfða 20, Reykjavík,
sími 81199 og 81410.
tilkynningar
Vegna sumarleyfa
er aðeins opiö kl. 10—11.30 virka daga, frá
21. ágúst til 21. september.
Skiltagerðin Ás,
Skólavöróustíg 18.
Slippfélagið í Reykjavík
h/f auglýsir
Dönsk skipaeik og þurrkað beyki frá Röd-
ekro Sawærk A/S.
Nýkomin úrvals vara.
Slippfélagið í Reykjavík h/f,
Mýrargötu 2, sími 10123.
fundir — mannfagnaöir
SUS Týr Kópavogi
heldur fund miðvikudaginn 19. ágúst í
Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1, kl. 21.
Dagskrá:
1. Kjör fulltrúa á SUS-þing.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Kjördæmissamtök ungra
sjálfstæðismanna í
Reykjaneskjördæmi
boöa til fundar í sjálfstæöishúsinu Kópavogi þriöjudaginn 18 ágúst
kl 20.30.
Fundarefni: Undirbúningur undir þing
Sambands ungra sjálfstæöismanna á ísa-
firði 28. til 30. ágúst n.k.
Gestur fundarins veröur Jón Magnússon.
formaöur SUS.
Stjórnin.
Innri mál
Sjálfstæðisflokksins
veröa til umræöu á fundi í Sjálfstæöistélagi Húsavíkur, fimmtudags-
kvöld 20. ágúst kl. 9 á Hótel Húsavík.
Gestir fundarins
veröa alþingismenn-
irnir Halldór Blöndal
og Ólafur G. Einars-
son.
Stjórnin