Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUD4^B.22,;gj:t?y^MBÉR 1981 Viðtöl við skipverja á Tungufossi: „Búinn að sætta mig* við að þetta líf væri á enda“ Frá Árna Johnsrn. hlaðamanni Mortíiinhlartsins í Fondon. FLESTIR skipverjanna lentu í hrakninmim við hjorjcunina af Tunjíufttssi og stt'tð mjöjí ta-pt art næðist að hjarjja sumum. Við ræddum við nokkra skipverjanna á leið- inni frá Penzance til London í Ka-r. „Vöðlaðist undir skipið“ „Éu stóð aftast á lunninnunni o« fór í sjóinn þar í látunum, en náði að príla aftur upp á lunninguna með hjálp öldunnar oj; henda mér í j;úmbjörKunarbátinn,“ saj;ði Teodór Hansen um björj;un sína í Tunj;u- fosssl.vsinu. „En þej;ar éj; var kominn í j;úmbjörj;unarbátinn barst hann undir skutinn oj; þjappaðist þar niður, þannij; að maður vöðlaðist saman í honum. Mér var þó alvej; sama, éj; var búinn að sætta mij; við að þetta líf væri á enda. Skömmu áður hafði polli á skutnum bjarj;að mér frá því að skolast út, éj; stöðvaðist á pollanum, en mér hefur aldrei liðið eins illa oj; þennan tíma meðan ósköpin voru að j;anj;a yfir. Það var stórkostlej;t að sjá hvernij; Gunni skipstjóri stjórnaði skipinu við þessar aðstæður, einn í brúnni í lanj;an tíma. Oj; hitt er svo, að þegar éj; í daj; sá fagra konu á götu hérna varð ég aftur fullkomlega sáttur við að vera á lífi, það er miklu skárri kostur og nú er bara að koma sér í siglingu á ný.“ HjörRunarbáturinn á fullu inn að eldhúsdyrunum „Ég var aftast á skut skipsins, sem hallaði mjög mikið og fjórir menn voru þá farnir frá borði í bátana, en þyrlan var að reyna að ná öðrum á efsta þilfari. Þá var öskrað á mig að vera tilbúinn að stökkva og um leið sá ég brezka björgunarbátinn sigla á fullri ferð upp á skut Tungufoss og inn að eldhúsdyrunum. Um leið stökk ég utan á björgunarskipið og mér var dröslað inn fyrir borðstokkinn. Ég trúði því aldrei að skipið færi niður, en þegar við stóðum í brúnni og loftventlarnir voru farnir að fara i kaf og skipið á fullri ferð, þá leizt manni ekki á blikuna." Ilífður upp í lykkju. flæktri um handlegKÍnn „Ég var hífður upp í þyrluna á annarri hendinni og var lafhræddur um að falla úr tauginni, því ég hékk í lykkju, sem kræktist óvart um „Hissa að enginn skyldi gefast upp og sturlast“ - segir Aðalsteinn Finnbogason stýri maður á Tungufossi Frá Árna Johnsrn. hlada manni Mhl. i London. _ÞAÐ ER ill reynsla. ég vil meina feikiiegt átak. að lenda i þessu. en það er mikið lán að ailir hjörguð- ust við þessar aðstæður. því veðrið var hrein flóðhylgja eins og þeir sogðu Bretarnir og straumurinn svu mikilll að það var þrekvirki hjá strákunum að komast i gegn um þetta. Mest var ég hra'ddur um (íísla. sem var fárveikur með mik- inn hita.“ sagði Aðalsteinn Finn- hogason. 1. stýrimaður. i samtali við Mhl. „Við lentum í allt of mikium erfiðleikum við að koma björgunar- bátunum út, það voru tveir hásetar með mér, en við ætluðum ekki að geta komið honum út fyrir borð- stokkinn. Fyrst skolaðist bátshylkið aftur inn í skipið án þess að blásast út og endaði inni I þvottaherberg- inu, síðan inni í næstu hæð fyrir neðan og að síðustu niðri á þilfar- inu, en þangað náðum við að krafla okkur og skorða, þannig að við gátum kippt í blásturstaugina um leið og við hentum bátshylkinu