Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981 13 koma í ljós. Það hefur ábyggilega mikið að sejya í þessu öllu að gera sem mest og bezt fyrir aðra. Maður hefur nú verið í þessum akstri í 65 ár og yfirleitt hef ég aðeins kynnst góðu fólki sem hefur haldið sínu lífi á réttri stefnu. Mangi Guðjóns hefur ekki verið í neinum vandræðum með að kynnast fólki og skila því á réttan stað. Það hefur hjálpað mér í lífinu að ég er svo rómantískur þó ég sé enginn listamaður. Ég hef gaman af að skoða byggingar og annað sem er fagurt og mitt ráð er að menn skili góðu verki og trúverð- ugu starfi, í friði og sælu. Ef það þarf að laga eitthvað þar sem menn fara um þá eiga þeir að laga það.“ „Þú minntist á drauma, ertu berdreyminn?" „Mig dreymdi algjörlega fyrir Straumsvíkinni, það var liklega árið 1903. Mig dreymdi að tvö skip komu inn á Straumsvíkina og lögðust þar og fólk allt varð yfir sig hrætt og hélt að þar færu Tyrkir á ferð. Allir flúðu, en mér fannst svo fallegt í kringum skipin og faldi mig því í skúta þar sem skipsmenn lentu síðan bátum sín- um. Þeir löbbuðu í bæinn, offiser- ar háttsettir og verkfræðingar og tæknifræðingar og ég fylgdist með úr hellinum. Eftir nokkrar vanga- veltur á staðnum héldu þeir aftur til báta sinna og þennan draum réði ég sem fyrirboða að byggingu mikillar verksmiðju í Straumsvík með skipakomum og það rættist með byggingu álverksmiðjunnar." Árni Johnscn vinna. Sú hlið málanna er að mestum hluta í höndum er- lendra fyrirtækja, þó þau séu skráð í eigu Islendinga. Þetta sölukerfi er mjög dýrt og til dæmis hækkuðu sölufyrirtækin sölukostnaðarprósentu sína úr 10% í 12% snemma á síðastliðn- um vetri og við þá hækkun mun sölukostnaðurinrt hækka um 500.000 til 1.000.000 króna á hvert frystihús í landinu á ári. Sem fyrirmynd í útflutnings- málum vil ég nefna útflutnings- kerfi Dana, þar sem útflutningur sjávarafurða er algjörlega frjáls. Samkvæmt frásögn dansks sér- fræðings, sem kom til íslands á vegum Stjórnunarfélagsins, gengur þetta kerfi snurðulaust fyrir sig og varð maðurinn steinhissa, þegar hann var spurður að því, hvort hann gæti ekki bent á einhverja sérstaka erfiðleika, sem þetta viðskipta- frelsiskerfi hefði í för með sér sem slíkt." 11 i n pólitíska sam- tryKKinK ræður Kan>ji mála hcr hcima En hvað með ástandið hér heima? „Það er staðreynd að hér er hin pólítíska samtrygging sam- ansúrruð í öllu sínu veldi hvað við kemur þessum málum, krat- arnir fá að halda forystunni í SÍF, Framsókn stendur ekki langt frá Sambandinu og í SH eru kommarnir og íhaldið í einni sæng. Það er ekki björgulegt útlitið fyrir kerfisbaráttu ein- staklingsins á þessu sviði. Þó má segja að á þeim sviðum, þar sem starfsfriður hefur fengizt, hefur yfirleitt náðst góður árangur í útflutningi. Við biðjum ekki um forréttindi, einungis jafnrétti og starfsfrið með fullum saman- burði við aðra aðila, stóra eða smáa. — Baráttan er hér fyrir réttlæti og gegn pólitískri valdníðslu. Þessi barátta heldur áfram og það er engin spurning um það hvernig málið endar, heldur ein- ungis hvenær," sagði Ottar Yngvason. IIG Af stjórnar- og formannafundi Landssambands sjálfstæðiskvcnna í Valhöll. Eíri mynd frá vinstri: Sigurlaug Bjarnadóttir, alþingismaður, Margrét Friðriksdóttur úr Keflavik. Birna Guðjónsdóttir frá Sauðárkróki, Ilelga Guðmundsdóttir úr Ilafnarfirði, Þóra Björk Kristinsdóttir frá Akranesi, Anna Björnsdóttir frá Siglufirði. Jósefína Gfsladóttir frá ísafirði. Elín Pálmadóttir, varaform. og Margrét S. Einarsdóttir formaður Landssam bandsins, Þórunn Einarsdóttir frá Selfossi, sem einnig er lengst til vinstri á neðri myndinni. Þá kemur Björg Einarsdóttir úr Reykjavík, Steinunn Sigurðardóttir úr Kópavogi. Freyja Jónsdóttir frá Akureyri, Svava Gunnlaugsdóttir úr Mýrarsýslu. Kristjana Ágústsdóttir frá Búðardal. Erna Kristinsdóttir úr Hafnarfirði og Inga Jóna Þórðardóttir, Framkvæmdastjóri í Sjálfstæðisflokknum. Á myndina vantar Soffíu Karlsdóttur úr Keflavik. Formannafundur Landssambands Sjálfstæðiskvenna LANDSAMBAND sjálfstæðiskvenna efndi um sl. helgi til formannafundar. en í Landsambandinu eru 17 félög sjálfstæðis- kvenna víðs vegar um landið. Hittist stjórn sambandsins um morguninn, en síðdegis formenn félaganna. ásamt stjórn. Á fundinum var fjallað um ýmis félagsmál, starfsmannahalds, útgáfur sem Landsambandið hefur staðið að þ.e. Fjölskyldan í frjálsu samfé- lagi og Auðar bók Auðuns. Lögð var fram ítarleg greinargerð frá nefnd, sem kjörin var á lands- þinginu með tillögum að eflingu á starfi sjálf- stæðiskvennafélaganna, en í henni áttu sæti Áslaug Friðriksdóttir, Hulda Valtýsdóttir og Ester Guðmundsdóttir. Voru tillögur ræddar og formenn munu leggja þær fyrir sín félög. Þá var rætt um tillögur sjálfstæðiskvenna til Landsfund- ar Sjálfstæðisflokksins og kosin nefnd til að vinna að þeim. Og miklar umræður urðu um rýra stöðu kvenna í áhrifastöðum í þjóðfélaginu á vegum flokksins og hugmyndir til úrbóta, Var samþykkt tillaga með áskorun til miðstjórnar um það mál. VOLVCfé?- Meira úrval en nokkru sinni íyrr! ? VOLVO Nú hefur Veltir á boðstólum íleiri gerðir aí Volvo íólksbiíreiðum og á betra verði en nokkru sinni fyrr. Eins og verðlistinn ber með sér er breidáin mjög mikil, en hvergi er þó slakað á kröfum um öryggi. Volvo öryggið er alltaí hið sama. Verðmunurinn er hins vegar íólginn í mismunandi stœrð, vélaralli, útliti og íburði, og t.d. eru allir 240 bílarnir með vökvastýri. Verðlistinn er miðaður við gengi ís- lensku krónunnar 15. sept. 1981, ryð- vöm er innifalin í verðinu. Hafið samband við sölumenn okkar VELTIH HE Soðurlandsbraut 16 • Simi 35200 Verd 103.300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.