Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981 Minning: Guðmundur Þ. Sigurðs- son útgerðarmaður Sunnudaginn 9. ágúst síðastlið- inn lést vinur minn og svili, Guðmundur Sigurðsson útgerðar- maður. Lát hans kom ekki á óvart þeim er til þekktu. Hann hafði verið veikur nokkur undanfarin ár. En samt er það svo, að ávallt kemur fráfall góðs vinar eins og þruma, gerir ekki boð. Þeir sem eftir lifa verða að sætta sig við orðinn hlut. Aðeins minningin er eftir, en hún er líka mikils virði. Ekki síst þegar um er að ræða svo góðan dreng, sem Guðmundur var. Guðmundur Þórður, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur 28. september 1908 að Steinum á Bráðræðisholti hér í Reykjavík. Að honum stóðu styrkir stofnar í báðar ættir, faðirinn Sigurður Þorsteinsson skipstjóri, annálaður sjósóknari og útgerðarmaður og móðir Guðmundar var Gróa Þórð- ardóttir, Péturssonar í Oddgeirs- bæ við Framnesveg. Var því vel salt blóð í báðum ættum. Guð- mundur var einn af fimm sonum og sex dætrum þeirra Gróu og Sigurðar. Þennan stóra barnahóp varð að fæða og klæða. Það segir sig sjálft, að oft hefur verið erfitt í Steinabæ á þeim tíma þegar lítið fiskaðist og kreppa herjaði á þetta bæjarfé- lag, sem nú er borg. En dugnaður- inn og viljinn til að bjarga sér yfirunnu allt volæði. — Og þrátt fyrir mikla ómegð, er mér kunn- ugt um að margur fékk hjálp á Steinabæjarheimilinu. — Um það mátti reyndar enginn vita. Það skyldi ekki borið á torg. Barna- hópurinn óx úr grasi, allt myndar- Laugardaginn 25. júlí var haldin minningarathöfn í óspakseyrar- kirkju um bróðurson minn, Ólaf Harald Kjartansson, sem lést af slysförum fyrir tveimur árum. Því miður gat ég ekki verið viðstödd minningarathöfnina en ég trúi að margir hafi komið til kirkju að minnast hans því þar fór góður drengur í blóma lífsins. Onni eins og við ávallt kölluðum hann var sonur Kjartans Ólafs- sonar og Guðmundu Haraldsdótt- ur að Sandhólum Bitrufirði, fædd- ist 3. apríl 1954 og var þrem mánuðum yngri en sonur minn sem nú er staddur á skipi suður í Miðjarðarhafi og gat ekki verið viðstaddur minningarathöfnina. Hann hringdi til mín daginn fyrir athöfnina og bað mig fyrir bestu kveðju. En þeir léku sér saman fyrstu árin, og voru alla tíð mjög hændir hvor að öðrum. Onni hafði tekið við búi á móti föður sínum sem byggði nýbýli á jörð pabba míns og mömmu, Ólafs Einarsson- ar og Friðmeyjar Guðmundsdótt- ur á Þórustöðum, en þau eru nú bæði látin fyrir nokkrum árum. Þar ætlaði hann að byggja upp heimili að nýju og lífið virtist blasa við honum en þá kom kallið sem við öll verðum að hlýða. Onni átti duglega systur sem tók við því starfi sem hann var byrjaður á og gladdi það mig mjög er ég kom þar rétt fyrir páska í vor og sá hvað hún og sambýlismaður hennar voru búin að gera, húsið heima var að lifna á ný, húsið sem búið var að vera dimmt og kalt í mörg ár. fólk, en umfram allt gott fólk. Þrjú þessara systkina eru farin á undan Guðmundi, þau Einar, skip- stjóri, Sigurlaug, húsfreyja, og Guðrún, húsfreyja. Var Guðmund- ur elstur þeirra sem eftir lifa. Þórður afi Guðmundar hafði mikið dálæti á dóttursyni sínum og nafna. Var Guðmundur lang- dvölum hjá honum í Oddgeirsbæ og