Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — umsjóii: SIGHVATUR BLÖNDAHL Svíþjóðarfréttir: Þjóðarframleiðsla minnkaði um 1% fyrstu sex mánuðina Verðmæti útflutnings Svía á þessu ári er áætlað í krin^um 142,3 milljarðar sænskra króna, eða sem næst 203 milljörðum íslenzkra verðmætaaukning frá árinu Sænsk iftnfyrirtæki gera á þessu ári ráð fyrir liðlega 8% aukningu miðað við árið á undan og á fyrri helmingi næsta árs gera þau ráð. fyrir um 7% aukningu. Verðmæti innflutnings Svía á þessu ári er áætlað að verði í kringum 142,4 milljarðar sænskra króna, eða sem næst 203,2 milljörðum íslenzkra króna. Vöruskiptajöfnuður Svía verður þá, ef að líkum lætur, óhagstæður um 100 milljónir sænskra króna. króna. Það er um 9% á undan. flutningi svartolíu og hreinsaðr- ar olíu til Svíþjóðar fyrstu sex mánuði ársins, eða um nærri 20% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þjóðarframleiðsla minnkar Þjóðarframleiðsla Svía minnk- aði um 1% á fyrstu sex mánuðum ársins, en á sama tíma í fyrra jókst hún um 1,5%. Um 55,3% veltuaukning í smásöluverzlun árið 1980 ATIIUGUN á veltutölum sam- kvæmt söluskattsframtölum árið 1979 og 1980. og sem hefur vcrið höfð til hliðsjónar við gerð áætl- unar 1980. leiðir í Ijós. að velta smásöluverzlunar hafi i hrild aukizt um 55.3% á árinu 1980. Á sama tíma jókst velta heildverzl- unar án olíuverzlunar um 59%. Þrssar upplýsingar koma fram í atvinnuvegaskýrslu Þjóðhags- stofnunar um verzlun sem nýlega kom út. — Veltubreytingar þessar benda ekki til þess, að selt magn í verzlunum í heild hafi aukizt á árinu 1980, en þó nokkur munur er á veltubreytingum eftir greinum. Þannig virðist vera meiri veltu- aukning í byggingavöruverzlun en í annarri heildverzlun og í smá- sölu er mest veltuaukning í sölu- turnaverzlun, í fiskverzlun, blómaverzlun, bóka- og ritfanga- verzlun og í lyfjaverzlun. Hins vegar hefur velta í fata- verzlun og verzlunum er selja búsáhöld og heimilistæki aukizt minna að meðaltali en í smásöl- unni. Að öðru jöfnu gefa þessar veltu- breytingar vísbendingar um þróun afkomu í verzluninni þar sem aukning veltu umfram verðhækk- anir ætti að leiða til batnandi afkomu, en samdráttur í' veltu á sama hátt bendir til versnandi afkomu. En þá er gert ráð fyrir óbreyttri álagningu. Ilækkandi neytendaverð Atvinnuvegaskýrsla Þjóðhagsstofnunar um verzlun 1977—1978: Hagur verzlunar lakari á árinu tvö árin þar á undan Samkvæmt upplýsingum sænsku hagstofunnar hækkaði neytendaverð í landinu á fyrstu sex mánuðum þessa árs um liðlega 6,3%. Til samanburðar má geta þess að sambærileg tala á síðasta ári var um 5,6%. Hagstofan gerir ráð fyrir svip- aðri hækkun neytendaverðs á seinni helmingi þessa árs. Minnkandi hílasala Á fyrrihluta þessa árs voru skráðar alls 95,235 bílar í Sví- þjóð, en á sama tíma í fyrra voru skráðir 98,622 bílar. Þetta er liðlega 3% fækkun milli áranna. Á fyrri helming ársins var langmest selt af Volvo 240-lín- unni eða liðlega 20 þúsund bílar. Næstir í röðinni voru SAAB 900 bílar, en af þeim voru seldir liðlega 9.300 bílar. Minnkandi olíu- innflutningur Mikill samdráttur varð í inn- 1979, en Ilagur verzlunar virðist hafa verið íakari árið 1979, en árin tvö á undan, sem skýrist að nokkru leyti af lægri meðalálagningu og einnig þvi að samkvæmt upplýs- ingum um verzlunarveltu hefur ekki orðið aukning á sölu um- fram verðbreytingar, segir m.a. i nýútkominni atvinnuvegaskýrslu Þjóðhagsstofnunar um verzlun 1977-1978. — Leyfilegri hámarksálagningu var breytt í apríl 1979 í þá veru, að einfalda og sameina álagningar- flokka og bæta hag verzlunarinn- ar, einkum smásöluverslunar, sem hefur á undanförnum árum búið við lakari afkomu, en aðrar grein- ar verzlunar. Skýrist m.a. með lægri meðalálagningu Hreinn hagnaður sem hlutfall af tekjum hefur lækkað árin 1979 og 1980 í öllum greinum heild- verzlunar og einnig í smásölu samanlagt. Hagur einstakra greina smásölu og heildsölu er þó nokkuð misjafn, ýmist