Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 36

Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1981 Minning: Dagbjört Guðbrandsr dóttir bankafulltrúi Kvoðja Irá starfsíólki Íltvojísbanka íslands. Á morKun fer fram útför Dag- hjartar Guðbrandsdóttur frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Hún andaðist í sjúkrahúsi hér í borg aðfararnótt sunnudansins 6. sept- ember síðastliðinn eftir erfiða og þungbæra sjúkdómsbaráttu, er hún hafði af æðruleysi o« miklum sálarstyrk háð að undanförnu. Dagbjört fæddist í Vestmanna- eyjum 15. mars 1927, dóttir hjón- anna Kristínar Ólafíu Einarsdótt- ur og Guðbrandar Guðmunds- sonar, verkamanns. Hún ólst upp í Reykjavík, stundaði nám í Verzlunarskóla íslands og lauk þaðan fullnaðar- prófi 1946. Ég hef til frásagnar kennara og samnemendur Dagbjartar í Verzl- unarskóla íslands. Ber öllum sam- an um að hún hafi verið gædd góðum námsgáfum og verið frá- bær skólafélagi á gleðistundum og við úrvinnslu vandamála. Ég kynntist Dagbjörtu þegar hún hóf störf í Útvegsbanka ís- lands 15. maí 1946, en þar starfaði hún nær óslitið til æviloka. Vin- átta okkar og samstarf var ein- lægt og snurðulaust alla tíð. Það var sönn lífsfylling að þekkja Dagbjörtu Guðbrandsdóttur. Hún var glaðvær og góðsinnug. Vann störf sín af stakri samviskusemi og hollustu í garð stofnunarinnar, sem hún bar hlýjan hug til. Dagbjört Guðbrandsdóttir tók mikinn og virkan þátt í starfsemi og áhugamálum Starfsmannafé- lags Útvegsbankans og vann mál- efnum þess af einlægni og óeigin- girni. Öllu starfsfólki Útvegsbanka Is- lands þótti vænt um Dagbjörtu Guðbrandsdóttur og mun sakna hennar sáran. Hún giftist Björgvin Torfasyni skrifstofumanni í Reykjavík 22. apríl 1950. Hann andaðist í des- ember síðastliðnum. Þau eignuðust tvær dætur, Kristínu, sem er gift Kára Kaaber skrifstofumanni í Reykjaík og Katrínu, í móðurranni. Mikil sorg og söknuður fyllir hug og hjörtu okkar vina Dag- bjartar á kveðjustundu, en í þakklátri minningu mun mynd hennar aldrei verða afmáð. Sárastur er þó söknuður systr- anna tveggja, er séð hafa að baki foreldranna beggja á tæpu ári. Guð styrki þær. Blessuð veri minning Dagbjart- ar Guðbrandsdóttur. Adolf Björnsson í annað sinn haustar að á skömmum tíma. Fjölskylda Dag- bjartar Guðbrandsdóttur og Björgvins Torfasonar hefur orðið fyrir sárum harmi. „Mamma er dáin — mamma dó í nótt." Það er Katrín Björgvinsdóttir sem segir þetta hljóðlát í símann fyrsta sunnudagsmorgun í september. Sólardagur og grasið aldrei svo dimmgrænt sem nú, áður en það verður næturfrosti að bráð. Dauð- inn í válegri návist, — vinur hniginn til moldar. Dagbjört Guðbrandsdóttir lést í Landakotsspítala aðfaranótt sunnudags 6. september eftir stutta en stranga sjúkdómslegu. En fyrir réttum níu mánuðum hafði hún á öðru sjúkrahúsi setið við dánarbeð eiginmanns síns, Björgvins Torfasonar. Nú, við þessi tímamót í lífi og dauða, hvarflar hugurinn til Eyja, er við Björgvin, ungir sveinar, eyddum saman löngum dögum, og önnur Katrín, móðir hans, látin um aldur