útbyrðis. Sigmundsgálginn hefði komið að gagni þarna vil ég meina. Jú, ég stökk í gúmbjörgunarbátinn og hitti sæmilega, en þá var bátnum að hvolfa og ég notaði hann því eins og stökkpall. Báturinn var efst á öldunni og brezki báturinn stein- snar frá, þannig að ég notaði gúmbátinn sem millilendingu í stökki í átt til björgunarbátsins, lenti í sjónum, en var svo heppinn að aldan skolaði mér upp að borð- stokknum hjá Bretunum, sem voru ekki seinir á sér að vippa mér inn fyrir borðstokkinn. Þetta var ofsa- legur sjór og sogið við skipið gasalegt, kraumaði og sauð í öllu. Ég fékk æfingu þegar Fjallfoss fór á hliðina í fyrra, fékk leka í hafinu milli Færeyja og Islands, en það var ekkert líkt þessu. Þetta var slys, sem gaf enga möguleika fyrir skipið og var þannig í rauninni, að ég er hissa á því, að enginn skipverja skyldi hreinlega gefast upp og sturlast. Staðan var orðin svo vonlaus, að hún bauð upp á slíkt. Það er ekki hægt að leggja á alla menn að sjá dauðann beint fram- undan.“ annan handlegginn," sagði Steinar Helgason i samtali við Mbl. „Þegar ég var að fara í róluna lenti lykkjan utan um handlegginn og ef lykkjan hefði brugðizt væri ég ekki til frásagnar, því þyrlan flaug með mig í órahæð að mér fannst á meðan verið var að hífa upp i storminum og særokinu. Ég er að drepast í hand- lejg;num ennþá. Það munaði minnstu að ég slengd- ist utan í skipið þegar ég var hífður upp og líklega hafa þeir ekki ætlað að hífa mig upp í þessari lotu, þeir urðu að koma margsinnis að skipinu áður en það gekk að ná tauginni í hvert skipti, sem manni var bjarg- að. Ég skildi aldrei hvernig Gunnar skipstjóri gat hangið í brúnni svo lengi sem raun bar vitni. Skipið var hreinlega lagzt á hliðina undir lokin, en hvað hann hélt því lengi upp í, réði ugglaust úrslitum því með því vannst tími fyrir björgun- armennina." Með nær 40 stiga hita í sjóinn Gísli Níelsson var búinn að ligjya veikur um borð í nokkra daga með um 40 stiga hita, þegar slysið varð. „Og þegar ég var búinn að hanga úti á þilfari í nær klukkutíma," sagði hann,“ var ég alveg búinn að vera. Svo kom að því að ég varð að stökkva, ég lenti á gúmbjörgunar- bátnum við skipshlið og flaug síðan áfram í sjóinn, þar sem ég náði taki á björgunarbátnum, þar sem traust- ar hendur gripu mig og þrifu inn fyrir borðstokkinn. Eg hefði aldrei haldið út öllu lengur við gúmbjörg- unarbátinn, og þó, ég er nú Valsari." fi til 7 metra stökk í reynsluferðinni „Ég þurfti að stökkva eina 6 til 7 metra niður í gúmbjörgunarbátinn og það var eiginlega reynsluferðin, því ég fór fyrstur," sagði Þorsteinn Pétursson, 1. vélstjóri, í samtali við Mbl. „Ég hitti beint á bátinn, en andartaki síðar skall hann undir skipið og ég rétt náði að kasta mér á botn bátsins áður, þannig að mér varð ekki meint af og skolaði upp með bátnum jafnskjótt. í sömu andrá kom brezki björgunarbátur- inn að gúmbátnum, svo ég notaði tækifærið og stökk utan á bátinn, þar sem björgunarsveitarmenn voru tilbúnir að grípa mig.