Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTRJJBER 1981
Velheppnuð f jallamaraþonkeppni
LHS og Skátabúðarinnar:
Keppendur i fjallamara-
þoninu leggja upp frá
Landmannalaugum á laug-
ardaKsmorKun klukkan
rúmlega sex.
i Wmíf ’Jtíá; 4 dPf m \
^ ^ ;
Stelpurnar bera saman bækur sínar. áður en laxt var i'ann.
SÍKurvejfarar keppninnar, f.v. Magnús Dan Bárðarson, Andrés Þór Bridde, VilborK
Hannesdóttir ok Anna Lára Friðriksidóttir, öll úr Hjálparsveit skáta i Reykjavík.
Sigurvegararnir gengu um 60 km
vegalengd á um 11 klukkustundum
ÞAÐ KOM enjíum á óvart þegar
tilk.vnnt var í talstöðinni, að Andrés
Þór Bridde ou Matjnús Dan Bárðar-
son, félattar \ Hjálparsveit skáta í
Reykjavík, hefðu komið fyrstir í
mark við fjallaskálann á Fimm-
vörðuhálsi í fjallamaraþonkeppni
I.IIS, Landsamhands hjálparsveita
skáta ot; Skátabúðarinnar, sem hald-
ið var um heltíina, en þeir félattar
hofðu verið í forystu í keppninni allt
frá upphafi. Keppnin hófst á lauttar-
daKsmortcun klukkan 06.00 í Land-
mannalauttum ot; áttu keppendur að
ttantta liðletía 60 km þann datiinn otí
koma við á sex eftirlitsstöðvum, ok
enda við skála Ferðafélatjs íslands í
Þórsmörk. Keppni var síðan haldið
áfram á sunnudatísmorKun, ok áttu
keppendur þá að komast á sem
skemmstum tíma frá Básum í
Þórsmörk upp á Fimmvörðuháls í
skála Flut;björt;unarsveitar Eyfell-
intja. Það voru sem saftt þeir Andrés
ot» Mattnús, sem sittruðu, en þeir
Arnór Guðhjartsson ok Helf?i Bene-
<liktsson, sem einnit; eru í Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík, en þeir
hofðu veitt þeim fyrrnefndu mjöt;
harða keppni fyrr daginn, komu
reyndar í mark á sama tíma, urðu að
haetta keppni í miðjum seinni áfant;-
anum vet;na meiðsla Arnórs. I
keppni þessari tóku þátt átján lið,
þ.e. 36 keppendur frá átta björnun-
ar- ok hjálparsveitum, Flut;björt;un-
arsveitinni í Reykjavík, hjálpar-
sveitum skáta í Reykjavík, Kópa-
vot;i, Garðabæ og Hafnarfirði, ok
björt;unarsveitum Slysavarnafélat;s-
ins, Albert á Seltjarnarnesi, Innólfi í
Reykjavík og Klakk frá Grundar-
firði.
Af átján liðum voru fjögur
kvennalið. Fyrstar í kvennaflokki
urðu þær Anna Lára Friðriksdóttir
og Vilborg Hannesdóttir úr Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík, og höfðu þær
stöllurnar nokkra yfirburði yfir aðr-
ar stúlkur, sem tóku þátt í keppn-
inni.
Áður en lengra er haldið er rétt að
geta þess, að aðeins átta lið luku
keppni, sem var mjög strembin, sex
karíalið og tvö kvennalið. í öðru sæti
í kvennakeppninni urðu þær Linda
Bjornsdóttir og Rannveig Andrés-
dóttir, einnig úr Hjálparsveit skáta í
Reykjavík. I karlaflokki urðu í öðru
sæti þeir Kjartan Ingason og Vigfús
Pálsson úr Hjálparsveit skáta í
Reykjavík, og þronsverðlaun hlutu
Benedikt Kristjánsson og Þór Æg-
isson úr Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík, Geir Sigurðsson og Unn-
ar Garðarsson úr Albert á Seltjarn-
arnesi, Einar Hauksson og Már
Guðmundsson úr Hjálparsveit skáta
í Kópavogi og Freyr Bjartmarz og
Ragnar Bjartmarz úr Flugbjörgun-
arsveitinni í Reykjavík, en þar fóru
elzti og yngsti keppandinn, feðgarnir
Freyr, sem er 43 ára og Ragnar, sem
er 18 ára.
Þegar keppendur voru ræstir í
Landmannalaugum um sexleytið á
laugardagsmorgun, fengu þeir í
hendur hliðsjónarkort af leiðinni,
sem þeim var ætlað að fara. Inn á
kortið voru merktar eftirlitsstöðvar,
sem keppendur áttu að koma við á.
Þær voru ýmist mannaðar, eða
ómannaðar.
