Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLÁÐÍb!'í>RIÐJtlÓ'ÁfeítLK22. SEPTEMBER 1981 17 IlallKrimur Ilauksson, 2. stýri- Ilallur IlelKason. 3. vélstjóri. maAur. Steinar HelKason, 2. vélstjóri. ' Theodór Ilansen. háseti. RN.I..L wm Símamynd AP. Maurice Hutchens, skipstjóri björKunarbátsins, annar frá hæKri i aftari röð, ásamt áhöfn sinni. „Ein erfiðasta björgun sem ég hef tekið þátt í“ „Þetta var með erfiðari björg- unum, sem ég hef lent í og það mátti ekki muna miklu að illa færi. Björgunarbáturinn okkar rakst tvisvar sinnum utan í Tungufoss þegar við renndum að skipinu í því skyni að ná skip- verjum og skemmdist hann nokkuð. Þá er ekki víst að við hefðum getað bjargað öllum skipverjunum, ef björgunarþyrl- an frá RAF hefði ekki notað lendingarljósin og lýst upp svæðið, en auðvitað er erfitt að fullyrða neitt um slíkt,“ sagði Maurice Hutchens, skipstjórinn á 12 tonna björgunarbáti frá Sennen á Cornwall í samtali við Morgunblaðið í gær, en Maurice og félagar hans björguðu 7 mönnum af Tungufossi á laugar- dag. „Það var um kl. 19.30 á laugardagskvöld, sem við vorum ræstir út,“ sagði Hutchens, sem stjórnað hefur björgunarbátum í 24 ár, sem sjálfboðaliði. „Tungu- foss var i um það bil 4,5 sjómílna fjarlægð frá Sennen eða 3,5 mílur út frá Lands End. Þegar við lögðum af stað var veður hið versta og ölduhæðin allt að 6 metrar. Það tók okkur um 40 mínútur að komast að Tungu- fossi og hallaði skipið mikið er að var komið. Ahöfnin stóð aftast á skipinu stjórnborðsmeg- in, en björgunarþyrlan sem kom 5 mínútum á undan okkur, var þegar búin að bjarga 2 mönnum. Þegar við komum að skipinu voru þrír menn fyrir í gúmmí- björgunarbáti og náðum við þeim um borð strax, þá ætluðu tveir menn að stökkva um borð í gúmmíbjörgunarbátinn, en þeir misstu af bátnum og lentu í sjónum. Þarna komu lend- ingarljós þyrlunnar að góðu gagni, þvi við sáum strax hvar mennirnir voru í sjónum og vorum búnir að ná þeim um borð eftir 2—3 mínútur. Þegar því var — segir skip- stjóri bátsins sem bjargaði 7 skipverjum af Tungufossi lokið reyndi ég að renna bátnum upp að skuti skipsins til að ná mönnum sem þar voru, það gekk illa og varð ég frá að hverfa nokkrum sinnum, tvisvar slóst báturinn utan í skipið og skemmdist nokkuð við það. Að lokum tókst mér að sæta góðu lagi og stukku þá tveir menn um borð. Þyrlan hífði síðan þá tvo menn sem eftir voru um borð og var annar þeirra skipstjórinn. Mér taldist til að Tungufoss hefði sokkið 4—5 mínútum eftir að síðasti maður fór frá borði," sagði Hutchens. Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af Nicholas Houghton, flugmanni þyrlunnar í gær, en í samtali við Reuters-fréttastof- una í fyrradag, segir hann, að skipstjóri björgunarbátsins sé hetja. Það hafi verið aðdáunar- vert hvernig hann hefði stjórnað bátnum við þessar erfiðu að- stæður. „Reyndar ættu allir skipverjar björgunarbátsins að fá sérstaka viðurkenningu fyrir þetta afrek," segir Houghton, þyrluflugmaður. Morgunblaðið spurði Hutch- ens skipstjóra, hvort hann væri samþykkur orðum þryluflug- mannsins. „Ef hann telur mig og mína áhöfn hetjur, þá er hann það ekki síður. Hann hélt þyrl- unni kyrri í loftinu í 12 vindstig- um og lýsti upp allt svæðið fyrir okkur á sama tíma og hann þurfti líka að hugsa um að verið var að hífa menn um borð í þyrluna frá Tungufossi. Já, það eru menn eins og Houghton þyrluflugmaður, sem eiga orður skilið," sagði Hutchens. Þá sagði hann að lokum að hann hefði tekið þátt í björgunaraðgerðun- um sumarið 1979 þegar mikill fjöldi skúta, sem voru í keppni frá Suður-írlandi til Southamp- ton, áttu í erfiðleikum. Veðrið var mjög vont þá, jafnvel verra en á laugardaginn, en þá gátum við athafnað okkur í dagsbirtu, en á laugardaginn var það myrkrið, sem er alltaf hættu- legra,“ sagði hann að lokum. Sea KinK, björgunarþyrla frá brezka flughernum. Þyrla sem þessi bjargaði þremur mönnum af Tungufossi, auk þess sem hún lýsti skipið upp, þannig að bjorKunarbáturinn úr landi ætti auðveldara með að athafna sig. MS Tungufoss Tungufoss tryggður fyrir 1,2 millj. dollara MORGUNHLAÐINll var tjáð í K»“r að Tungufoss hefði verið tryggður fyrir 1.2 millj. dollara eða 8.7 rnill. kr. ok ennfremur að EimskipafélaKÍð va'ri þegar byrj- að að leita að heppilegu skipi í stað Tungufoss. en skipinu var breytt sl. vor sérstaklega til flutninKa á kísiljárni. Þegar Tungufoss sökk á laugar- dagskvöld var skipið á leið frá Avonmouth í Englandi til Le Havre í Frakklandi með um 1900 tonn af lausu hveiti. Skipið hafði verið leigt í þessa einu ferð, og eftir að hafa losað hveitið í Le Havre átti skipið að hefja stór- flutninga milli Islands og Evrópu- hafna, en fram til þessa hefur það einkum sinnt slíkum verkefnum. Tungufoss var byggður í Fred- rikshavn í Danmörku árið 1973, en ke.vptur til Islands í júlí 1974. Hann var 2100 DWT að stærð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.