fram. Eftir stóð Torfi í Áshól með barnahópinn, systkinin fjögur. Oft biðum við saman á Bæjar- bryggjunni síðla dags og fram eftir kvöldi eftir því að „Gammur- inn“ kæmi að landi með pabba og björg í bú. Það brást ekki. Torfi vatt sér upp á bryggjuna og heilsaði hlýlega drengnum sínum og vini hans. I hugum lítilla snáða voru svona menn hetjur hafsins og fleyið þeirra glæsiskip, samt varla nema stór yfirbyggð trilla, innan við 10 tonn. Þessi ár, milli kreppu og stríðs, voru árin okkar ógleymanlegu. Ekki alltaf setið við allsnægta- borð. En við félagarnir mættum þó snurfusaðir og stroknir í barnaskóla hjá Páli Bjarnasyni og Halldóri Guðjónssyni og síðar í gagnfræðaskóla hjá Þorsteinun- um tveimur: Víglundssyni og Ein- arssyni. Þetta voru glöð æskuár við nám, leik og skátastarf. Og brátt lýðveldi á Islandi á ný, 1944. Fórum „suður" — komnir til höfuðstaðarins í leit að þekkingu, annar í prentverki í Isafold, hinn til náms í Verslunarskóla Islands, en báðir til húsa úti við Klambra- tún, að Guðrúnargötu 9, hjá þeim sæmdarhjónum Sigríði Einars- dóttur og Þorbirni í Borg. Dagga og Björgvin kynntust í Verslunarskóla íslands. Og það er mér í fersku minni hvernig æsku- ástin blómstraði þessi ár, en einlægni einkenndi strax þeirra kynni. Var það ekki ég sem var rómantískari? Nei, það átti fyrir Begga mínum að liggja að sýna hvernig ástin dafnar, — þarna var hún holdi klædd komin yfir Norð- urmýrina í heimsókn á Guðrún- argötu. Hún heitir Dagga. Lýðveldið var enn á barnsaldri þegar Dagga og Björgvin gengu í hjónaband hinn 22. apríl 1950, og þeir þrír áratugir, sem þau áttu hvort annað, einkenndust þeirra í millum af ást og virðingu og trausti. Það var Björgvin ómetan- leg gæfa að eignast lífsförunaut sem Dagga var. Björgvin Torfason lést hinn 11. desember 1980. Bless- uð sé minning hans. Og nú hefur Dagga einnig kvatt okkur samferðafólkið. Sá, sem þessar línur ritar, vottar dætrunum, mökum þeirra og börnum samúð og hluttekn- ingu, svo og öðrum aðstandendum. Börn Döggu og Björgvins eru Kristín, bókasafnsfræðingur, sem gift er Kára Kaaber, en þau eiga tvo drengi, og Katrín, nemandi í Háskóla Islands. Dagbjört Guðbrandsdóttir, sem á morgun verður kvödd hinstu kveðju af fjölskylduvinum, vensla- ^ Bílar sem standast hverja raun. TOYOTA LANDCRUISER HARDTOP Bíll sem hefur fengið viðurkenningu um allar heim fyrir styrkleika og gæði. Vinnuhestur til að nota hvenær sem er í hvað serr er, enda lítið breyttur í 20 ár nema ávallt tæknilega fullkomnari. 4ra cyl. diesel vél 4ra gíra. Til afgreiðslu nú þegar ^39660- «TOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 UMBOÐIO Á AKUREYRI: BLÁFELL S/F OSEYRI 5A — SlMI 96-21090 fólki og samstarfsmönnum, hefur sýnt okkur hetjulegt fordæmi og aðdáanlegan viljastyrk í veikind- um manns síns á síðastliðnu hausti og þá ekki síður í sínum erfiða sjúkdómi. Það var ávallt til óblandinnar ánægju þegar nafni Döggu brá fyrir í umfjöllun í Útvegsbankan- um, en þar starfaði hún um áratuga skeið af þeirri kostgæfni, sem drengskaparfólki er