í fyrsta áfanga áttu keppendur að
halda áleiðis í Hrafntinnusker með
viðkomu á ómannaðri stöð. Veðrið
hafði siöðugt farið versnandi og
þegar keppendur komu í námunda
við hina ómönnuðu stöð sá varla út
úr augum fyrir skafrenning og
snjókomu. Það endaði því þannig, að
ekkert liðanna fann hina ómönnuðu
eftirlitsstöð og héldu beint í Hrafn-
tinnusker. Þá þegar höfðu Andrés og
Magnús annars vegar og Arnór og
Helgi hins vegar, tekið nokkuð
afgerandi forystu. Röð keppenda
hélzt síðan að mestu óbreytt í næsta
stað, sem var skáli Ferðafélags
íslands við Álftavatn. Það var ekki
að sjá á þeim félögunum fjórum, að
þeir hefðu mikið fyrir þessu, með
allan nauðsynlegan búnað á bakinu,
þeir hreinlega skokkuðu í hlað á
Álftavatni, leystu ákveðin verkefni,
sem fyrir þá voru lögð og skokkuðu
af stað aftur.
í Álftavatni, þegar tæplega helm-
ingur leiðarinnar var að baki, hafði
te.vgzt mjög úr hópnum, og voru
menn mjög misjafnlega á sig komn-
ir. Menn höfðu fengið hælsæri,
tognað, fengið krampa í fætur og þar
fram eftir götunum, og kannski ekki
að undra miðað við hinn feiknalega
„Átti alls ekki von á
svona góðum árangri"
segir Vilborg Hannesdóttir, annar sigur-
vegarinn í kvennaflokki
„ÉG ER auðvitað mjög ánægð
með sigurinn og mér fannst mjög
ánægjulegt að taka þátt í keppn-
inni,“ sagði Vilborg Hannesdóttir
úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík,
í samtali við Mbl., en hún ásamt
Onnu Láru Friðriksdóttur mynd-
uðu sigurliðið í fjallmaraþon-
keppninni.
„Mér fannst keppnin í heild
takast mjög vel og vera mjög vel
skipulögð. Þá var þetta mjög
hress og skemmtilegur hópur að
vera með,“ sagði Vilborg enn-
fremur.
Áttir þú von á því, að ykkur
stelpunum tækist að verða jafn
framarlega og raun ber vitni?
„Nei, alls ekki, ég átti von á því,
að sjá í iljarnar á strákunum og
við myndum síðan skokka á eftir,"
sagði Vilborg.
Var keppnin erfiðari en þú
bjóst við? „Já, heldur var hún það,
enda er maður heldur stirður á
eftir og með strengi í skrokkn-
um,“ sagði Vilborg ennfremur.
Aðspurð sagðist Vilborg myndu
taka þátt aftur ef slík keppni yrði
haldin. Hún sagðist aðallega fá
þjálfun sína í fjallgöngum og svo
hjólaði hún töluvert og skokkaði
ef henni fyndist hún vera farin að
slappast.
„Ákveðnir í að halda
keppni aftur að ári“
— segir Eggert Lárusson, framkvæmda-
stjóri fjallamaraþonkeppninnar
„ÞAÐ ER okkar mat, sem að þessu
stóðum, að mjög vel hafi til tekizt
og við erum þegar búnir að
ákveða, að halda slíka keppni
aftur að ári,“ sagði Eggert Lárus-
son, framkvæmdastjóri fjalla-
maraþonkeppninnar, í samtali við
Mbl.
„Á næsta ári verður hins vegar
skipt í flokka og ýmsar minni
háttar breytingar gerðar. Það
verða t.d. björgunarsveitaflokkur,
almennur flokkur og hjónaflokkur
svo eitthvað sé nefnt.
Við erum hins vegar ákveðnir í
að næsta keppni verður styttri,
þannig að keppendur fari ekki
nema um 40 km, en fyrri daginn
nú fóru þeir um 60 km, sem er
nokkuð strembið," sagði Eggert.
Þá kom það fram hjá Eggert, að
næst yrði keppnin á svæði nær
Reykjavík. Það verða skipulögð
fleiri svæði og veðurútlit látið
ráða ferðinni. Þau svæði, sem
verið er að hugsa um, eru t.d. í
kringum Langjökul, í kringum
Þingvelli, Úlfljótsvatnssvæðið. Við
höfum einnig hugsað okkur að
hafa fleiri pósta og fleiri verkefni
en var í þessari keppni," sagði
Eggert ennfremur.
Keppendur voru 36 talsins og
starfsmenn keppninnar voru milli
40 og 50. •
Að síðustu var Eggert spurður
að því hvort það hefði komið
honum á óvart hversu mörg lið
duttu úr keppni. „Nei, það kom
mér í sjálfu sér ekki á óvart. Ég
reiknaði alltaf með allt að 50%
afföllum. Þetta er það strembið
svæði yfirferðar," sagði Eggert að
síðustu.