betri eða verri en meðalaf- koman, enda greinarnar mismun- andi vel í stakk búnar til að mæta lægri meðalálagningu. Ýmsar greinar verzlunar búa auk þess við rúm verðlagsákvæði og má ætla að þær séu betur staddar en aðrar. Má þar nefna lyfjaheildverzlun, véla-, varahluta-, og veiðafæra- verzlun fyrir sjávarútveginn og greinar, sem að mestu eru undan- þegnar verðlagsákvæðum, svo sem verzlun með gleraugu, úr, gull, silfur, leikföng og filmur. Þó þessar greinar séu ekki nema að litlu leyti háðar verðlagsákvæð- um, munu þær þó ekki geta breytt álagningu sinni að vild vegna verðstöðvunarlaganna, en þær munu þó að öðru jöfnu búa við hærri meðalálagningu, en aðrar greinar. Líklegt má telja, að þær greinar sem eru undir verðlagsákvæðum, t.d. matvöruverzlun, nýlenduvöru- verzlun, búsáhaldaverzlun o.fl., hafi yfirleitt búið við lakari af- komu en að meðaltali árið 1979, en í áætlunum yfir hag verzlunar árin 1979 og 1980 hefur ekki verið athugað sérstaklega afkoma ein- stakra undirgreina. Áætlanir um hag verzlunar á árinu 1980 benda ekki til þess, að afkoma hafi batnað frá árinu á undan. Meðalálagning bæði í smá- sölu og heildsölu hefur þó farið hækkandi og er árið 1980 svipuð og hún var að meðaltali árið 1978. Litlar breytingar á starfsemi Stjórnunarfélagsins í vetur: Verðum hins vegar með nýjungar eins og áður segir Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri _ST\RFSEMI félagsins verður með nokkuð svipuðu sniði og hún var á síðasta vetri.“ sagði Þórður Svcrrisson. framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands. í sam- tali við Mhl.. er hann var inntur eftir vetrarstarfi félagsins. sem nú er nýhafið. — Það verður ekki um teljandi fjölgun námskeiða að ræða í vetur og er það einfaldlega vegna þess, að húsnæðið gefur ekki möguleika á því. Hins vegar verðum við með ýmsar nýjungar nú eins og endra nær. Við byrjuðum vetrarstarfið á nýju námskeiði um núllgrunns- áætlanir, en það var fengið frá ameríska stjórnunarfélaginu. Af nýjungum má nefna, að í b.vrjun október verðum við með námsstefnu og sýningu í sambandi við skrifstofutækni framtíðarinn- ar. Námsstefnan verður 1. októ- ber, en sýningin mun síðan standa yfir til 5. október. Um miðjan október verðum við með nýtt námskeið, sem fjalla mun um stjórnun og starfsmanna- mál. Það verður haldið dagana 14.—15. október. Það er fengið erlendis frá. Við ætlum í október, að halda námskeið fyrir leiðbeinendur til að samhæfa hlutina. Þá get ég nefnt danskt námskeið, sem notið hefur mikilla vinsælda erlendis, en það nefnist Time Manager. Það verður haldið í lok nóvembermán- aðar. Þá má nefna námskeið eins og tölvur og noktún þeirra, skrif- stofuhald og skrifstofuhagræðing, afgreiðslu og þjónustustörf, mót- un starfsferils og breytingar í starfi, tilboðsgerð í málmiðnaði, sem haldið er í samráði við Samband málm- og skipasmiðja, gæðastýringu í frystihúsum og sölu á erlendum mörkuðum. Þá má að síðustu nefna spástefnu um þróun efnahagsmála 1982, en slík spástefna var haidin í fyrsta sinn á síðasta ári og þótti takast vel,“ sagði Þórður Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Stjórnunarfélags- ins. — Þess má geta, að enn hefur ekki verið gengið frá dagskránni seinnihluta vetrar. Viðræðum Arnarflugs og íscargo haldið áfram Fyrr í sumar fóru fram viðræður milli fulltrúa Arnarflugs og Iscargo um hugsanlega samvinnu félaganna, eða samruna. Þær viðræður báru ekki árangur, en hafa nú verið teknar upp að nýju. í þeim viðræðum, sem hafnar eru, hefur verið rætt um báða möguleikana, sem að framan greinir, þ.e. ákveðið samstarf, eða hugsanlega yfirtöku Arnarflugs á Iscargo. Samkvæmt upplýsingum Mbl., eru þessar viðræður þó á algeru byrjunarstigi og ekki séð fyrir endann á þeim. Þá hefur því verið haldið fram í fjölmiðlum, að þessar viðræður séu að undirlagi Steingríms Hermannssonar, samgönguráðherra, en svo mun ekki vera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.