Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1981 37 grandvör í bezta lagi, skapgóð og glaðlynd, bindindissöm, nægjusöm og góðgjörn, bjartsýn og fámál um einkahagi. I hópi okkar vinkvenn- anna var hún sú sem ósparlegast var leitað ráða hjá um hvaðeina. Hún var möndullinn í hópnum. Þann 22. apríl árið 1950 giftist Dagbjört bekkjarbróður sínum úr Verzlunarskólanum, Björgvin Torfasyni frá Vestmannaeyjum. Bjuggu þau nær allan sinn búskap að Eskihlíð 8A í Reykjavík. Eign- uðust þau tvær dætur, Kristínu, bókasafnsfræðing, fædda 5.10 1950 og Katrínu, fædda 26.2. 1959. Maður Kristinar er Kári Kaaber, sölumaður og eiga þau tvo syni, Björgvin og Birgi. Katrín er við nám í Háskóia Islands. Björgvin lézt fyrir tíu mánuðum eftir skammvinn en erfið veikindi. Guð blessi Döggu og Björgvin, og ég þakka þeim samfylgdina. Aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Rannveig Tryggvadóttir. Með örfáum orðum viljum við vinkonur og skólasystur Döggu votta henni þakklæti okkar fyrir órofa tryggð og vináttu í meira en fjörutíu ár. Þegar litið er til baka, eru fjörutíu ár langur tími, en þó alltof stuttur, þegar hugsað er til liðinna samverustund. Það er vart hægt að hugsa sér hópinn okkar án hennar. Hún var sú sterka, sú sem leysti vandamál- in stór og smá, sú sem kunni að gleðjast með glöðum og hug- hreysta þá, sem erfitt áttu, hún var hrein og bein, hún var góð kona. Við kveðjum hana með virðingu og þakklæti fyrir allt það, sem hún hefur verið okkur og engin orð megna að lýsa. Söknuður okkar er sár, en við vitum að hún á góða heimkomu hinum megin. Dagga giftist skólabróður okkar, Björgvini Torfasyni frá Vestmannaeyjum, árið 1950. Hjónaband þeirra var einstaklega farsælt. Björgvin veiktist í sept- ember fyrir ári og lést 11. desem- ber sama ár. Megi Guð blessa endurfundi þeirra nú. Dætrum þeirra Kristínu og Katrínu, tengdasonum og dóttur- sonum vottum við innilega samúð og biðjum Guð að styrkja þau. Vinkonur. Vel heppnuð F áksf erð um Noreg Hestamannafélagið Fákur efndi til hópferðar á Evrópumót- ið í Larvik og var tekin á leigu flugvél frá Flugleiðum sem tók 164 farþega. Ekki var þó fyrir- greiðsla flugféiagsins betri en svo að 16 sæti í vélinni voru yfirbókuð þegar ganga átti um borð og var sá hluti hópsins er eftir varð að fara í gegnum Kaupmannahöfn til Oslóar. Var farið frá Keflavík árla dags, 26. ágúst en þar gisti meginhluti hópsins eina nótt en síðan í Larvík á 5 hótelum næturnar á meðan á mótinu stóð. Á sunnudagskvöld þegar EM var lokið var haldið af stað á þrem bílum 5 daga hringferð um vestur- hluta Noregs. Gist var í bæjunum Geilo, Balestrand, Loen, þar sem verið var tvær nætur og í Geirang- er en þaðan var farið í einum áfanga til Oslóar og gist þar eina nótt og haldið heim að kvöldi 5. september. Þessi hópferð var í alla staði mjög vel heppnuð. Bjartviðri og veðurblíða hélst allan tímann jafnt á mótinu sjálfu sem í ferðinni um Noreg. Gist var á úrvals hótelum og veislukostur fram reiddur í mat og drykk. Fararstjórarnir Ragnar Tóm- asson, Hjördís Björnsdóttir og Björg Valgeirsdóttir skipulögðu ferðina, einnig var leitað til norskrar ferðaskrifstofu um fyrir- greiðslu og tilhögun fararinnar. Þótt Fákur stæði fyrir þessari ferð voru þátttakendur víðsvegar að af landinu eins og í ferðinni til Hollands, en sú ferð heppnaðist einnig vel. Þökk sé stjórn Fáks fyrir að beita sér fyrir þessum vina- og landkynningarferðum í sambandi við Evrópumótin. Sig. Sigm. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, PÁLL ÞORSTEINSSON frá Hofi f Öræfum. Hofgörðum 24, Seltiarnarneai, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 14. sept. kl. 10.30. f.h. Sigrún S. Pálsdóttir, Guömundur I. Ingason, Gunnar H. Pálsson, Sesselja G. Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móöur okkar og tengdamóöur. ÓLÍNU EYJÓLFSDÓTTUR Stórholti 12, fer fram frá Fríkirkjunni í Rvík þriöjudaginn 15. sept. kl. 13.30. Eyjólfur Tómasson, Elínborg Guðmundsdóttir, Magnus Tómasson, Olafía Tómasdóttir Meeks, Þorbjörg Eiðsdóttir, Tómas Ó. Tómasson, Hjördis Ragnarsdóttir, Sigmundur Tómasson, Anna S. Jensen, Sigríóur M. Tómasdóttir, Erlingur Antoníusson. Haustlauka- kynning Haustlaukarnir eru komnir. Komið í Blómaval og skoðið geysi- fjölbreytt úrval okkar af haustlaukum. Höfum á boðstólum mörg hundruð tegundir. T. d.105 tegundir Túlípana, 31 tegund af Narsissum (,,Páskaliljum“) og ótal fleiri. Einnig margar tegundir innilauka. Kynning: í dag kl. 2-6 munu garðyrkju- menn kynna meðferð lauka. Tilboð'. Sérstök tilboð verða í gangi. T.d.: 50stk.túlípanaráaðeins kr. 65/- búntið 25 stk. Narsissur (páska- liljur) á kr. 51/- búntið 48 stk. Crokusar á kr. 55/- búntið Ráðgjöf'. Alla daga til kl. 19 verður fagmaður á staðnum og veitir-faglega ráðgjöf og leiðbeiningar. Nú er rétti tíminn að setja niður haustlaukana. Fjölgið anægjustundum í garðinum. Komið við í Blomavali. Opið alla daga til kl. 21. t Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og systir, KAREN IRENE GÍSLASON sem andaöist 5. sept. veröur jarösungin þriöjudaginn 15. sept. kl. 14 frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi. Jón Bergmann Gíslason, Borge Jónsson, Helga Brynjólfsdóttir, Karen Irene Jónsdóttir, Magnús Sólmundarson, Soffía Jónsdóttir, Jurgen Wagner, Gíslina Jónsdóttir, Reimar Sigurósson, Gísli Jónsson, Fríöa Guómundsdóttir, Solveg Eek, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.