þar mun hann hafa lært fyrst til sjómennsku, sem svo varð hans lífsstarf. Ekki mun Guðmundur hafa verið gamall er hann fór sína fyrstu sjóferð með afa sínum, fékk sjóvettlinginn blautan framaní sig þegar hann varð sjóveikur. Eftir það angraði hún hann ekki meðan hann var á minni bátum, þó svo að hún gerði alvarlega vart við sig er hann gerðist togarasjómaður. Guðmundur var 14 ára er hann byrjaði sem fullgildur háseti á opnum bátum. En þegar togararn- ir komu til sögunnar í auknum mæli, fékk hann togarapláss ásamt Einari bróður sínum. Var hann aðallega á togurum Alli- ance-félagsins, Kára og síðar Skúla fógeta. Hann er á Skúla, er þáttaskil verða í lífi hans, hann strandaði á Staðarfjöru í Grinda- vík, 10. apríl 1933. Ég fer ekki nánar út í þá sálma. — Hann gekk ekki heill til skógar um árabil eftir þá miklu lífsreynslu og átök, sem þar áttu sér stað. Var jafnvel talið að Guðmundur myndi ekki verða vinnufær aftur. Harka og seigla voru honum í blóð borin. — Engin uppgjóf. Áfram var barist. Hann festi kaup á trillu. Það sagði hann mér eitt sinn, að í sínum fyrsta róðri á trillunni, hefði hann verið svo aðframkominn, að það hefði jafnvel hvarflað að sér að gefast upp. — Af því varð ekki. Smátt og smátt óx honum ásmeg- in. Hér ýtti skylduræknin á eftir, því nú hafði hann fyrir konu og ungum syni að sjá. Það mun hafa verið á árinu 1936 að Guðmundur tók við skipstjórn af bróður sínum, Einari, á mb. Víkingi RE. Þann bát hafði faðir þeirra keypt vestur í Ólafsvík. Nú skyldi Einar taka við „glæsifleyt- unni“ Aðalbjörgu RE 5, sem enn í dag er fengsæll fiskibátur og sonur Einars heitins er nú skip- stjóri á. Guðmundur var skipstjóri á Víkingi fram til ársins 1939. Þá keypti hann happafleyið Skógar- foss RE 236. — Á sjálfum þjóðhá- tíðardeginum það ár varð bátur- inn hans eign. í 30 ár voru þeir óaðskiljanlegir, ef svo má að orði komast — báturinn og hann. Það lýsir hug Guðmundar til þessa báts, að hann hagaði sér við hann eins og höfðingjar til forna við gæðinga sína. — Eftir 30 ára dygga þjón- ustu sigldi Guðmundur Skógar- fossi sínum út úr Reykjavíkurhöfn eitthvað út í Flóann. Þar sökkti hann bátnum sínum, með vél og öllum búnaði, sem honum til- heyrði. — Nú munu aðeins tveir menn vita nokkurnveginn hvar Skógarfoss Guðmundar liggur á botninum hér úti í Flóanum. — Það var vilji Guðmundar að við- skilnaður þeirra skyldi vera með veglegum hætti og báturinn ekki látinn grotna niður í þanghafinu eða á landi. Svo margar góðar og glaðar stundir höfðu þeir átt saman, en einnig margar hættustundir. Guð- mundur var afburða sjómaður og var talið að hann og Nikulás Jónsson skipstjóri hafi þekkt Ég vona að guð gefi þeim eins mörg og góð ár eins og foreldrum mínum og systkinum sem lifðum þar. Það var alltaf ánægjulegt þegar Onni minn kom í heimsókn til okkar í Reykjavík. Ég hef varla séð eins glaðvært bros á börnum mínum og þegar hann birtist óvænt. Þá var oft glatt á hjalla, og gjarnan tekið lagið því hann var mjög söngelskur eins og foreldrar hans. Það er nú fæddur annar Onni í ættinni, dóttir mín og maður hennar Hafdís og Helgi létu skíra drenginn sinn Ólaf Harald. Vona ég að hann verði eins góður drengur og Onni var, því þar fór gleðin og gjafmildin saman, alltaf vildi hann miðla öðrum að því sem hann átti. Ég veit að Onna líður vel þar sem hann er nú. Öll hittumst við um síðir. Ég bið góðan Guð að styrkja foreldra hans og systkini í þeirri miklu sorg. