Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
5
(Ljósm. Mbl. Kristján)
Frá vigsluathöfninni sl. sunnudag. Frá vinstri: Kristinn Ágúst FriAfinnsson, Hanna Maria Pétursdóttir,
herra Sigurbjörn Einarsson, séra Gisli Kolbeins, Agnes M. Sigurðardóttir og Guðni bór Ólafsson.
45 sek. löng fréttamynd af skipbrotsmönnum:
Kostaði sjónvarpið
um 10 þús. krónur
SJÓNVARPIÐ sýndi fyrstu íréttamyndina. sem hingað kemur um
Skyggni og gervihnött. á sunnudagskvöldið. bað var 45 sekúndna
löng mynd frá landgöngu skipbrotsmannanna af Tungufossi. og
sagði Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóri Sjónvarps í samtali
við Morgunblaðið í ga‘r. að kostnaður na-mi rúmlega 10 þús.
krónum við móttöku á myndinni. Töluna sagði hann að visu ekki
alveg nákva ma. en það sama þyrfti að greiða fyrir svona stutta
fréttamynd. og fyrir tíu minútna móttöku. þar sem um er að ra>ða
sérstakt byrjunargjald eða „startgjald“.
Pétur sagði ekkert ákveðið um loft, en það er hnötturinn Inter-
framhaldið, þetta væri aðeins
undantekningartilfelli. Sjón-
varpið sagði hann enn ekki
tilbúið til að taka á móti mynd-
um daglega, og kæmi þar eink-
um þrennt til: Nauðsynlegur
tækjabúnaður væri ekki fyrir
hendi, fyrir slíkt daglegt sam-
band. Þá væri rekstrarkostnaður
svo mikill að hækka yrði afnota-
gjöld um 9%. í þriðja lagi væri
gervihnöttur sá er nota á í
framtíðinni, enn ekki kominn á
sat 5, sem kominn verður á braut
í febrúar á næsta ári.
Þá sagði Pétur það einnig rétt,
að enn væri varla hægt að taka á
móti myndum af þessu tagi
nema á sunnudögum, vegna
anna í upptökusölum. Enn er því
nokkuð í land, þar til fastar
fréttasendingar frá útlöndum
koma á skjái íslenskra sjón-
varpsáhörfenda, en myndin á
sunnudag sýnir þó að það er
hægt.
Síðasta prestvígsla herra Sigurbjörns Hijémpiata Messotorte:
Frá vinstri: Sveinn Einarsson. bjóðleikhússtjóri, Robin Don, leik-
myndahönnuður og Benedikt Árnason, leikstjóri. (Ljósm. Mbi. ól.K.M.)
„Hótel Paradís“
frumsýnt á föstudag
FYRSTA frumsýning leik-
ársins í Þjóðleikhúsinu
þetta haust verður næst-
komandi föstudagskvöld.
Þá kemur á fjalirnar farsi
eftir Frakkann Georges
Feydeau, sem sumir hafa
titlað meistara gaman-
leikjanna. Þetta verk nefn-
ist „Hótel Paradís“ í ís-
lenskri þýðingu Sigurðar
Pálssonar, en áður hafa
m.a. verið sýnd verkin
„Fló á skinni“ og „Hvað
varstu að gera í nótt?“
eftir sama höfund, bæði
við miklar vinsældir.
Hótel Paradís er óvirðulegt hót-
el í París um aldamótin síðustu og
þar gerast ótrúlegustu hlutir, en
sagt hefur verið um gamanleiki
Feydeaus að þeir fjalli um þann
skoplega hrylling sem venjulegt
fólk lendir í er það eltist við fánýti
og hégóma, einkum ef það vill
halda þeim eltingaleik leyndum
fyrir sínum nánustu. Leikstjóri er
Benedikt Árnason, en leikmynd og
búninga gérir breskur leikmynda-
hönnuður, Robin Don, en hann er
mikils metinn í heimalandi sínu
og hefur hróður hans einnig borist
út um heim, enda hefur hann m.a.
unnið til alþjóðlegra verðlauna
fyrir verk sín. Það er Kristinn
Daníelsson sem sér um lýsinguna,
en með helstu hlutverk fara:
Róbert Arnfinnsson, Sigríður
Þorvaldsdóttir, Bessi Bjarnason,
Þóra Friðriksdóttir og Árni
Tryggvason. Ung leikkona, Sigrún
Edda Björnsdóttir, fer einnig með
hlutverk í þessu verki, og er það í
fyrsta sinn sem hún leikur í
Þjóðleikhúsinu. Að sögn Sveins
Einarsson, Þjóðleikhússtjóra, er
sala aðgangskorta að sýningum
vetrarins langt komin og síðustu
forvöð fyrir fólk að verða sér úti
um þau nú um helgina.