“ Ilékk á hvolfi með kreppt- um fótum „í fyrstu ferð þyrlunnar yfir skipið kom björgunarmaður niður með tauginni, en hann skall all- óþyrmilega á þilfarið og festist síðan undir grindverki, þyrlumenn- irnir slökuðu á tauginni, en þegar þeir hífðu félaga sinn upp náði ég að krækja fótunum utan um hann, eins og hann sagði mér að gera, og halda mér í taugina með annarri hendi. En á leiðinni upp í þyrluna hékk ég í rauninni á hvolfi með þessum tökum,“ sagði Ragnar Kjærnested, bátsmaður. „Ilélt dauðahaldi um krókinn á stjakanum“ - segir Hallur Helgason sem var þrotinn að kröftum í sjónum Frá Árna Johnsen. hlaAamanni MnrxunhlaAsins í Lnndnn. „JÚ. við Gunnar skipstjóri kvodd- umst með handahandi. áður en ég stökk í sjóinn. næstsíðastur skip- verja." sagði Ilaliur Ilelgason. 3. vélstjóri á Tungufossi. í samtali við Mhl. „Þetta haíði allt gengið ha'ri- lega og ég átti ekki von á öðru. en það var svo sem ekkert á hreinu. og ég stökk í sjóinn um það hil. sem skipið var að leggjast á hliðina. Ég stökk aftur af skipinu, að mér virtist um eina bátslengd frá björg- unarskipinu, en þegar ég kom úr kafinu, reyndist mér vegalengdin heldur meiri, tugir metra, og heldur ókræsilegt í þeim stórsjó, sem var þarna. Mig bar frá bátnum út í sortann, en það var enginn tími til að vera hræddur. Síðar lýsti þyrlan hafflötinn, báturinn kom og krók- stjaki var réttur til mín. Tvisvar missti ég af stjakanum og leizt þá ekki orðið á blikuna, því mig rak alltaf frá bátnum á milli. í þriðju lotu náðu þeir mér og með einum putta náði ég dauðahaldi á króknum og þeir drógu mig jyörsamlega magnþrota að bátnum og hirtu mig um borð. Þrátt fyrir aðeins nokkrar mínútur í sjónum var ég gjörsam- lega þrotinn að kröftum, en það eina sem ég hugsaði var að ná bátnum, ná bátnum. Nei, ég hef aldrei lent í svona áður, þetta var æðisgengið og þegar við horfðum á Gunnar skipstjóra standa einan aftan á skipinu, sem lá á hliðinni og reyna að halda sér utan á því, þegar það dró hann margsinnis í kaf með sér, þá gat ég ekki horft lengur og lét mig falla á gólfið. Félagar mínir byrgðu andlit- in með höndunum.“ Gunnar Scheving ThorKteinsson, skipstjóri. Itagnar Kjærnested. bátsmaður. Skemmdirnar á stefni hjörgunar- bátsins eftir sigl- inguna upp á lunn- ingu Tungufoss við eldhúsið. England: Fjtilmörg skip og bátar sukku London. Koutor. 21. st ptomhor. í ÓVF)I)RINU. sem gekk yfir suður- og vesturhluta Bret- lands á laugardag sukku fjöl- morg skip og bátar önnur en Tungufoss. og í gær var vitað um 1 menn. sem drukknuöu í óveðrinu. og nokkurra er cnn saknað. I fréttum frá Bretlandi segir að björgunarþyrlur hrezka flughersins hafi haft a-rinn starfa um hrlgina og ennfremur hjörgunarhátar sem haföir eru til taks á ströndinni. Onefnt franskt flutningaskip bjargaði fimm manna áhöfn franska togbátsins Lechamois, sem sökk 55 mílur vestur af Cornwall. Sjötti maðurinn í áhöfninni drukknaði. Þá bjarg- aði RAF-björgunarþyrla 12 manna áhöfn ensks fiskibáts sem var strandaður nærri Thames. Þá var skýrt frá því að maður á trillu hafi drukknað á Ermarsundi, og ennfremur að maður hafi fengið hjartaslag á skútu vestur af Wales. Ermar- sundsferjan Christina Limped átti í hinum mestu erfiðleikum. Ferjan var 14 tíma að fara 3 klst. siglingu. Um borð voru 900 farþegar og voru margir við hága heilsu, er ferjan kom til hafnar. Fréttir frá Bretlandi í gær skýrðu frá því, að í það minnsta 12—15 smábátar hefðu sokkið á legum sínum við suður- ströndina um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.