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt.“ EUa frænka Bugtina best allra sem sjó stund- uðu hér í „Inn-Flóanum“, eru þó margir sem þekkja vel til miða á þessum veiðislóðum. Ég var svo heppinn að fá að fara með vini mínum í nokkrar sjóferð- ir. Minningar frá þeim eru allar á einn veg. — Margur ungur sjó- maðurinn byrjaði sína sjó- mennsku um borð hjá Guðmundi. Hefur sá skóli orðið þeim gott veganesti á sjónum. Tel ég mig geta fullyrt að Guðmundur hafi í senn verið virtur og vellátinn meðal sjómanna á gömlu Verbúð- arbryggjunum hér í Vesturhöfn- inni. 11. október 1930 var heilladagur i lífi Guðmundar. — Þann dag gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Geirlaugu Benedikts- dóttur, Jónssonar skipstjóra á Bókhlöðustíg hér í bænum. Fyrstu 20 árin bjuggu þau Geirlaug og Guðmundur á Bókhlöðustígnum hjá tengdaforeldrum hans. Hefur mér ætíð þótt það lýsa skapferli Guðmundar. — Var samkomulag- ið á heimilinu alla tíð til fyrir- myndar. 37 Höfðu þau Geirlaug og Guð- mundur verið gift í rúmlega 50 ár. Tæplega get ég hugsað mér sam- rýndari hjón en þau. Hún var honum sérlega góð og bar aldrei skugga á þeirra sambúð. Þau eignuðust tvö börn, Benedikt Gunnar, stýrimaður, kvæntur Hjördísi Kröyer. Þau eiga þrjá syni. — Og Hjördísi, sem gift er Kristni Stefánssyni. Þau eiga þrjár dætur. — Auk þess á Hjördís son, sem ber nafn afa síns, Guðmundur Þórður. — Hann var á heimili afa síns og ömmu ásamt móður sinni uns hún stofn- aði sitt eigið heimili. Var mikill kærleikur með nöfnunum. Var reyndar svo alla tíð með Guð- mundi og öllum barnabörnunum. — Hann ,var að eðlisfari mjög barngóður maður og þess hafa börn okkar hjóna notið í ríkum mæli. Geirlaug og Guðmundur fluttu af Bókhlöðustíg í Vesturbæinn, að Steinum, þar sem Guðmundur var fæddur, sem fyrr segir. — Þar bjuggu þau í 15 ár. — En undan- farin 16 ár hafa þau búið að Álftamýri 36. Ég hef aðeins stiklað á sára- fáum minningum um vin minn Guðmund. Þar er af svo miklu að taka að erfitt er að velja hvað nefna skuli og hverju sleppa, þegar haft er í huga að við Guðmundur höfum verið vinir frá því á bernskuárum okkar vestur á Bráðræðisholti og að 40 ár eru liðin frá því við tengdumst fjöl- skylduböndum — er við urðum svilar. Á kveðjustund sendum við hjón- in og börn okkar innilegar samúð- arkveðjur til Geirlaugar og fjöl- skyldu hennar. Þökkum Guð- mundi fyrir samfylgdina. — Það er nokkur huggun harmi gegn að á langri leið hefur okkur aldrei orðið sundurorða hvað þá meir. Baldur Jónsson Canon Ijósritunarvélar í sér flokki bæöi verö og gæöi! Þaö keppir engin viö CdllOll Ef þessari staöreynd er ekki trúaö þá vinsamlega hafiö samband við okkur, komiö, skoöiö og sannfær- ist. Verslið við fagmenn. Sala, áþyrgö og þjónusta: SKRIFVÉLIN HF Suðurlandsbraut 12. Sími 85277 — 85275. Minning — Ólafur Haraldur Kjartansson Collonil vernd fyrir skóna, leðrið, fæturna. Hjá fagmanninum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.