Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981 Norðurlandameistaramótið í rallycross: Æ’ Islenzku keppendurn- ir komust ekki í úrslit — sífelldar bilanir og óheppni komu í veg fyrir að þeir næðu að sýna sitt bezta Frá (fUnnlauKÍ RoKnvaldssyni i HelsinKjaborK- ÓHEPPNIN elti íslenzku þátttakendurna á Norðurlandameistaramót- inu í rallycross hér í HelsinítjaborK í Svíþjóð. Sifelldar bilanir og óheppni komu í veg fyrir að þeir næðu að komast i úrslit, en þrátt fyrir það stóðu þeir si>? vel og Evrópumeistarinn i rallycross, Valfridson. lét þau orð falla að Jón S. Halldórsson væri mjög góður ökumaður o« íf®ti náð langt á betri bíl. SijíurveKari varð Fulke Andreson á Escort. Upphaflega áttu bílar þeirra Jóns og Þórðar Valdimarssonar að koma hingað til Helsingjaborgar frá Gautaborg, en það brást og urðu þeir því að sækja þá sjálfir. Þeir náðu rétt í keppnina, svefn- lausir og þreyttir eftir 10 stunda akstur. Þrátt fyrir þetta stóð Jón sig vel í keppninni, á fyrstu braut í árekstri, klemmdist milli tveggja bíla og snerist við, auk þess sem kúplingin bilaði enn og þar með var draumurinn úti. Óheppnin var líka förunautur hins íslenzka keppandans, Þórðar Valdimarssonar, sem ók Volks- wagen. Á fyrstu 2 brautunum losnaði hjá honum kertahetta, Jón S. Halldórsson naut vinsælda meðal sænsku ljósmyndaranna vegna „fagmannlegra stökka“ á BMW-bíl sínum. Óheppnin eiti Jón S. Halldórsson i fyrstu keppni hans erlendis. Eftir goða byrjun hrotnaði hjá honum framrúða og varð hann að fara sér hægt eftir það. Simamynd GunnlauKUr Rótrnvaidsson. hélt hann vel í Evrópumeistarann, Valfridson, en steinkast frá bíl hans braut síðan framrúðuna í BMW-bíl Jóns, þannig að hann dróst aftur úr. Þá bilaði kúplingin hjá honum og varð hann því síðastur á bæði 1. og 2. braut. Á þriðju braut náði hann góðu starti og var í öðru sæti þegar hann lenti þannig að bíllinn gekk aðeins á þremur og vann því ekki eins og skyldi. Á þriðju brautinni átti hann litla möguleika, þar sem hann lenti á móti sterkum bílum. Þá lenti hann líka í árekstri og olíukerfið sprakk hjá honum og það með voru hans möguleikar allir. BALDWIN píanó og orgelskólinn Innritun alla daga Hljóðfæraverslun Wi P/ILMÞiRS mb Hf GRENSASVEGI 12 - SÍMI 32845 Frá opnun hins nýja bókasafns í Kópavogi sl. laugardag. Fremst á myndinni eru heiðursborgarar Kópavogs, frú Hulda Jakobsdóttir og Finnbogi Rútur Valdimarsson. Ljósm. Mbl. Kristján. Bókasafn Kópavogs flytur í nýtt húsnæði Verður eitt af fullkomn- ustu bókasöfnum á landinu BÓKASAFN Kópavogs flutti nú á laugardaginn í nýtt og stærra húsnæði að Fannborg 3 til 5. Við vígslu hins nýja húsnæðis héldu ræður forseti bæjarstjórnar Snorri Kon- ráðsson og Magnús Bjarn- freðsson formaður hóka- safnsnefndar. Viðstödd vígsl- una voru heiðursborgarar Kópavogs. hjónin Ilulda Jak- ohsdóttir. fyrrverandi bæjar- stjóri í Kópavogi, og Finn- bogi Iiútur Valdimarsson. fyrrum oddviti og bæjar- stjóri í Kópavogi. Fékk Ilulda Jakohsdóttir fyrstu hókina. sem lánuð var út af hinu nýja safni. Að sögn Hrafns Harðarsonar forstöðumanns bókasafnsins var safnið formlega opnað almenn- ingi kl. 2 í gær. Það er 580 fermetrar að stærð, en hið fyrra var 100 fermetrar, og er fjöldi bóka í því um 50 þúsund. Um 37.000 bindi eru í bókasafninu sjálfu, en bærinn keypti bóka- safn Ólafs heitins Ólafssonar læknis fyrir þremur árum og telur það um 12 til 15.000 bækur. Á síðasta ári voru lánþegar um 3600 og lánaðar voru alls um 122 þúsund bækur í fyrra. Að sögn Hrafns fer sú tala jafnt og þétt vaxandi. Sæti eru nú fyrir 10 manns í lestrarsal bókasafnsins, en ráð- gert er að innrétta lestrarsal í kjallara hússins. Meðal merkra bóka á safninu er fyrsta útgáfa Njálssögu á íslensku og fyrsta útgáfa af Ijóðum Jónasar Hall- grímssonar, ásamt öðrum merkisgripum. Bókasafn Kópavogs var fyrst stofnað árið 1953 og var þá í barnaskólanum, en flutti 1964 í félagsheimili kaupstaðarins og síðan í þetta nýja húsnæði. Magnús Bjarnfreðsson formað- ur bókasafnsnefndar í ræðu- stól. Bókasafnið er að sögn Hrafns mun aðgengilegra fyrir lamaða og fatlaða. Var alls ekki hægt fyrir fatlaða að komast inn á eigin spýtur á gamla staðnum, því það var á annari hæð. Á nýja staðnum er mjög góð aðstaða fyrir fatlað fólk og gamalt og komast hjólastólar auðveldlega inn í húsið. Að sögn Kristínar Björgvins- dóttur bókasafnsfræðings verð- ur bókasafn Kópavogs í framtíð- inni með fullkomnustu bóka- söfnum á landinu. Er í bígerð að koma upp þráðlausu hljómflutn- ingskerfi í safninu og geta þá gestir safnsins hlustað á plötur hvort sem er hljómlist, leikrit, sögur eða ljóðalestur. Situr þá fólk með hlustunartæki í sætum sínum og að sögn Kristínar mun heyrnarskert fólk einnig geta notið þessarar þjónustu. Verður það í nánustu framtíð sem þessu verður hrint í framkvæmd og er verið að leggja grunninn að hljóðsafni líka. Meðal annara nýmæla verða sögustundir fyrir börn einu sinni í viku ' og rithöfundar munu koma til með að kynna verk stn í bókasafninu. Hulda Jakobsdóttir opnaði safnið með þvi að fá fyrstu bókina að láni. og tekur hér við henni af Hrafni Harðarsyni forstöðumanni bókasafnsins. T&ogsT' L)ósm. Mbl. Kristján Árnason. Arekstur þriggja bila varð á Miklubraut, við Kringlumýrarbraut, laust fyrir klukkan 13 í gær. Voru bilarnir á leið í austur, og voru aí gerðunum Pontiac, Mazda og Daihatsu. ók Pontiac-billinn aftan á Mazda bílinn sem síðan skall á Daihatsuinum, en kona úr þeim bil var flutt á slysadeild með eymsli í hálsi. Ol

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.