gefið. Og mér hlýnaði um hjartarætur um daginn, þegar ég færði til gjörðar- bókar að Döggu og nokkrum samstarfsmönnum hennar hefði hlotnast örlítill vegsauki innan stofnunarinnar. En nú er tregablandin kveðju- stund. Dagbjört Guðbrandsdóttir verð- ur jarðsett á morgun i Fossvogs- kirkjugarði við hlið eiginmanns síns. Góðir guðir varðveiti hvílu þeirra. Arnbjörn Kristinsson ..Daudinn má svo með sanni. samlíkjast. þykir mér. slynKum þoim sláttumanni. som slær allt hvað fyrir or: Krosin »k jurtir granar. ulóandi hlómstrió frítt. reyr. stór sem rtwir vænar reiknar hann jafnfánýtt.** (III*-) Á morgun, mánudag, verður til moldar borin kona sem margir trega fyrir mannkosta sakir. Vegir okkar lágu saman fyrir réttum fjörutíu árum, er við hófum nám í undirbúningsdeild Verzlunarskóla íslands. í fimm vetur vorum við bekkjarsystur og lukum verzlunarprófi úr 4. bekk vorið 1946. Samfylgd okkar í lífinu var þó ekki lokið því við urðum „saumaklúbbsvinkonur", sjö bekkjarsystur, og lifir sá sauma- klúbbur enn góðu lífi. Dagbjört fæddist í Vestmanna- eyjum og var skírð í kirkjunni þar. Var hún elzt fjögurra bama hjón- anna Kristínar Einarsdóttur og Guðbrandar Guðmundssonar. Hófu þau búskap sinn í Eyjum en fluttu til Reykjavíkur árið 1928. Kristín, móðir Dagbjartar, var dóttir Einars Eiríkssonar, bónda á Helgastöðum í Biskupstungum. Var til þess tekið hve fagra söngrödd Einar hafði. Var hann og orðlagt prúðmenni. Móðir Kristínar var Margrét Sigmunds- dóttir frá Iðu. Var hún komin út af Illuga smið sem var frægur maður á sinni tíð og kallaður „Skálholtssmiður“. Guðbrandur, faðir Dagbjartar, var sonur hjónanna Guðmundar Einarssonar, steinsmiðs, frá Helgastöðúm í Biskupstungum og Dagbjartar Brandsdóttur, er síð- ast bjuggu að Baldursgötu 22 í Reykjavík. Dagbjört var ættuð af Mýrum en ólst upp með móður sinni að Skildinganeskoti við Reykjavík. Var hún þremenningur við Geir rektor Zoéga. Hlóðst mikil ómegð á Guðmund og Dag- björtu og var Guðbrandi kornung- um komið í fóstur til hjónanna Gríms Einarssonar og Kristínar Gissurardóttur að Syðri-Reykjum í Biskupstungum. Dvaldi hann þar til 15 ára aldurs. Kristín og Guðbrandur áttu hvort sinn soninn er þau giftust, Gústaf Ófeigsson, sem kvæntur er Ásdísi Helgadóttur, og Helga Guðbrandsson, sem kvæntur er Margréti Friðleifsdóttur. Alsystk- ini Dagbjartar heitinnar eru Ein- ar, kvæntur Ernu Egilsdóttur, Margrét, gift Guðmundi Sveins- syni, skipstjóra á Akranesi, og Sigrún, sem gift er sænskum manni, Olle Nilsson, og búa í Billingsfors í Svíþjóð. Það hafa heilladísir staðið við vöggu teipunnar sem fæddist í Vestmannaeyjum í marz 1927 og það er fátt ofmælt sem sagt er um hana látna. Hún var barn fátækra foreldra á veraldarvísu en hún hafði alla reisn höfðingjans. Þótt langlífisdísin hafi ekki verið mjög örlát við hana þá voru hinar dísirnar þeim mun örlátari. Sann- leikurinn um persónu Dagbjartar Guðbrandsdóttur myndi teljast oflof um flesta. Hún kunni alla ævi fótum sínum forráð, var

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.