SL. SUNNUDAG vígði
biskup íslands, herra Sig-
urbjörn Einarsson, fjóra
guðfræðinga til prests-
starfa í Dómkirkjunni í
Reykjavík. Þetta var síð-
asta prestsvígsla herra Sig-
urbjörns, en hann lætur af
störfum um næstu mán-
aðamót. Hefur herra Sigur-
björn alls vígt 85 presta frá
því hann varð biskup,
sunnudaginn 21. júní árið
1959, en fyrstu prestsvígslu
sína framkvæmdi hann
daginn þar á eftir og vígði
þá séra Ingþór Indriðason
prest í Kanada. Vígsluþeg-
arnir, Agnes M. Sigurðar-
dóttir, Guðni Þór Ólafsson,
Hanna María Pétursdóttir
og Kristinn Ágúst Frið-
finnsson, hlutu vígslu sam-
kvæmt hinni nýju helgi-
siðabók kirkjunnar, sem
tekin var í notkun í vor.
5. vinsælasta platan
í diskótekum í London
HLJÓMPLÖTU hljómsveitarinnar Messoforte hefur verið mjög vel
tekið i Bretlandi, en þar kom platan út fyrir rösklega viku. Ber
platan nafn hljómsveitarinnar, „Messoforte“, og eru á henni
frumsamin lög eftir iiðsmenn hljómsveitarinnar. Platan, sem er án
söngs, kom út hér á landi fyrir síðustu jól og heitir islenska útgáfan
í hakanum. — Útgefandi hérlendis og í Bretlandi eru Steinar hf.
Áður en plötur koma á markað sölu. — Messofortemenn hafa að
í Bretlandi eru þær sendar til
kynningar í útvarpsstöðvar og á
diskótek. Fljótlega eftir að
Messoforteplatan kom síðan í
verslanir, var hún komin í 8. sæti
yfir vinsælustu og mest leiknu
plöturnar á diskótekum í Lon-
don. Síðustu fréttir herma að
hún hafi nú færst upp i 5. sæti,
að því er Steinar Berg Isleifsson,
eigandi Steina hf., sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær. Sagðist
Steinar Berg vera bjartsýnn á
gengi plötunnar, en varaði þó við
of mikilli bjartsýni. íslendingar
hefðu áður gert sér miklar vonir
á erlendri grund, er ekki hefðu
ræst. Minnti hann einnig á að
röð vinsældalistans táknaði ekki
undanförnu verið í Bretlandi við
að kynna plötuna, og einnig eru
þeir að taka upp nýja plötu, sem
á að koma út hér fyrir jól, og
síðan í Bretlandi skömmu eftir
áramót.
Þá sagði Steinar Berg að ýmis-
legt fleira væri á döfinni, til
dæmis hefur þekkt jasshljóm-
plötufyrirtæki í Bandaríkjunum
boðið Messoforte samning þar,
en það fyrirtæki gaf t.d. út plötu
Árna Egilssonar fyrir nokkrum
misserum. Hljómsveitina Messo-
forte skipa Friðrik Karlsson,
Eyþór Gunnarsson, Björn Thor-
arensen, Jóhann Ásmundsson og
Gunnlaugur Briem.
W ^ • Reimdrifinn
W ^ w * Rafeinda
\ móttökumælir.
# LM, MW
og FM bylgjur.
mDOLBY
fyrir betri
upptökur.
• Útgangsorka
2x20 SINUS Wött
v/4 Ohm. I. ...
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó samstæöa
meö hátalara, í,,silfur“'
eða ,,brons“ útliti.
Breidd 390 mm. Hæð 746 mm / 373 mm. Dýpt 330 mm.
Rafeinda
"Topp”
SHARP CP-1H/HB: • Rafeinda /V1ETAL
Hátalarar, bassa og diskant styrkmæiir. stillin9 fyrir metai
25 Watta í ,,silfur“ eöa kassettur
„brons“ útliti. Allt settiö, verö kr.:
kassettur.
Breidd 220 mm Hæð 373 mm Dýpt 38 3 mm.
Allt settiö, verö kr.:
6.320.00.
HLJÓMTÆKJADEILD
=11
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
Útsölustaðir: Karnabær Glæsibæ —
Fataval Keflavík — Portið Akranesi —
Eplið Isafirði — Álfhóll Siglufirði —
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði —
Eyjabær Vestmannaeyjum — M.M. h/f. Selfossi.